Tíminn - 15.12.1965, Page 2

Tíminn - 15.12.1965, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 15. desember 1965 TB8VBINN Ráðherranefnd Evrópuráðsins hélt fundi í París s. I. föstudag og laugardag. Emil Jónsson utanríkisráðherra sdtti fundina ásamt Pétri Eggerz ambassador og Nfels P. Sigurðssynl deildarstióra. Myndin er tekin í funda. hléi s. I. föstudag, og sýnir þá Emil Jónsson og Wilfried Gredler-Oxenbauer sendiherra Austurríkis hjá Evrópu- ráðinu ræða við Péfur Eggerz ambassador. STJÓRNIN BER ÁBYRGÐ Á Þ YRILSHNEYKSUNU Stjórnarblöðin beita útúrsnúningum til varnar hneykslinu Handbók bygginga- manna er komin át Upplýsingar þær, sem Tíminnl birti á laugardaginn og fram komu i í ræðu Helga Bergs við 2. umræðu i fjárlaganna um söluna á olíuskip inu Þyrli hafa vakið almenna at- hygli. Alþýðublaðið á sunnudag og Morgunblaðið í gær reyna að klóra í bakkann og réttlæta þetta hneyksli. Morgunblaðið telur, að hér sé nm að ræða árás á Einar Guðfinns son og reynir með því að draga athyglina frá þeirri staðreynd, að það er ríkisstjómin og hún ein, sem ber ábyrgð á málinu. Stað- reyndir málsins eru þær að ríkis stjórain ákveður að Skipaútgerð ríkisins forspurðri ,að rífa af henni eina skipið, sem hún hefur rekið með tekiuafgangi, sem hef- ur vegið svolítið á móti þeim stór fellda halla, sem hefur verið á rekstri hinna skipanna og selja það fyrir 5 miUjónir króna. Hafði þó nýlega farið fram viðgerð á skipinu fyrir 2% milljón króna og varahlutabirgðir fyrir nærri eina miUjón króna fylgdu með í kaupuuum. Þegar þetta gerist eru rekstrarhorfur skipsins góðar vegna vaxandi olíu- og lýsisflutn- inga vegna mikilla sfldveiða. Hvaða r■ ■ nauðsyn rak þá til að selja skip ið? Það kemur fr.am í Mbl. að skip ið var ekki selt Einari Guðfinns syni sjálfum, heldur hlutafélaginu Dagstjömunni, en í því félagi eiga fyrirtæki Einars og sona hans tvo þriðju hluta hlutafjárins. Snertir það auðvitað ekki kiarna málsins. Með rangri tilvitnun í Tímann reynir Mbl. að láta líta svo út, sem því hafi verið haldið fram, að eðlilegt söluverð skipsins hafi verið 25 millj. kr. Þetta er auðvitað ckki rétt. Nóg er nú samt. Tíminn upplýsti að endurkaupsverð skips ins hafi verið metið 25 millj. kr. Það er alkunna að þegar metið er til endurkaupsverðs er það metið, hvað nýbyggingakostnaður hins metna sé á gildandi verðlagi. Kjarni þessa máls er sá, að með sölunnj á Þyrli hefur ríkisstjórnin tekið af Skipaútgerðinni það skip hennar, sem beztum fiárhaglegum árangri hefur skilað. Þetta er lið ur í þeirri ætlan ríkisstjórnarinn ar að Iáta Skipaútgerðina veslast upp í stað þess að byggja upp á ný þá strandferðaþjónustu, sem vanrækt hefur verið um árabil með þeim árangri að halli henn- ar nemur nú hátt á fiórða mUIjóna tug og þjónustan við strendur fer versnandi. Mál þetta er nánar rætt á bls. 8 í blaðinu í dag. í SKJÓLI NÆiUR HZ-Reykjavík, laugardag. Út er komin bók er ber heítið í SKJÓLI NÆTUR eftir Mary Stewart. Það er Skálholt h. f. sem sér um útgáfuna. Saga þessi, sem á frummálinu heitir Nine coaches waiting er í þýðingu Magnúsar Torfa Ólafssonar. Ung brezk kona ræður sig sem heimiliskennara á franskt óðals- setur í eígu munaðarlauss drengs- Stúlkan leynir frönskukunnáttu sinni, en kemst af þeim sökum brátt á snoðir um, að hjónin, sem annast rekstur óðalssetursins og eru nánir ættingjar drengsins, brugga honum banaráð og ætla að láta grun falla á hana. Stúlkan berst nú örvæntingarfullri bar- áttu fyrir lífi drengsins og ást sinni, því að allar horfur eru á, að maðurinn, sem hún elskar, eigi Þátt í launráðum hjónanna. . . . Bókin sem alls er 316 blaðsíður að stærð, skiptist í 21 kafla. MB-Reykjavík, föstudag. Út er komin Handbók bygginga manna á vegum Sambands bygg- ingamanna, og er þetta í fyrsta sinn sem sú bók er gefin út, en væntanlega ekki hið síðasta. Er í henni að finna fjölmargar upp- lýsingar um hin ólíklegustu mál efni, sem menn Þurfa að vita deilí á í daglega lífinu, og einnig um ýmis félagsmál iðnaðarmanna og launþega yfirleitt. Auk þess er í bókinni almajizk fyrir næsta ár í dagbókarforri »g ítarleg rit- gerð um meðferð á viði. f formála segir m. a.: „Bókinni er ætlað að vera í senn fræðandi uppsláttarbók og handhæg vasa- og minnisbók með almanaki. Henni er ætlað, að einhverju leyti, að bæta úr þeim skorti sem verið hefur á handhægum upplýsingum um faglegt og félagslegt efni. Ætlunin er að bókin komi út ár- lega, fyrir hver áramót, með end- urbættu efni, þannig að í hverri útgáfu komi nýtt efni um ýmsa þætti byggingariðnaðarins, með svipuðu sniði og kaflinn um með ferð á tré í þessari bók. Ritnefnd bókarinnar skipa, fyr ir hönd Sambands bygginga- manna, þeir Þórður Gíslason, Kristján Guðlaugsson og Bolli A. Ólafsson. RÓSARÍMUR GE-Reykjavík, mánudag. Rósarímur heitir nokkuð stórt rímnakver eftir Jón Rafnsson, og hefur nú nýlega verið gefið út að tilhlutan bókaútgáfunnar Asor. Kverið telur sex rímur misjafn lega langar og auk þess eru í því margar teikningar eftír Kjartan Guðjónsson. Höfundur segir í formála, að rímur þessar séu til orðnar á löngum tíma og í áföng um og hafi með vissum hætti verið sameiginlegt gamanmál hans sjálfs og Rósa, eða Rósinkranz fvarssonar, en hann lézt í sept- ember síðastliðinn. Rósinkranz var míkill sósíalisti og baráttumaður, og á 85 ára afmæli sínu, skömmu áður en hann lézt sendi hann mál- gagni sósíalismans sparifé sitt að gjöf. Höfundur getur þess og í formála. að hugsanlegur hagnaður af kveri þessu muni renna i sama sjóð til þess að heiðra minningu hins aldna baráttumanns. Kverið er 96 blaðsíður, prentað í Hóla- prenti. Bókin er til sölu í bóka- og rit fangaverzlunum og auk þess á skrifstofum sambandsfélaganna. Nánari upplýsingar veitir skrif stofa Sambands byggingamanna, Laugavegi 18, sími 22856“. Gætið varúðar í 'imferðinni HZ-Reykiavík, þriðjudag. Á fundi með Pétri Sveinbjöms syni, blaðafulltrúa uinferðarnefnd ar, Sverri Guðmundssyni yfir- varðstjóra og Óskari Ólafssyni yf irvarðstjóra í dag var rætt um jólaumferðina, sem er vaxandi vandamál. Öngþveiti skapast auðveldlega í umferðinni, þar sem daglegur fjöldi ökutækja er aka um Reykja vík er um jólin nálægt 20 þús- und, og ónæg bílastæði eru fyrir hendi. Því hafa verið teknar upp tímatakmarkanir á mörgum göt- um t. d. Hverfisgötu, Snorrabraut, Barónsstíg, Frakkastíg, Garða- stræti o. fl. og eru bifreiðastöður takmarkaðar við % klst. Stöðu mælaskylda fylgir lokunartíma verzlana. Bílaeigendur eru vinsamlegast beðnír um að leggja bílum sín- um á bjfreiðastæðum og götum utan við hjarta miðborgarinnar. Á fimm stærstu bílastæðunum eru gæzlumenn er greiða fyrir umferð á þeim. Þeir bílstjórar sem erindi eiga í margar verzlanir eru beðn ír um að ganga frá bílnum og fara gangandi í verzlanirnar í stað þess að aka milli búða í von um að fá þar bifreiðastæði. Öll umferð um Laugaveg er óæskileg, hentugra væri að aka Skúlagötu eða greiðfærar götur til þess að minnka álagið á Lauga veg, þar sem umferð um hann er mjög hæg. Sem dæmi um Þetta má nefna að á laugardagínn var tók ferð bíls frá Snorrabraut til Lækjargötu eftir Laugaveginum 20 mínútur. Einstefnuakstur hefur verið tek inn upp á Vatnsstíg frá Lauga vegi til norðurs og á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lindargötu og auk þess hefur hægri beygja ver ið bönnuð á ýmsum götum. Bflstiónar og fótgangandi sýnið tillitssemi og kurteisi í umferð- inni. Vinnum öll að þvi að allir geti átt gleðilegar jólastundir. SKOZK SLATURHUS FRAMLEIÐA MJÖL ÚR BEIN- OG BLÓÐÚRGANGI ÍSIfNDINGAR i LANDBÍINADARKVNNISFðR TU BRETLANDS HZ—Reykjavík, þriðjudag. Ilinn 4. desember síðastlðinn hélt 17 nianna hópur til Bret lands á vegum Búnaðarfélags íslands og í samráð;' við SÍS. Fararstjóri var Árni G. Péturs son ráðunautur Búnaðarfélags íslands. f fyrradag, 12 des. kom hópurinn heim. Við náðum tali af Þórarni Sigurjónssyni, bú stjóra tilraunabúsins á Laugar dælum en hann var einn þátt- takenda og raktj hann ferðasög una í stórum dráttum — Við héldum utan laugar- daginn 4. des. með flugvél F.í. og átti hún að lenda í Glasg. en sökum slæmra veðurskil- yrða neyddist hún til þess að lenda í Prestvík. Þaðan héldum við til Glasgow í bíl og héld- um förinni áfram til London flugleiðis. Þar á flugvellinum tók á móti okkur Hjalti Páls- son. forstjóri Véladeildar SÍS og fylgdi okkur til Regent hót- elsins þar sem við bjuggum næstu daga. Hjalti Pálsson sá um undirbúning fararinnar og skipulagði hana með mestu prýði og erum við honum sér- staklega þakklátir fyrir það, hversu vel ferðalagið tókst. — Á sunnudaginn fór Hjalti Pálsson með okkur i.m borg- ina og sýndi okkur helztu stað- ina sem markverðir þykja m. a. þinghúsið. Það var anzi fróð legt að sjá milljónaborg með öllum sínum glæsibrag. Að hringferðinni um borgina lok- inni drukkum við kaffi í boði Intemational Harvester, og síðan létum við fyrir berast í rólegheitum það sem eftir var dagsins. — Daginn eftir skoðuðum við Smithfield sýninguna, sem er landbúnaðar- og vélasýning, í boði International Harvester. Rúmlega 400 fyrirtæki áttu þarna vélar af öllum gerðum og stærðum og gripina, sem voru 1800, fengum við að sjá seinna þegar búið var að slátra þeim. Af þessum afurðum var jólakjötið valið. — Á þriðjudaginn var hald- ið á sýninguna að nýju þar sem við komumst ekki fyrir að skoða nema hluta hennar dag- inn áðiir. — Á miðvikudaginn skiptist hópurinn í tvo flokka, nokkr- ir okkar fóru í boði SÍS í London að skoða Smithfield kjötmarkaðinn, en frá honum er selt vikulega um 7000 tonn Framhald á 14. síðu. I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.