Tíminn - 15.12.1965, Side 7

Tíminn - 15.12.1965, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 15. desember 1965 ÞINGFRETTIR TÍMINN ÞINGFRETTIR Þörf umbóta í hafnarmálum Hér á eftir fer kafli úr ræðu Gísla Guðmundssonar við 3. um ræðu fjárlagafrumvarpsins. Ég ætla ekki að ræða um þá lækkun almennt, sem fyrirhuguð er á framlögum tilNýmiss konar framkvæmda víða um land, en mér þykir ástæða til þess sérstak lega að fara nokkrum orðum um einn af meginþáttum þessara framkvæmda, þ.e.a.s. hafna- og lendingarbótagerð, sem ríkið hef- ur stutt á mörgum stöðum, hvern ig ástandið er nú í þeim málum og hvað framundan virðist vera. Samkvæmt lögum um hafnar- gerðir og lendingarbætur frá 1946 og breytingum, sem síðar hafa ver ið gerðar á þeim lögum, er svo fyrir mælt, að rikið greiði fjár- framlög og veiti ríkisábyrgð vegna hafnarmannvirkja á 113 nafngreindum stöðum. Á 78 stöðum er gert ráð fyrir hafnargerð, en á 35 stöðum er gert ráð fyrir lendingarbótum. í skýrslu vitamálastjóra eru taldir upp nálega 100 slíkir staðir, sem fé hefur einhvem tíma verið veitt til, en í reyndinni er unnið að mannvirkjum öðru hverju á 60-70 stöðum. Segja má, að mannvirkja gerð á rúmlega 60 stöðum, sé sú alkunna hafnargerð, sem er í gangi. Þær hafnir, tvær eða jafn- vel þrjár, sem farið er með sam- kvæmt ákvæðum landshafnarlaga, eru þáttur út af fyrir sig. Um aðrar hafnir og flestar lendingar- bætur, sem nú er unnið að, eða hefur verið unnið að nýlega, er lagareglan sú, að ríkissjóði ber að leggja fram 40% framkvæmda kostnaðar, en hlutaðeigandi hafn- arsjóði eða hreppsnefndarfélagi 60%. Gert er ráð fyrir, að svo geti farið, að allt heimaframlagið sé fengið að láni, enda hefur það víða verið gert. Heimilt er að láta ríkissjóð ábyrgjast greiðslur lána allt að 60% hafnar- gerða. Samkvæmt skýrslu hafnar- málastjóra hefur á áxinu 1965 verið unnið að hinni almennu hafnargerð fyrir nálega 105 millj. kr. á 36 stöðum. Það sem ríkis- sjóði bar að greiða af þessum kostnaði voru rúmlega 40 millj. kr. Mikið vantaði á, að ríkisfram- lög þau, er veitt voru á árinu, nægðu til að greiða þessá upp- hæð. Þar að auki skuldaði ríkis- sjóður vangreitt framlag frá fyrra ári. Skuldahafi ríkissjóðs þ. e. s. samandregnar skuldir við hafnar- sjóði, sem flestir eru sjálfir skuld- ugir og févana nú um áramótin, svara sem næst til þess að ríkið hefði ekkert greitt af sínum hluta til hafnanna á þessu ári. Fyrir árið 1966 hefur hafnar- málastjóri gert áætlun um almenn ar hafnarframkvæmdir fyrir ná- lega 196 millj. kr. Þó er haft eft ir honum í þingskjali, að mjög verulega muni verða dregið úr þess ari áætlun, og kostnaðurinn muni að líkindum verða um 12 milij. kr. hærri en í fyrra. Sé miðað við vaxandi dýrtíð verður varla um veruleg auknin'g framkvæmda á næsta ári. Hluti ríkissjóðs af þeirri upphæð er 48 millj. Gert er ráð fyrir, að í lok fjárlagaársins 1966. verði óbreytt ríkisframlag komið upp í 60 millj. og meira ef fram kvæmdaáætlun hafnarmálastjóra verður lækkuð minna en hann tel ur líkur benda til. Þessar tölur sýna glögglega, að fjárveitingar til hafnarmála hafa verið, og eru enn, allt of lágar. En hér með er þó ekki öll sagan sögð. Ég held það sé almennt álit þeirra, sem hafa kynnt sér þessi mál, að nauðsyn ber til, að ríklssjóður greiði eftir leiðis meira en 40% af hafnar^ gerðarkostnaðinum við hina al- Gísli GuSmundsson mennu hafnargerð. Ég fyrir mitt leyti get ekki fundið rök fyrir því, að þjóðfélagið kosti einstaka hafn ir að öllu leyti, en að allur þorri hafnarsjóðanna, eða sveitarfélag- anna, eigi að leggja fram 60%. Ef slíku heldur fram mun þeirri stefnu aukast fylgi, að ríkið byggi hafnirnar yfirleitt á sinn kostnað á sama hátt og þjóðvegi. Við Framsóknarmenn höfum 'hér á Alþingi undanfarið ár lagt til, að kostnaðarhlutur ríkisins, að því er varðar mest aðkallandi hafn armannvirki, verði hækkaður úr 40% upp í 65%. Það er í samræmi við endurskoðun á hafnarlögum, sem fram fór fyrir nokkrum ár- um að tilhlutan Alþingis. Ef ríkis- framlagið væri þannig hækkað, yrði minni hætta á því, að ríkis- sjóður þurfi að greiða vexti og afborganir af ríkisábyrgðarlánum til hafnarframkvæmda. Það er ólíkt viðkunnanlegri og heppilegri aðferð, að peningarnir komi þann- ig sem hreint framlag. Svo að segja allar hafnir hér á fslandi eru, að meira eða minna leyti fiskihafnir, sumar nær eingöngu. Undanfarin ár hefur verið uppgripaafli hér við land, og er enn á þessu ári. í slíku einmuna góðæri til sjáv- arins sýnist mér tímabært, að rík- isstjórn og Alþingi horfist í augu við þau verkefni, sem aðkallandi eru í hafnarmálum, og láti það ekki reka á reiðanum, eins og nú er gert. Þegar verið er að lækka ríkisframlög til hafnarframkvæmda í staðinn fyrir að hækka þau, eins og þyrfti að gera, finnst mér illa horfa, og meira en það, hjá hinni miklu fiskveiðiþjóð, íslendingum. Það verða menn að gera sér ljóst, að það eru hafnarstaðirnir við firði og víkur þessa lands, sem eru hinir náttúrulegu byggðakjarn ar, að minnsta kosti í mifclum hlut- um landsins. Frumskilyrði þess, að þessir byggðakjarnar geti þróazt, er að viðunandi hafnarmannvirkj- um sé lokið sem allra fyrst. Ég segi viðunandi mannvirkjum, og á þá auðvitað við tímabundið mat í þeim efnum. Ég hef m. a. gefið því gætur, að í míriu kjördæmi munu sveitarfélög eða hafnarsjóð- ir eiga inní um næstu áramót, rúm lega 7 millj. kr. í ógreiddum rík isframlögum til hafnarmannvirkja, sem þegar hafa verið gerð á þessum stöðum. Eg veit ekki með neínni vissu, hve mikið verður um hafnarfram- kvæmdir á þessu svæði á næsta ári, en svo mikið er víst, að hin- ar lækkuðu fjárveitingar til þess ara hafna, eru mjög fjarri því að vera í samræmi við, jafnvel lægstu áætlanir, sem til greina virðast koma. Ég vil vekja athygli á þvi, að úthlutun á rífcisframlagi til hafn- anna virðist í vaxandi mæli verá að dragast úr höndum Alþingis yfir í hendur ráðherra. Á árinu 1965 er úthlutað á fjárlögum að frádregnum 20% 15 millj. 680 þús. kr. En á þessu sama ári hefur ráðherra haft í sínum höndum að úthluta úr hafnarbótasjóði og með sérstakri fjárveitingu nálega 11 millj. kr. Þegar svo er komið er varla hægt að segja, að Alþingi ráði því lengur, hvað hver ein- stök höfn fær úr ríkissjóði ár hvert til framkvæmda sinna, held- ur hafi hér dregizt í hendur rík- isstjórnarinnar vald, sem Alþingi hefur haft. Sú sama þróun hefur Framhald á 14. síðu. Á ÞINGPALLI •fc Fjárlagafrumvarpið var afgreitt sem lög í gær. Grciðsluafgangur hefur minnkað í meðfönim þingsins í eina til tvær milljónir, en var rúmar tuttugu og fimm, þegar Magnús Jónsson lagði frumvarpið fram í upphafi þings. Allar breytingartillögur Alþýðubandalagsins voru felldar, en tillögur frá fjárveitingarnefnd lilutu biessun stjórn- arinnar. ★ í efri deid mælti Magnús Jónsson fyrir frumvarpi um tollskrá Frumvarpið miðar a'ð því að setja lagaheimild fyrir reglum um toll- frjálsan innflutning einstaklinga, sem koma frá útlöndum. Engar reglur hafa verið til um þetta og skapar það tollheimtumönnum mikil ó Þægindi. Mæltist ráðherrann til, að afgreiðslu málsins yrði hraðað. Hannibal Valdemarsson flutti í neðri deild breytingartillögu við frumvarp um húsnæðismálalöggjöfina, sem flutt er vegna sam- komulagsins við verfcalýðsfélögin. Efni tillögu Hannibals var, að lán vegna íbúðarhúsbygginga samkvæmt yfirlýsingu stiórnarinnar yrðu ekki vísitölutryggð. Ríkisstjórnin lét lið sitt fella tillöguna. Ágúst Þorvaldsson flutti breytingartillögu þess efnis, að hætt yrði við að sexfalda fasteignamatið. Einnig þessi tillaga v.ar felld. BEDFORD! ViÐ ALLRA HÆFI Kaupendur vörubíla um allan fieim völdu BEDFORD umfram alla aðra vörubíla áriff 1964. Astæðan: sérstak- ur léttleiki og lipurð í akstri, hagkvæmur rekstur og góff ending. BEDFORD hefur yfir 45% af öllum útfiutningi brezkra vörubíla. BEDFORD! er mest seldi vörubíllinn á íslandi, Finnlandi, Dan- mörku, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Belgíu og mörgum Asíu- og Afríkuríkjum. BEDFORD! er mest seldur af brezkum vörubílum i Svíþjóð, Hollandi, Sviss, Noregi, Frakklandi og Austurríki. Gjörið svo vel og leitið nánari upplýsinga. Véladeild SÍS, Armúla 3. Sími 38900

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.