Tíminn - 15.12.1965, Side 14
14
TBMflNN
MIÐVIKUDAGUR 15. desember 1965
SKOZK SLÁTURHÚS
Framhald af bls. 2
af kjöti í verzlanir og veiting-
árhús þá fimm daga vikunn-
ar sem hann er opinn. Vinnu-
brögðin eru frumstæð, allt unn
ið af mannshöndum, en samt
gengur þetta allt ákaflega fljótt
fyrir sig. Hinir í hópnum fóru
mecf Einari Þorkelssyni, for-
stjóra Þórs h.f. að skoða Ford-
Tracktor verksmiðjurnar, en
þær eru mjög stórar og ein
af þrem stærstu verksmiðjum
Ford-Traktora í heiminum. Um
kvöldið snæddum við sameig-
inlegan kvöldverð á mjög göml
um og skemmtilegum veitinga-
stað frá gömlum tíma. Undir
húsinu var kjallari sem útbú-
KONI
STILLANLEGU
HÖGGDEYFARNIR
Ábyrgð 30.000 km. akstui
eða 1 ár. — 9 ára reynsla
á Islenzkum /egum sannar
gæðin.
ERU I REYNDINNI ÓDÝR
USTU HÖGGDEYFARNIR.
SMYRILl
Laugav 170, slmi 1-22-60
Tilboð
óskast í eftirtaldar bifreiðar og vélar:
* 1. Volkswagen fólksbifreið árg. 64 (ákeyröur)
2. Chevrolet pallbifreið árg. 54
3. Ford pall-bifreið árg. ‘52
4. Chevrolet sendiferðabifreið árg. ‘53
5. Skoda station árg. ‘57
6. Ford station árg. ‘55
7. Plymouth station árg. 55
8. Volvo scnrpbifreið árg. ‘48
9. Weatherhill ámÖkstursskófla 3/4 cub. yards-
(sundurrifin)
10. 2 stk. Vibro þjöppusleðar
11. Ford major traktor árg. ‘58
Tækin verða til sýnis hjá Véiamiðstöð Reykja
ví kurborgar, Skúlatúni 1, 16. og 17. desember n.
k. frá kl. 8 árdegis.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Vonar
stræti 8, föstudaginn 17. des. kl. 16.00
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
ÞAKKARÁVÖRP
Mitt innilegasta þakklæti færi ég öllum sem heiðr-
uðu mig á sextugsafmæli mínu hinn 1. desember síðastlið
inn með gjöfum, heimsóknum og vinarkveðjum.
Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól-
Benedikt Guðlaugsson,
Víðigerði.
Eg þakka gjafir og árnaðaróskir á sexxtuxgsafmæli
mínu þann 3. þ.m.
Elías Kristjánsson.
Innilegar þakkir til þeirra, nær og fjær, sem heiðruðu
mig og glöddu með gjöfum og heillaóskum á sjötíu ára
afmæli mínu 8- desember.
Steinunn Guðmundsdóttir,
Þorgeirsstaðahlíð.
WBSSBaam
Útför
Guðrúnar Sesselju Jensdóttur
hússtjórnarkennara, B
fcr fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16 desember kl. 1,30 8}
e. h. Þeim sem vlldu mlnnast hinnar látnu er bent á Slysavarna- 2
félag íslands eSa Hrafnistu, D.A.S.
tó Vandamenn,
inn var eins og hann var á
17. öld, og var það sérstak-
lega fróðlegt að sjá hann. Eig-
andi hússins sagði sögu húss-
ins, það hafði lent í brunan-
um mikla, sem geisaði í Lon-
don 1666. Ýmsir merkir menn
hafa borðað í veitingahúsi
þessu, t. d. Ásgeir Ásgeirsscm,
forseti íslands.
— Fimmtud e ginum eyddum
við með Baldri Tryggvasyni,
forstjóra Dráttarvéla og skoð-
uðnm við Poclain skurðgröfur,
sem eru mjög fullkomnar,
vökvaknúnar og útbúnar öllum
nýtízbu græjum. Við fengum
að sjá vinnubrögð með slíkri
vél, kvikmynd af notkun þeirra
og að því loknu var okkur
boðið til kaffidrykkju. Um
kvöldið var okkur boðið á æva-
foman bar frá árinu 1106. f
upphafi var hann í Windsor
héraði en síðar var hann flutt-
ur inn í höfuðborgina. Þetta
er talið eitt enskasta hús sem
hugsaist getur. Seinna um
kvöldið fórum við svo með
flugvél til Edinborgar.
— Morguninn eftir var farið
í sláturhús í Edinborg, þar sem
280 þús. gripum er slátrað ár-
lega. Slátrun stendur yfir allt
árið og nýtt kjöt er • ætíð á
boðstólum. Það athyglisverð
asta við sláturhúsið fannst mér
vera hin góða nýting á úr-
gangsefnunum. Mjöl er gert úr
beinum og blóði og reksturs-
stjóri sláturhússins sagði, að
mjög mikill spamaður væri að
nýtingu úrgangs og það væri
ótrúlegt en satt að þessi nýt-
ing bæri uppi sláturhúsið að
miklu leyti. Yfirleitt var að-
búnaður slæmur, slátrararnir
illa klæddir en kjötið var virki-
lega fallegt. Síðar um daginn
fórum við í gegnum náskóla-
tilraunabú þar sem holdanaut
og sauðfé var ræktað. Gripirn-,
ir vom fallegir og nota þeir
svipaðar aðferðir við að fóðra
þá eins og við heima á íslandi.
— Á laugardaginn fórum
við í heimsókn á annað til-
raunabú í fylgd Sigursteins
Magnússonar, sem veitir skrif-
stofu SÍS í Edinborg forstöðu.
Hann gerði mikið fyrir okkur
í Skotlandi og um kvöldið bauð
hann okkur heim til sín.
Á sunnudaginn var haldið
heimleiðis með flugvél.
— Borguðuð þið kostnaðinn
úr eigin vasá?
— Já, ferðiii var farin á veg
um ferðaskrifstofunnar Sunnu
og lækkaði ferðakostnaðurinn
mikið við það. allar ferðir,
herbergi og morgunmatur kost
aðir um 8700 krónur, og auk
þess fengum við hina föstu
gjaldeyrisyfirfærslu, sem kom
sér vel. Við hefðum vel getað
notað 1—2 daga í viðbót, því
lítill tími var aflögu fyrir okk-
ur, sem flestir voru stirðir eða
lítt kunnugir í tungumálinu.
— Ferðin var mjög lærdóms
rík og með afbrigðum skemmti
leg, við þátttakendurnir vorum
sammála um að fleiri slíkar
ferðir að hausti til væru æski-
legar. Það er heppilegasti tím-
inn fyrir bændur að fara á
þeim tíma vegna anna heima
fyrir á öðrum árstímum.
— Sérstakar þakkir kunn-
um við þeim sem að ferða-
laginu stóðu, íyrst og fremst
Hjalta Pálssyni og Halldóri
Pálssyni búnaðarmálastjóra fyr
ir góðan undirbúning og gott
skipulag farariúnar og svo öll-
um þeim, sem veittu okkur
liðsinni úti í Bretlandi og Skot
landi. Víðsýni og skilningur
okkar hefur aukizt á landbún-
aðarmálum við þessa stuttu
utanför okkar.
FJÖNLIR
Framhald af bls. 1.
Olafsson og Roland Högni
sen. Blaðið er að sjálfsögðu
á færeysku og kemur út
einu sinni á ári. í formála
fyrsta tölublaðs segja rit-
stjórar, að tilgangur blaðs-
ins sé að vekja áhuga fær-
eyskra ungmenna á málefn
um þjóðarinnar og vekja
áhuga fólks heima fyrir á
námi stúdentanna, það eigi
að flytja Þjóðfélagsmál, vera
málgagn færeyskra stúdenta
og málsvari út á víð. f ritinu
eru og greinar um félagsmál,
listir, vísindi og önnur menn
ingarleg málefni, svo og vík
ingafundinn og sögu Fær-
eyja.
Nafnið Fjölnir bendir
greinílega í þá átt, að ritið
eigi að vera svipaðs eðlis og
Fjölnir þeirra Jónasar og
Konráðs, þótt eigi sé þess
getið í formála fyrsta tölu-
blaðs.
BJÖRGUARFÉLAGIÐ
Framhald af bls. 1.
ið fé, því í langflestum tilfellum
hefðu skipin verið aðstoðuð útí á
miðunum með því að skera nætur
úr skrúfum þeirra og lagfæra ým-
islegt smávegis, og mundu þessi
tilfelli vera um 80% allra að-
stoðartilfella. í 20% tilfella hefði
hins vegar orðið að draga skipin
til hafnar.
FRÁ ALÞINGI
Framhald af bls. 7
raunar átt sér stað á fleiri svið-
um.
Með þetta í huga sýnist mér
það eðlilegt fyrirkomulag þessara
mála, og í samræmi við það, sem
nú gerist í vegamálum, að Alþingi
afgreiði ár hvert sérstaka hafna-
áætlun þ. e. s. heildaráætlun um
hafnarframkvæmdir á fjárlagaár-
inu, þar sem ákveðin séu ríkis-
framlög og ríkisábyrgðir á hverj-
um stað á því ári, sem um er
að ræða. Enda verði þá ekki út
af því brugðið, en hafnarsjóðir
aðstoðaðir við útvegun lána sam-
kvæmt áætlun. Samtímis verður þá
á einhvern hátt að gera ráðstaf-
anir til þess, að ríkið greiði á
sérstakan hátt, með framlagi, eða
yfirtöku þær 60 millj. ríkisfram-
laga, sem sennilega verða ógreidd-
ar I lok næsta árs. Núverandi rík-
isstjórn hefur ekki haft þá for-
ystu, sem henni bar að hafa með
setningu nýrra hafnarlaö... Ég
hygg, að Alþingi geti ekki hjá því
komizt lengur að láta vanþróun
þessara mála til sin taka og koma
á þau viðunandi skipan til fram-
búðar.
FÆREYINGAR
Framhald af 16. síðu.
Þessar skrúfur eiga að auka
stýrihæfni skípsins, einkum þegar
veitt er með hringnót. Aukaskrúf
urnar sem eru af þýzkri Pleuger-
gerð, hafa 75 ha vél hvor. „Asur"
getur blátt áfram snúið sér á lengd
sinni og á auðvelt með að halda
sér frá nótinni, jafnvel móti
stormi og straumi.
Að því er bezt er vitað, er að-
eins eitt annað fiskiskip í Evrópu
með slíkan útbúnað, en það er ís-
lenzki báturinn „Höfrungur", og
hefur hann reynzt mjög vel.
„Asur“ er 425 lestir að stærð og
í reynsluför gekk hann 12V2 mílu.
Skipið er búið öllum nýtízku sigl
ingar- og fiskileitartækjum, auk
þess sem það hefur sjálfstýringu.
Þar er líka vél, sem vinnur eina
lest af fersku vatni úr sjó á sólar
hring.
í ,,Asur“ eru tvær frystigeymsl
ur, sem taka 60 rúmmetra og fiski
lestir eru kældar. Frystívélarnar
geta fryst 15 lestir af lúðu eða
hákarli á sólarhring og unnt er að
framleðia 5 lestir af flökum á
sama tíma.
„Asur“ hefur tvær stórar fiski
geymslur, 13000 ferfeta, og á síld
veiðum er unnt að frysta um 150
lestir og salta í 1000 tunnur jafn
framt.
Þó að skipið eigi aðallega "ð
stunda síldveiðar eða línuveiðar,
er ætlunin að nota það einnig
stöku sinnum til að veiða hámeri,
en góður markaður er fyrir hana
í sumum Evrópulöndum.
TOGARI TEKINN
Framhald af 16. síðu.
togarann til Reykjavíkur snemma
í fyrramálið og munu réttarhöld
í máli skipstjórans hefjast fyrir
Sakadómi Reykjavíkur klubkan tíu
í fyrramálið. Skipstjórinn á Ross
Staker er gamall kunningi Land-
helgisgæzlunnar, var tekinn að
veiðum árið 1964.
HÁSKÓLAMENNTAÐIR
Framhald af 16. síðu.
menntuðum kennurum við gagn-
fræðaskólana um land allt. Er nú
talið viðhúið að allir háskóla-
menntaðir kennarar gagnfræða-
stigsins mun,- segja sig úr Lands
sambandi framhaldsskólafeennara
og þar með úr B.S.R.B. Með því
hafa hinir háskólamenntuðu kenn
arar raunverulega engan samnings
rétt gagnvart rikinu, en þeir telja
ekki mikils í misst, þar eð Lands
samband framhaldssfeólakennara
hafi mjög litið gert til þess að
rétta hlut þeirra. Háskólamenntað
ir kennarar vilja leggja á það höf
uðáherzlu, að Bandalag hásfeóla
menntaðra manna fái fullan samn
ingsrétt fyrir hönd meðlima sinna
sem fyrst. Félag háskólameimt-
aðra kennara er aðili að Bandalagi
háskólamenntaðra manna og ef
svo fer að háskólamenntaðir kenn
arar segi sig almennt úr BSRB
er ekkert félag háskólamenntaðra
manna lengur aðil; að bandalag-
inu, nema Prestafélag íslands.
Á fundi í Félagi háskólamennt
aðra kennara. sem haldinri var
í háskólanum 5. des. síðastliðinn,
var samþykkt eftirfarandi ályktun
með atkvæðum allra félagsmaima:
Fundur í Félagi háskólamennt
aðra kennara haldinn í Háskóla
fslands 5. desember 1965 mótmæl
ir harðlega úrskurði kjaradóms
fÞá 30. nóv.\ síðastliðnum og telur
hann algerlega ófullnægjandi að
því er varðar launahækkanir . og
færslu milli launaflokka. Telur
fundurinn, að með þessum dóms
úrskurði sé verið að grafa undan
nýskipan náms í heimspekideild
Háskóla íslands, þar sem hertar
eru allmjög kröfur til B.A. prófs,
en auðsætt virðist. að þeir sem
á kennarastarf hyggja. muni ekki
sjá sér hag i að búa sig undir lífs
starf sitt með því að afla sér
menntunarv sem lítils er metin.
Augljóst er, að afleiðing þess verð
ur, að sífellt reynist erfiðara að fá
hæfa menn til kennarastarfs, en
þar með er vegiff að menntun og
uppeldi í landinu.
Félagsmenn F.H.K. halda fast
við fyrri kröfur sínar um laun
eftir menntun, en efcki skólastigum
og skora á ríkisstjóm að veita há-
skólamenntuðum kennurum þegar
í stag viðun-andi úrlausn í kjara
málum sínum.
Þar sem í ljós hefur komið, að
háskólamenntaðir menn njóta lít
ils skilnings innan- B.S.R.B., er
það krafa félagsmanna, að ríkis
stjórnin hlutist til um, að Banda
lag háskólamanna fái fulla samn-
ingsrétt.
BÓKMENNTIR
Framhald af 9. síðu.
framhaldið verður sem upphafið,
getur þetta orðið hið nýtilegasta
þjóðfræðasafn, og einmitt vegna
þess hve víða er leitað fanga, get-
ur þar geymzt sitthvað, sem á
milli verður í þeim söfnum, sem
bundin eru við ákveðin svið hins
þjóðlega fróðleiks.
AK.