Tíminn - 15.12.1965, Qupperneq 16
Færeyingar smíða fiski-
skip með tveimur þil-
förum og þrem skrúfum
Fyrir tiltftluega skömmum síðan
tók til starfa í Skálafirði í Fær-
eyjum skipasmíðastftð, er smíðar
stálskip og nefnist hún Skála-
skipasmiðja. Nýlega la>uk þar
smíði á mjög merkilegu fiskiskipi
af nýrri gerð sem hefur tvö þil-
för og þriár skrúfur. Skipið er
í eigu Færeyinga.
Þetta nýstárlega fiskiskip nefn
ist ,,Asur“ og er ætlað til línu
veíða en einnig er unnt að koma
fyrir hringnót og kraftblökk. Ólíkt
því sem gerist á flestum öðrum
fiskiskipum eru tvö þilför á ,Asur‘.
Þetta er nýbreytni, sem á að auka
nýtingu og skapa áhöfninni betra
skjól. Á flestum línuveiðurum verð
ur áhöfnin að vínna á opnu þil-
fari, oft við hinar erfiðustu að-
stæður. Á ,,Asur“ vinna sjómenn
irnir aftur á móti undir hlífðar
þilfari, og meira að segja er línan
lögð og dregín inn um sérstakt
op sem opnast og lokast sjálf-
virkt. Skipið getur þannig verið
að veiðum í verra veðri en ella,
þar eð áhöfnin er varin fyrir síó-
um.
En það sem er líka athyglisverð
ast við „Asur“ er, að skipið hefur
þrjár skrúfur. Aðalvélin er 770
ha June Munktell dieselvél. Auk
þess hefur skipið eina skrúfu á
kinnungi og aðra á stýri.
Framhald á 14. sfðu.
Háteigskirk ja vígð á sunnudag
KJ-Reykjavík, þriðjudag
Á sunnudaginn verður Há-
teigskirkja í Reykjavík vígð,
og mun biskupinn yfir íslamdi
herra Sigurbjörn Einarsson
framkvæma vígsluna. Myndina
hér til hliðar tók Ijósm. Timans
KJ og sýnir hún tvo fremri
turna hinnar reisulegu kirkju.
Háteigskirkja stendur á
hornlóð við Háteigsveg og
Nóatún. og gnæfir þar hátt yfir
með sínum fjórum turnum I-Ief
ur kirkjan verið nokkuð mörg
ár í smíðum. en Háteigssöfn
uður var stofnaður fyrir
12 árum. Halldór Jónsson ark)
, tekt teiknaði kirkjuna, en bygg
ingameistari er Þórður Jasonar
son. Allri meiriháttar vinnu
við kirkjuna verður lokið á
vígsludaginn, en stefnt hefur
verið að því að hægt væri að
messa í henni núna um jólin.
Fram til þessa hafa messur hjá
Háteigssöfnuði farið fram í
Hátíðarsal Sjómannaskólans,
og var messað þar í síðasta
sinn á sunnudaginn.
Prestar í Háteigssöfnuði eru
þeir ' séra Jón Þorvarðarson,
sem þjónað hefur þar frá upp
hafi, og séra Arngrímur Jóns
son.
Vígsluathöfnin hefst klukkan
14.00 á sunnudaginn
- - - - - t , v. .
Fulltrúaráðsfundur
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Fulltrúafundur Stéttasambands
bænda hófst í morgun klukkan
tíu og stóð fram tíl klukkan fimm,
en Þá var málum vísað til nefnd
ar sem ekki hafði lokið störfum
í kvöld er blaðið síðast frétti, og
voru því horfur á að þessi lokaði
fundur Stéttasambandsins um
landbúnaðarmálin héldi áfram á
morgun, en gert hafði verið ráð
fyrir að hann stæðí aðeins í dag.
Togari tekinn und-
an Látrabjargi
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Landhelgisgæzluflugvélin Sif
staðsetti brezka togarann Ross
Staker GY 527 5,3 sjómilur innan
fiskveiðitakmarkanna út af Látra-
bjargi í morgun. Var togarinn þá
með ólöglegan umbúnað veiðar-
færa og fisk á þilfari.
Svaraði hann ekki stöðvunar-
merkjum flugvélarinnar, og heldur
ekki þegar reynt var að hafa sam-
band við hann í gegn um talstöð,
en hélt í þess stað til hafs. Flug-
vélin fylgdi togaranum eftir, og
kallaði jafnframt á varðskipið Óð-
inn, sem kom að togaranum kl.
14.00, en hann hafði þá kastað í
Víkurál. Varðskipið kemur með
Framhald á 14. siðu.
40 háskóimenntaSir kennarar hafa
sagt sig úr aðiítiarfélagi B. S. R. B.
MB—Reykjavík, þriðjudag.
Á fundi í Félagi gagnfræðaskóla
kennara í Reykjavík í gær gerð
ust þau tíðindi að 40 háskóla-
menntaðir kennarar sögðu sig úr
félaginu. Félagið er aðili að
Landssambandi framhaldsskól.a-
kennara, sem aftur er aðili að
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja. Með úrsögn sinini hafa hinir
háskólamenntuðu kennarar því
sagt sig úr B. S. R. B., en mjög
mikil óánægja hefur undanfarið
ríkt í röðum þeirra yfir þvi að
kjaradómur hefur ekki tekið tillit
til menntunar þeirra, að þeirra
dómi, svo og því að þeir telja
Landssamband framhaldsskóla-
kennara hafi haldið slælega á
þeirra hlut í kiarabaráttunni. Er
búizt við að nær allir háskóla-
menntaðir kennarar við gagnfræða
stigið muni á næstunni ganga úr
B.S.R.B.
Mikil óánægja hefur ríkt meðal
hháskólmenntaðra kennara und-
anfarið vegna launakjaranna, en
þeir telja að mjög lítið tillit sé
tekið til menntunar þeirra við
ákvörðun launa og niðurröðun í
launaflokka. Þessir menn hafa var
ið mörgum árum í háskólanám, en
eru samt ekki se'ttir nema einum
eða tveimur flokkum ofar en
menn, sem enga háskólamenntun
hafa. Háskólamenntaðir kennarar
telja, að Landssamb. framhalds-
skólakennara hafi gengið mjög slæ
lega fram í því að fá kjör Þeirra
lagfærð, enda munu menn, er ekki
hafa háskólamenntun, hafa tögl
og hagldir í því bandalagi. enda
miklu fjölmennari.
Á fundi í Félagi gagnfræðaskóla
kennara í Reykjavík í gær mættu
nokkrir fullteúar háskólamennt-
aðra kennara í félaginu og lögðu
fram úrsagnir rúmlega 40 þeirra
í Félagi háskólamenntaðra kenn-
ara eru nú milli 70 og 80 kennar
ar, en það er obbinn af háskóla-
Framhald á 14. síðu.
í gær var annar bíllinn í
Happdrætti Framsóknarflokks
ins afhentur, en það var ung
frú frá Ólafsfirði, Sóley Stefáns
dóttir sem hlaut þennan glæsi
lega bíl af gerðínni Vauxhall
Victor 101. Faðir hennar Stef
án Ólafsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins hafði gef
ið henni miðann sem bíllínn
kom upp á, en hún býr ásamt
manni sínum Guðmundi Odds
syni að Digranesvegi 72 í Kópa
vogi. Myndin var tekin í gær
við afhendinguna, og startda
þau þarna við bílinn Stefán
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri happdrættisins (t. v.) þá
Guðmundur, Sóley, Stefán og
Stefanía litla Guðmundsdóttir
sem á áreiðanlega eftir að fara
t margar skemmtilegar öku-
ferðir með foreldrum sínum í
nýja bílnum. (Tímamynd KJ).
Fundur Fulltrúaráðs
Framsóknarfélag-
^nna I Revkiavík
Fundur verður haldinn í Full
trúaráði Framsóknarfélaganna í
Reykjavík að Tjarnargötu 26
fimmtudaginn 16 desember n. k-
og hefst klukkan 20.30
Fundarefni: Lagabreyting.
Stjórnin.
lólatrésfagnaður
Hinn árlegi jólatrésfagnaður
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
verður haldinn í Framsóknarhús
inu við Fríkirkjuveg þriðjudag-
inn 28. desember n. k. og hefst
kl. 15. stundvíslega. Mjög verður
til fagnaðarins vandað, eins og
ávallt áður. Tekið er á móti miða
pöntunum á, skrifstofu Framsókn
arflokksins, Tjamargötu 26, símar:
16066 og 15564 en sala þeirra
hefst seinnipart vikunnar. Verð
miðans er kr. 100,— og eru ágæt
ar veitingar og sælgæti innifalið
í verði hans. Stjómandi skemmtun
arinnar verður hinn kunni
skemmtikraftur Jón B. Gunnlaugs
son.
DAGAR TIL JÓLA