Tíminn - 19.12.1965, Blaðsíða 1
ERLENDAR FRÉTTIR
Múrínn
opnaður
um jólin
NTB-Berlín, laugardag.
í dag hófust heimsóknir
Vestur-Berlínarbúa til ætt-
ingja í A-Berlín, og fyrstu
fjórar klukkustundirnar í
morgun fóru 30.000 manns
og rúmlega 3000 bílar gegn-
um múrinn, sem liggur milli
borgarhlutanna. Er búizt
við, að samtals muni um
2.6 milljónir Vestur-Berlín-
arbúa heimsækja ættingja
sína fyrir austan. Þeir, sem
fóru í dag, voru hlaðnir alls
konar gjöfum — einn hafði
til og með baðkar með sér!
Nokkrir V-Berlínarbú-
anna stilltu sér upp i bið-
röð kl. 5 í morgun við þá
fimm staði, þar sem gest-'
unum var hleypt í gegnum
múrinn, klukkustundum áð-
ur en heimsóknartíminn
hófst. A-þýzku landamæra-
verðirnir létu fólkið ekki
bíða svo lengi, heldur hófu
þeir að hleypa tólkinu í
gegn klukkustund fyrr en
áætlað var.
Margir ókh í bílum sinum
inn í A-Berlín, og voru full-
hlaðnir. Um 3000 bílar fóru
yfir landamærin fyrstu fjóra
tímana í morgun. flestir
fóru þó fótgangandi með
Framhald á bls. 22.
Myndin hér til hliðar sýnir
vírhlið múrsins opnuð fyrir
V-Berlínarbúum.
SMITH STÖDVAR ALLA
0LÍUSÖLU TIL ZAMBÍU
SÚDAN SLÍTUR STJÓRNMÁLASAMBANDI VIÐ BRETLAND
NTB-Salisbury, London og Kafró,
laugardag.
Smith-stjómin í Rhodesíu bann
aði í dag alla sölu á benzíni til
nágrannaríkisins Zambíu, og er
hér um að ræða mótaðgerðir
vegna olíubannsins, sem Bretar
Iýstu yfir í gær.
Jafnframt segja góðar hcimildir
að ákvörðunin um að setja Rodes
íu í olíubann hafi verið tekin af
þeim Harold Wilson, forsætisráð-
herra Breta, og Lyndon B. John-
son, forseta Bandaríkjanna, í sam
einingu, og Bandaríkin hafa lýst
yfir stuðningi sínum við Breta
í því máli.
Frá Kaíró berast þær fréttir,
að Súdan hafi í dag slitið stjóm
málasambandi við Breta í sam-
ræmi við samþykkt Einingar
bandalags Afríkuríkja um það máL
Hafa því 8 Afríkuríki slitið stjóm
málasambandi við Breta vegna af
stöðu þeirra í Rhodesíumálinu.
Góðar heimildir í London segja
að sigrast þurfi á tveim erfið-
leikum í sambandi við olíubannið,
ef það á að ná tilgangi sínum.
í fyrsta lagi verði að halda uppi
olíuflutningum til Zambíu án
þess að nota járnbrautarlínuna í
gegnum Rhodesíu sero er eina
samband Zambíu Við umheiminn
á landi. Til þess að þetta megi
verða, hafa Bretar og Bandaríkin
að því er talið er, ákveðið að koma
á fót stórkostlegri loftbrú milli
Lusaka og Dar es-Salaam. Brezk-
ar flugvélar eru þegar reiðubúnar
til þessa mikla 'flutningastarfs, og
bandarískar flugvélar munu bæt-
ast í hópinn.
Hins vegar verður olíubannið
að verða algert. Heimildim-
ar segja, að flest lönd, sem fram-
leiða olíu, þar á meðal Frakkland
Italía og Holland, hafi þegar lýst
því yfir að þau muni fylgja Bret
um og Bandaríkjamönnum í máli
þessu Nokkur óvissa ríkir um af-
stöðu nokkurra minm einkafyrir-
tækja, sem hafa olíustöðvar í ýms
um löndum. Auk þess er mjög þýð
ingarmikið að stöðva alla olíu-
flutninga fra Mozambique, sem er
á valdi Portúgals, til Rhodesíu.
Portúgal hefur lögfræðilegan rétt
yfir olíuleiðslum þeim, sem hér
um ræðir. Þótt brezkir borgarar
eigi þær að hluta til.
Framhald á bls. 22.
De Gaulle 55%
NTB-París, laugaraag.
De Gaulle mun fá 55% atkvæð-
anna við síðari fors.etakosningarn-
ar I Frakklandi á morgun, sunnu-
dag, og hinn frambjóðandinn,
Francois Mitterand, 45%, sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem fram-
kvæmt var af óháðri skoðanakön
unarstofnun í París. Skoðanakann
anir þessar stofnunar hafa reynzt
mjög nákvæmar. Við fyrri forseta
kosningarnar spáði hún de Gaulle
43% atkvæðanna, og hann fékk
44.6%.
í FYRSTA SKIPTI í
14 SÓLARHRINGA
EJ-Reykjavík, laugardag.
Geimfarið Gemini-VII lenti
eins og áætlað var kl. 13.05
í dag í Atlantshafi, einungis
um 15 sjómílur frá þeim stað
sem upphaflega var ætlað.
Geimfaramir Frank Borman
og James Lovell, sem verið hafa
á lofti í 14 sólarhringa, voru
teknir upp í þyrlu og flogið
með þá til flugvélamóðurskips-
ins Wasp, þar sem tekið var
á móti þeim með viðhöfn. Þeir
voru mjög ánægðir á svip, bros
andi og „yfir sig glaðir,“ eins
og flugmaður þyrlunnar orð-
aði það, og gátu staðið á eig-
in fótum, þótt þeir hefðu ekki
stigið í fætumar í 14 sólar-
hringa. Þeir voru þegar fluttir
í sjúkrahús Wasp, þar sem þeir
voru teknir til læknisrann,-;
sókna.
Geimferð Gemini-VIl er sú
iengsta, sem farin hefur verið
til þessa, og að mörgu leyti
merkilegasta geimferð sögunn
ar, ekki sízt vegna þess að í
fyrsta sinn mættust tvö geim-
för úti í geimnum. Því má
bæta við, að þetta er, lengsta
ferð sem farin hefur verið í
sögu mannkynsins, því að þeir
Borman og Lovell hafa lagt
að baki um 5.5 milljón mílur.
Þeir hafa séð 330 sólaruppkom-
ur og sólsetur'
Hemla-eldflaugar Gemini-
VII
voru
settar
stað á réttu augnabliki
eða 12.28 að íslenzkum tíma,
og gekk ferð geimfarsins inn
í gufuhvolfi jarðar saœkvæmt
áætlun. en sá hluti geimferðar-
innar er einna hættumestur.
Menn voru mjög ákafir að
vita, hvernig geimförunum
myndi reiða af er þeir kæmu
inn í andrúmsloftið og fyndu
til þyngdaraflsins a' nýju, þar
sem þeir höfðu verið svo lengi
Framhald á bls. 22.
Bormann og Lovell luku í gær lengstu geimferö sögunnar
STIGU í FÆTURNA
/