Tíminn - 19.12.1965, Page 3

Tíminn - 19.12.1965, Page 3
í t ' V \ Sögur úr sveitinni Þá hefur skotið upp nýjum höf- undi barnabóka — Halldóri Pét urssyni — líklega þeim inum sama og lét sig ekki muna um að rita ævisögu draugs um árið — og Halldór Pétursson, listmál- ari, teiknar myndir í bókina. Hún heitir: Viltu segja mér. Þetta eru stuttar sögur af ýmsum svaðilför- um og mannraunum Dóra litla, er er aðeins fimm ára sveitamaður, þegar sögur hefjast. En þetta er skemmtilegur stúfur, mikill fyrir sér og fær í flestan sjó, enda verður lífshlaupið eftir því. Sög- urnar eru hver annarri skemmti- legri, en það er eins og þær séu engu síður — eða jafnvel öllu fremur — skrifaðar fullorðnum til skemmtunar og skilninsg á börn- um — og því ekki það? Ævintýri Hversdagsins Ég veit ekki, hvort nokkur ís- lenzkur höfundur, sem að stað- aldri skrifar bækur handa börn- um þessi árin, kann betur að segja ævintýri en Kári Tryggvason. Og hann kann einnig betur en aðrir að leiða börn í ævintýraheim, sam- ræma ævintýri og nútíðarhugsunar hátt barna og láta leiðir ævintýra og hversdagslegs lífs og leiks liggja saman. Hann ritar einnig kjarngott og hreint mál og kann flestum betur að lýsa íslenzku sveitalífi og íslenzkri náttúru. Síðustu árin hefur hann ritað sögur af Dísu á Grænalæk. Þetta eru hinar skemmtilegustu og ákjós anlegustu barnabækur, þroskandi að máli og mörgum fróðleik. Þótt rakin sé hversdagsleg saga, hafa ævintýrin alítaf skotið upp koll- inum áður en nokkum varir og orðið ívaf og upplyft- ing sögunnar. Nú er komin út bók, sem heitir Dísa og ævintýrin. Þar segja afi og Anna frænka Dísu ævintýri. Þau eru um svani, refi og kiðlinga og sitthvað fleira. Sum þessara ævintýra hefur Dísa heyrt áður í fyrri bókum, en þarna eru þau sett saman í eina bók og eitt- Kári Trygvason hvað aukin. Æskileg barnabók fyr- ir sjö til tíu ára börn. Björn Björnsson á fallegar teikningar í bókinni, sem ísafoldarprentsmiðja gefur út. Strákar eru alltaf strákar Ingibjörg Jónsdóttir er tiltölu- lega nýr barnabókahöfundur, er all mikils má af vænta. Stykur hennar er sá, að hún er enn á sæmilega ungum aldri og i ná- inni, persónulegri snertingu við börn tæknialdar og skilur hugar- heim þeirra vel. Barnaleikrit henn ar hafa hlotið viðurkenningu. Þrír pörupiltar heitir nýútkomin bók eftir hana, frásagnir af fyrirtækj- um tápmikilla drengja, sem ekki eiga ætíð samelið með hefðbund- inni siðmenningu. Brestirnir eru þó aldrei illkynjaðir, og nafn bók- arinnar nokkuð sterkyrt og varla gott sölunafn. Þetta eru liprar og Framhald á bls. 22. \ 0 v, « Gðmul Reykjavíkurbréf \ , - Út er komiS safn Reykjavíkurbréfa frá 19. öld. Finnur Sig- mundsson hefur tekið bókina saman og skrifað skemmtilegar skýringar við þau um menn og málefni liðinnar aldar. Þessi bréf eru kapítuli úr óskráðri sögu bæjarbúa. Þau draga tjöld frá liðinni öld. Þátttakendur og sjónarvottar lýsa Þjóð- fundinum, Þjóðháíðinni 1874, ,,pereatinu” og fleiri stórvið- burðum. En jafnframt greina bréfin frá dansiböllum, spille- part^um, púnsdrykkju'og pólitísku þrasi borgaranna Við lestur „Gamalla Reykjavíkurbréfa” lifa menn upp liðna öld, og það mun engum leiðast við þann lestur. Þetta er stórfróðleg og alveg bráðskemmtileg bók. BÓKFELLSÚTGÁFAN SUNNUDAGUR 19. desember 1965 TÍMINN Nokkrar íslenzkar barnabækur Ég hef verið að líta yfir nokkr- ar barnabækur, sem út koma fyr- ir þessi jól — íslenzkar bækur eftir íslenzka höfunda af íslenzk- um vettvangi. Það er ekkert hé- gómamál, hver sú uppsker er, og oft hefur hún virzt í rýrasta lagi. Ég gæti bezt trúað því, að hún væri með bezta móti í ár. Ég hef hlaupið yfir einar sjö eða átta þessara bóka síðustu daga, og þær eru allar boðlegar barnabækur og sumar mjög góðar. Karlmannleg ævintýri Ég nefni hér fyrst bók Armanns Kr. Einarssonar, Óli og Maggi á ísjaka. Ármann er líklega búinn að tryggja sér þanM sess að vera vinsælasti barnabókahöfundur hér á landi þessi árin. Hann hefur þegar ritað rúma tvo tugi barna- og unglingabóka, og vinsældir hans virðast hafa vaxið með hverri bók. Hann hefur lagt rækt og álúð víð þessi ritstörf og farið batn- Ármann Kr. Einarsson andi með hverri bók. Hann hefur reynt að skilja hugarheim barna og velja sér spguefni, sem í senn er bömutm hugleikið og leiðir til nokkurs þroska og skilnings. Bæk- ur hans hafa nú nokkrar verið þýddar á Norðurlandamál og átt gengi að fagna. Ástæða er til þess að nefna sögu þá, sem nú er flutt í leikritsformi eftir hann í barna tíma útvarpsins og mun njóta óvenjulegra vinsælda, jafnvel einnig meðal fullorðins fólks. Óli og Maggi á ísjaka mun vera sjötta bókin í flokki um þessar söguhetjur, og hafa þeir elzt um eitt ár með hverri bók og eru því orðnir færir í ýmsan sjó, enda geriast ævintýri þeirra á ísjaka norður í hafi og á hvalveiðiskipi við töluverð stórræði og karl- mennsku. Sagan er atburðarík og í hana er ofið töluverðri fræðslu um líf á ís og hvalveiðar. Þetta er holl og hressileg drengja- saga, með teikningum eftur Hall- dór Pétursson, og þær svíkja eng- an. Bókaforlag Odds Björnssonar gefur bókina smekklega út. Könnun heimsins Ung skáldkona, Vilborg Dagbjartsdóttir sendir frá sér stutta barnabók, Sögur af Alla Nalla með ágætum myndum eftir Friðriku geirsdóttur. Þar segir frá því, hvernig greindur og rök- vís snáði kannar heiminn. Sögurn- ar eru allar með þeim brag að sam an fer kímni og dýpri rökhyggja þessi infalda terka rökhyggja barnsins, sem klýfur svo oftlega sjálfbyrgingsskjöld hinna full- orðnu, sem þykjast búa yfir allri vizku heimsins. En þessar sögur eru þó fremur af því tagi, sem fqllorðið fólk, feður eða mæður, segja öðru fullorðnu fólki af börn- um sínum í gamni og hreykni, og taka varla nógu mikið tillit til barnsins, og raunar held ég, að fullorðnir muni hafa meira gam- an af þeim en börn^ en þær eru vel sagðar og af næmum skilningi. Jólasögur Ragnheiðar Hvít jól heitir barnabók, sem Ragnheiður Jónsdóttir sendir frá sér fyrir þessi jól. Hefur hún að geyma einar fjórtán jólasögur með myndum eftir Sigrúnu Guðjóns- Ragnheiður Jónsdóttir dóttur. Ragnheiður er einn bezti og vandaðasti höfundur, sem skrif að hefur barnabækur síðustu árin, og bækur hennar hafa notið óskor- aðra vinsælda einkum meðal telpna um og innan við fermingu. Hún ritar ágætt mál og frásagn- arháttur hennar er mjög aðlaðandi. Efni þessara sagna er bæði -sótt til liðins tíma og líðandi stund- ar. Þær hvetja til samanburðar á gömium og nýjum lífsháttum. Þetta eru yfirleitt ekki stórvið- burðasögur. Þær fjalla flestar um smáleg atvi'k, sem endurspegla miklar lifsgátur ungum hug, vekja til umhugsunar og samúðar og veita svör og leiðbeiningar í mörgum sambúðarvanda kynslóð- anna. Það er ávinningur hverju barni að lesa þessar sögur. ísa- foldarprentsmiðja gefur bókina út af vandvirkni>

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.