Alþýðublaðið - 22.08.1959, Síða 2

Alþýðublaðið - 22.08.1959, Síða 2
VEÐRIÐ: N-NA gola — létt- skýjaS. ☆ USTASAFN Einars Jónsson ar, að Hnitbjörgum, er opið daglega kl. 1.30—3.30. ☆ MINJASAFN bæjarins. Safn deildin Skúlatúni 2 er opin daglega kl. 2—4. Árbæjar- safn opið daglega frá kl. 2 —6. Báðar safndeildir eru lokaðar á mánudögum. ★ TJTVARPIÐ í DAG: — 13.00 Óskalög sjúklinga. 14.15 Laugardagslögin. 19.30 Tón leikar: Lög frá Týrol. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: 150 ára afmæli Hundadaga- stjórnar. (Vilhjálmur Þ. iGíslason, útvarpsstj.) .20.55 Tvær frægar söngkonur: — Claudia Muzio og Conchita Supervia. — Guðmundur Jónsson kynnir. 21.30 Leik- rít: „Næturævintýr'1 eftir . Sean O’Casey í þýðingu . Hjartar Halldórssonar, — menntaskólakennara. Leik- stjóri: Lárus Pálsson. 22.00 . Fréttir. 22.10 Danslög. — 24.00 Dagskrárlok. ★ Messor Dómkirkjan: Messa kl. 11 árd. Séra Jón Auðuns. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11 f. h. Séra Sigurjón Þ. Árnason. Laugarneskirkja: Messa kl. 11 f. h. Sf:ra Garðar Svavars- son. Kirkja Óháða safnaðarins: Messa kl. 11 árdegis. Safnað- arprestur. Kaþólska kirkjan: Lág- messa kl. 8.30 árdegis. Há- messa og prédikun kl. 10 ár- degis. Hafnarfjarðarkirkja: Messa M. 10 árdegis. — Bessastaðir: Messa kl. 2. Séra Garðar Þor eteinsson. Elliheimilið: Guðsþjónusta M. 10. tleimilispresturinn. Macmillan Framhald af 10. síðu. eru ánægðir með starf Macmill ans sem forsætisráðherra, að- eins 23 voru óánægðir með hann. Hin batnandi fjárhagur Breta á líka sinn þátt í að efla íhaldsstjórnina. News Chronicle skrifar í for- ustugrein í gær, að næstu kosn ingar verði sennilega áfall fyr- ir Verkamannaflokkinn, for- xistumenn hans hafa um of ver- lð neikvæðir í pólitík sinni, treyst meir á mistök íhalds- manna en mótun framtíðar- stefnu sinnar. Alþýðublaðinu barst í gær eftirfarandi frá póst- og síma- málstjórninni: Herra ritstjóri. í blaði yðar í gær er vikið að Landssím,a íslands í sambandi við myndasendingar milli ís- lands og annarra landa. Eins og yður mun kunnugt var opnuð myndskeytaþjónusta við útlönd fyrsí í sambandi við komu Svíakonungs til íslands og mjÖg skömmu síð'ar við Eng- land. Um leið og blöðum í Eeykjavík var gaj;i þetta kunn I ugt á blaðaman'nafundi hjá I þóst- og símamálstjóra, var greint frá því, að þá litlu síðar v-æru væntanleg fullkomin tæki, sem bæði gætu sent og tekið á móti símsendum mynd- um. Frá því að myndaþjónust- an var hafin, hafa fyrirspurnir borizt frá fleiri en einu Reykja víkurfclaðanna um möguleika á að fá myndir sendar erlendis frá. Kostnaður viS myndsend- ingar er nálægt fjórfalt símtala gjald (3 mín.) við hlutaðeigandi land. Má ætla að þeir, sem spurt hafa, hafi horfið frá því að fá mynd senda, m. a. kostn- aðarins vegna og svo hins, að skilyrði til myndsendinga eru oft á tíðum þess eðíis, að erfitt er að ná góðri mynd. Landssím inn keypti myndsendingatækið fyrst og fremst vegna þess, að myndsendingar eru einn þáttur í almennri símaþjónustu landa yfirleitt, svo og vegna Þess, að öðru hvoru hefur verið spurzt fyrir um þá þjónustu, og talið ótækt annað en að Landssím- inn gæfi viðskiptavinum sínum kost á henni. Það er ekki á valdi starfs- manna Landssímans að ákveða hvort viðskiptavinur notfærir sér símaþjónustu eða ekki, en hitt er á valdi starfsmanna, að greiða fyrir þröfum viðskipta- vina, þegar þess er óskað. Þess skal getið, að Landssími íslands sér ekki um útvegun hvorki á myndum frá útlöndum né myndum til erlendra aðila. Landssíminn sér aðeins um að senda myndir ojJ taka á móti þeim eins og venjulegu sím- skeyti.Landssíminn hefur ekki talið ákjósanlegt að auglýsa myndaþjónustuna umfram.það, sem tilkynnt var um hana í fyrstu m. a. vegna þess, að með an talsambandið við útlönd fer um radíóstöðvar, eru skilyrði til myndsendinga óábyggileg, og Því tæpast rétt að gera meira úr þjónustunni en efni standa til. Á það atriði 'skal minnzt, sem virðist hafa valdið öðru fremur misskilningi í þessu máli. Allir starfsmenn Landssímans, sem fást við símaviðkiptin, eru bundnir þagnarheiti. Það hefði verið alvarlegt brot á því heiti Byggingaféiag alþýSu, Heykjavík 2ja herbergja íbúð til sö!lu í 1. byggingaflokki. Um- sóknum sé skilað í skrifstófu félagsins Bræðraborgar- stíg 47 fyrir kl. 12 á hádegi laugard. 5. sept. Stjórnin. að skýra einhverjum frá því, að viðskiptavinur Landssímans ætti von á, eða Jiefði fengið mynd senda frá einhverjum að- ila erlendis. Að lokum er því hér með mót mælt, að Landssíminn hafi sýnt lilutdrægni í þessu máli, og gef ið einum fremur en öðrum kost á ;að notfæra sér urmrædda þjon ustu. Komi erlendis frá mynd- skeyti, mun Ivandssíminn reyna að taka á móti því og .koma því á ákvörðunar’stað og greina ekki óviðkomandi aðila frá því. Landssíminn er að sjálfsögðu nú sem endranær reiðubúinn að gegna hlutverki sínu, þ. e. að annast hvers kyns símaþjón- ustu fyrir almenning, og gæta | þagmælsku um viðskiptln. Virðingarfyllst.. Skrifstofustjóii Landssímans. svarer í hinni loðnu afsökunargrein | Póst- og símamálstjórnarinnar koma þessar staðreyndir m. a. fram: 1) Skömmu eftir komu Svía- konungs í júnímáunði 1957 var gert kunnugt á blaða- mannafundi hjá póst- og símamálastjói'a, að „litlu síð ar væru væntanleg fullkomin tæki“, er gætu tekið á móti símsendum myndum. 2) í afsökunargreininni er forð azt að segj;a, hvenær þessi tæki raunverulega komu. Morgunblaðið hefur hins veg ar skýrt frá, að það hafi ver- (Frá Menntamálaráði Islands.) ið „í vor“, rúmlega tveim ár- um eftir blaðafund póst- og símamálastj óra. 3) Þannig telur póst- og síma- málastjórnin blaða'manna- fund fyrir tveim árum nægi- lega tilkynningu til hugsan- legra viðskiptavina um þjón- . ustu, sem byrjað var á' nú fyrir nokkrum dögum. Þetta er svo léleg yfirhilmun, að varla er orðum að eyðandi. Skyldi ekki hafa verið hald- inn blaðafundur eða send út auglýsing af minna tilefni en tilkynna, að hin nýju mót- tökutæki væru tilbúin til notkunar? Vill ekki síma- stjói'nin tilkynna þjóðinni í dag, hvaða Þjónustu hún muni bóða eftir tvö ár, svo menn geti skrifað hjá sér? Eftir þetta afsökunarbréf frá póst- og símamálastjórninni er það augljósara en nokkru sinni, að hún hefur gei't óafsakanles- :ar skyssur í rpeðferð þessa máls. Alþýðublaðið ásakar Morg- unblaðið ekki í þessu máli, þótt það sé óþarfi af- því volduga blaði að skrifa eftir á eins og póst- og símamálastjórnin sé deild af blaðinu sjálfu. Úr því að póst- og símamála- stórnin var allt í einu orðin svo hlédræg .að vilja ekki segja frá því, er byltingakennd ný tækni er tekin í notkun hér á landi, þá er þessari spurningu einni ósvarað: Var það tilviljun ein, að Morgunblaðið vissi um þetta eitt alli'a blaða og gat haft næg an undirbuning að notkun tækj anna á mikilvægu augnabliki? Hver trúir því? lUaðJafri EINS OG skýrt hefur verifS frá hcr í blaðinu verður 2. mót íslenzkra ungtemplara að Jaðri um þessa helgi. Mótið hefst í dag. Tjaidað verður síðari hluta dags og verður mótið sett kl. 5« í kvöld verður almenn skemmt un í hinuin vistlega samkomu- sal að Jaðri. i Fyrri hluta sunnudags verð- ur frjáls tími til gönguferðá um Heiðmörk, en kl. 2 e.h. hefst frjálsíþróttakeppni og munu m.a. taka þátt í henni nokkrir meistarar frá Drengjameistara- mótinu. sem háð var í Reykja- vík fyrir skömmu. Guðsþjón- usta verður kl. 3, en að henni lokinni hefst dagskrá með skemmtiatriðum, m.a. munu Noregsfarar ÍUT segja ferða- sögu og taka lagið. Hljómsveit mun leika létt lög milli atriða. Þá verður handknattleiks- keppni. Lið úr Stúkunni Sóley, sem nýkomið er frá Færeyjum, mun keppa við meistaraflokk Ármanns. Þá mun verða knatt- spyrnukeppni og fieira. Á sunnudagskvöld verður kvöldvaka og dans. 5 manna hljómsveit ungra manna mun leika fyrir dansi og Þór Nielsen, ungur og afarefnilegur söngv-< ari. syngja öll nýjustu lögin. Það skal tekið fram, að þátf- taka í mótinu er öllum heimil. Ferðir munu verða að Jaðri frá Góðtemplarahúsinu báða móts- dagana, kl. 2, 3 og 8 og sömu- leiðis verða ferðir frá Jaðri á laugardagskvöld eftir að lýkur skemmtuninni og sama máli gegnir á'sunnudag. f’ramhaíd af 12.sí@tJ. „High Scool Diploma“, sem veitir fullan .rétt til náms við bandaríska háskóla. Fékk hann leyfi Menntaskólans í Reykja- vík til að fresta prófum milli fimmta og sjötta bekkjar til haustsins 1958, las námsefni fimmta bekkjar þá um sumarið og gekk síðan undir stúdents- próf með jafnöldrum sínum nú í vor. Sigfús Jóhann Johnsen, stúd ent úr Menntaskólunum. á Ak- ureyri, til náms í eðlisfræði við háskólann í Kaupmannahöfn. Sigfús hlaut einkunnina 8,82 úi' stærðfræðideild. Prófseinkunn ir hans í stærðfræðilegum. greinum voru frábærar: stærð- fræði munnleg 10, stærðfræði skrifleg 10, eðlisfræði og efna- fræði munnleg 10, eðlisfræði og efnafræði verkleg 9,6, stjörnu- fræði 10. Halldór Ingimar Elíasson, stúdent úr Menntaskólanum á Akureyri, til náms í eðlisfræði og stærðfræði við háskólann í Göttingen í Þýzkalandi. Hann hlaut einkunnina 8J7 úr tstærð fræðideild. — Prófseinkunnir hans í stærðfræðilegum grein- um voru afburða góðar. Hlaut hann einkunnina 10 í fjórum og 9,6 í hinni fimmtu. í ritgerðasamkeppni um kjarnorkufræði, sem Kjarn- fræðinefnd íslands efndi til síð astliðnnn vetur meðal íslenzkra menntaskólanema, varð Hal- dór hlutskarpastur, hlaut fyrstu verðlaun. TALSVERT er af krækiberj-^ um í sumar, en bláber sjást varla. Eftir þeim upplýsingum, sem blaðið hefur getað aflað sér víðs vegar af landinu, er þetta allt á sömu bókina lært alls staðar. Frá Dalvík berast fcó þær fréttir, að í Svarfaðardal sé all- mikið um aðalbláber eins og jafnan að undanförnu. í Heiðmörk finnst lítið af bláberjum, en fcar hefur alla- jafna verið gott berjaland. — Krækiberin eru aftur á móti orðin nokkuð stór og safarík. Fyrir ofan Seyðisfjörð er oft nokkuð af berjum. í sumar ber lítið á bláberjum, en krækiber- in eru orðin fullþroskuð. Hefur þó vöxtur þeirra oft verið meiri en nú. Þórður Þorsteinsson á Sæþóli gerir venjulega út leiðangur á haustin til þess að tína ber, og hann selur allajafna mikið af berjum. Þórður hefur farið í smáferð- ir út úr bænum til þess að at- huga berjavöxt í ár. Sagði hann, þegar blaðið átti tal við hann, að krækiber væru smá enn, og bláber sjaldséð, þangað sem hann hafi farið, en um helgina mun hann fara alla leið vestur í Djúp og Dali til þess að at- huga betur með berjasprettu. Oft hafa verið ber í nánd við Vífilsstaði, en í ár er þar sama og ekkert að finna. NÝLEGA var fyrirtæki eitt hér í bæ sektað um 1000 krón- ur fyrir sölu á amerísku tyggi- gúmi. Það er allalgengt, a@ amerískt tyggigúm fáist hér í verzlunum, en innflutningur þess hefur verið bannaður um margra ára skeið. Þær fréttir fengust hjá lög- reglunni í gær, að það væri al- títt, að krakkar keyptu ame- rískt tyggigúm í verzlunum, en hlypu síðan beint til lögregl- unnar og kærðu fyrir smygl- verzlun. í ÓKURTEISI Á INNFLUTN- ! INGSSKRIFSTOFUNNI. Blaðið hringdi á Innflutningg skrifstofuna kl. 5 í gær og innti eftir því, hvenær síðasf hefði verið leyfður innflutningur á varningi þessum til íslenzkra verzlana. Fengust þar heldux? ógreið svör, var því svarað til, að það vissi viðkomandi ekk- ert um, hann hefði engan tíma1 til þess að athuga það, auk þess væri búið að loka, og takk fyr- ir samtalið!!! j 2 22. ágúst 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.