Alþýðublaðið - 30.08.1959, Blaðsíða 4
tJtgefanoi. Alþýðuflokkurinn. Ritstjórar: Benedikt Gröndal, Gísli J. Aflt-
þðrsson og Helgi Sæmundsson (áb.). Fulltrúi ritstjórnar: Sigvaldi Hjálm-
arsson. Fréttastjðri: Björgvin Guðmundsson. Ritstjómarsímar: 14901 og
14902. Auglýsingasími: 14906. Afgreiðslusími: 14900. — Aðsetur: Alþýðu-
húsið. Frentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10.
Há útsvör
NÆSTIJ daga munu Reykvíkingar margir
hverjir leggja leið sína á fund skattstofunnar til að
leita sér upplýsinga um þau útsvör, sem lögð hafa
verið á þá. Flestum mun finnast upphæðin há —
alltof há. Vissulega eru óhugnanlegar fúlgur lagð
ar á bæjarbúa, 235,7 milljónir króna.
Að vísu var útsvarsskalinn lækkaður um 10%
frá því, sem áður var, og var það sjálfsögð ráð-
stöfun með tilliti til þess að kaupgjald og verðlag
hefur verið fært niður á þessu ári. Hins vegar kom
í ljós, að tekjur bæjarbúa höfðu á síðasta ári
vinstri stjórnarinnar orðið svo miklar, að þrátt fyr
ir 10% lækkum skalans kom út 5% meiri uppliæð
að krónutölu en í fyrra. Þetta er ekki beint stað-
festing á áróðri íhaldsins um feril þessarar stjórn-
ar.
Mesta óréttlœtið
ÍSLENDINGAR eru þjóð með mikla jafn-
réttiskennd og vilja byggja þjóðfélag sitt á grund
velli lýðræðis, þar sem allir borgarar hafa jafna
aðstöðu. Hefur mikið áunnizt í þeim efnum — en
þó er margt ógert.
Skattamálin eru nú það svið, þar sem misrétti
er mest hér á landi. Mörg hundruð milljónir króna
eru teknar af landsfólkinu í beinum sköttum til
ríkis og sveitarfélaga, og eru þær álögur byggðar
á framtölum og yfirvegun valinna embættis-
manna. En það er á allra vitund, að stórir hópar
manna hafa tekjur, sem ekki eru gefnar upp. Við
þetta skapast herfilegt ranglæti, sem er orðið að
alvarlegri meinsemd í þjóðfélaginu. Þeim mönn-
um, sem gefa allar tekjur sínar upp, er refsað á
þann hátt, að þeir verða að greiða fyrir hina, sem
geta falið.
. .Þetta mál verður að taka til algerrar endur-
skoðunar. Alþýðuflokkurinn hefur lagt til á al-
þingi, að beinir skattar verði afnumdir með öllu,
en þetta þýðir, ,að í stað þess að skattleggja tekjur
manna verði útgjöld þeirra og eyðsla sköttuð.
Nútíma þjóðfélag hlýtur að geta skipað þess
um málum á réttlátari hátt en nú er gert hér á
landi. Þjóðin krefst þess, að svo verði gert.
til alþingiskosninga í Njarðvíkurhreppi ligg-
ur frammi í skrifstofu Njarðvíkurbrepps,
Þórustíg 3, Ytri Njarðvík, frá 25. ágúst til 21.
sept. að báðum dögum meðtöldum.
Kærur yfir kjörskránni skulu komnar til
sveitarstjóra eigi síðar en 4. okt. n.k.
Njarðvík, 24. ág. 1959.
Sveitarstj órinn Nj arðvíkurhreppi
Jón Ásgeirsson.
ýý Hússkrokkar um
allt land.
Fulllgerum þá, sem
bíða ónotaðir.
ýý Sláum nýbyggingum
á frest.
■jíj' Dýrtíðin og 86 aur-
arnir.
ÉG KOM í nokkra bæi og
porp fyrir nokkrum dögum. Áff-
ur hélt ég aff byggingafram-
kvæmdir væru tiltölulega lang-
mestar í Reykjavík. En ég sann-
færðist um það að svo er ekki.
Alls staffar er veriff að byggja í-
búffarhús í stórum stíl. Svo að
segja í hverju kaupíúni norffan-
lands er byggt mikiff. Ég heira-
sótti alls ekki öll þeirra, en þau
sem ég heimsótti ehki, hafði ég
fregnir af. Sarna sagan er sögð
af A.usturlandi, jafnvel í bæjum
þar sem allt hefur verið í nið-
urníffslu f járhagslega árum sam-
an. Þar rísa líka upp heil ný
hverfi.
EF MAÐUR heimsækir Akur-
eyri og Hafnarfjörð þá verffur
myndin sú sama. Akið líka fram
hjá Silfurtúni — og komið í
Kópavog. Alls staðar er verið að
byggja. En hörmulegt er að sjá
það hvað margir hússkrokkar
standa hálfgerðir. Eigendunum
hefur tekist að gera þau allt að
því fokheld, en svo hr/fa þoir
ekki getað meira. Hvað liggja
mörg hundruð milljónir í þess-
um húsum?
ÞAÐ ER SKORTUR á fé til
d-lra þessara bygginga. Það er
slæmt, því að með þessum hús-
um öllum erum við að byggja
ísland, skapa verðmæti fyrir
framtíðina. Nú vil ég spyrja:
Fyrst ekki er til nægilegt lánsfé
til þess að lána öllum svo að þeir
geti byggt, er þá ekki rétt ein-
mitt nú að slá á frest um sinn
( nýjum byggingum, en láta það
1 lánsfé, sem hægt er að fá, ganga
í það að fullgera þau hús, sem
1 þegar standa hálfgerð og stuðla
. að því, að þau geti komizt í not,
I að þau fari að renta sig?
EF TIL VILL finnst mönnum,
I sem nú hafa í huga að hefjast
handa, þetta harkaleg tillaga, en
ég get ekki séð betur, en að það
lýsi geggjun að halda svona á-
fram án þess að tryggt sé að
hægt sé að ljúka við húfin. Sum-
ar stórbyggingarnar í Austur-
bænum hafa nú verið í smíðum
í þrjú ár, og næstum jafnlangur
tími liðinn síðan þær voru fok-
heldar. Öll sú saga er ljót, og ef
til vill saknæm ef eftir væri
leitað. Fólk er enn ekki flutt
inn. En lánin, sem það tók til
þess að kaupa íbúðirnar eru
löngu fallin í gjalddaga. Þó von-
aði fólkið, að það gæti greitt
afborganirnar af þeim og vext-
ina með þeirri húsaleigu, sem
| það áður greiddi. Svona fram-
ferði er skaðlegt þjóðarhag og
gjörsamlega stórhættulegt íyrir
efnahagslega afkomu einstakl-
inganna.
ATHUGULL skrifar: „Ég sá
nýlega ályktun, sem Kaupfélag
Skaftfellinga hafði gert á aðal-
fundi sínum, sem fól í sér ávít-
ur á núverandi ríkisstjórn fyrir
að hafa ranglega haft af bænd-
um 86 aura af hverju kjötkílói
af framleiðslunni 1958. Skilst
mér að helzt eigi að skila þess-
um aurum aftur.
ÞAÐ KEMUR úr hörðustu átt
þegar bændasamtökin, sem yf-
irleitt eru skynsöm og hógvær í
ályktunum, láta pólitíska ævin-
týramenn hafa sig til þess að
standa að svona ábyrgðarlausri
samþykkt.
ÉG SKAL ekþ»irt dæma um
hvort bændur áttu að fá 86 aur-
um meira á kíló eða einhverja
aðra tölu, en hitt vil ég fullyrða,
að ef stjórn Emils Jónssonar
hefði eigi borið gæfu til meðal
annars, með stuðningi Fram-
sóknarmanna, að setja niður-
færslulögin og að stöðva dýrtíð-
ina, þá hefðu hinir oftnefndu 86
aurar horfið fljótt í dýrtiðar-
hítina.
HEFÐI Kaupfél. Skaftfellinga
viljað sýna fulla ábyrgðartil-
finningu í máli þessu, átti það
að þakka ríkisstjórninni og öll-
um þeim, sem að stóðu, lausn
málsins á sínum tíma, fyrir að
henni hafði tekizt að stýra fram
hjá þeim skerjum, sem þá voru
fyrir stafni. Þakka henni fyrir
það að hún markaði stefnu í fjár
málum þjóðarinnar, sem getur
orðið til öryggis um næstu fram
tíð, ef ekki pólitískir angurgáp-
ar leiða stéttir eða stéttarfélög
á braut ævintýra og stiga-
mennsku gagnvart þjóðinni".
Traklor vélskóflan 12
Nær undraverðum afköstum. Skóflustærð að IV2 rúmmeter.
Mokar á við tvöfallt dýrari vél. Hentar bæjarfélögum, bygg-
ingameisturum, sveitarfélö gum, fiskvinnslustöðvum.
Ódýr — Tafarlaus afgreiðsla
VÉLAIVI IÐSTÖÐI N
Hafnarstræti 8 (GÍSLI HALLDÓRSSGN) Sími 17800.
4 30. ágúst 1959 — Alþýðublaðið