Alþýðublaðið - 12.06.1959, Síða 1

Alþýðublaðið - 12.06.1959, Síða 1
COWES, 11. júní, (REUTER). Hinn „fljúgandi diskur“ Breta, sem er hugsanlegt að sé undan- fari flugvélar, er verður míla á lengd og vegur 100.000 tonn, fór jómfrúrflugferð sína að viðstöddum áhorfendunt hér í dag. Hann fór tvær ferðir yfir land og sjó. Þessi sporöskju- lagaða flugvél vegur fjögur tonn og sýndi fyrst í 15 mínút- ur hæfileika sinn til að liggja á loft„svæfli“, sent vélknúin loftdæla beinir niður. Unt 200 blaðamenn fylgdust með vél- inni, þar sem hún lá urn fet ofar jörðu og sneri sig hægt í allar áttir. Seinna flaug vélin, sem hafði tveggja manna áhöfn, út yfir sjó í fyrsta sinn. Horfðu hundr- uð manna á vélina liggja kyrra í nokkrar mínútur yfir úfnum sjó. Síðan flaug hún yfir vatn- ið með allt upp í 20 mílna hraða .og olli miklu særoki. Áður hef- ur vélin flogið í fimm stundir í reynsluskyni og mikið rann- sóknarstarf er fyrir höndum enn. í vélinni er 435 hestafla Al- vis Leonides vél og rekur hún loftdælu, sem knýr loft út um op, er liggja í hring neðan á vélinni. Myndast þannig loft- „svæfillinn“ milli vélarinnar og jarðar. Ræða Gylfa í Iðnó í gæn refalda Gfæsilegur kjósendafundur A-lisfans. KJÓSENDAFUNDUR A-listansj voru, mjög góðar undirtektir. í Iðnó í gærkveldi var fjölsótt- Frú Soffía Ingvarsdóttir, for- j ur og glæsilegur og einkennd- maður Kvenfélags Alþýðu- ist af sigurvissu og sóknarhug. flokksins í Reykjavík bauð Illutu ræður þær, er fluttar fundarmenn velkomna og setti fundinn. Lagði hún áherzlu á það, að allt Alþýðuflokksfólk yrði að vinna vel í þeim kosn- ingum, er í hönd færu, þar eð nú riði á því, að Alþýðuflokk- urinn kæmi sterkur og öflugur út úr kosningunum. VERÐBÓLGUBÁLIÐ SLÖKKT. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, efsti maður A- listans í Reykjavík sagði í ræðu sinni, að ríkisstjórn Alþýðu- flokksins hefði tekið upp og framkvæmt nýja stefnu í efna hagsmálum, stefnu, er væri fólg in í því, að stöðva verðbólgu þá, er hefði verið að magnast, þegar vinstri stjórnin fór frá. Framhald á 2. síðu. SAMKVÆMT skýrslu Fiski- félags fslands nam heildarafl- inn 193.120 tonnum í lok apríl sl. Á sama tíma í fyrra nam aflinn 198.567 tonnum. Afli bát anna nam í apríl lok sl. 143.743 tonnum, en á sama tíma í fyrra 146.191 tonni. Aflinn í ár skiptist eftir verk Hafa bannið að eniu PARÍS, 11. júní, (REUTER). Frönskti járnbrautaverka- mannasamböndin ákváðu í dag að ögra ríkisstjórninni og gera átta stunda mótmælaverkfall á þriðjudag til stuðnings kaup- kröfum. Debré, forsætisráð- herra, hafði tilkynnt leiðtog- unum fyrr í dag, að stjórnin mundi nota vald sitt til að skipa verkamönnunum að vinna, ef verkfallinu yrði ekki aflýst. Fulltrúar þriggja stærstu sambandanna, jafnaðarmanna, kaþólskra og kommúnista, komu sér saman um það eftir fundinn með ráðherranum, að ekki hefði gerzt neitt nýtt í málinu, sem réttlætti að aflýsa verkfallinu. Ráðherrann hafði bent leið- togunum á, að verkföll nú mundu hafa mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir efnahagslíf landsins. — Sam- kvæmt frönskum lögum má ríkisstjórnin skipa mönnum að vinna og geta þeir sætt refs- ingu, ef þeir þrjós»ast við . unaraðferðum sem hér segir (í svigum aflinn í fyi'ra): Fryst- ing 111.542 tonn (108.137 tonn), herzla 28.113 tonn (28.391 tonn), mjölvinnsla 1.729 tonn (1.215 tonn). Aðrir liðir eru smærri. LONDON: Brezka stjórnin til kynnti í dag, að atómnjósnaran- um Klaus Fudhs, sem sleppt verður úr haldj síðar í þessum mánuði, verði. leyft að fara hvert á land, sem hann vill. aiiiiiMBDgiHaiiaiMiiiMiXliii; uflokksfundur í í kvöld ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG HAFNARFJARÐAR heldur fund í kvöld kl. 8,30 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu. Rætt verður uœ alþingiskosningarnar. Emil Jónsson, forsætisráð- herra, frambjóðandi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði verður frummælandi. Allir stuðnnigsmenn Emils Jónssonar í Hafn- arfirði eru velkomnir á fundinn meðan húsrúm leyfir. IU GENF, 11. júní (Reuter) Tuttugu og sex ára gömu jmkkadís birtist hér í Gen í dag og tilkynnti hverjum sem heyra vildi, að hún væi komin til þess að hindra a? utanríkisráðherrafundur fjórveldanna endaði í full kominni ringulreið. Stúlkan er ítölsk, heiti Diana D’Este og er nauðalí Brigitte Bardot. Hún boðaði til sín hlaða menn og tjáði þeim, að hú væri með friðaráætlun up á vasann og hefði þegar sen ráðherrunum afrit. í áætlun hennar er ger ráð fyrir alheimsstjórn un< ir forsæti Svíþjóðar og Svis lands, byggingu atómskeyta stöðva í svissnesku Ölpun um til þess að ógna væntan legum friðarsplllum og a kynjun kvenna eftir fjórð barnið til þess að koma í ve fyrir offjölgun í heiminum Diana lýsti yfir, að hii hefði flýtt sér til Genf, „þeg ar mér varð ljóst, að utan ríkisráðherrarnir voru kom ir í strand. Mr. Lloyd er s eini, sem Iiefur svarað bré mínu. Hann þakkaði mér fy ir friðaráætlunina og sagð að hún yrði gaumgæfileg athuguð.“ MUMMMUtMMtMUUMMiW Hún er smá og skóflan er stór. Hún er að byrja vinnu í skólagörðunum fyrir norð- an flugvöll. Þar mun liún eiga land í sumar og rækta grænmeti og kartöflur og sennilegast blóm. Von að hún sé alvarleg á svipinn með alla þessa ábyrgð. 40. árg. — Föstudagur 12. júní 1959 — 120. tbl.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.