Alþýðublaðið - 12.06.1959, Blaðsíða 9
( ÍÞróttir
KR sigraði Þróff með 5 gegn 0. ■]
Sundmenn taka þátt í OL 1960. SSÍ
að athuga möguleika á Iandskeppni
ÁRSÞING Sundsambands
íslands var haldið í Tjarnar-
café mánudaginn 27. apríl 1959.
Formaður S.S.Í., Erlingur Páls-
son, setti þingið og bauð full-
trúa velkomna til starfa. Til-
nefndi síðan forseta Í.S.Í., Bene
dikt G. Wáge, sem þingforseta
og Hörð Óskarsson sem þing-
ritara. í kjörbréfanefnd voru
kosnir: Yngvi R. Baldvinsson,
ísak J. Guðmann og Pétur
Kristjánsson.
Mættir voru 22 fulltrúar frá
9 ráðum, bandalögum og sér-
samböndum til þingsetu. Auk
þess mætti Þorsteinn Einars-
son, íþróttafulltrúi ríkisins.
Því næst var gengið til dag-
skrár:
Formaður S.S.Í., Erlingur
Pálsson, flutti skýrslu fráfar-
andi stjórnar. Meðal annars
gat hann um eftirfarandi;
a. Þátttöku S.S.Í. í Unglinga-
sundmeistaramóti Norður-
landa í Kalmar 1958 og hina
frábæru ’ frammistöðu
Ágústu Þorsteinsdóttur og
Guðmundar Gíslasonar þar,
sem var landinu til mikils
sóma.
b. Endurskoðun sundgreina á
Sundmeistaramóti Íslands
til að gera mótið fjölbreytt-
ara og meira við hæfi sund-
fólks utan Reykjavíkur.
c. Tilboð S.S.Í. til hinna Norð-
urlandanna fjögurra um
gagnkvæma landskeppni í
sundi við ísland á næstu ár-
um. Undirtektir voru dauf-
ar, en þó ekki vonlaust um
einhvern árangur.
d. Ákvörðun S.S.Í. um að taka
þátt í næsta Sundmeistara-
móti Norðurlanda fyrir full-
orðna í Kaupmannahöfn í
ágúst n. k.
e. Um samnorrænu sund-
keppnina 1957 og að senni-
lega yrði næsta samnorræna
sundkepnni haldin 1960.
f. Þá ræddi form. um að sam-
band og samstarf þyrfti að
vera meira við sunddeildir
og félög úti á landsbyggð-
inni. S.S.Í. þyrfti að geta
sent farkennara út á lands-
byggðina til að leiðbeina í
sundkennslu og sundþjálf-
un. Fjárhagur hefði ekki
leyft þetta nema í smáum
stíl, en verið mjög vel þegið.
g Þá skýrði form. frá því, að
S.S.Í, hefði tilkynnt Olvmp-
íunefnd íslands um þátt-
. töku íslenzks sundfólks í
næstu Olvmpíuleikum og
að Olympíuþiálfun í sundi
þyrfti að hefjast á hausti
komandi.
h. Samþvkktir voru í Reykja-
vík 12 landsdómarar í sundi
og óskað eftir að sunddóm-
aranámskeið verði haldin
víðar en í Reykjavík.
Því næst lagði gjaldkeri S.S..
í., Þórður Guðmundsson, fram
endurskoðaða reikninga og
skýrði þá. Hafði S.S.Í. fengið í
sinn hlut tekjur af samnor-
rænu sundkeppninni 1957, kr.
10.500,00.
Eftir kaffihlé hófust fjörug-
ar umræður um ársskýrsluna
og reikningana og tóku margir
til máls og voru fjölda mörg
mál rædd. Meðal annars var
rætt um samnorrænu sund-
keppnina. Form. S.S.Í. sagði,
að þrátt fyrir hinar óhagstæðu
jöfnunartölur, sem ísland hefði
orðið að keppa eftir, hefðum
við vel getað sigrað, hefðu ekki
bezt syndu aldursflokkarnir
dregið sig í hlé. Hins vegar
hefði samnorræna. sundkeppn-
in orðið oss íslendingum mik-
ill ávinningur, bæði vegna al-
mennrar þátttöku og fjárhags-
legs ágóða, sem sundíþróttin
víða um land hefði hlotið af
keppninni. Færði form. S.S.Í.
Þorsteini Einarssyni, íþrótta-
fulltrúa, hinar beztu þakkir
fyrir ágæta framkvæmda-
stjórn og starfsemi í þágu sam-
norrænu sundkeppninnar. Þor-
steinn Einarsson kvaðst helzt
vilja hafa samnorræna sund-
keppni árlega. Hann kvað þá
góðu fjárhagsútkomu sund-
keppninnar 1957 vera mjög að
þakka góðum skilningi og vin-
semd fjármálaráðuneytisins.
Hann þakkaði stjórn S.S.Í. fyr-
ir ágæta samvinnu.
Að umræðum loknum bar
þingforseti upp skýrslu stjórn-
arinnar og reikninga og voru
þeir samþykktir samhljóða.
Því næst fór fram stjórnar-
kosning: Formaður var kjör-
inn Erlingur Pálsson, einróma.
Úr stjórn áttu að ganga Ragn-
ar Vignir og Yngvi R. Bald-
vinsson, báðir endurkosnir
samhljóða. Stjórnina skipa því
á næsta ári: Formaður Erlingur
Pálsson, Yngvi R. Baldvinsson,
Ragnar Vignir, Þórður Guð-
mundsson, Hörður Jóhannes-
son. Hún skiptir með sér verk-
um á fyrsta fundi. Varastjórn:
Guðmundur Ingólfsson og Hall
ur Gunnlaugsson. Endurskoð-
endur: Atli Steinarsson og Ari
Guðmundsson.
Eftirfarandi tilllögur voru
bornar upp af þingforseta og
samþykktar og vísað til hinnar
nýkjörnu stjórnar:
1. Ég undirritaður legg til, að
SSÍ leggi ti lverðlaun fyrir
Sundmeistaramót íslands.
Verði það meistarapeningur
bæði fyrir fuliorðna og ung-
linga. Einnig önnur og
þriðju verðlaun, pening. —
Skal þetta vera framlag
Sundisamibandsins tii fram-
kvæmdarnefndar mótsins
hverju sinni. — Guðmund-
ur Ingólfsson (sign).
2. Við undirritaðir gerumþað
'að tillögu okkar, að Sund-
sambandið ákveði nú þegar
lágmarkstímia fyrir Norður-
landameistaramótið, sem
fram á að fara í ágústybrjun
í Kaupmananhöfn, og skulu
þeir, sem ná þeim lágmarks
tímum, sendir, hve margir
sem þeir kunna að verða, ef
úr þátttöku íslands verður.
Guðmundur Gíslason, Pét-
ur Kristjánsson, Guðmund-
ur Ingólfsson (sign).
3. Ársþing SSÍ 1959 beinir þvx
til hinnar nýkjörnu stjórn-
ar, að hún beiti sér fyrir
því, að haldið verði áfram
framkvæmdum við sundlaug
ina 1 Laugardalnum.------
Guðmundur Gíslason, Pét-
ur Kristjánsson, Guðmundur
Ingólfsson (sign).
4. Ársþing SSÍ 1959 samþykk-
ir að fela ihnni nýkjörnu
stjórn SSÍ að kjósa 3 menn
í nefnd er sjái um að á
hverju ári fari hópur sund-
manna um landið . til að
kynnai þessa íþrótt íþrótt-
anna. — Hörður Jóhanns-
son (sign).
5. Geri það að tillögu minni,
að stjórn SSÍ viðurkenni
hið fyrsta þá menn, sem
hún telur hæfa sem sund-
dómara og hvetji héraðs-
samlbönd og sundráð til þess
að efna til dómaranám-
skeiða. — Ingvi R. Baldvins-
son (sign).
6) Við undirritaðir sem: vor-
um skipaðir af stjórn SSÍ
í nefnd til þess að endur-
skoða keppnisgreinar á
Sundmeistaramóti íslands,
leyfum okkur hér með að
bera fram eftirfarandi til-
lögu:
a. Að næstu fjögur ár verði
keppt í 4x100 m. skrið-
sundi karla í stað 4x200
m. skriðsundi.
b. Að framvegis bætist eft
irtaldar sundgreinar á
skrá Sundmeistaramóts
íslands: 3x50 m. þrísund
telpna. 3x50 m. þrísund
drengja. — Ragnar Vign
Framhald á 2. síðu.
KNATTSPYRNAN er
flokkakeppnj, sem fýrst og
fremst byggist á samleik, en
gefur jafnframt einstakling-
um tækifæri til að sýna skap-
andi framtaksemi og hug-
kvæmni, ef hann hefur til
þess skilnjng og leikni. Það
sem af ier þessu leikári hefur
lítið borið á fram.takssemiinni
og hugkvæmninni, hins veg-
ar hafa þeir, sem völlinn hafa
sótt, en þeir skipta þúsúnd-
um, yfirleitt orðið vitni af
sama og síendurtekna hnoð-
inu, þar sem uippistaðan hef-
ur verið ónákvæmar sending
ar og klaufalieg viðbrögð leik
mannanna. Ekki var „farið út
af línunni11 hvað þetta snerti
í leik ofangreidra félaga á
miðv'ikudagskvöldið var, bó
til undantekninga megi télja,
leik Þórólfs Beck og Garðars
Árnasonar í liði KR og mið-
framvarðarins, Halldórs Hall-
dórssonar, { liði Þróttar.
Fyrri hállfléiknum lauk
með því, að KR skoraði tvö
mörk, það fyrra er 15 mín-
útur voru /af leik. Það var
Sveinn Jónsson sem skoraði,
úr sendingu Arnar Steinsens.
Það síðar gerði svo Þórólfur
Back, lék hann mjög laglega
upp að marki með knöttinn
og skoraði prýðilega. í þess-
um hálfleik áttu Þróttarar
tvö góð færi. sem næi’ri höfðu
nýtzt þeim' til að jafna. 1 fynssj
skiptið úr hornspyrnu, þart
sem Garðar Árnason bjargw
aði á línu, en í síðara skiptiði-
bjargaði markvörður iöbia
skoti á s(íðasta augnabliki.
í síðari háífleiknum skor-
uðu svo KR-ingar þrjú mörk.
Það fyrsta gerðí ÞórólfuX
Beck. Sveinn Jónsson annaS
skömmu síðar. Komst hann
innfyrir Halldór, sem ekkíl
hafði við honum á sprettn-
um, ,en markvörðurinn hefðil
hins vegar átt að gera tilraun.
til bjargar með úthlaupi, ent
hrieyfði sig ekki, en beið semi
dauðadæmur og fékk svo ekk
ert að gert. Loks bæíti svo
Örn Steinsen þriðja markinu
við nokkru fyrir leikslok,
þarna hefði markvörðúrinni
aftur á að gera tilraun til
björgunar með úthlaupi, crr
lét það hins vegar ógert. Má
vel v'era að ef hann hefðil
reynt úthlaup f hæði þessii
skipti, að honum hefði tekist
að bægja hættunni frá. Það
var minnsta kosti skylda hans
að reyna það, og hefði ekkl
verr farið en fór, þó úthlanpÍHi
hefðu ekki borið árangur.
í þessurn hálfleik átti Þrótt
ur að minnsta kostj tvívegis
markfæri, sem ekki nýttust.
Mörk KR í fyrri hálfleik
voru hins vegar bæði gerð úr
Framíhald á 2. síðu.
Vilhjálmur og
Svavar til Varsjá
FRÁLSÍÞRÓTTASAMBANDI
íslands var boðið a ðsenda tvo
keppendur á hið árlega minn-
ingarmót um einn þekktasta
langhlaupara Póllands, Janus
Jusocinski, en mótið fer fram í
Varsjá um næstu helgi.
Beðið var um Vilhjálm Ein-
arsson og Valbjörn Þorláksson,
en sá síðarnefndi gat ekki þeglð
boðið og var SVavar Markússon
þá valinn í hans stað. Vilhjálm-
ur keppir í þrístökki, en á mót-
inu keppa sennilega flestir
beztu þrístökkvarar heimsins
Framhald á 4. síðu.
IBANDARÍKJAMENN hafa
eignazt tvo nýja spjótkast-
ara á hehnsmælikvarða í vor
og í gær var frétt um það
hér á síðunni, að annar
þeirra, A1 Cantello, hefði sett
nýtt heimsmet, kastaði 86,04
m. Það fylgdi fréttinni, að
nýr kaststíll hefði verið upp-
götvaður og hér er mynd af
hinum kastaranum, Bill Al-
ley, sem hefur kastað 82,33
m. Myndin sýnir óvenjuleg-
an stíl Ogf minnir töluvert á
handknattleiksmann, sem er
að skjóta á mark. Berið sam
an myndina af Gunnlaugi
Hjálmarssyni, einum okkar
bezta handknattleiksmianni.
HUMMWMMVWMWWUMM
Alþýðublaðið — 12. júní 1959 0)