Alþýðublaðið - 02.10.1959, Blaðsíða 3
LEIKFÉLAG Akraness frum-
sýndi sl. miðvikudagskvöld
euska gamanleikinn „I blíðu og
stríðu“ eftir Arthur Watkyn.
Fjallar leilcurinn um byrjunar-
erfiðleika ungra hjóna og ger-
ist í London og skömmu eftir
seinustu styrjöld, þegar hús-
næðisv;*uræði, skömmtun og
þviumlíkt gat skapað erilssama
hveitibrauðsdaga.
Aðalhlutverkin eru í höndum
Sigurborgar Sigurjónsdóttur og
Júlíusar Kolbeins, en önnur
hlutverk leika Bjarnfríður Le-
ósdóttir, Þorgils Stefánsson,
Kjartan Sigurðsson, Sigríður
Kolbeins, Jóhannes Gunnars-
son, Sólrún Ingvarsdóttir og
Ásmundur Jónsson. Leikstjóri
er Jónas Jónasson.
Leiknum var mjög vel. tekið
á frumsýningunni og verður
önnur sýning hans í Bíóhöllinni
í kvöld.
Sigurborg Sigurjónsdóttir og Júlíus Kolbeins
í baksýn Þorgils Stefánsson.
hlutverkum.
PEKI'NG, 1. okt. (REUTER).
Krústjov reyndi árangurslaust
að grípa friSardúfu í dag. Börn
slepptu hundruðum dúina á
torgi hins himneslta friðar í
Peking, og flugu þær yfir mik-
illi skrúðgöngu, er gekk um
íorgið til að minnasí þess, að
tíu ár eru liðin frá því, að kom-
múnistar náðu völdum í Kína.
Er ein dxifan flaug fram hjá
svölum þeim, er Krústjov
Iiorfði á skrúðgönguna af,
reyndi hann að grípa hana, en
mistókst.
Viðlagið „friður", sem dúf-
urnar áítu. að tákna,: endurtók
gig í ræðu kínverska landvarn-
aráðherrans, Lin Piao, mar-
skálks, sem sagði í dagskipan
til herjanna: „Við munum
aldrei ráðast inn í land neins
annars, né munum við leyfa
neinum öðrum að ráðast inn í
okkar land.“
En hann lagði áherzlu á þá
fyrirætlun Kínverja að „frelsa“
Formósu og kvað engum erlend
iim ríkj.um mundi haldast uppi
að skerast þar í leikinn.
Risastór mynd af Mao Tse-
Tung hékk á hinu mikla hliði
við torg hins himneska friðar
og við hinn enda torgsins hengu
onyndir af „spámönnum" kom-
múnista, Marx, Engels, Lenin
og Stalín. Við annan enda torgs
ins st.óðu, 100.Ö00 manns mcð
blómvendi í höndum og mynd-
uðu. skj aldarmerki Kína og ár-
tölin 1949—1959.
Krústjov skýldi augum sín-
um með hattinum, er hann
horfði á stálhjálmaða hermenn,
flugmenn og sjóliða ganga gæsa
gang yfir torgið og 100 herfluín
ingavagna, nokkrar fallbyssur
og 100 dökkgræna skriðdreka
fara í kjölfarið. 45 sprengju-
þotur og 100 orrustuþotur
hvinu yfir torginu á meðan.
KENNARASKOLINN var
settur í gær, að viðstöddum
kennurum og nemenduni skól-
arts. 133 nemendiiii’ verða í skól
anum í vetur eða 11 fleiri en í
fyrravetur. Sagði skólastjóri,
Freysteinn Gunnarsson, í setn-
ingarræðu sinni, að aðsóku
hefði mjög aukizt og hefðu
færri fengið skólavist en vildu.
DAGSKRÁ Sam-
bands íslenzkra
berklasjúklinga er
í kvöld- kl. 20.30.
Biörn T. Björns-
son listfræðingur
hefur undirbúið
dagskrána. —• Kl.
21.30 eru tónleik-
ar: Robert Shaw-
kórinn og NBC-
sinfóníuhlj ómsveit
in flytja kórlög
eftir Brahms og
Te deum eftir Verdi. Kvöldsag-
an Þögn hafsins er kl. 22.10 cg
kl. 22.30 kynnir Svavar Gests
snöngvarann og hljóðfæraleils-
arann Nat „King“ Cole.
•eidaDiii
Laugavegi 63
Þ.IÓÐVILJINN staðhæfir í
gær, að Gylfi Þ. Gíslason og
þar með Alþýðuflokkurinn vilji
gcngisl?ekktm efíir kosningar.
En kommúnistablaðinu væri
'sæmst að Títa sjálfu sér nær.
Gengislækkimarmennirmr eru
svo. sem auðíimianlegir í fylk-
ingu Alþýðubandalagsins.
Ráðstafanir fyrrverandi rík-
isstjórnar í efnahagsmálum ein-
kenndust sarmarlega af gengis-
lækkun samkvæmt skilgrein-
ingu Þjóðviljans á því fyrir-
bæri. Sámt áttu Lúðvík Jóseps-
son og Hannibal Valdimarsson
sæti í þeirri ríkisstjórn, sem
fulltrúar Alþýðubandalagsins.
íslendingar munu þess vegna
brosa að þeim rnannalátum
Þjóðviljans, þegar hann þykist
vera skilyrðislaust á móti geng-
islækkun og stimplar hana sem
fjandskap við land og þjóð.
Kommúnistar ættu að iáta
sannleikann um verk Lúðvíks
og Hannibals áður en þeir þykj-
ast geta skýrt og sannað fyrir-
ætlanir Gylfa Þ. Gíslasonar og
Alþýðuflokksins. En víst er það
líkt Þjóðviljanum að saka Gylfa
Þ. Gíslason um að ætla það, sem
Lúðvík og Hannibal hafa kom-
ið í verk og myndu vafalaust
reiðubú?/ir að endurtaka — til
dæmis í náðarfaðmi Framsókn-
arfloTksins.
Mál þessi eru nánar rædd í
forustugrein Alþýðublaðsins í
dag.
LONBON, 1. okt. (REUTER). I
Mikið var keypt á hinni við- j
kvæmu kaiiphöll í London í dag
og er það talið merki um trú
á því, að íhaldsmenn sigri í kosn
ingunum, þrátt fyrir það, að
skoðanakannanir sýna, að jafn-
aðarmenn eru stöðugt að viena
á. Nýjasta skoðanakönnunin,
sem frjálslynda blaðið Nevvs
Ghronicle hefur birt, sýnir í-
haldið aðeins af hundraði
á undan jafnaðarmönnum, en
13% af hundraði „vc-it ekki“.
Sagði blaðið, að ef svo héldi
áfram, gæti svo farið, að frjáls-
lyndi flokkurinn, sem hefur
aðeins sex þingsæti af 630, gæti
riðið baggamuninn um stjórn-
armyndun.
Vonir íhaldsmanna glöðnuðu
nokkuð í dag vegna skyndiverk
falls verkamanna í súrefnis-
verksmiðju, sem ekki nýtur
stuðnings verkalýðsfélags
þeirra. Hefur orðið að loka
nokkrum hílasmiðjum v'egna
verkfallsins og hafa verkamenn
neitað að loka nokkrum bíla-
smiðjum vegna verkfallsins og
hafa verkamenn neitað að fara
að tilmælum félags síns um að
snúa aftur til vinnu.
Nota gagnrýnendur jafnaðar-
manna verkfall þetta sem grýlu
og telja hana dæmi um ábyrgð-
arleysi, er Bretar mundu finna
fyrir, ef jafnaðarmenn kæmust
til valda.
Jafnaðarmenn tilkynntu í
dag, að þeir mundu lækka sölu-
skatt á fjölda neyzluvara, e£
þeir kæmust til valda.
íhaldsmenn vonast eftir, að
'íkisráSfiðrra
Frarríhald af 1. síðu.
Grímsey. Varðskipið veiííi tog
aranum eftirför, en herskipið
kom í veg fyrir frekari að-
gerðir.
Utanríkisráðuneytið hefur í
dag afhent brezka sendiráðimi
harðorð mótmæli út af aíburði
þessum og krafizt þess að um-
ræddur togari verði látinn
koma til íslenzkrar hafnar til
þess að sæta ákæru fyrir lSnd-
helgisbrot.
Jafnframt hefur ráðuneytið
móhnælt heimildarlausri sigl-
ingu skipsins í íslenzkri land-
helgi.
Mi i
HORAGOLLA, 1. okt. (REUT-
ER). Ekkja og börn hins. myría
forsætisráðherra Ceylon, Solo-
mon Bandaranaike, héidu sér
ekkaþrungin í lokið á kistu
hans, er átti að múra hana inn
í grafhýelfingu á jörð forfeðra
hans hér. Ekkjan, Sirimavo
Bandaranaike, dóttir háttsetts
Ieiðtoga Kandya, var svo að-
framkomin eftir jarðarförina,
að landsstjórinn varð að leiða
hana á brott.
Sorg fjölskyldu hins látna
stjórnmálaleiðtoga endurspegl-
aðist með allri þjóðinni, er
vinna stöðvaðist og kirkjuklukk
ur hringdu líkhringingu við lok
mestu samúðaröldu, sem vitað
er um í sögu Ceylon.
Hundruð þúsunda Cevlón-
búa- hafa gengið fram hjá líki
forsætisráðherrans þar sem það
stóð á viðhafnarbörum, fyrst á
heimili bans í Colombo og síðan
í þinghúsinu, þar sem hann
hafði átt sæti í 30 ár.
Sterkur - lögregluvörður gætti
um 3.000 Búddamúnka og
presta við jarðarförina. Óttað-
ist lögreglan, að mannfjöldinn
kynni að skeyta slcapi sínu á
þeim, þar eð það var háttsett-
ur Búddamúnkur, sgm myrti
ráðherrann. Ekkert slíkt kom
þó til.
Framhald af 5. síðu.
Ökumaður vörubílsins varð
þegar var við slysið. Tókst hon-
um £0 ná Svavari upp. Piltur-
inn var þegar fluttur á slysa-
varðstofuna. Þar kom í ljós, að
hann var rifbeinsbrotinn og
hafði fengið taugaáfalL Hann
var síðan fluttur á Landspítal-
ann til nánari rannsóknar.
Ífiíj |fj SK 1 m gji
KOSNINGASKRIFSTOFA Alþýðuflokksins í
Reykjavík er í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu og
er opin daglega kl. 9—7, símar: 15020, 16724. Er
þar hægt að fá upplýsingar um kjósendur hvar-
vetna á landinu (kjörskrá yfir allt landið). Fólk er
beðið að athuga í tíma, hvort það er á kjörskrá.
Framhald af 5. síðu
Kjartan Guðnason, formaður
stjórnar Múlalundar, kvað það
lengi hafa verið von SÍBS að
koma á fót vinnustofu í Revkj-
vík fyrir þá öryrkia, sem ekki
geta komið því við að fara til
Reykjaiundar. Yav kevpt 125
íerm. fokhelt húsnæði að Ár-
múla 16 og vélar keyptar til að
rafsjóða saman plastbor-itm
dúk, en það er ný iðngrein hér-
lendis, Hlaut vinnustofan nafn
ið Múlahmdur og tóku íyrstu
mennirnir til starfa þar í maí
sl. og er eftirspurn eftir vinn-
unni . mikil. Vinna þar nú 20
manns, þar af nokkrir að Hjarð
arhaga 24—32, enjpar er sauma
stofa og birgðagevpisla. Hefur*
á 3. millj. kr. verið varið til
þessara framkvæmda. Er unnið
þar á vöktum, 24 stundir á viku
hvor vakt, og greitt eftir Iðju-
taxta. y
Alþýðublaðið
2. okt. 1959