Alþýðublaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 9
( ÍÞróttir )
DANIR sigruSu Finna í
knattspyrnu með 4 mörkum
;gegn engu í Kaupmannahöfn á
sunnudaginn. Staðan í hálfleik
var 2:0.
Maður leiksins var Harald
Nielsen frá Fredrikshavn, en
hann skoraði þrjú glæsileg
. mörk „hat trick“. Er greinilegt,
að þessi 18 ára unglingur á eft-
ir að verða frábær knattspyrnu
maður og er reyndar orðinn
það, enda dáður mjög eftir þrjá
síðustu leiki Dana, gegn Norð-
mönnum, Tékkum og nú gegn
Fjnnum. Fjórða mark Danmerk
ur skoraði nýliði í landsliðinu,
John Cramer með ágætum
skalla.
-k FINNAR KOMU Á ÓVART
í FYRRI HÁLFLEÍK
Finnska liðið kom mjög á ó-
vart fyrsta hálftíma leiksins og
sýndi mjög góða knattspyrnu.
Áttu Finnarnir mörg hættuleg
skot á danska markið, en Henry
Fröm varði meistaralega og átti
mjög góðan leik. Þrátt fjuir góð
an leik finnska liðsins voru það
Danir, sem skoruðu tvivegis í
hálfleiknum ei-ns og fyrr segir
og var það Harald Nielsen.
í síðari hálfleik höfðu Danir
mikla yfirburði og þá skoraði
Nielsen sitt þriðja mark og ný-
Iðinn. Cramer eiít, þegar sex
mínútur voru til leiksloka. —
Beztu menn danska liðsins voru
Nielsen, Enoksen og Frem, en í
finnska liðinu bar mest á Pahl-
mann og Hiltunen, en þeir eru
báðir í framlínu.
Það voiu nærri 38 þúsund á-
horfendur í Idrætsparken á
sunnudaginn.
í B-landsleik þjóðanna, sem
fram fór í Helsingfors, sigruðu
Finnar með 2 mörkum gegn 1,
staðan í hálfleik var 1:0. Danir
sigruðu í unglingalandsleikn-
um, sem háður var í Kotka með
3:1 (2:1).
VESTUR-Þ JÓÐVERJAR sigr
uðu Japan í Tokíó um heigina
með 169 stigum gegn 115. —
Brautir voru þungar og komu í
veg fyrir góðan árangur 1 hlaup
unum.
Beztu afrek keppninnar voru:
400 m grind:
Janz, V-^Þ 51,5
Ogushi, Japan 52,6
800 m hlaup:
Schmidt, V-Þ 1:51,2
Friendel, V-Þ 1:51,3
200 m hlaup:
Germar, V-Þ 21,2
Mahlendorf, V-Þ 21,6
Stangarstökk:
Yasuda, Japan 4,20
Kringlukast:
Möhring, V-Þ 46,90
5000 m hlaup:
Höger, V-Þ 14:18,2
100 m hlaup:
Germar', V-Þ 10,7
4X100 m:
V-Þýzkaland 41,5
4X400 m:
V-Þýzkaland 3:13,5
Langstökk:
Hanada, Japan 7,31
1500 m hlaup:
Stracke, V-Þ 3:55,3
110 m grind:
Steines, V-Þ 15,0
Hástökk:
Piill, V-Þ 2,00
Sugoika, Japan 2,00
400 m hlaup:
Isashi, Japan 48,4
(Kaufmann var langfyrstur,
var dæmdur úr.)
Þrístökk:
Sakurai, Japan 15,41
Kúluvlarp:
Lingnau, V-Þ 16,61
Szecsenyi kasfaði kringlu
59,03 m. á mófi í Búdapesf
Janz sigraði með yfirburðum í 400 m, grind á 51,5 sek.
Stóra myndin hér fyrir ofan er
af flestum þingfulltrúunum á
íþróttaþingi ÍSÍ, sem nýlega var
háð hér í Reykjavík. Sú minni
er af Benedikt G. VVaage, sem
var enduirkjörinn forseti
íþróttasamhnadsins, en það hef
ur hann verið síðan 1926.
UNGVERJINN Joszef Szec-
senyi settj nýtt ungverskt. met
í kringlukasti á sunnudaginn
með 59,03 m kasti. Þessi árang-
ur Ungverjans er sá þriðji
bezti, sem náðst hefur í heim-
inum frá upphafi.
Szecsenyi hefur sennilega
verið jafnbezti kringlukastari
Evrópu og heimsins í ár, hann
hefur einu sinni sett Evrópu-
met, sem hann missti skömmu
síðar, en margoft bætt ung-
verska metið — 58,33 — 58,60
—58,96 og nú 59,03 m.
Það lítur út fyrir, að Banda-
ríkjamenn séu að tapa forustu
í kringlukasti ,sem þeir hafa
haldið allt frá því að fyrsta
heimsmetið var staðfest —
36,77 m. Sheridan 1901. Aðeins
tvívegis hefur metið verið tek-
ið frá þeim síðan í stuttan tímá,
Andersson, Svíþjóð 1943 og
Schröder, Þýzkaland 1935. Ár-
angur þeirra var 52,42 m og
53,10 m.
í sumar hafa kringlukastarar
Evrópu verið í mikilli fr'amför,
en hæst ber Piatkowsky, 59,91
m (heimsmet) og svo hinnágæti
árangur Szecsenyi.
Hér birtum við til gamans,
bezta árangur, sem náðst hefur
í kringlukasti frá upphafi —
fyrst 1958 og síðan miðað við
4. okt. 1959.
1958:
Fortune Cordien, USA 59,28
Jack Ellis, USA 58,28
Sim Iness, USA 57, S3
Rink Babka, USA 57,42
AlOerter, USA 57,35
Consolini, Ítalíu 56,98
Otto Grigalka, Rússl. 56,94
Edm. Piatkowski, Póll. 56,78
Karel Merta, Tékk. 56,69
Joszef Szecsenyi, Ungv. 56,69
4. okt. 1959:
Piatkowski, Póll. 59,91
Cordien, USA 59,28
Szecsenyi, Ungv. 59,03
! JackEllis, USA 58,28
tungumálanámskeið
Lærðið tungumál fljótt og auðveldlega
eftir BEZTU og LÉTTUSTU aðferðinni
NÝKOMIN NÁMSKEIÐ Á 45 snúninga plötum: Enska — þýzka — franska —
ítalska. — Á 78 snúninga plötum: — Enska — þýzka — franska — ítalska —
spanska — tékkneska — norska — sænska — japanska — hindustani — lafiríska
— kínverska — rússneska — pólska — arabiska — persneska — hebreska —
efik — hausa — syriac — malay — finnska — ESPERANTO, o. fl.
Einkaumboð fyrir LINGUAPHONE Á ÍSLANDI:
Hljóðfœrahús Reykjavíkur hf.
Sími 13656
— Bankastræti 7 —
Sími 13656
Alþýðublaðið — 7. okt. 1959 0