Alþýðublaðið - 11.10.1959, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 11.10.1959, Qupperneq 3
VUIUUi FYRSTA nýja verkefni Þjóð leikhússins á þessu leikári verð >ur „BIóðbrullaup“ eftir spánska! skáldið Garcia Lorca. Verður! það frumsýnt n.k. miðvikudags [ kvöld. Starfsemi Þjóðleikhússins á leikárinu hófst 19. septemtaer 1 með sýningum á „Tengdasonur óskast“. Hefur það verið sýnt 20 sinnum við góða aðsókn. LJÓÐRÆNT DRAMA. Blóðrullaup er fyrsta spánska leikritið, sem tekið er til flutn ings í Þjóðleikhúsinu. Það er jafnframt fyrsta leikrit Garcia Lorca, sem sýnt er hér á landi. blóðbrullaupið er Ijóðrænt drama, tvímælalaust þekktasta verk Lorca og eitt af merkustu dramatísku verkum 20. aldar- innar. Höfundurinn Garcia Lorca SUNNUDAGINN 11. okt. 1959 (sr. Óskar J. Þorláksson). DRENGIR: Lúðvík Vilhjálmsson, Grundarstíg 5 B. Ólafur Hrafn Kjartansson, Keflavík. Pétur Andreas Karlsson Maack, Skipholti 50. Sigurður Ingi Tómasson, Laugavegi 144. Þorvaldur Priðfinnur Jónsson, Melgerði 26. STÚLKUR: Ásgerður Ásgeirsdóttir, Ásgarði 63. Brynhildur Maack Pétursdóttir, Bústaðavegi 100. SEl'ín Eyvindsdóttir, Blönduhlíð 7. JErla Margrét Sverrisdóttir, Básenda 5. 'Cruðbjörg Ingólfsdóttir, Bakkastíg 5. Kitty María Arnfjörð Jónsdóttir, Laugavegi 42 lilargrét Níelsdóttir Svane, Háaleitisvegi 39. IJnnur Guðbjartsdóttir, Holtsgötu 13. fæddist í Granada á Spáni 1899. Hann var myrtur 1936 af fal- angistum, er ekki gátu þolað hin ar djörfu skoðanir, er Lorca setti fram í verkum sínum. Lor ca ólst upp í sveit, las lögfræði, heimspeki og bókmenntir en lauk ekki prófi. Hann gerðist leikstjóri og stjórnaði sjálfur sínum eigin verkum. Hann tók engan beinan þátt í stjórnmál. um en var hirspurslaus í skoð- unum og galt þess 1936, er hann var myrtur. Voru bækur hans þá brenndar, þær er náðist tii. HLUTI VERKSINS í LJÓÐUM. Blóðbrullaupið er í þremur þáttum og hluti þess er í Ijóð- um. Leikstjóri hér er Gísli Hall dórsson og er þetta fyrsta verk ið, sem hann setur á svið í Þjóð leikhúsinu. Lárus Ingólfsson hefur málað leiktjöldin. Ragn- ar Björnsson hefur æft söngv- ana. Aðalleikendur eru: Andís Björnsdóttir, er leikur móður- ina, Guðrún Ásmundsdóttir, er leikur brúðurina, Valur Gúst- afsson, er leikur brúðgumann, Regina Þórðardóttir, er leikur tendgamóðurina, Helgi Skúla- son, Helga Valtýrsdóttir, Lárus Pálsson, Baldvin Halldórsson og Herdís Þorvaldsdóttir. „VERKIÐ GAGNTEKUR MANN“. Gísli Halldórsson sagði í við tali við blaðamenn, að hann væri mjög ánægður með að hafa fengið tækifæri til þess að setja þetta verk á svið í Þjóð leikhúsinu. ,,Ég hefði ekki get- að kosið mér neitt verk frem- ur“, bætti hann við. Harin sagði, að í þessu verki væru ýmis feg urstu Ijóð Garcia Lorca, svo sem „Vögguþula“, er Magnús heit- inn Ásgeirsson hefði þýtt. Væri sú þýðing notuð í þessu leik- riti. Lögin í leikritinu eru ým- ist samin af höfundi eða valín af honum. Sagði Gísli, að fyr- ir tilviljun héfði Þjóðleikhús- inu tekizt að verða sér úti um þau öll á nótum. Notkun ljósa og lita væri samkvæmt fyrir- mælum höfundar. „Allt þetta skapar slíkan blæ, að verkið gagntekur mann“, sagði Gísli Halldórsson. Síldardrottn- ingakeppni A l þýðublaðsins SIGLFIRSKAR konur (eins og reyndar mátti- vænta) báru sigur úr být- um í Alþýðublaðskeppn- inni um síldardrottningar- titlana. Þær eru: Ingibjörg Egg- ertsdóttir (til vinstri á for- síðu) og Steinunn Antons- dóttir (til hægri á fcirs.). Ingibjörg lagði fram skil ríki, sem sýndu, að hún hafði saltað í 317 M> tunnu á sumrinu. HÚN FÆR ÞVÍ ÞRJÚ ÞÚSUND KRÓNA VERÐ- LAUN ALÞÝÐUBLAÐS- INS. Steinunn sýndi mesta söltun í „törn“ — hún salt- aði í 47 tunnur í einni lotu. FYRIR ÞETTA GREIÐ- IR BLAÐIÐ HENNI TVÖ ÞÚSUND KRÓNUR. Auk þess hefur ritstjórn in ákveðið að veita tvenn aukaverðlaun: Þúsund kr. til Þórunnar Guðmunds- dóttur og sömu upphæð til Sigrúnar Vídalín. Þær eru líka frá Siglu- firði, svo að Siglfirðingar sigra í öllum deildum í þessari umferð. Aukaverðlaunin eru veitt vegna þess, að lengi framan af sumri var allt útlit fyrir, að annað hvort Þórunn eða Sigrún yrði hlutskörpust. Þær sköruðu sífelt fram úr, og þegar söltun lauk, hafði sú fyrr- nefnda saltað í 30714 tunnu,, sú síðarnefnda í 307. Það var hálfgerð tilvilj- un, að Ingibjörg Eggerís- dóttir fékk 3,000 króna verðlaunin. Htm hefur sagt frétta- manni blaðsins svo frá, að það hafi ekki verið fyrr en Iiún fór að athuga hýr- una sína fyrir sumarið sem henni datt í hug, að kannski hefði hún saltað nóg til þess að vinna til verðlaunanna. Árangurinn var sá, að hún sneri sér itl söltunar- stöðvanna, þar sem hún hafði unnið, og bað þær um upplýsingar um, hve mikið hún hefði saltað. Og þegar síðasta votí- orðið barst — það var með símskeyti frá Reykjavík — kom á daginn, að Ingi- björg var reyndar með mesta söltun. Að svo mæltu óskar Alþýðublaðið sigur- vegtmœum íil ham- ingju og bíður þá hfófa verðlaunanna. mVWWW>WMWWWMW»WWWWWW*M*M«<lwmWWWW»WWWWfW»W*IWWWWWMW rinnar lokaatriði. Guðrún Asmundsdóttir, Arndís Björnsdóttir og Anna Guðmundsdóttir. með skem NÝLEGA kom sú fregn fram í blöðum og útvarpi, að íslend- ingar ættu heimsmet í sykur- neyzlu, 61 kg. á mann á ári. Vægast sagt væru ýmis önnur met æskilegri, sérstaklega þeg ar íhugað er að þessu meti gæti — með sama áframhaldi — fylgt annað met; heimsmet í tannskemmdum. Tannlæknafélag Islands hyggst því beita sér fyrir al- mennri herferð gegn tann- skemmdum og orsökum þeirra og birta í blöðum á næstunni greinaflokk um þetta vanda- mál. Mun fyrsta greinin birt- ast hér í blaðinu á þriðjudag- inn. 99% ÞJÓÐARINNAR? Talið er að í Svíþjóð hafi yfir í9!|% þjóðarinnar meira eða minna skemmdar tenndur. Hér eru ekki til heildarsýrslur um útbreiðslu tannskemmda, en tannlæknar álíta ástandið engu betra hér. Skemmdir í tönn- um þekkja flestir og tannpín- una, sem fylgir, ef ekki er að gert í tíma. Auk þess geta þær orsakað aðra sjúkdóma. „Með Iðgum skai land byggja. Blaðið vill því hvetja almenn ing og þá einkum yngra fólkið til að lesa greinarnar um tann- skemmdir í blaðinu á næst- unni. . sfarfsár lóm- undðEteimilis unglempiara UM ÞESSAR mundir er að hefja þriðja starfsár sitt Tóm- stundaheimili ungtemplara í Reykjavík. Námskeið í föndri á vegum heimilisiús byrja 12. október. Mun starfa bæði byrj- endaflokkair og framhaldsflokk ar. Leiðbeint verður í bast- og tágavinnu, að vinna úr garni, perlum, beini, hornum, leðri, íbenholti, kuðungum og fleiru. Munu flokkar starfa flest kvöld vikunnar, en námskeiðið stend- ur í 8 vikur og er leiðbeint í hverjum flokki eitt kvöld á viku. U VALDIMAR BJÖRNSSON, fjármálaráðherra í Minnesota, flytur eiindi 1 útvarpinu ídag kl. 13.15 „Með lögum skal land byggja“ — áður flutt á fundi Stúdentafél. Rvík ur 4. þ. m. Kl. 15 Miðdegistónleikar. Kl. 16 Kaffitím- inn. Kl. 16.30 Fær eysk guðsþjónusta. Kl. 17 Sunnudagslögin. Kl. 18.30 Barnatíminn. Kl. 20.20 Raddir skálda: Úr verkum Guðmund- ar Inga Kristjánssonar (Ragn- ar Jóhannesson ræðir við skáld. ið og Guðm, Ingi les úr verkun%: sínum). Kl. 21 Tónleikar: Wal- ter Gieseking leikur ljóðræn píanólög eftir Edvard Grieg.- Kl. 21.30 Úr ýmsum áttum. Ki.‘ 22.05 Danslög, Mánudagskvöld: Kl. 20.30: Einsöngur: Elisataeth Schwarz- kopf. Kl. 20.50 Um daginn og‘ | veginn (séra Gunnar Árnason).* ' K’. 21.10 Rússnesk tónlist. Kl. 121.30 Útvaipssagan. Kl. 22.10: Búnaðarþáttur Kl. 22.30 Kam-; 1 mertónleikar. í Alþýðublaðið — 11. okt. 1959 Jj'

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.