Alþýðublaðið - 11.10.1959, Síða 5

Alþýðublaðið - 11.10.1959, Síða 5
í TÍMANUM hinn 6. okt. eru endurteknar hinar marghröktu fullyrðingar Þjóðviljans um að laun almennt séu lægri í krón- um talið en í fyrra. Staðreynd- irnair eru hins vegar þær, að t. d. Dagsbrúnarmaður, sem vinn ur 8 tíma á dag og fimm tíma í eftirvinnu á viku, hefur í kaup á tilteknum tímabilum á árun- um 1958 og 1959, miðað við að yísitalan verði óbreytt það sem eftir er af þessu ári sem hér segir: 1958 1959 Hækkun Allt árið 56 144 58 751 4,6% Feb.-sep. 36 760 39 577 7,7% Jan.-sep. 41 414 45 534 10,0% Nokkuð hliðstæð verður nið- urstaðan, ef teknar eru aðrar vinnustéttir, eins og hver og einn getur sannfærzt um. I umiræddri grein segir Tím- inn, að árið í fyrra hafi verið gott tekjuár, og er það að vissu leyti rétt. Hins vegar er með því í rauninni viðurkennt, að árið í ár sé það líka, og sem betuir fer hefur ekki verið um atvinnuleysi að ræða. Af fram- ansögðu sést, að fullyrðingar Tímans hafa við engin rök að styðjast, Það er vitanlega illt verk, að strá salti í þau sár, sem Iaunþega svíður þegar í undan skattpíningarherfcirðum Ey- steins Jónssonar á undanförn- um árumi, með því að reyna að telja launamönnum trú um að' verr sé að þeim búið nú en áð- ur í launa- og skattamálum. Sem betur fer sjá allir sæmi- lega greindir menn í gegnum þenna blekkingavef Framsókn arflokksins. Svar Emils Framhald af 1. síðu. Ótímabærar ákvarðanir i þessu máli nú gætu einnig valdið óheppilegu kapphlaupi við launþegasamtökin, sem ríkisstjórnin íelur höfuðnauð syn að koma í veg fyrir. Að því hlýtur því að verða stefnt að leysa þessi mál öll með sam komiulagi, þegar hið nýkjörna þing kemur saman, og einn þátturinn í því samkomulagi mun sjálfsagt verða að koma á þeinri sliipan verðlagsmála landbúnaðarins, sem báðir að ilar, framleiðendur og neyt- endur, geta staðið saman að, eins og verið hefur. Virðist því eðlilegt að bíða aðgerða alþingis. Virðingarfyllst. Emil Jónsson (sign.).“ Til stjórnair Stéttarsambands bænda, Reykjavík. TungSskofafærni LONDON — Rússneskur prófessor sagði í dag, að sovézkir yísindamenn hefðu nú á valdi sínu fullkomið kerfi til þess að skjóta eld- flaugum út í geiminn og hefðu yfirstigið mikla örðug leika, er þeir gátu haldið tunglflauginni á nákvæm- lega á þeirri braut, sem henni hafði verið ætluð. Townsend BRUSSEL — Peter Tovvn- send, sem heimsfrægur varð fyrir að vera í tygjum við Margréti Bretaprinsessu, hef ur í huga að ganga að eiga liina tvítugu Marie-Luce, dóttur belgísks vindlinga- framleiðenda, sem var í férð með honum „kringum jörð- ina“ í kvikmyndatökuleið- angri. Það var móðir stúlkunnar, sem Ijóstraði þessu upp í dag, en brúðkaupsdagurinn er enn ekki ákveðinn. Miklar vangaveltur voru um það á tímabili, hvort hinn 44 ára gamli Townsend og Margrét myndu giftast, en margir voru mótfallnir þeirri hugmynd ekki hvað sízt fyrir það að Peter er frá Útfför Laiiza RÓM. — Fjöldi syrgj enda voru viðstaddir útför Mario Lanza hér í dag. ítalskur barriton söngvari söng Ave María eftir Schubert, en flestir viðstaddir viknuðu. Kista Mario Lanza var flutt frá heimili hans íil kirkj- unnar í vagni með gler hliðum, en fjórir hest- ar drógu vagninn. — Ekki hefur enn verið á- kveðið, hvar hinn 38 ára gamli söngvari verður jarðsettur. skilinn. Og árið 1955 lýsti prinsessan því opinberlega yf ir, að hún hefði ákveðið að giftast honum ekki, en lúta Dregfð í Happcfr. Háshéli íslands í GÆR var dregið í Happ- drætti Háskóla Islands. Dregnir voru 1047 vinningar að upphæð 1 315 000 kr. Hæsti vinningurinn 100 000 kr. kom á nr. 34768, en það eru hálfmiðag seldir í umboði Arndísar Þor- valdsdóttur, Vesturgötu 10. 50 þús. kr. vinningurinn kom á nr. 48512, hálfmiða selda í Kefla- vík. vík. (Birt án ábyrgðar.) ÞETTA ER AÐ GERAST Nefod skipuð BABHDAD — Fréttablað- ið A1 Akhbar í írak sagði frá því í dag, að skipuð hefði ver ið nefnd til þess, að rannsaka upptökin af hinni misheppn- uðu tilraun, sem gerð var til þess. að myrða forsætisráð- herrann, Abdul Karim Kass- em, síðasta mikvikudag.- Skotið var að forsætisráð- herranum, og særðist hann af þrem skotum en ekki hættulega. Svelfir fyrir Berlín BERLÍN — Hinn 32 ára gamli indverski verkfræðing ur, sem er í 3 vikna hung- urverkfalli til þess að krefj- est „frelsi fyriy Berlín“ var í góðu skapi, en mjög veik- burða í dag á áttunda degi verkfalísins. Hann býr í tjaldi andspænis Brander- burgarhliðinu, sem er á milli Vestur og Austur-Berlín og biður Berlínabúa að styðja sig í baráttunni fyrir frelsi borgarinnar. Loksios reg>n X MORGUN ringdi í Bret- landi. — Þóttu það mikil og góð tíðindi, þvi þurrkarnir í sumar bafa verið hræðileg ir og aldrei eins niiklir síð- astliðin 200 ár. EVfacHffilan LONDON — Það er rætt í brezku blöðunum í dag, hvort sigur Macmillans og í- haldsflokksins muni leiða til endaloka verkamannaflokks- ins en mögulegrar endurfæð ingar og uppgangs frjáls- lyndra. Macmillan, forsætisráð- herra, dvelst nú yfir helgina á sveitasetri sínu til þess að hvíla sig eftir erfiða baráttu og undirbúa sig undir að hefja áætlanir í því augna- miði að reyna að flýta að fundur æðstra manna verði haldinn. M.acmiIIan ræddi við Selwyn Lloyd, ut- anríkisráðherra, «m þetta mál núna áður en hann fór í helgarfríið. eða úr 4730 tonnum í 11319 tonn. Neytendur lögðu til nú í haust, að talan 2420 kg. yrði tekin í grundvöllinn þ. e. 109% aukning. En fram- leiðendur gátu ekki fallizt á meira en 73% aukningu, eða 2012 kg. Við sjáum á þessu, að jafnvel hinar „ó- sanngjörnu“ tillögur neyt- enda eru langt undir hinni raunverulegu afurðaaukn- ingu. En samt hrópa fulltrú ar bænda um óréttlæti. Fulltrúar neytenda vildu fá samkomulag við fulltrúa framleiðenda um kostnaðar liði hins stækkaða bús. En bændur vildu ekki einu sinni ræða um það ,heldur heimt uðu fyrst 5% hækkun og síðan 3,18% hækkun án þess að færa fram nein frambæri lega rök fyrir kröfum sínum. Alþýðublaðið leggur málið undir dóm lesenda. ÞAÐ atriði er mestum deilum veldur í sambandi við verðlagningu landbúnað arafurða nú er hver sé hin raunverulega afurðaaukning, er taka eigi tillit til. Alþýðu blaðið hefur orðið sér fiti um tölur, er sýna staðreynd- irnar í þessu máli og eru töl urnar teknar úr Árbók land búnaðarins. Þær eru þessar: Haustið 1952 er umsam- in mjólkurframleiðsla vísi- tölubúsins 14900 lítrar. í grundvellinum 1. sept. 1958 —31. ágúst 1959 er magnið 17.275 lítrar eða 16% aukn- ing frá 1952 en á sama tíma eykst öíl mjólkurframleiðsl 000 tonn (síðari talan miðuð 000 tonn (sígari talan miðuð við árið 1958) eða um 29%. Tillaga neytenda nú í haust gerði ráð fyrir, að afurða- magn mjólkur yrði ákveðið 18.911 litrar eða 27% aukn ing, sem nær ekki hinni raun verulegu aukningu. Fram- leiðendur gátu hins vegar ekki fallizt á meira en 17.725 IUra eða 19% aukningu. Ef litið er á kindakjöts- frámleiðsluna verður útbom an þessi: Haustið 1952 er umsamin kindakjötsframleiðslan vísi- tölubúsins með slátri 1161 kg. í grundvellinum er gékk úr gildi 31. ágúst sl .var reiknað með 1930 kg. eða 66% aukningu frá 1952. Raunveruleg aukning kínda kjötsframleiðslunnar 1952— 1958 var hins vegar 139% skyldu sinnj við kirkju og ríki. Townsend og unnusta hans eru nú í Belgíu, og hann seg- ir við blaðamenn að hann vilji „fá að vera í friði“. Byggja upp Tíbel ÍÍONG KONG. — Meir en 1000 tæknifræðingar og fær ir verkamenn eru komnir íil Lhasa alls staðar að frá hinu kommúnistiska Kína, til að aðstoða við að „byggja upp landið“, að því er hin nýja kínverska fréitastofan hér skýrði frá í dag'. Meðal þessara eru verlt- fræðingar, læknar, hjúkrun- arkonur og jarðfræðingar. Nefndin á föriim VIENTIANE. — Rannsókn arnefnd SÞ er nú að ganga frá störfum sínum hér og nokkrir meðlima nefndarinn ar fara líklega héðan á mánu daginn. Helgin fer líklega í það að vinna úr rannsóknar- skjölum og útbúa þau þann ig, að unnt sé að leggja mál- ið skipulega fyrir Öryggis- ráðið. í DAG á Eleanor Roose- velt, ekkja fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna, Frank- lins D. Roosevelts, 75 ára af mæli. llún er löngu heimskunn bæði sem stoð og stytta manns síns og eins fyrir ó- þre.ytandi sjálfstætt starf í þágu mannúðarmála og frið ar. Hún hefur mikið ferðast og gengt háum stöðum á op- inberum vettvangi, en hvar- vetna hafa tillögur hennar verið mikils metnar og hún aflað sér trausts og aðdáun- ar. Og allar friðelskandi þjóð ir senda frú Roosevelt heilla óskir í dag og vona að liún megi enn eiga bjarta og langa framtíð. Alþýðublaðið — 11. okt. 1959 §

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.