Alþýðublaðið - 15.10.1959, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 15.10.1959, Blaðsíða 12
Indiánar allt- af í skaða- bótamálum INDÍÁNAE í Kaliforníu eru í máli við stjórnina út af þvf landi, sem tekið var frá þeim 1851. Mál þetta er orðið ellefu ára gamalt. Það felur í sér kröfu um skaðabætur til lianda 37 þús. Indíánum fyrir þrjá fjórðu hiuta af ríkinu Kaliforníu, sem er eitt stærsta ríki Bandaríkjanna. Þégar um slík mál hefur ver- ið fjallað í Bandaríkjunum hefur verðgildi landsins áður en hvítir menn komu til sög- unnar verið metið á 40—75 cent fyrir ekruna, en í máli einu út af landspildu í Kali- forníu, var krafa gerð um einn dal og 25 cent fyrir ekru. 40. árg. — Fimmtudagur 15. okt. 1959 — 223. tbl. 13 ára sfúlka handtók fvo bandífa ÞRETTÁN ára stúlka hjálp- Stúlkan frá aði til að handtaka tvo stroku fanga á járnbrautarstöð í Lon mes |,vf »8 íleygja s& í Þetta er stúlkan frá Burma. Hún heitir Edwina Carroll og er aðeins 23 ára gömul. Samt er hún orðin fræg lcik- veg fyrir þá, en þeir voru uiii kona orðin stjarna. Hún hefur getið sér hlekkjaðir saman. Fjórir fang góðan orðstir fyrir leik sinn, m. a. í Tehúsi Ástgústmánans og ar struku alls, hinir tveir náð- nú leikur hún í London í leik, sem nefnist „Óvinirnir frá ust fljótlega utan við stöðina. j gær“, Nýja Dehli, okt. (UPI). — . ÞAÐ þurfti ekkert minna en styrjöldina í Tíbet til þess að rjúfa aldagamalt og mið- aldalegt hlutleysi hins litla konungsríkis Buthan í Hima- lyafjallgarðinum. Um aldarað- ir hefur Buthan sofið í skugga mestu fjallaveldis veraldar. En eftir uppreisnina í Tíbet hófu flóttam^pnn þaðan að streyma niður fjallaskörðin á leið til frelsis — og útlegðar í Indlandi. Yfirvöldin í Buthan leyfðu þeim að fara yfir land- ið að vild. Kínverjar reiddust þessu og handtóku marga sendimenn I MWW<M»WWWMWWMWMWVM»WMM*MWiWWMWMM*iWWWMIWMMmWWWMWWWWMIIMMWWiWWWWWWV GETRAUNIN. HANNIBAL Valdi- marsson segir Vestfirð- ingum, að hann kjósi heldur óvissuna á Vest- fjörðum en öruggt þing- sætj í öðrum kjördæmum. Kommúnistar hafa þann- ig ekki orðið þreyttir á Hannibal, heldur leiðast honum mannaforráðin í höfuðstaðnum. Þessu trúa sennilega allir. Hógværð • og lítillæti Hannibals Valdimarssonar hefur aldrei farið rhilli mála. En fróðlegt væri aö vita, hver eru þessi ör- uggu kjördæmi, sem Hannibal Valdimarsson hafnaði. Alþýðubandalag- ið býr ekki stórmannlega í því efni, svm að hér er um getraun að ræða. Hitt sýnir ræktarsemi Hanni- bals við uppruna sinn, að hann skuli heldur vilja falla á Vestfjörðum en annars staðar fyrst hann er orðinn leiður á þing- sætinu í Reykjavík, sem hann fékk að launum hjá kommúnistum fyrir svik- in við Alþýðuflokkinn. SA SAKLAUSI. Tíminn ,ræðir skatta- málin mikið þessa dag- ana og segir, að útsvörin og skattarnir séu dráps- klyfjar. Allt á þetta að væra sök Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðu- flokksins og ófögnuður- inn að hafa komið til sög- unnar í valdatíð núver- andi ríkisstjórnar. Þó finnst Tímanum á- stæða til að taka sérstak- lega fram, að einn maður sé saklaus eins og engill af því að hafa lagt þunga skatta á þjóðina. Sá heit- ir Eysteinn Jónsson og Iiefur verið lengur fjár- málaráðherra á Islandi en nokkur annar fyrr og síðar. Gamall pólitískur fóst- urfaðir Eysteins, Jónas Jónsson frá Hriflu, hefur hins vægar sagt um þenn- an saklausa engil, að hann megi ekki vita neins staðar af krónu án þess að halda, að hún sé óhirtur skattpeningur. TILLAGA UM FUNDARSTJÓRA. Alþýðubandalagið lang ar ósköpin öll í stjórn með Framsóknarflokkn- um eftir kosningar. Stefnuskrár þessara tveggja flokka í kosn- ingabaráttunni er líka eins og frumrit og afrit, svo að einhvers staðar hafa þeir orðið sér úti um kalkipappír. Hins vegar er eftir að semja um framkvæmd einstakra móla. Færi vel á því að fela þá samningsgerð vin- unum úr húsnæðismála- stjórn, Hannesi Pálssyni og Sigurði Sigmundssyni. Fundarstjórnin kynni raunar að verða ágrein- ingsefni, en þann vanda má leysa með því að fela hana hlutlausum þriðja aðila. í því efni eru hæg heimatökin. Hér skal stungið upp á virðulegum opinberum embættis- manni — sakadómaran- um í Reykjavík. „Eg kem kannske seint, elskan. Það er nefndarfundur.“ STÓRIR OG LITLIR. íslendingum er þessa dagana gefinn kostur á að láta sér nægja tvo flokka. Tíminn hampar þessu tilboði daglega og telur farsælast fyrir þjóð ina, að hún feli Sjálf- stæðisflokknum og Fram- sóknarflokknum vanda stjórnmálabaráttunnar — þeir séu svo stórir. Hann gæti eins vel haldið því fram, að ofsprottnar kartöflur væru matar- beztar. Sjálfstæðisflokk- urinn og Framsóknar- flokkurinn voru til dæm- is ekki nógu stórir til þess að geta myndað rík- isstjórn í fyrrahaust. Þá varð sá litli að vera stór. MYND AF BÆNDUM. Teiknimynd þessi birt- ist í Tímanum á þriðju- dag — og á að tákna ís- lenzka bændur. Þannig líta sveitakjósendur út í augum Tímamanna, elzta vinnustétt landsins, fólk- ið, sem framleiðir land- búnaðarafurðirnar. Og er svo nema von, að Fram- sóknarmenn og Sjálf- stæðismenn bjóði mynd- arlega í atkvæði íslenzkra bænda? Buthankonungs, sem fluttu póst um fjöllin. Forsætisráð- herra landsins, ensku- mennt- aður frændi konungsins fór þá til Nýju Dehli og rœddi viS Nehru. Árangur viðræðnanna var sá, að Indlandsstjóm veitti Buthan 60 milljón doll- ara lán. Fé þetta verður not- að til þess að byggja vegi um landið og til Indlands, en eina leiðin milli Buthan og Inllands liggur nú um Tíbet. Þegar þessari vegagerð lýkur opnast leið til þess lands, se-m einna lokaðast hefur verið. ; -- . - Buthan • er mí.jög- a'fskekkt, umlukt háum fjöllum og leið- ir þangað liggja um snævi- in skörð, Ekki. er. -vitað ná- kvæmlega um - íbúáfj öída í Buthan, sumir telja að. þeir séu 5 milljónir, aðrir að þeir séu aðeins 700.000. Sagt er að aðeins tíu til tólf Evrópumenn hafi komið til Buthan, í landinu er ekk- ert rafmagr., engir bílar, eng- ar járnbrautir, engar flugvél- ar og einungis örfá i'afhlöðu- viðtæki eru í landinu. Buthan er-eitt hinna fáu ianöa þar, sem enn ríkir sam- kvæmt guðlegri skipan. Ibú- arnir eru langflestir Búddha- trúar og eru mjög strangir , í trúarefnum og gæta þess vel að drepa enga skepnu, ekki einu sinni flugur. í Buthan eru engir læknar. Ef Buthanbúi veikist er það talið stafa af ómeðvituðum syndum. Lækningin er fólgin í því, að ákalla anda til að hreinsa sjúklinginn af syndurt um. Hjátrú er ríkjandi í land- inu, jafnt með æðri sem lægri. í sumum landshlutum tíðkast mannfórnir. Buthanmenn eru alls ófærir u mað verjast hugsanlegri ár- ás kommúnista. Herinn sam- anstendur af 2500 hjálm- skrýddum, sverðberandi og bogabúnum risum. Nehru hefur lofað Buthan- búum vernd gegn árásum, en eins og sakir standa eru litlar líkur á að Indverjar geti nokk uð gert þótt Kínveriar ryðjist inn í landið. I Buthan eru mjög gömul virki og kastalar en þeir duga lítið gegn nútíma hernaði. tVWWWWWWWWWVVWVMVV't/iVVVWVWWVVVVWWi'Vri'WVVVi'VVVi'VVi' tWTOWMWMWMWWVWWWWWWWWWWMWWWWWiWWM Arekstur á landamœrum DANSKUR bílllog norskt bifhjól árkust á nákvæmlegá á landamærum Noregs og Svíþjóðar. Maðurinn á hjól- inu gætti þess ekki, að það er vinstri handar ak|tur í Sví- þjóð. Hann hlaut síðubrot í árekstrinum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.