Alþýðublaðið - 16.10.1959, Page 11

Alþýðublaðið - 16.10.1959, Page 11
22. dagur „Sagði Jane yður ekki að ég kæmi hingað um helgina?“ Það gerði hún alls ekki. — Nema — ég man að hún kall- aði eitthvað út um lyftudym- ar um leið og þær lokuðust. Ég veit ekki hvað það var, ég heyrði ekki hvað hún sagði“. „Það er ekkert líklegra en hún hafi sagt yður að mín væri ef til vill von. Ég vissi það ekki fyrir víst fyrr en í dag. En við höfum komið okk- ur saman um að ég hafi lykil- inn að íbúðinni og ég megi sofa í lit'la herberginu við end ann á ganginum. Ég hefði séð .að einfaver var hér ef ég hefði farið inn í gestaherbergið“. „Og hefðuð Þér þá ekki far ið í bað?“ „Jú, ég hefði gert það. Ég kom til Englands frá Singa- pore eftir hádegi í dag. Ég var skítugur“. „Þá hljótið þér að vera þreyttur núna‘-‘. „Alls ekki. Ég er búin-n að ná mér“. „Hafið þér verið lengi í burtu?“ „Sex vikur“. Hann fékk sér aftur í glasið og settist niður og teygði langa fæturna að eldinum. Fallegt andlit hans ljómaði af ánægju. „Þetta er yndislegt. Það er gott að hafa einhverja að koma heim til“. Jill teygði úr sér og geisp- aði. „Einhver stúlka ætlar að fara að sofa“. „Ó, nei! Mér líður svo vel núna“. Hann hallaði sér fram og kveikti á útvarpinu. Eftir augnablik hljómaði danslag um stofuna. Hann lagð; glasið frá sér og gekk til hennar. „Eigum við að dansa?“ Hún hristi höfuðið. „Ég er of þreytt“. Hann brosti. „Della. Yður finnst aðeins að það sé ekki viðeigandi að dansa við ungan mann í bað- slopp“. 'l .... gparið y*nr hlaup á railli margra. veralajaa1- OíikuyöL fl ötlUM UíDDM! -Austorstrsetí. Hún reis á fætur. „Alfs ekki“. Herbergi Jane var langt og L-lagað með persnes.kum tepp um á gólfinu. Bill tók þau af og tók hana í faðm sér. „Finnst yður gaman að dansa?“ „Mjög“. „Við skulum fara eitthvað á morgun“. „Ég hef ekki enn sagt að ég vilji fara eitthvað með yð- ur á morgun“. „Þér viljið það samt“. Hann slökkti á loftljósinu þegar þau fóru fram hjá dyrunum og það lifði aðeins á tveirn vegg- lömpum. „Þetta er betra svona“. Hann dansaði mjög vel. — Hljómlistin breyttist og vals „Það er ekki satt. Það er ó- réttlátt. Ég kyssi ekki hverja stúlku sem ég hitti“. „Er það ekki?“ Hann brosti. „Bara þær fallegu“. Jill leit á klukkuna á arin- hillunni. Hún var tólf. „Hvar er næsta hótel?“ „Langt í burtu“. Hann varð langþreyttur. „Ætlið þér að reka mig á dyr?“ „Já, ég verð ekki hér ein í íbúðinni með yður“. Hann leit dapur á hana. „Eruð þér' ekki of hörð við mig?“ Hann hóstaði. Og svo hóstaði hann aftur. „Ég er viss um að ég er að fá kvef. — Það er ekkert undarlegt þegar tillit er tekið til þess að ég hef verið í svo heitu loftslagi var leikinn. Stúlka söng Lag sem Jill hafði aldrei heyrt fyrr, en sem átti mjög vel við. Það var texti við það um mann og konu sem hittust í fyrsta sinn. „Strangers may kiss“, var síðasta ljóðlínan. ■— „Just once in a lifetime,“ söng röddin, „strangers may kiss“. Hljómlistin hætti. Bili tók ■fastar um Jill þegar hún æt> aði að slíta sig af honum. — Hann beygði sig að henni. „Við fengum leyfi ti} þess“, sagði han blíðlega og kyssti hana fast og ástríðuþrungið á munninn. Það kom svo á hana að í augnablik lá hún hreyfingar- laus í örmum hans. Hún fann hvað hjarta hans sló hratt und ir þunnum baðsloppnum. Og svo áttaði hún sig. Hvernig dirfðist ókunnugur maður að kyssa hana svona! Hún reif sig af honum og augu hennar leiftruðu af reiði. „Ég gaf ekki leyfi til þessa!“ ,,Almáttugur“, sagði hann hæðnislega, „eruð þér reið?“ ,,Öskrandi“. „Það er yður að kenna. Þér eruð of aðlaðandi“. „Vitleysa, ég er ekki meir'a aðlaðandi en hver önnur. Við erum bara tvö ein“. : ■ >v„ „Hvíslaðu einhverju að mér, — mamma. Þá fæ ég 25 aura hjá pabba fyrir að segja honum það.“ síðustu vikur. Það þarf ekki svo stuttan tíma til að venj- ast þessu enska loftslagi aft- ur. Ef ég fer út núna eftir heitt bað fæ ég kvef og dey úr lungnabólgu“. „Allt í lagi“, sagði Jill og gekk til dyra, ,„ef þér viljið ekki fara skal ég gera það. — Ég verð ekki lengi að klæða mig“. Hann gekk til hennar og leit, á hana. „En ef ég bið auðmjúklega um fyrirgefningu?“ „Ég —■“ hún hikaði. „Ég skal krjúpa ef þér viljið það“. „Látið ekki eins og flón“. „Og ég skal lofa að vera aldr ei svona andstyggilegur aft- ur“. Hún gat ekki verið reið við hann lengur. Hún skildi nú . við hvað Jane átti þegar hún sagði að hann væri töfrandi. ,Andstyggilegur er of sterkt orð“. „Ég er hræddur um að yður findist það ekki nægilega sterkt“. Hún brosti. „Vi ðskulum gleyma þessu“. Hann opnaði dyrnar fyrir hana. „Þér getið gleymt því en ég get það ekki. Góða nótt — Jill“. „Góða nótt“. „Hvenær má ég kom með te til yðar á morgun?“ „Ég get náð í það sjálf“. — Hún leit á hann yfir öxl um leið og hún fór inn til sín. — „Þér skulið ekki flýta yður á fætur. Það er ekki síður kalt á morgnana en kvöldin. Mér finnst þér ættuð að gæta yð- ar vel fyrst þér' eruð nýkom- inn úr heitu loftslagi“. Ji.ll var komin á fætur og var að elda sér morgunmat, þegar hann rak höfuðið inn um gættina næsta morgun. „Ég finn lykt af ibacon og eggjum og kaffi“. „Ég er að verða ‘búin. Ef þér viljið skal ég elda handa ' yður“. „Guð blessi yður“. „Hafið þér lyst á tveim eggjum og fjórum snfeiðum?“ „Kannske.“ Hann hallaði sér að veggnum og horfði á faana. „Það er langt síðan svo gott kom fyrir mig“. Það lá við að hún segði að sama gegndi um hana, en hún vildi ekki gefa honum undir ■fótinn. En honum tókst þó að fá hana til að hugsa um ann- að en eigin vandamál. Hún braut annað egg yfir steikar- Ijönnunni. „Þetta ferst yður vel úr hendi. Þér verðið einhverj- um manni góð eiginkona“. „Allar stúlkur geta steikt egg og bacon“. „Vitleysa!" Og þegar þau sátu - við borðið skömmu seinna sagði hann. „Hvað eig um við að gera í dag?“ „Hvfers vegna skyldum við gera eitthvað saman?“. „Það veit ég ekki til“. „Ef Jane hefði verið hérna hefðuð þið farið eitthvað sam an, að minnsta kosti geri ég ráð fyrir að þið hafið ætlað að skemmta ykkur yfir helg- ina“. „Það er rétt“. „Og þar sem hún varð að fara—“ „Ég á aðra vini í London“. „Ég líka. En mig langar lekki til að hitta þá“. „Mig langar til að fara í búðir“. „Allt í lagi. Til þess er næg pr tími fyrir hádegi. Við skul um borða saman og fara svo eithvað. 1 kvöld getum við horðað úti og dansað á eftir. .Kannske Jane verði komin helm í kvöld“. „Ég er viss um að hún verð ur ekki komin heim. Hún er ekki svo fljót í ferðum þegar 'hún tr send í fréttasnap til Parísar“. „Mér finnst að annað okk- ar ætti þá að flytjast á hótel“. „Svo þér eruð gamaldags?“ Ecc n — „Við skulum bíða og sjá hvað setur“. Síminn hringdi einmitt í þessu. Jill fór fram á gang og tók heyrnartólið af. „París er að biðja um yð- iur, bíðið augnablik“, sagði símastúlkan. „Það er Janle“, kallaði Jill. ,Skilið ástarkveðjum og segið henni að okkur líði vel og hún skuli ekkert flýta sér heim“. Rödd Jane heyrðist jafnvel og ef hún hefði vterið í næsta . faerbergi. „Jill? Hverni g líður þér vinan? Er allt í lagi?“ „Allt í bezta lagi, nema hvað ég fór út að ganga í gærkveldi og þegar ég kom heim var Bill frændi þinn í baði“. Jane hló ákaft áður en hún varð alvarleg á ný. „Mér finnst það lteitt. Ég mundi allt í einu eftir því, að það gat verið að hann 'kæmi. Ég kallaði til þín á meðan ég var á leiðinni nið- ur í lyftunni en þú heyrðir Víst ekki til mín. Ég ætlaði að hringja frá flugviellinum en hafði ekki tíma til þess. Og svo fór ég að hugsa um það að það væri alls ekki yíst að hann kæmi. Hvernig kem ur ykkur saman?“ „Vel.“ „Það er gott, þá ertu ekki ■ein í íbúðinni. Vonandi finnst þér ekki verra að hafa engan til eftirlits með hegðun ykk ar. En ég kem nú sennilega heim í kvöld“. „Það væri dásamlegt. Elsku reyndu að komast“. „Ég geri mitt bezta, en ég ikem svo seint að ”þú skalt ekki vaka eftir mér og þó, þú V Millilandaflug: Hrímfaxi fer til Sggí' ,g; Glasgow og K- hafnar kL 9-30 1 W dag. Væntanleg- aftur til R- Ur kl. 17.10 á morgun. Milli landaflugvélin Gullfaxi fer til Oslóar, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 9.30 í fyrra- málið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljuga til Akur- eyrar, Fagurhólsmýrar, Hólmavíukr, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjar- klausturs og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Blönduóss, Egilsstaða, ísafjarðar, Sauo- árkróks og Vestmannaeyja. Loftleiðir. Leiguvélin er væntanleg frá London og Glasgow kl. 19 í dag. Fer tii New York kl. 20.30. Saga er væntanleg frá Stafangri og Osló kl. 21 í dag. Fer til New York kl. 22.30. Hekla er væntanleg frá New York kl. 10.15 í fyrra- málið. Fer til Amsterdam og Luxemborgar kl. 11.45. Ríkisskip. Hekla fer frá Reykjavík kl. 10 árdegis á sunnu- dag vestur um land í hringferð. Esja fór frá Rvík Esja fór frá Reykjavík í gær austur um land í hringferð. Herðubreið er í Reykjavík. Skjaldbreið er á Skagafirði á leið til Akureyrar. Þyriii er væntanlegur til Ryekjavikur síðdeigis í dag. Skaftfelling- ur fer frá Reykjavík í dag til Vestmannaeyja. Baldur fór frá Reykjavík í gær til Sands, Ólafsvíkur, Grundarfjarðar og Stykkishólms. Skiiiadeild SÍS. Hvassafell fer í dag frá Svalbarðseyri til Húsavíkur, Malmö og Stettin. Arnarflell er á Akureyri. Jökulfell lest- ar á Faxaflóahöfnum. Dísar- fell fór 16. þ. m, frá Ólafs- vík áleiðis til Antwerpen. Litlafell er í olíuflutningum í Faxaflóa. Helgafell er í Ósk- arshöfn. Hamrafell er í Ba- tum. Eimskip. Dettifoss kom til Rostock 14/10, fer þaðan til Gdynia, Hull og Reykjavíkur. Fjall- foss kom til Rvíkur 10/ Ant- werpen. Goðafoss fór fró Ak- ureyri í gær til Austfjarða- hafna, Vestmannaeyja og Faxaflóahafna. Gullfoss fór frá Helsingborg í gær til K- hafnar. Lagarfoss fór frá ísa firði í gærkvöldi til Bíldu- dals, Patreksfjarðar, Kefla- víkur, Akraness og Reykja- víkur. Reykjafoss kom til Reykjavikur 14/10 frá Húsa- vík. Selfoss kom til Lenin- grad 14/10, fer þaðan til Kotka, Riga, Ventspils, Ro- stock, Hamborgar og Reykja- víkur. Tröllafoss fór frá Hafn, arfirði 11/10 til Rotterdam, Antwerpen og Hamborgar- Tungufoss fór frá Reykjavík í gærkvöldi til ísafjarðar, Húsavíkur, Skagastraadar, Siglufjarðar, Dalvíkur pg Raufarhafnar og þaðán til Lysekil, Gautaborgar og I Kaupmannahafnar. Alþýðublaðið — 16. okt. 1959. JJj

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.