Alþýðublaðið - 25.11.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 25.11.1959, Blaðsíða 3
HROTTALEG MIS MAÐUR að nafni Guðlaug- ur Guðmundsson, til heimilis að Úrðarstíg 4A, varð fyrir lík- amsárás sl. sunnudagskvöld. Réðist á hann maður, sem mis- þyrmdi honum svo hrottalega, að hann verður að vera rúm- liggjandi um sinn. Málsatvik eru þau, að Guð- laugur fór á sunnudagskvöldið niður í bæ með kunningja sín um, sem hann var að fylgja í strætisvagn. Þegar hann sneri frá vagninum og ætlaði heim- leiðis, komu tveir menn á móti honum og ætluðu að varna honum að komast áfram. Guð- laugi tókst þó að komast fram hjá þeim og hélt upp Bókhlöðu stíg. Hann varð þá var við, að mennirnir tveir veittu honum eftirför. Þeir náðu honum í Mið stræti. Urðu þar átök milli ann ars mannsins og Guðlaugs, en hinn maðurinn horfði á. Gu,- laugi tókst að slíta sig lausan og hljóp eftir Miðstræti og upp á Skálholtsstíg. Fyrir framan húsið nr. 7 náði árásarmaðurinn honum aft ur og sló hann svo mikið höf- uðhögg, að hann vankaðist og féll í jörðina. Kastaði árásar- maðurinn sér ofan á hann og hélt áfram við barsmíðarnar. Guðlaugur segir, að árásar- maðurinn hafi reynt að ná veski hans úr jakkavasanum og krafið sig um peninga. Guð- laugur gat þó hindrað árásar- manninn í þessu. Lamdi árás armaðurinn þá Guðlaug aftur í höfuðið og greiddi honum mörg högg. Guðlaugur varð var við,. að fólk var í húsinu,. sem þeir voru við. Hrópaði hann á hjálp. Fólkið í húsinu veittu þessu athygli. Þegar.. árásarmaðurinn og kunningi hans, sem horfði á misþyrmingarnar, urðu fólks- ins varir, lögðu þeir á flótta. Skildu þeir Guðlaug eftir illa úti leikinn liggjandi á jörð- unni.. Fólkið að Skálholtsgötu 7 kom nú Guðlaugi til aðstoðar og hringdi einnig á lögregluna. Var Guðlaugur fluttur á Slvsa varðstofuna. Hann var með á- verka á höfði, hafði hlotið heila hristing of föt hans öll blóðug og þvæld. Guðlaugur er nú kominn heim en verður að vera við rúmið næstu daga. Lögreglan hafði fljótlega hendur í hári árásarmannsins, sem ber fyrir sig ölvun. Kveðst hann ekki v'ta, hvers vegna ha'm réðist á Guðlaug. Árásarmaðurinn og Quðlaug ur eru báðir um tvítugt. mWWWWWWMMWWWMiWWHWWWWmwWWWWWWWWWMWMWMMiWI FJÁRLOG hvers árs kveða á um, hvaða þjónustu, beina eða óbeina, ríkið skal veita borgurunum á viðkomandi ári^ svo og hvernig afla skal fjár til að standa straum af kostnðinum. Þessi þjónusta er ótrúlega mECgþætt og kemur daglega við hvert mannsbarn. Hér fer á eftir mjög samandregið yfirlit, sem gefur hugmynd u mstærstu drætti þessa máls: TEKJUR RÍKISINS Skattair og tollar 710,8 millj. Tekjur af áfengi, tóbaki o. fl, 250,2 — Að meðtöldum smærri liðum SAMTALS 975,7 millj. GJÖLD RÍKISINS Stjórn, þing, ráðunevtin o. fl. 43,6 míllj. Dómgæzla, lögregla, innheimta skatta og tolla 96,6 — Heilbrigðismál 4"2,5 — Vegir, brýr, skipaútgerð, flug o. fl. 139,8 — Skólar og önnuir kennslumál 155,6 — Kirkjumál 13,0 — Landbúnaður, fiskveiðar og iðnaður 125,6 -— Tryggingar og önnur félagsniiál 165,1 — Eftirlaun og styrktarfé 25,6 — Útfltitningssjóður 50,0 — Reksivarafgangur, aðallega til framkvæmda 92,9 — Að meðtöldum smærri liðum SAMTALS 975,7 millj. Heimilish SALA miða í Heimilishapp- drætti SUJ er í fullum gangi. Vinningar eru hinir glæsileg- ustu, húsgögn og heimilstæki. Dregið verður 24. desember svo að þeir sem hljóta vinning fá um leið hina ágætustu jólagjöf. Upplagt er að senda vinum og ikunningjum miða rétt fyirir jólin. Skrifstofa happdrættisins er í Alþýðuhúsinu við Hverfis- götu, sími 16724. Sölubörn geta fengið þar miða til sölu og sölu laun eru mjög góð. Þeir, sem fengið hafa senda miða, eru beðnir að senda skrifstofu happ dcættisins-skil hið fyrsta. Ef lesendúr vilja fá ýtarlegri sundurgreiningu, geta þeir fengið fjárlagafrumvarpið hjá skjalaverði alþingis. Það er ein merkasta og firóðlegasta hók ársins, sem borgararnir þar að auki fá ókeypis. MHMMIMMMWtMHtMMMMMMtMMUIMMMVMMMMIMMMIWMMHIHMIMHMMWMMHÚ i NEFNDAKOSNINGAR fóru fram í sameinuðu þingi í gær, og komu fram á listum jafn- mörg nöfn og kjósa átti. Nefnd- ir samieinaðs þings eru þannig skipaðar: FJÁRVEITINGANEFND: Birgir Finnsson, Magnús Jóns son, Jónas G. Rafnar, Guðlaug- ur Gíslason, Jón Árnason, Hall- dór Ásgrímsson, Halldór E. Sig uiðsson, Garðar Halldórsson Og Karl Guðjónsson. UT ANRÍKISMÁL ANEFND: Aðalmenn: Emil Jónsson, Jóhann Haf- missi auoan: SIGGA VIGGA „EIGIÐ ÞIÐ NOKKRA, SEM HÆGT VÆRI AÐ EIGNAST, ÁN ÞESS AÐ SVELTA í HEL ?“ HÆSTIRÉTTUR hefur kveð- ið upp dóm í málinu Fjármála- ráðheiira og menntamálaráð- herra f. h. ríkissjóðs gegn Sig- urði ísakssyni f. h. ófjárráða sonar síns Jóns og gagnsök. Er ríkissjóði gert að gireiða Sigurði gagnáfrýjanda f. h. sonarins Jóns kr. 115 800,00 ásamt 6% ársvöxtum frá 1. febrúar 1956 til greiðsludags. Gjafsóknar- kostnaður gagnáflrýjanda greið ist úr ríkissjóði, þar með talin laun talsmanna hans í héraði og fyrir hæstarétti, kr. 18 000,90 samtals. Málsatvik eru þau, að á árinu 1955 var fyrxnefndum Jóni, sem þá var 9 ára, komið fyrir á vistheimili ríkissjóðs að Breiðu vík í Barðastranlarsýslu. Höfðu foreldrar hans notið milligöngu barnaverndarnefndar Akraness og fulltrúa barnaverndarnefnd- ar Reykjavíkur í þesu skyni. Nokkrum dögum fyrir jól 1955 varð Jón fyrir skoti úr boga, sem 13 ára drengur á vist- heimilinu skaut að honum. Kom skotið í hægra auga Jóns og missti hann sjón á auganu af þessum sökum. Forstjóri Breiðuvíkurheimilisins, Krist- ján Sigurðsson, batt um augað og hafði samband við héraðs- Framhald á 5. síðu. stein, Gísli Jónsson, Birgir Kjar an, Hermann Jónasson. Þórar- inn Þórarinsson og Finnbogi Rútur Valdimarsson. Varamenn: Gylfi Þ. Gíslason, Ölafur Thors, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thoroddsen, Eysteinn Jónsson, Gísli Guðmundsson og Einar Olgeirsson. ALLSHERJARNEFND: Benedikt Gröndal, Gísli Jóns son, Gunnar Gíslason, Pétur Sigurðsson, Gísli Guðmunds- son,. Björn Pálsson og Hannibal Valdimarsson. ÞINGFARARKAUPSNEFND: Eggeit G. Þorsteinsson, Kjartan J. Jóhannsson. Einar Ingimundarson, Halldór Ás- grímsson og Gunnar Jóhanns- son. Gamall maður UMFERÐASLYS var í gær- dag, skömmu eftir klukkan 5, á móts við húsið nr. 11 við Frí- kirkjuveg. Þar varð 74 ára gamall maður fyrir bifreið og’ hlaut nokkur meiðsli. Hann heitir Markús Sse- mundsson, til heimilis að Vífils götu 2. Hann var að vinna við götuhreinsun, þegar bifreið kom á leið í miðbæinn. Bifreiðin mætti strætisvagní og mun ökumaðurinn hafa séð seint til Markúsar. Hann heml- aði þegar, en bifreiðin rann til og skall vinstri afturendi henni ar á Markúsi, sem hentist upp á gangstétt. Hann var fluttur á slysavarð stofuna, en í gærkvöldi var ekk; kunnugt um meiðsli hans, en þau munu ekki hhafa verið alvarleg. EFTIR dansleik á Selfossi sl. *■ laugardagskvöld Ientu tveir menn í áflogum. Að þeim lokn- um saknaði annar þeirra veskis síns, sem í voru 2000 til 2500 krónur. Maðurinn, sem átti veskið, vinnur við Efi'a-Sog; og haíði komið til Selfoss til þess að skemmta sér um helgina. Sá, sem hann flaugst á við, hafði komið frá Reykjavík sömu er- inda. Báðir mennirnir voru undir áhrifum áfengis, þegar áflogin urðu. Álitið er, að Reykviking- urinn hafi einhvern veginn náð veski mannsins í áflogunum. Þjófnaðurinn var kærður dag inn eftir og fannst þá veskið í garðí við hús, skammt þar frá, sem áflogin urðu. Lögreglan á Selfossi hóf þeg- ar rannsókn í málinu í sam- vinnu við rannsóknarlögregl- una í Reykjavík. Fullnaðarrann sókn er enn ekki lokið. nduriá 75 ára kona fyrlr SJÖTÍU og fimm ára gönnil kona varð fyrir hifreið á Snorra braut, á móts við Skeggjagötu, um klukkan 5 í gærdag. Hlaut gamla konan mikil meiðsli. Bifreiðin var á leið suður Snorrabraut er slysið var. Lenti hún á Þorbjörgu Bryn- jólfsd., til heimilis að Mána- götu 14. Barst Þorbjörg með bifreiðinni nokkurn spöl og féll síðan í götuna. Hún var þegar flutt á slysa- varðstofuna. Hafði hún hlotið liðhlaup á öxl, sár á hnakka og einnig marizt á fótum. Meiðsli hennar voru ekki fuil- rannsökuð í gærkvöldi. Alþýðublaðið — 25. nóv. 1959 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.