Skírnir - 01.01.1897, Qupperneq 1
Skýrslur og reikningar fjelagsins 1897, m. m
Bækur þær, er fjelagið hefur gefið út 1897 og látið útbýta meðal
fjelagsmanna fyrir árstillagið, 6 kr., eru þessar:
Söluverð
Skírnir (um árið 1896)............................................kr. 1,00
Tímarit XVIII.......................................................— 3,00
íslenzkt fornbrjefasafn IV, 3.......................................— 2,00
Landfræðissaga íslands II, 2........................................— 1,25
Safn til sögu íslands III, 2........................................— 2,00
Kr. 9,25
Á hinum fyrra ársfundi Reykjavíkurdeildarinnar 2. apríl 1897 var
lagður fram endurskoðaður ársreikningur deildarinnar fyrir árið 1896.
Forseti skýrði frá efnahag deildarinnar, og taldist svo til, að skuldir
hennar hefði minkað um c. 200 kr. á reikningsárinu.
Á hinum síðara ársfundi Reykjavíkurdeildarinnar 8. júlí 1897 skýrði
forseti frá aðgjörðum og hag deildarinnar. Vegna fjárhagsvandræðanna
treysti deildin sjer eigi í ár til að gefa meira út en hinar vanalegu árs-
bækur, Skírni og Tímaritið. Eftir uppástungu Hafnardeildarinnar var
samþykt að bera undir alla hjerlenda fjelagsmenn spurninguna um afn&m
eða framhald útlendu frjettanna í Skírni, á þann hátt, að hverjum fjelags-
manni sje sent oyðublað með spurningum þar að lútandi til útfyllingar.
I stjðrn voru kosnir þeir, er segir hjer á eftir. Endurskoðunarmenn vóru
kosnir aðjúnkt Björn Jensson og bankabðkari Sighvatur Bjarnason. 1
Timaritsnefnd næsta árs vðru kosnir ritstjðri Einar Hjörleifsson, yfirkenn-
ari Steingrímur Thorsteinsson, assessor IJristján Jónsson og kennari Jö-
hannes Sigfússon.