Alþýðublaðið - 02.12.1959, Side 12

Alþýðublaðið - 02.12.1959, Side 12
ORERAIVIMERGAU, Þýzkalandi. —- Veitinga- maður hefur verið valinn til þess að fara með hlut- verk Krists á Píslarsjón- leiknum í Oberammergau á næsta ári. Hann heitir Anton Preisiuer, 47 rira og fjögurra barna faðir. Preisinger og þriðji hluti íbúa þorpsins hafa ekki skorið hár sitt né skegg í heilt ár. Þeir munu allir fara með hlut- verk í Píslarleikunum. Útlit Preisingers og rötld er þannig að hann getur leikið Krist mjög sannfærandi. Písarleikirnir í Ober- ammergau eru haldnir á tíu ára fresti og 1950 fór Preisinger líka með hlut- verk Krists. Hann verður m. a. að hanga 25 mínútur á krossinum á hverjum degi frá því um miðjan maí til septemberloka. Búizt er við 800.000 gestum á leikina og í þeim taka þátt 1400 manös. Leikirnir hefjast kl. rúm- lega átta á morgnana og ^tanda til kl. 6 með tveggja tíma matarhléi. Oberammergau er í Bayersku Ölpunum og er sérkennileg um margt, biblíumyndir eru málað- ar á flest húsin. Píslarleikirnir þar hóf- ust 1633 er Svarti dauði geisaði í þorpinu og 84 þorpsbúar létust. Þá var því lofað að leika Píslar- söguna á tíu ára fresti í þorpinu ef plágunni létti og upp frá því dó enginn þar úr Svarta dauða. Strangar reglur gilda um val leikendanna. Karl- mennirnir verða að vera fæddir í Operammergau og búið þar í 30 ár eða ver ið giftir konu þaðan í 10 ár. Konurnar verða að vera undir 35 ára aldri. Allir verða að vera ka- þólskrar trúar. Leikirnir sýna innreið Krists í Jerú- salem, þegar hann kveður móður sína, síðustu kvöld máltíðina, Júdasarkossinn og krossfestinguna m. a. Og að síðustu upprisuna og himnaförina. Á NÆSTA ári eru liðin 300 ár frá dauða franska prests- ins St. Vincent de Paul, en hann lagði grundvöllinn að hjálpar- og líknarstarfsemi seinni tíma og í mörgum efn- um var hann 300 árum á und- an samtíð sinni. Hann lézt 27. september 1660, áttræður að aldri. Hann stofnaði reglu Vincentbræðra og líknar- systra, en nunnur hennar ganga í bláum fötum og eru kallaðar englar orustuvall- anna og svölur Allah. St. Vin- cent de Paul var tekinn í helgra manna tölu öld eftir dauða sinn. St. Vincent de Paul vann • yfirleitt að öllum líknarstörf- um, sem nú eru þekkt. Hann stofnsetti sjúkrahús, munað- arleysingjahæli, iðnskóla fyr- ir drengi, ókeypis skólagöngu Barna, stofnaði heimili fyrir ógiftar mæður, geðveikra- hæli, elliheimili og uppeldis- liæli fyrir óknyttadrengi. Hann skipulágði dreifingu á mat til fátæklinga og útveg- aði atvinnulausum vinnu, og sendi hjúkrunarfólk á heimili. Starfsemi Vincenthræðra Framhald á 10. síðu. ★ Debbie leik- ur í fimm kvikmyndum SÍÐAN liún Debbie Reyn- olds skildi við Eddie hefur hún komizt í flokk hinna allra vinsælustu stjarna í Hollyvvood, að því leyti mætti hún verða þakklát Liz Taylor fyrir að hafa tekið af henni manninn. Á þessu ári hefur hún leikið í fimm kvikmyndum ásamt ýmsu fleira. Ásamt henni standa á tindi stjörnudóms- ins Marilyn Monroe, Audrey Hepburn og Liz Taylor. Skilnaðurinn og öll skrifin um hann gerði hana persónu- lega vinsæla og hún veit það vel. Hún segir að fimm mynd- ir á ári séu of margar myndir og næsta ár ætli hún að leika í aðeins tveimur. Henni finnst einnig, að hún hafi ekki nóg- an tíma til að vera með börn- unum sínum oe svo verði hún að skemmta sér dálít;ð meðan hún sé un»r. Æskan komi aldr- ei aftnr, þeírar hún er einu sinni farin, segir Debbie. JOHANNESARBORG. — Sjötíu og fimm Afríkumenn eru í útlegð í sínu eigin landi. Útlegð þeirra gæti ekki verið algerari þótt þeir væru í 5000 mílna fjarlægð frá heimilum sínum. Þessir sjötíu og fimm menn eru hvaðanæva úr Suð ur-Afríku, en eitt eiga þeir sameiginlegt, — þeir hafa allir vakið gremju valdhaf- anna á einhvern hátt. Og ríkisstjórnin hefur í hefnd- arskyni sent þá til fjarlægra hluta landsins óraveg frá vinum og ættingjum. Ekki alls fyrir löngu . ■tfí-■'. » Vi'. «■VJ<u skýrðu blöð og fréttastofur ítarlega frá útlegðardómi blökkukonunnar Elizabetar Mafekeng, leiðtoga í verka- lýðssamtökum Suður-Af- ríku og ellefu barna móður. Hún var hrakin brott frá heimili sínu í hinni fornu og virðulegu borg Paarl, skammt frá Höfðaborg. Henni var skipað að fara til hinna þurru lenda í Vry- burghéraðinu í Norð-vestur Höfðanýlendunni. Hún kaus í staðinn að flýja til brezka- verndarsvæðisins í fjöllum Basutolands. Mál Elizabethar Mafe- cWiA-j'í 0J{ HOLLENBRAGÐ OlS VOND GEIMFÆÐA FYRIR fáum árum voru vísindamenn að reyna eins og þeir gátu að setja klórofyl eða blaðgrænuefni í allt, sem hægt var, tyggigúm, tann- krem og allt mögulegt annað, sem mannskepnan þurfti að nota. Nú reyna þeir af álíka ákafa að ná blaðgrænunni burt til þess að búa til bragð- góða fæðu fyrir geimferða- garpa. Slíið, sem vex í kyrrum uppistöðupollum, grænt og froðukennt, þykir ágæt geim- garpafæða, en gallinn er bara sá, að það er hryllilega bragð- vont. Það vex skjótt og er næringarríkt. Nú hefur vís- indamaður, sem starfar hjá Boeing verksmiðjunum í Se- attle, fundið upp ráð til þess að bragðbæta það stórlega. Hann lætúr geysisterkt ljós skína á það, svo að það verð- ur hvítt en ekki grænt, og þá verður þetta slímkennda efni miklu betra á bragðið. Hið bleikta slí hefur annað og mildara bragð og er auðvelt að gera það gómsætt með bragðefnum. Slíið er heppilegt í fleiri til fellum en geimferðum. Ef til kjarnorkustríðs kæmi eða ó- happa ,sem gerðu jarðveginn of geislavirkan til þess að vogandi sé að rækta venjulegt grænmeti, er unnt að rækta slí í erunnum bökkum uppi á húsbökum. Það yrði að vísu ærið bragðvont slí, rækt'að við venjulegt sólarljós, en ekki yrðí það verulega geisla- virkt. Til þess að bæta bragð- ið. hvrfti að láta sterkt fluors- centliós skína á bað. 9&'\ keng beindi athygli heims- ins . að hinum sérkennilegu útlegðardómum ríkisstjórn- arinnar í Suður-Afríku, en í rauninni er það ekkert nýtt. Þeir, sem harðast gagn rýna stjórnina í Suður-Af- ríku gera sér oft ekki ljóst að útlegðardómarnir hófust þar árið 1927 og stendur ekki í neinu beinu sambandi við „Apartheit“-stefnuna, sem núverandi stjórn þjóð- ernissinna fylgir. Eina við- bótin við þessi lög, sem þjóð ernissinnar hafa gert er að fella niður áfrýjunarrétt sakbornings er úrskurður yfirvaldanna hefur verið felldur. Þá cr það ekki rétt að útlagarnir hafist við í fangabúðum, — þeir eru einangraðir en ekki lokaðir inni. Talsmaður stjórnarinnar hefur lýst þessu þannig: „Þegar maður er sendur frá einu héraði til annars líta íbúarnir þar á hann sem út- lending, og hann nær litlu sambandi við þá sem fyrir eru“. Afríkumenn, sem stjórnin telur óæskilega, eru Framhald á 10. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.