Alþýðublaðið - 04.12.1959, Síða 4
Útgefandi: AlþýSuílokkurinn. — Framkvœmdastjón. mgolfur Kristjánaaon.
— Ritstjórar: Benedikt Grondal, Gisli J. Ástþórsson og Helgi Sæmundaaon
(éb.). — Fulltrúi ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björg-
Vtn Guömundsson. — Simar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýa-
Inynrftnl 14 90«. — ACsetur: Alþýðuhúsið. — PrentsmMija AlþýðublaBsin*,
Hverfisgata 8—10.
Málþófið á alþingi
ÞESSA DAGANA fer fram á alþingi málþóf,
i sem ekki hefur þekkzt þar um langt áraskeið og
■ víst aldrei í líkingu við þetta. Stjórnarandstaðan
lætur sér ekki nægja að flytja maraþonræður um
dagskrármál og stofna til leiksýningar eins og mál
; flutnings Skúla Guðmundssonar um skemmtana-
£
: skattinn. Mál sameinaðs þings eru þæfð lengi og
vel utan dagskrár í þingdeildum, en mál þingdeild-
' anna sæta sömu meðferð í sameinuðu þingi. Fyrir-
spurnir eru endurteknar þingfund eftir þingfund,
kosningum frestað og mál alþingi óviðkomandi
með öllu kapprædd þar óratíma eins og til dæmis
skoðanir þær um efnahagsmál, sem Jónas Har-
• alz gerði að umtalsefni í ræðu sinni á fullveldis-
daginn. Stjórnarandstöðunni virðist með öðrum
orðum alvara að tefja þingstörfin von úr viti af
því að foringjar Framsóknarflokksins og Alþýðu-
bandalagsins eru andvígir fyrirhugaðri frestun
alþingis.
Auðvitað er ekkert við því að segja, þó að
skiptar skoðanir valdi deilum á alþingi. Hins
\ vegar nær málþófið engri átt. Stjórnarandstað-
an er með því að stofna virðingu alþingis í háska
og gefa stórvarhugavert fordæmi. Og satt að
segja er tilefnið ósköp lítið. Frestun alþingis til
janúarloka ætti naumast að raska skapi stjórn-
arandstöðunnar eða trufla tilfinningar hennar.
Sagf upp slarfi án
nægilegs f yrirvara
HÆSTIRÉTTUR héfur kveð-
ið upp dóm í málinu Lands-
sími íslands gegn Ástvaldi
Pálssyni, Eskihlíð 23 í Reykja-
vík. Er staðfestur héraðsdóm-
ur, þar sem Landssímanum var
gert að greiða stefnanda Ást-
valdi kr. 7.703,04 með 6% árs-
vöxtum frá 16. júní 1954 til
greiðsludags og kr. 4150,00 í
málskostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti.
Málavextir eru þeir, að með
samningi aðilanna dags. 3.
Þjóðhátfðardags
Finna minnsi
FINNLANDSVINAFÉLAGIÐ
Suomi minnist þjóðhátíðardags
Finna með kvöldfagnaði fyrir
félagsmenn og gesti þeirra í
Tjarnarkaffi uppi, sunnudag-
inn 6. des. kl. 8.30.
Dagskrá kvöldfagnaðarins
verður fjölbreytt. Sýndar
verða kvikmyndir f eðlilegum
litum, Kai Saanila phil. cand.
stjórnar spurningaþætti fyrir
samkomugesti alla, Jyrki Mán-
tylá phil. cand. les upp finnsk
ættjarða'rljóð. Báðir þessir
finnsku stúdentar, sem að
framan eru nefndir, dvelja hér
við Háskólanám. Að lokum
verður dansað.
Allir Finnar, sem dvelja í
Reykjavík og nágrenni, verða
á kvöldfagnaðinum. Félags-
menn hafa ókeypis aðgang fyr-
ir sig og gesti sína, sýni þeir
félagsskíríteini við innganginn.
febn. 1945 var stefnandi, Ást-
valdur Pálsson, ráðinn til
stefnda, Landssíma íslands,
sem trésm:ður. Var ráðningar-
tími ákveðinn sex mánuðir frá
I. marz að telja. Stefnandi var
ráðinn fyrir tímakaup og fékk
vikulegar greiðslur, auk þess
fékk hann greiddar kr. 400,00
á mánuði fvrir trésmíðaáhöld,
sem hann lagði til sjálfur. Að
liðnum sex mánuðum hélt
stefnandi starfi sínu áfram hjá
stefnda, en nýr ráðningarsamn-
ingur var ekki gerður. H'.nn 2.
marz 1953 var stefnanda sagt
munnlega upp starfinu og var
sú uppsögn staðfest með bréfi
dags. 31. marz þ. á. Uppsögnin
var miðuð við 1. apríl 1953.
Vikulaun stefnanda námu þá
kr. 962,88.
Stefnandi byggði kröfur sín-
ar á því, að hann hafi verið
örðinn fastur starfsmaður hjá
stefnda og bæri því þriggja
mánaða uppsagnarfrestur.
Krafðist hann launa fyrir mán-
uðina apríl—júní 1953 kr.
II. 554,56, enda hefði hann ekk-
ert starf á hendi þann tíma.
Stefndi byggði sýknukröfu
sína á því, að stefnandi hefði
ekki verið ráðinn fastulí starfs-
maður. Héraðsdómurinn komst
að beirri niðurstöðu, að stefn-
andi hafi átt rétt á þriggja
mánaða uppsagnarfresti, en
fengið einn, og bæri stefnda
bví að greiða honum kaup fyr-
'ir mánuðina apríl og maí 1953,
kr. 7.703,04 með vöxtum. Hæsti
réttur staðfesti dóminn sem
fyrr segir.
Hér er um að ræða ráðstöfun, sem hlýtur að
vera á valdi meirihluta alþingis, en er engan veg
inn það árásarefni á ríkisstjórnina, sem stjórn-
: arandstaðan vill vera láta. Vissulega er meiri-
hlutanum skylt að taka tillit til minnihlutans í
störfum alþingis. En hitt er til of mikils mælzt,
að minnihlutinn eigi að segja meirihlutanum
! fyrir verkum. #
Hörmulegast er þó, að reyndir þingmenn, sem
valizt hafa til æðsta trúnaðar, skuli gera sér leik
að málþófinu. Framsóknarflokknum og Alþýðu-
bándalaginu er auðvelt að stórskaða virðingu al-
þingis með slíkum vinnubrögðum, en jafnframt
hlýtur sómi hlutaðeigandi stjórnmálaflokka að
verða fyrir áfalli. Kjósendur þessara flokka munu
margir hverjir sáróánægðir með málefnalegt sam-
starf þeirra á alþingi um þessar mundir. En hvað
þá um það athæfi, þegar Framsóknarflokkurinn
og Alþýðubandalagið bregða á svo gráan leik að
gera sig að viðundri í sölum alþingis án nokkurra
málefna og til þess eins að þjóna ólund sinni?
! Áuglýsing
| frá Bæjarsíma Reykjavíkur
Bæjarsímann vantar nú þegar verkamenn við
jarðsímagröft.
Nánari upplýsingar gefa verkstjórar bæjar-
símans Sölvhólsgötu 11 kl. 13—15 daglega,
símar 1 00 00 og 1 65 41.
Hannes
á h o r n i n u
'y? Skemmdarverk í til-
gangsleysi fyrir allra
augum.
ýV Hvert er ferðinni
heitið ?
ýV Bókin um Abraham
Lincoln.
■fe Bréf Matthíasar til
Hannesar Hafstein.
ÞETTA *ER EKKI raunhæf
stjórnairandstaða. Það getur vel
verið að almenningur hafi bú-
izt við því að ríkisstjórnin hefði,
eftir mánaðarsamninga og hálfs
mánaðar setu tilbúin þau mál,
sem hún ætlaðist til að gætu
Ieyst þann vanda, sem þjóðin
er í, en staðreyndin er sú, að
ríkisstjcirnin hefur málin ekki
tilbúin og treystir sér ekki að
hespa þau af, enda hefur hún
lýst yfir því, að nú fari fram
raunveruleg úttekt á þjóðar-
búinu, sem oft hefur verið lof-
að en ekki efnt.
ÞEGAR SÚ STAÐREYND
blasir við er ekki annað að gera
en fresta alþingi um sinn með-
an verið er að ganga frá málun-
um. Ríkisstjórnin hefur tekið
þessa ákvörðun og henni verð-
ur' vitanlega ekki breytt. Stjórn
arandstöðunni hlýtur að vera
það Ijóst, að hún snýr hvorki
þeim, sem skipa ríkisstjórnina
né þeim þingmönnum, sem hafa
lýst yfir stuðningi við hana.
Þess vegna er málþóf á alþingi
dao- eftir dag ekki annað en
sóun á fé þjóðarinnar. tafir á
starfi ríkisstjórnarinnar og
skemmdir á framkvæmdavald-
inu.
MÁLÞÓF OG BELLIBRÖGÐ
eins og þau, sem stjórnarand-
staðan beitir nú á alþingi, er
því ekki til annars en að spilla
fyrir, tilraun til þess að brjóta
tannhjól í vél, saga til hálfs í
sundur burðarás, yfirleitt
skemmdarverk, ekki gagnvaxt
þeim flokkum, sem standa að
ríkisstjórninni, heldur gegn af-
komu þjóðarheildarinnar. Hér
ræður meir pólitísk afbrýði-
semi, sjúk öfudn og hatur, en
pólitískt vit. því að þessi fram-
koma mælist ákaflega illa fyrir
meðal almennings.
OG SVO ER SAGT, að stjórn
arandstaðan hafi í bakvasanum
vantrauststillögu, sem eigi að
leggja fram næstu daga og krefj
ast útvarpsumræðna í tvö
kvöld. Það vantraust er ekki
byggt á neinum raunhæfum
málum, því að þau hefur rík-
isstjórninni enn ekki unnizt
tími til að leggja fram, heldur
er það sprottið af sama grunni:
afbrýðiseminni og skemmdar-
fýsninni. Hvenær eignumst við
íslendingar heilbrigða og raun-
hæfa stjórnarandstöðu?
THOROLF SMITH hefur
skrifað mikla og merka bók um
Málfundafélagið
Faxi 20 ára
LAUGARDAGINN ■ 21. nóv-
ember s. 1. minntist Málfunda-
félagið Faxi í Keflavík 20 ára
afmælis síns með veglegu hófi
í samkomusal Aðalvers í Kefla
vík, en málfundafélagið var
stofnað 10. október 1939.
Félag þetta, sem telur aðeins
12 félagsmenn, hefujií alla tíð
starfað af miklum krafti. Aðal-
verkefni þess, utan málfunda-
starfsins, hefur verið blaðaút-
gáfa, en mánaðarblað þess,
Faxi, hóf göngu sína í desem-
ber 1940, eða ári síðar en mál-
fundafélagið var stofnað.
Blaðið Faxi, sem er fyrsta
prentaða blaðið, er gefið hefur
verið út á Suðurnesjum, hefur
komið nokkuð reglulega út s.
1. 19 ár. Það hefur ætíð starfað
á ópólitískum grundvelli, en
látið velferðar- og menningar-
mál Suðurnesja mjög til sín
taka. í blaðinu er einnig að
finna mikinn og mairgháttaðan
fróðleik um líf og starf liðinna
kynslóða, — sögulegan fróð-
leik, sem vart mun annars
staðar að f:nna.
Stjórn félagsins er nú þann-
ig skipuð: Hallgrímur Th.
Björnsson, formaður, Valtýr
Guðjónsson, varafortmaður og
Margeir Jónsson, gjaldkeri.
Um 60 félagsmenn og gestir
sátu afmælisfagnað félagsins.
Ritstjórn blaðsins Faxi er nú
þannig skipuð: Form.: Hall-
grímur Th. Björnsson, hann er
einnig ritstjóri blaðsins. Vara-
foirim.: Margeir Jónsson. Ritari:
Kristinn Pétursson.
eitt mesta mikilmenni sögunn-
ar: Abraham Lincoln. Smith
hefur þaullesið allt. sem um
þennan mikla mann hefur verið
skrifað o<r hann hefur skoðað
söfn um hann, heimsótt fæðing-
arbæ hans og kynnt sér allt,
sem hægt er vestan hafs til þess
að geta tekið saman þessa bók.
ABRAHAM LINCOLN er svo
risavaxinn persónleiki, að al.lir
menn geta á öllum tímum lært
af honum. Slíkir persónuleikar
eru m.jög fátíðir. Hann er að
þessu leyti eins og Albert
Schweitzer.' Lincoln er löngu
dáinn, en enn er hann lifandi í
hugskoti mannanna eins og
hann gengi enn meðal okkar.
Þannig mun og verða um
Schweitzer löngu eftir að hann
er allur. — Bók Thorolfs Smiths
er mjög greinagóð Op vel gerð.
Hún fyllir upp brýna þörf. Sér-
staklega er nauðsynlegt að ungt
fólk lesi hana með gaumgæfni.
I bókinni eru 60 myndir. nær
allar um 100 ára gamlar.
BRÉF FRÁ LIÐINNI TÍÐ
gefa manni jafnvel betri yfir-
sýn um menn og málefni en
bækur. sem ritaðar eru beinlín-
is um það efni. Þannig er bókin:
Bréf Matthíasar Jochumssonar
til Hannesar Hafsteins. ísafold-
arprentsmiðja gefur bókina út„
en Kristján Albertsson sá um
útgáfuna, ritaði skýringagrein-
ar og skrifaði formálann. Fyrsf.
Of? fremst kynnist maður Matt-
híasi. en einnig Hannesi. Sér-
staklega stendur Matthías ljós-
lifandi f.yrir augum manns,
enda var hann mikilvirkur bréf
ritari En maður fær líka nokk-
uð glögga mynd af Hannesi Haf
stein. Hafstein kom ungur á
fund Matthíasar og upp frá því
voru þeir vinir alla sevi. Bréfin
eru skemmtileg og fróðleg.
Hannes á horninu.
4 4. dies. 1959 — Alþýðublaðið