Alþýðublaðið - 23.12.1959, Síða 1
1
£ > •'
40. árg. -— Miðvikudagur 23. desember 1959 — 275. tbl.
Si;S|
Tveir bátar komu til Grinda- |
víkur, Hafnfirðingur með 164 |
tunnur og Júlíus Björnsson |
með 133 tunnur, báðir með rek I
net. Fór hvorugur aftur út. Eru |
Grindavíkurbátar farnir að |
búa sig Undir vertíð, en ein- |
hverjir hyggja þó á síldveiðar |
milli jóla og nýárs. |
AFLI síldarbátanna var á-
gætur en ekki eins mikill í
fyrrinótt og nóttina þar áður
og misjafnari í reknet en ver-
ið hefur. Til Keflavíkur komu
19 bátar í gær með ca. 3170
tunnur. Þar af voru tveir
hri'ngnótabátar: Vonin II með
600 tunnur og Kópur með 250
tunnur.
Hæstur reknetabáta var
Reykjaröst með yfir 300 tunn-
ur, Farsæll var með 300 tunn-
ur og fjórir aðrir á 3. hundrað-
ið. Nokkrir bátar fengu lélegan
afla, 40—60 tunnur, Ekki var
búizt vlð, að neinn bátur frá
Keflavík reri í gærkvöldi. Sum
ir eru í þann veginn að hætta
Síldveiðunum,- en aðrir halda
áfram miili jóla og nýárs.
Sex bátar komu til Sand-
gerðis í gær með samtals 2100
tunnur. ’Víðir II var aflahæstur
með 850 tunnur { hringnót og
Rafnkell fékk 800 tunnur. Af
reknetabátunum var Guðbjörg
hæst með um 200 tunnur. Tveir
hringnótabótar frá Sandgerði
fóru til Akraness, Muninn II
ög Jón Gunnlaugs með 500
tunnur hvor. Aðeins hrlngnóta-
bátarnir ætluou ef til vill að
róa f*'á Sandgerði í gærkvöldi.
. Til Akraness barst mikill
afli og var verið að landa fram
á nótt’. Var ýfirleitt ágæt veiði
hjá bátunum. Keilir landaði t.
d. 634 tunnum (snurpunót) og
Sigurvon 687, en reknetabát-
arn r voru með 50—-250 tunnur
ýfirleitt.
:::
AKUREYRI, 22. ds. — Hér
er bezfa veður, snjóföl og mjög
jólalegt. Greiðfært er um allar
nærsveitir og hafa menn t. d.
farið til Reykjavíkur á fólks-
bílum að undanförnu. Til Húsa
víkur er fært á bílum með
drifi á öllum hjólum. — G. S.
NEW York Herald Tribune
birtir nýlega forustugrein, sem
stingur mjög i stúf við hinn
kalda gust, sem staðið hefur
frá ýmsum öðrum blöðum
vestra í sambandi við brott-
flutning liðs frá íslandi. Þár
er bent á, að brottflutningiu-
;nn standi ekki í nein i sam-
bandi við deilur vegna dvalar
amerískra hermanna á Islandi.
Bent er á, að .1100 menn með
fimm skriðdreka mundu varla
verja fsland og þar að auki hafi
þeir ekki verið hluti af NATO-
liðinu. Greininni lýkur þannig:
„Það er engin ástæða til að
harma þessa ráðstöfun — og
með því að draga úr fjölda
þeirra Ame’ríkumanna, sem
gegna skyldum í þessu litla lýð
veldi, verður hlutfallslega
dregið úr möguleikunum á á-
rekstrum, sem óhjákvæmilegir
eru, þegar útlendingar, hvort
sem er í einkennisbúningitm
eða ekki, eru fluttir inn í mjög
samrýmt þjóðfélag, jafnvel þótt
í bezta tilgangi sé“.
m mrn
OSTA- og smjörsalan s/f
(sjálfstætt fyrirtæki að
sagt er) sendir út jóla- og
nýárskveðjur þessa dag-
ana.
En Osta- og smjörsalan
s/f er ekki sjálfstæðari en
það, að jólakortið þess,
er ófrímerkt, ber póst-
stimpil SÍS.
Og í þokkabót fj'lgir
jólakveðju Osía- og smjör
sölunisar þessi ábending:
Vöruval á öllum hæð-
um. SÍS, Austurstræti.
lifandi jólasveini miða í HAB - happ
drœtti Alþýðublaðsins - í fyrradag. Við
segjum frá þessu með annarri mynd
eim
.