Þjóðólfur - 05.11.1848, Side 2
2
ur enginn í landinu sjálfu tekið sig fram um
það, að vekja henni huga um þjóðlegt líf, því
allir sofa líkast til sama ^ða likum svefni.
Jess vegna eigi þjóðin að vakna á þeim eða
þeim tíma, sem forsjónin ætlar henni, þá
hljóta líka að koma utan að henni annarstað-
ar frá hrópandi raddir og hnippingar, sem
geti vakið hana. "þessi köll og hnippingar,
sem þá hafa átt að vekja oss Islendinga,
segijegúr hafi komnar að því leyti, sem mjer
virðast hinar þjóðvekjandi raddir liafi borizt
til vor yfir langan sjó í ritum frá ijarlægu
landi. hafa orðið til þess nokkrir Islend-
ingar, sem dvalið hafa i Kaupmannahöfn, að
hera oss það á brýn, að vjer svæfum, og sinnt-
um ekki þjóðerni voru, og þeir hinir sömu
hafa tekið sig fram um það að vekja oss til
þjóðlegs lífs. Hver, sern lesið hefur Ármann
á alþingi og Fjölni', getur víst ekki borið á
móti þvi, að þessi rit eru stíluð til vor Islend-
inga, til að vekja oss huga um þjóðerni vort.
Og þessi rit byrjuðu á að leiða huga vorn
einmitt að því, sem er undirstaða þjóðernis-
ins, en það er móðurmálið. Mig minnir ekki
betur, en Ármann á alþingi sýni oss það
berlega, hversu lilægilegt það er, þegar vjer
Islendingar erum að böglast við að sletta
dönskunni í daglegu tali. Aptur setur Fjöln-
er ofan i við oss fyrir það, hversu hirðulaus-
ir vjer eruin með bókmál vort, og hann læt-
ur sjer annt um, að kerma oss að vanda mál-
ið á öllu, sern vjer ritum. Báðir þeir menn,
Baldvin heitinn Einarsson, frelsishetjan fríða
ogfullstyrka,ogsjera Tómásheitinn Sæmunds-
soii, sem vjer allir þekktum að jiví, að hann var
svarinn óvinur deyfðarinnar og aðgjörðaleysis-
ins, enda var hinn mesti vandlætingamaður og
kappsmaður um allt, sem betur mátti fara,
báðir þessirmenn, og þeir fjelagar, sem þeim
fylgdu, eiga sannarlega miklar jiakkir af oss
skilið fyrir viðleitni sína, i því að leggja þann
grundvöllinn hjá oss, sein þjóðernið er byggt á.
Og víst mættum vjer biðja þá fyrirgefningar
í gröfunum fyrir það oss fórst við þá, líkt
og úrillum manni í svefnrofunum við þann,
sem vekur hann; vjer skildum ekki röddu
þeirra, og svöruðum þeim út af. En þarsem
jeg er að minnast á þá menn, sem jeg álít
að hafi, liver á sinn liátt, gjört sitt til þess
að vekja oss íslendinga, þá má jeg ekki
gleyma skáldinu góða, þar sem er Jónas heitinn
Hallgrímsson. Og það er þá eins og mjer
virðist, að forsjónin hafi ekki sparað neitt, til
þess að vekja oss. 3?á er hún hefur látið tala
til vor um móðurmálið í óbunduum ræðum og
ritum þeirra manna, erjeg áður nefndi, þá fer
hún að láta tala til vor um landið sjálft í ljóð-
mælum. Hún veitir Jónasi heitnum mælskuna
á æðsta stigi, og lætur hann svo vekja oss
með því, að hún gefur honum að tala til vor í
hinum fegursta skáldskap. Og það er land-
ið sjálft, það eru jöklarnir, fjöllin, fossarnir,
elfurnar, hlíðarnar, grundirnar, það er Island,
eins og það er ásigkomið af völdum náttúr-
unnar, sem talar til vor í kvæðum skáidsins,
og hiður oss búendur sína að gefa gaúm aö
því, hversu veglegt og ágætt land það sje;
það er rjett eins og föðurland vort sje orðið
lifandi, og skori á oss í skýru raáli, að sinna
sjer. Eins og þá hinir tveir fyr nefndu menn
vildu vekja hjá oss ást og rækt við móður-
urmál vort, svo hefur þessi hinn siðast nefndi
látið sjer annt um, að vekja hjá oss elsku og
virðingu fyrir landinu sjálfu. Og þessir þrír
menn eru nú sofnaðir! En eru þá með þeiin
þagnaðar þær raddirnar, sem vekja oss til
þjóðlegs lífs? Nei! þar tekur ein röddin við,
sem önnur hættir; því það er guðs vilji, að
þjóðlegt lif skuli vakna á meöal vor. Nú
taia þá hvað skýrast til vor hiu „nýu Fé-
lagsrit.“ J>ar hljómar rödd þess manns, sein
segir oss því nær skýlaust, að nú sje dagur
lijálpræðisins,- nú sje kominn hinn hentugi
tími, að vjer skulum því vakna og þekkja
vorn vitjunartíma. Og þessi röddin, hún vek-
ur oss til íhugunar á þeim málefnum, sem
i tímanlegu tilliti eru nú mest umvarðandi
fyrir land og lýð, en það er þjóðleg stjórn
fyrir land vort, og frjálsleg verzlunarviðskipti
við aðrar þjóðir.
Svo látum oss þá vakna, Islendingar! Látum
þjóðlyndi og þjóðlegt líf ná þvi valdi yfir anda
vorum, að vjer álítum engin þau málefui oss
óviðkomandi, sem í einhverju tilliti liorfa til
heilla fyrir land vort! Almenningsálitið megn-
ar allt! Jaö kveður svo að orði við sjálfan
konunginn: vjer sleppuin þjer ekki, fyr en
þú blessar oss.