Þjóðólfur - 04.12.1849, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 04.12.1849, Blaðsíða 2
no til skaða; slíkir menn þykja eigi að vísu hafa unnið til hegningar fyrir þetta; en eigi að síður getur einginn kallað (>á ráðvanda menn; og ekki ætti neinn að kjósa þá menn, sem ætlandi er að breyta þannig. 3>ví fengju slíkir piltar margir setu á þjóðfundi vorum, mundu þeir umhverfa málefnunum úr rjettu horfi, og koma þeiin á þá stefnu, er miðaði til hagsmuna einstakra. Jjóðarheillin yrði þá ekki lengi sá inælikvarði, sem rjeði úr- lausn málanna á fundinum; enda mundi þess eigi verða langt að bíða, að hinar illu afleið- ingar af slíkri fundsetu bitnuðu á þjóðinni á hörnum hennar. Já er það annar kosturinn á hverjum þjóðarfulltrúa, að liann sje fridsamur maður. Jetta er samt eigi svo að skilja, að maður- inn skuli taka friðinn fram yfir allt, hvernig sein á stendur, heldur að honum skuli vera svo varið, að liann eigi hyrji á nokkurri kapp- ræðu, fyr en hann eptir nákvæma íliugun sjer, að eigi verður hjá henni komizt. ar þá svo ber undir, að þess þarf með, þá skal liann taka til orða, og tala af öllu afli, til að bæla illt mál niður. Og efhelgur andi rjettlætis- og sannleikselskunnar mælir út af mUnni hans, inun ræða hans fljótt ryðja sjer til rúms. Hitt sjá allir, að eigi er mik- ið varið í þá friðsemi, sem mörgum fylgir, þeir eð eru svo huglausir og duglausir, að þeir láta sjer lynda að þegja og þumbast, svo lengi sem ekki er komið of nærri liags- munum sjálfra þeirra, og hugsa með sjer: hvað varðar mig um þetta? Til hvers skyldi jeg fara að staiula í stímabraki fyrir það? En eigi skal kappinu lengur fram fylgt, en þar til menn eru sannfærðir af ástæðum mót- mælamla; og þess er að gæta, að aldrei skal kappræðan snerta ínanninn, heldur einungis málið, og þess vegna livorki inæla með manni sjálfum, nje i gegn mótmælnnda. 5>riðji kosturinn, sem mikils er verður hjá hverjum fulltrúa, er það, að liann búi yfir rjettum pjóðaranda. En slíkur andi sjn- ir sig í hinum hlýlegu afskiptuin, sem vjer höfum af alþjóðleguin málefnum. Og þegar kostur þessi er svo algjifrður, sem orðið get- ur, þa kemur hann fram í því, að vjer erum hoðnir og búnir til að leggja í sölurnar fyrir þjóð vora, ef þörf gjörist, alla orku vora og efni, og sjerhvað, sein oss þykir mest um vert; og þannig er slíkur andi með öllu gagn- stæður sjálfselsku og síngirni, og mjög svo ólikur öllum hlutdrægum flokkadrættis anda. Eigi nokkrum þjóðlegum framförum að verða ágengt, þá er það hin fyrsta nauðsyn, að hver maður búi yfir nokkrum þjóðaranda í brjósti sínu; en þá er líka auðvitað, að ekki ríður hvað minnst á því, að þeir mennirnir gjöri það, sem einmitt eru kosnir til þess, að leggja ráðin á til eflingar þjóðarinnar, svo að þeir hvorki spari tíma, nje kostgæfni, nje nokk- urn annau hlut, til að vinna það gagn fyrir land og lýð, sem orðið getur. Til þess að vera góður þjóðarfulltrúi, þá útheimtast enn fleiri kostir, en hjer eru tald- ir. £annig er það ómissandi, að maðurinn sje drvakur, svo hann hvervetna gæti skyldu sinnar, og láti sjer annt um, að kynna sjer sjálfur öll mál sem bezt, svo hann þurfi ekki að eiga of mikið undir öðrum, og eigi það svo á hættu, að verða á tálar dreginn af þeim, sem svo kunna að vera gjörðir; að hann sje eigi einpt/kkur, svo hann ekki líti á málin frá einni hlið, og skoði alla hluti einrænings- lega; að hann eigi sjeprálátur, svo hann ekki láti víkja sjer af neinuin ástæðum frá þeirri skoðun, sem hann hefur einu sinni aðhyllzt, heldur streitist allajafna við að sitja við sinn keip; aö hann sje preklundaður o</staðfast- ur, svo hann ekki láti hugfallast, þegar hann mætir mótsögnum, og lofi svo mótmælendum að hlaupa með sigurinn í hverju máli, livort sein þeir liafa rjett fyrir sjer eður ekki. Hvað nú viðvíkur öðrum kostum, sem þjóðfundar- mennirnir þurfa að hafa til að bera, þá get- um vjer eigi annað ætlað, en að sjerhver geti sagt sjer það sjálfur, hvernig þeir eigi að vera; og sleppum vjer þess vegna að fara hjer um fleiri orðum að sinni. A g r i p af stjórnarlöf/un Norðmanna. • (Framhald). Ekki mega færri fulltrúar vera á stórþinginu en 75, og ekki fleiri en 100. Jegar svo þiugið er sett deilist það í tvo hluti, hið svo kallaða löyping og óðalsping:

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.