Þjóðólfur - 02.12.1854, Blaðsíða 5

Þjóðólfur - 02.12.1854, Blaðsíða 5
— 17 — hér svo sjaldfengin. En ver getum ekki ímynilaft oss, að þeir menn verði svo ófrjálsir og óliprir í skoðun sinni á fegurð og gleði. Vér vonum og, að svo mikið komi af f'ólki til þess að horfa á leikinn, ef af honum verður, að leikendurnir og forstöðumennirnir fái endurgoldinnftann kostnað, sem leiga hússins og leiksviðsins leiðir af sér, og sem er ekki svo lítill. Vér berum ekki kvíð- boga fyrir leiknum eða orðunum, f)ví til þ.ess munu fást nógir menn, sein hafa hvorki ófrjáls- ar eða einokaðar skoðanir. En fólkið! Ó Júppíter! hvornin á’að leika, ef enginn fæst til að leika? Skólapiltar fást ekki — og fieir eru líka í fiess konar ófrjálsri og barnslegri stöðu, að þeir geta ekki leikið opineran leik, sem er seldur. í fyrra voru eng- in vandræði að fá fólk; þá komu allir saman með fjöri og afli, og allt fór vel, með styrk hamíngjunnar og Jóns Guðmundssonar, sem hélt öllu uppi með einstökum dugnaði og fjöri. En nú, ininir elskanlegu! nú er sumt af þessu fólki orðið svo forframað, að það fæst hvorki til að leika, né heldur til að styðja að gleði þessari. I fyrra voru þeir frjálsir menn, og þeim datt ekki í hug, að verk þetta væri þeim til niðrunar eða niðurlægíngar, heldur voru þeir á þeirri skoðun, að það væri heiðarlegt að veita öðruin siðsama og gagnlega skemmtun. En nú er koniið annað hljóð í strokkinn. Og það sem oss virðíst undarlegast og kátlegast, það er það, að nienn eru að berja prestaskólanum við og segja, að hann banni stúdentum hans að leika — stúdentarnir þora það ekki fyrir Pró- fesornum og kennurunum, og biskupnum. Vér hvorki getum né viljum ímynda oss, að kenn- endur prestaskólans séu svo kátbroslega öfugir, að þeir hafi þá skoðun, að prestaskólanuin sé niðrun í, ef lærisveinar hans leika sjónar- leik einusinni eða tvisvar; en efþeir hafa þessa skoðun (sem vér höfum heyrt, en ekki trúað), þá er hún raung; i fyrsta lagi af þeim ástæð- um, sem standa fremst í grein vorri; í öðru lagi af því, að þegar sjónarleikirnir eru fagrir og ekki ósiðlegir, þá eru þeir margopt miklu betri og uppbyggilegri, en mðrg leiðinleg og rír prédikun í kirkju; og í þriðja lagi af því, að enginn af þeim, sem leikur, gerir það eins og stöðuga iðn sína, því það bæði kemur sjaldan að, og hér er heldur ekki að tala um, að nein stöðug sjónarleikara iðn geti haft stað. Oss getur ekki fundizt, að nein niðurlægíng sé í því að leika, einkum þegar svona stendur á. — 3>etta er nú sagt um karimennina, sem léku í fyrra, og voru af prestaskólanum*. ' l>að eru margir, sem hafa látið það í Ijósi við oss, að þeir kynnu þó ekki við, að leika í hvert sinn og leikið væri. Vér neitum því nú ekki, að það getur vel verið rétt skoðqn; og einkum er kvennfólki vorkunn, þó það fáist ekki opt, — vér álítum það ekki helilur neina siðprýði af kvennfólki, ef það stendur upp í hvert sinn og kallað er til slíkra starfa; en að leika einusinni eða tvisvar, |iað getur hver heið- arlegur kvennmaður, án þess hún eigi neitt ó- orð skilið; og er það raung og litilmótleg skoð- un, að liggja á liði sínu, ef menn finna krapt og þrek hjá sér til að koma í einum sjónar- leik fram á leiksviðið, og sem líklega ekki kemur til, nema ef einhver kvennsniftin jskyhli ætla, að það væri þó einhver blettur á þeim sem lengi hefði „spázérað“ um strætin hér í Vík á danskri kvenncfragt, og má ske borin og fædd í rHovedstaden“, að fara svona að leika með eintómri islenzku í munninum. En þó iiú að allt þetta gamla „Pakk“ fari á höfuðið, þá er samt svo guði fyrir þakkandi, að það eru fleiri en ellefu inenn í Reykjavík; og vonum vér fastlega á staðarbúa, þá.sem til þess eru færir fyrir stöðu sinni og aldri, að þeir ekki láti þurfa að segja það, að deyfðin og fjörleysið hérna sé svo mikið, að ómögu- legt hafi verið, þrátt fyrir ýtrustu áreinslu, að * fá fólk til að koma upp einum eða tveim sjón- arleikum, með eitthvað tólf mönnum í, i mesta lagi. Bærinn hefir gott af þeirri spennu, sein hann kemst í út af hverju sem er, sem þannig er háttað, að það getur átt við huga eldri og ýngri manna, og einkum þegar það felur r sér andlega nautn og unað. 2 .... — „Af blaðinu „Ingólfi“ ciga að koma út til næstu ársloka 9 arkir, eða ein örk fyrir hvefn mánuð, sem nú er eptir“, — „íngólfur“ 20. 8. apr. 1854, bls. 104 2. dálk neðst, Svona hljóðar lofor blaðsins „Ingólfs“ utn útgáfu þess þettað árið; og hefir það tvímæia- laurt og optar enn einu sinni látið uppi, rað það væri „stjórnarblaíí*' landstjórnarinn- ’) Vér vitum aí) hinir helztu embættismenn vorir framan af þessari öld gáfu hér leiki ó%ru hverju, og léku sjáltlr: Bjarni Thorarensen, Sigur?)ur Thorgrimsen, stiptprófastur Arni Helgason (ábur haun vígfcist), og mun hvorki sjálfnm þeim né úí:rum hafa þókt neinn vansi a'b. Abm.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.