Þjóðólfur - 25.04.1865, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 25.04.1865, Blaðsíða 2
— 92 — vonir, er Vér Iiöföum, þá er vér tokum við kórónunni til }iess að varðveita Iianæ lieila og óskerta, eins og liin danska konúngsætt liaföi borið hana um margar aldir. Það urðu Vor sorglegu forlög að sjá ríkinu skipt og }>að land aðskilið frá Oss, sem frá fornöld Ixafði verið einn hluti hins gamla danska ríkis, og sem þúsund ára stríð eigi hafði megnað að hrífa frá því. En súrast af öllu hefir Oss tekið }iað, að partr af konúngsrfkinu sjálfu, og mesti hlutinn af þeim íbúum Slésvíkr, sem ineð hjarta og túngu heyra til Danmerkr, hefir orðið að skilja við móðurland sitt og })joðstofn. Pér, sem Oss framvegis er trúað fyrir að sjá um hagi yðar, yðr ávörpum Vér Voru kon- únglega orði um von ókomins tíma og örugga starfsemi fyrir föðurlandið. Minnist })ess, að samheldi veitir litilmagnanum krapt, og að mot- lætið sjálft hefir í sér fólgið mikið afl til að sameina og tengja fastar saman. fér vilið með eindrægni leggjast á eitt með Oss til að vinna að Jdví verki, sem friðrinn gjörir nauð- synlegra en nokkurntíma áðr. Með Oss vilið þér starfa að því að efla framfarir landsins með vitrlegum lögum, og með því að noía og auka hin ríkulegu hjálparmeðöl, er náttúran hefir gefið föðurlandi voru. Mikið liöfum Vér mist, en })& ekki vonina, og hinn ókomni tími er fyrir })á, er einarðan vilja hafa. Eins og vér treystum yðar fasta vilja til að efla velferð Danmerkr, þannig verið })ér og þess fullvissir, að þetta skal vera það mark og mið, er öll viðleitni Vor stefnir að. Guð blessi föðurland Vort! Gefið í höfuðstað og aðsetrsstað Vorum Kaup- mannahöfn, 16. dag nóvembermánaðar 1864. Undir Yorri konúnglegu hendi og innsigli. Christian R. (L. S.) Bluhme. — -þ Lát þriggja merkismanna erlendis bárust oss einnig með þessari gufuskipsferð; þóað engi þeirra væri hér innlendr né heimilisfastr liöfðu þeir unnið landi þessu verulegt gagn og stutt að framför þess og velvegnan. Fyrstan teljum vér C. C. Rafn konferenzráð og prófessor, er and- aðist í Iíhöfn 20. Okt. f. á., og var orðinn há- aldraðr maðr. Ilann má kalla fyrsta og aðalstofn- ara stiptsbóhasafns vors, og var hann þaraðauki jafnan verndari og velunnari norrænnar og íslenzkr- ar fræði, sálin í hinu norræna fornfræðafélagi fyr og síðar, og var hann skrifari (secretair) þess fé- lags frá upphafi þess og til dauðadags, og velunn- ari og velgjörari margra íslenzkra mentamanna; mun því og má minníng hans verða lengi uppi hér á landi. — 17. Nóvbr. f. á. andaðist einnig íKhöfn Pétr Christian Iínudtzon, stórkaup- maðr 75(?) ára að aldri. Nægir hér að vísa til þess, sem skýrt er frá í 17. ári þjóðólfs 4. og 5. bls. af 50 ára verzlunar- og veruframkvæmdum þessa merka kaupmanns hér á landi. — 18. Jan. þ. á. andaðist í Hamborg annar merkiskaupmaðr vor Sunnlendínga Carl Franz Siemsen 53 ára að aldri, liann hafði rekið hér verzlun nú um nál. 30 ár, og eílt hana æ meir og mcir á ýmsan veg, og er honum það að þakka, öllum kaupmönnum fremr, að Spánverjar eru farnir að sækja sjálfir saltfiskinn híngað á skipum sínum, en þetta hefir haft í för með sér bæði talsverða hækkun og festu í verði saltfisksins, og þarmeð miklu arðsamari saltfisksverzlun og aðra hagsmuni landsmanna. Hann var maðr fjölhæfr og mæta vel að sér mörg- um fremr, sem lærðir eru kallaðir, gjörði hann einnig margt og mikilsvert til að efia viðgáng og framför Reykjavíkr, bæði með því að gefa kaup- staðnnm helmíng barnaskólahússins, og á margan annan veg. — Af úrgreiðslu almennra landsmála vorra fréttist lítið sem ekkert. Lögstjórnin hafði búið til og látið prenta skýrslu um það er stjórnarráð þetta hafði gjört og aðhafzt til þess aðkoma betri skipun á fjárhag íslands, og lagði stjórnin skýrslu þessa fyrir ríkisþíngin. Hún er lítið annað en ágrip af hinurn margbreyttu uppástúngum og tillögum meiri og minni hlutanna í 5 manna nefnd- inni sem sett var í Iíhöfn. með kgbr. 20. Sept. 1861, til þess að undirbúa og segja álit sitt uffl mál þetta, en nefndin sjálf lauk þeim störfum sín- um og sendi lögstjórninni álitskjal sitt 5. Júlí 1862. Samt segir skýrslan svona undir og ofaná af mis- munanda áliti og tillögum lögstjórnarinnar og fjár-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.