Þjóðólfur - 07.08.1865, Qupperneq 2
— 152
margir þeir menn þykjast og geta komizt af guð-
lausir; í Milano hefir hafizt trúarflokkr sem nefnir
sig »liberi pensatori« (frjálsir hugsendr), hafna
þeir öllum trúarbrögðum, hverju nafni sem nefna
náir, nú hafa þeir og fengið leyfi til að hafa söfn-
uð í Turin; ekki munu þessir menn hafna minna
úr kristinni trú en Magnús Eiríksson, en viss er
eg um að engi katólskr klerkr hefir talað eða
skrifað ómannlegar og níðíngslegar gegn þeim, en
Islendingar sumir, sem annars þykjast svo frjáls-
lyndir, á móti Magnúsi, ef prestarnir í Norðan-
fara og sýslumaðr og prestr í Íslendíngi ekki geta
andæft honum neinu öðru en fúkyrðum og lubba-
legum brígzlum, þá finnst mér, og svo mun mörg-
um, að þeim se miklu nær að þegja.
Fyrir rúmri viku kom sá kvittr upp, að Frakka-
keisari hefði af nýju stúngið npp á allsherjar þíngi,
til þess að kljá út deilur og jafna um allt það sem
gæti staðið fyrir fullum friði, áttu þá öll stórveld-
in jafnframt, að fækka her sínum og minnka her-
búnað, en ekkert er enn sannspurt um það ; margir
rengja það með sennilegum líkum, en hinir eru
ekki færri sem halda því á lopti og færa til síns
máls engu færri líkur; Danir búast við öllu góðu
af slíku þíngi, vonast þá þess, að þeir muni hljóta
aptr danska hlutann af Slésvík.
Á Englandi hafafarið fram kosningar til nýrra
þínga; hefir áhugi manna verið mikill víða, svo að
horft hefir til vandræða; sumstaðar hafa orðið
handalögmál og barsmíðar á kjörþíngunum. í
þeim kjördæmum sem kosið hafa eru enn miklu
fleiri vinir þess ráðaneytis sem nú er, en Torya;
fjárhagsráðgjafinn Gladstone hefir ekki hlotið kosn-
íngu í Oxford, og telja menn það kjördæminu til
minnkunar, að hafna slíkum afbragðs manni, þótt
hann sé of frjálslyndr að hyggju þeirra háskóla-
mannanna. Nú man eg ekki meira að sinni.
II. Frá fretlnritara vorum í Lundúnum dags.
24. Júlí 1865.
Góði vin!
Eg hefi nú látið 2 ferðir hjá líða, án þess
að senda yðrlínu, og máþví varla láta hinaþriðju
fara á söinu leið.
þínginu var slitið hér í byrjun mánaðarins,
og dó það í þetta sinn af elli, svo engar læknis-
hendr gátu lengt stundir þess. Ilér er 7 ára
parliament (þíng), og þá verðr að kjósa á ný, þótt
ekkert nýtt hafi á milliborið; sé þfngi hleypt upp
þess á milli, þá gildir kosníngin ekki nema til
þeirra ára, sem eru eptir af þeimT. — Til þessa
þíngs var fyrst kosið 1858, en ári síðar 1859 var
því hleypt upp og kosið á ný; komst þá Palmer-
ston aptr í ráðherrasætið, og hefir síðan verið sama
þíng og sama stjórn. Iíosníngar byrja hérumbil
3 dögum eptir þínglok. Lord-kanzelerinn skrifar
erindisbréf til allra borga (borrows) og sveita
(counties), að kveðja til nýrra kosnínga, sem þá
verða að fara fram, að tveim dögum liðnum eptir
réttri röð, fyrst borgir og síðan sveitir. jn'nginu
var slitið 6. þ. mán. og nú er öllum kosníngum
lokið, nema ef vera skyldi á Orkneyum, Hjalt-
landi, og á tveim eða þremr stöðum á írlandi.
llér hefir gengið mikið á þessa daga og mikið
verið talað. I borgum hefir hver innlendr maðr
kosníngarrétt, sem hefir að leigu 10 punda hús
eða borgar 10 pund í liúsaleigu, en leiguliðar
(lodgcrs) ekki, þólt þeir eigi meir. þetta erkölluð
10 punda franchise, og var sett i lög 1832. í
sveiturn er 50 punda ábúð eður jörð. í borgum
er því bundið við hús, í sveitum við jarðarábúð.
1 Lundúnum eru 7 eða 8 kjördæmi og 16 eðrl8
þíngmenn, ef Greenwich er meðtalin. Fyrir 1832
var öllum Lundúnum skipt að eins í 2 kjördæmi
Westminster og Gity; Lanbeth og Southwork fyrir
handan Temps áttu þá engan þíngmann, nö heldr
norðr- og austr-Lundúnir, sem allt eru útbyggíng-
ar frá síðari öldum. Af því nú að kjörréttr er
bundinn við hús og jörð, en ekki við mann, þá
getr sami maðr átt atkvæði í tuttugu kjördæmum
eðr fleirum cins og á íslandi, ef maðr á jörð eða
hús í fleirum sýslum, þá fylgdi atkvæði í hverri
sýslu. En hver maðr verðr hér að greiða sjálfr
atkvæði sitt, og verðr því að vera á ferð og flugi
úr einu kjördæmi í annað, eigi hann víða cignir
og vili nota atkvæði sitt á hverjum stað, en það
gjörir hann aðeins í viðlögum, ef deilur eru og
vant er að sjá, hverir sigra munu. Iíjörgengi er
ekki bundið við fé; það eróþarfi, því enginn getr
hér komizt í þíng nema hann sé vel fjáðr maðr.
Kandídatinn verðr hér að standa allan straum af
kosníngum sínum, og nemr sá kostnaðr opt þús-
undum punda í hvert skipti, að leigja hús, setja
kjörnefnd og fulitrúa og erindsreka að gánga um
og annast kosníngu sína, halda fundi, veitíngar,
prenta blöð og skjöl og placöt með tröllaletri á,
sem öll hús og búðir, vagnar, gluggar og stræti
er þakið með kjördagana. Undir berutn himni eru
reistar upp búðir eins og hjallar. þángað greiða
menn alkvæði sín, hver maðr skriflega og með
nafni, sem er ritað inní kjörbókina. þar þyrpist
múgrinn þíngheimrinn að undir berum bimni, en