Þjóðólfur - 07.08.1865, Blaðsíða 3
153 —
þíngmannsefnin og þeirra fylgdarmenn standa á
pöllum fjTÍr þeim, og halda þaðan ræður sínar,
og hefi eg þar séð, hvað segir hinn gamli máls-
háttr, að biðja sér hljóðs.
Hér í Westminster er gamalt Whig-kjördæmi
frá dögum Karls Fox, sem var þíngmaðr héðan
mikinn hluta æfl sinnar, meðanvegr Pitts var sem
mestr. Ilér var því hörð deila milli eins Tory-
manns Mr. Smiths og tveggja Whigmanna Mill og
Grosvenor. Hinn fyrri er heimspekíngr og ágætr
rithöfundr, sem nokkrir málsmetandi menn höfðu
skorað á að verða þíngmann sinn og bjóðastfram.
Mill neitaði því að gángast sjálfr fyrir kosníngn
sinni, að gánga fyrir hvers manns dyr og bjóða
sig fram; en tók þó móti boðinu, en fór að ólíkt
og aðrir menn, hélt enga fundi, og kom hvergi
nærri, sagði þeir hefði beðið sig, en hann ekki
boðizt þeim, þeim bæri aö kjósa þann bczta mann,
sem í kjöri væri, en sér bæri ekki að koma fram
fyrir þá og segja: eg er beztr. MiU cr framfara
maðr, vill auka kjörfrelsi og gefa enda konum kjör-
gengi og kosníngarrétt. þetta á nú víst lángt í
land hér, og fer betr í orði enáborði. Kjördag-
inn var hér allmikill asi; kl. 8. byrjaöi, en var úti
kl. 4. Ilvar sem auga var rent, voru veggir og
gluggar þaktir með skjölum og plakötum: Poll
early for Smith, plumb forSmith; poll for Gros-
venor and Mill, no plumbing. Foll er hérkallað
að greiða atkvæði og pollingday kjördagrinn (á
skrá) gagnsett nomination deginum fyrir, þá er
öllum leyft að kjósa með uppréttum höndum (liand-
show), en sé fleiri í týgi og tvísýna, beiðist sá, sem
færri hendrfær, atkvæðagreiðslu á skrá, poll. Plurnb
kalla menn það að kjósa aðeins einn til þess að
dreifa ekki atkvæði sínu, eðr ónýta það með því
að gefa öðrum atkvæði líka. þetta er leyft i kjör-
dæmum, þarsem eru fleiri þingmenn en einn.
Yagnar flugu fram og aptr um göturnar með
hrossaletri: kjósið þið Srnith, kjósið þið Smith.
Á einum stað gengu menn í halarófu með sína
hurð á baki og aðra á brjósti; kjósi þið Mill og
Grosvenor o. s. frv. þetta er allt gamall siðr og
meir til hátíðabrigðis, því fáir kjósendr haga at-
kvæðum eptir þessu, sem þeir lesa á veggjum
eða vögnum. Lokin urðu hér, að aliir þíngmenn
LundúnalS að tölu voru liberal (frjálsir cða stjórn-
arinnar, sem nú er). Torymenn hafa mest fylgi
í sveitunum. lara kosníngar hér fyrst fram í
borgunum (borrows), en síðan í sveitunum (counties)
og hallaði hér líka aptr í hag Torymanna síðuslu
dagana. J>ó er talið, að þeir í allt muni við þessar
kosníngar hafa mist um 20—25 manns. í fyrra
við danska málið var 18 atkvæða munr; nú yrði
það því milli 60 til 70.
í Oxford varð hörð deila. Háskólarnir eru
hér (ólíkt og í Danmörku) mjög fornir í lund og
fastir við gamlar landsvenjur og lög. Gladstone
hefir nú i 18 ár verið þingmaðr þar, en ávallt átt
í vök að verjast. Gladstone er hinn orðsnjallasti
maðr, sem nú er í þínginu, en Lord Derby í yfir-
húsinu og helzti maðr í ráðuneyti Palmerstons og
tilvonandi leiðtogi í House af Commons. Nú að
þessu sinni varð hörð deila; kosníngar þar stóðu
yfir í 4 daga. Háskólinn kýs 2 þíngmenn, og
höfðu nú Torymenn sett eitt sitt bezta járn, Mr.
Hardy gegn Gladstone. Sú breyting var og gjör,
að áðr gátu þar engir kosið nema þeir greiddi þar
sjálfir atkvæði, en nú var því breylt og lofað að
senda skrifleg atkvæði, en atkvæðarétt við háskól-
ana hafa lærðir menn út um allt land, scm lesið
hafa í æsku við þann háskóla, og tekið þar lög-
boðin lærdómsstig (gradus), en síðan borgað á ári
lítið tillag; þeir eru því æfilángt að kalla má með-
limir háskólans, og er þetta fallegr og gamall siðr.
Meðan kosningin stóð yfir, komu lúngað fregnir
opt á dag, hvernig nú stæði, og var Gladstone á-
vallt 20—30 atkvæðum á eptir, og þriðja daginn
skreið fyllilega til skarar, og var hann fellclr mcð
200 atkvæðamun, og misti háskólinn þannig hins
ágætasta manns, sem verið hafði prýði hans í svo
mörg ár. Gladstone fór þá jafnharðan í annað
kjördæmi Suðr-Lankasterskíri,þar sem hann og hans
foreldri er borinn og barnfæddr. það er mikið
kjördæmi og ríkr Torybragr, en þó hann kæmi
þar á 11. stundu, vann þó nafn hans og mælska,
að hann var kosinn þriði, en tveir Torymenn með
honum, en einum hrundið þó með fám hundruð-
um atkvæða til að gefa Gladstone rúm.
Ágætlega fróðlegt er í blöðunum þessa daga
að lesa ræðr þíngmannaefna og þíngmanna fyrir
og eptir kosníngar, áskorun og ávarp til kjósenda.
Ilver sem það les, honum verðr sjón sögu ríkari,
að bæði vit og þróttr er í mönnum liér og báðum
flokkum. Ágætastr einhver af Toryflokki er talinn
Lord Stanley, sonr Lord Derbys,þíngmaðr fyrir Lyun
Regis, sem getr um í lliskupasögum, vitr maðr,
stiltr og fastlyndr, og sem menn halda hér, að eigi
merka æfi fyrir höndum, ef honum endist aldr,
þótt hann ekki liafi orðsnild föður síns, sem er
einstök í þessu landi.
Nú er verið að Ieggja þráð til Ameríku.
Great Eastern lagði af stað fyrir fám dögum og