Þjóðólfur - 20.12.1866, Blaðsíða 7

Þjóðólfur - 20.12.1866, Blaðsíða 7
39 — úrskarandi, og sem dæmi þess má telja það, að engi dómr hans mun hafa vcrið rekinn fyrir æðri dómstólurn. Smiðr var hann ágætr og mjög lag- inn i hvívetna, eins og hann að líkamsburðum var fremr en flestir vissu, því fáa hygg eg hafa til hlítar vitað afl hans. Ilann tiafði mikla og göf- uga sál og sýndi hann það með því, hvernig hon- um fórst við ættmenn sína, þar sem hann fyrst annaðist móðr sína veika til hennar dánadægrs, um 20 ár, og síðan bróður sinn (Lárus) farlama í 40 ár, bæði hjá öðrum með ærna meðgjöf og síð- an hjá sjálfum sér, og auk þessa mannaði son hans. Einnig var hann, meðan kraptar entust, öruggr styrktarmaðr barna og barnabarna, og því er hann nú harmdauði mörgum og minníng hans varðveitist í blessun hjá eptir þreyandi ástvin- um«. Vér skulum leyfa oss að tengja hér við fá- einum sérstaklegum athugasemdum. Pétr sál. Otte- sen hafði Mýra sýslu eigi að léni, eins og er og hefir verið um allar sýslur á landi hér nema Gull- bríngusýslu og Vestmannaeyjasýslu, og hefir það fyrirkomulag haldizt í þeim 2 sýslum af því að meiri hluti jarðeignanna í báðum sýslunum voru konúngseignir sem þá var kallað, — heldr hafði hann Mýra og Ilnappadalssýslu eðr allar hinar vanalegu sýslutekjur í u m b o ð i og að eins */» þeirra í embættis og umboðslaun. — Um þau ár er hann sagði af sér sýslunni, var það að vísu al- gengt á landi hér, að uppgjafar sýslumenn fengi að eins 50 rd. til eptirlauna, nú fá þeir alment 700—1200 rd. lil eptirlauna, en sérstaklegt er það, að hann skyldi mega búa við svo rýr og ónóg eptirlaun í samtals 38 ár án neinna umbóta, en reyndar vita menn eigi til að hann færi þess á leit eptir 1850, er flestir uppgjafar embættismenn hinnar veraldlegu stéttar, er þess leituðu, fengu meiri og minni umbót á eptirlaunakjörum sínum.— það má svo að orði kveða, að »lángspils«-hljóðfærið og mæturnar og kunnáttan að leika á það hljóð- færi endrfæddist og endrskapaðist fyrir hagleik og snilli Pétrs Ottesens; hann smíðaði þau með nýu lagi er miklu betr var lagað til hljómfegrðar heldr en hin eldri, og skipaði nótunum eptir réttum og áreiðanlegum »scala», en í því var öllum hinnm eldri lángspilum næsta ábótavant svo að bæði voru þau »fölsk» og hjáróma; hann lék og sjálfr á lángspil manna liprast, og gætti þess ótrúlega lítt hjá honum, sem er mesti gallinn lángspilsins, að þar eru eigi til neinar »hálfar» nótur. Otlesen sál. var lágr meðalmaðr vexti, en þétt vaxinn og limaðr vel og hinn knálegasti maðr; hið mesta nettmenni og prúðmenni var hann, og hinn kurteisasti að öllu. AUGLÝSÍNGAR. — Samkvæmt opnu bréfi 4. Janúar 1861 inn- kallast hér með allir þeir, er skuldir eiga að heimta í dánarbúi eptir bóndann Ecjgert Vigfússon Fjeld- sted á Hallbjarnareyri í Eyrarsveit, er andaðist þ. 8. Ágúst þ. á., til þess innan 6 mánaða frá síðustu birtíngu innköllunar þessarar að lýsa skulda- kröfum sínum og sanna þær fyrír skiptaráðandan- um í Snæfellsnessýslu. Seinna lýstum kröfum verður ekki gegnt. Skrifstofu Suæfellsnessýslu þ. 2fi. Oktbr. 1866. P. Böving. — Föstudaginn þann 28. Desembermánaðar, kl. 12, miðd., verðr á þíngstofu Reykjavíkrkaup- staðar haldið opinbert uppboðsþíng og þar boðnir annaðhvort til leigu eða erfðafesta: 4 túnvellir á III íð a rh ú sa lóð i n n i. Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstofu minni frá því í dag, svo og veiti eg aðrar upplýsíngar þeim, er kunna að óska þess. Skrifstofu bæarfógeta í Reykjavík, 15. Desember 1866. A. Thorsteinson. — Miðvikudaginn hinn 10. Aprílmán. næst- komandi, um hádegisbil, verða eptir beiðni hlut- aðeigenda, við opinbert uppboð að Hamri í Borgar- lireppi, boðin upp til sölu 15 lindr eðr % partar áminnstrar jarðar Hamars, með 3 kúgildum og 4 vætta 20 flska landskuld, samt öllu tilheyrandi, að réttri tiltölu, gegn borgun í silfrpeníngum, og að öðru leyti eptir skilmálum, sem nákvæmar verða birtir á uppboðsstaðnum, meðal hvorra er sá, að nú verandi ábúandi áskilr sér ábúðarrétt á jarðar- partinum næstkomandi fardagaár. því vildi lysthafendum þóknast að mæta á ofannefndum slað og tíma. Skrifstofu Mýra og Hnapparialssýslu, 10. Dosembr. 1866. Jóh. Guðmundsson. — Af því að jól og nýár fara nú í liönd, vilj- um vér vekja athygli foreldra og annara, sem ætla að gefa börnum og únglíngum jóla, eða nýárs gjafir, að ekkert er betr lagað til þessa en hið íslenzlta Nýa Testamenti, sem hið Engelska og út- lenda Riflíufélag hefir geflð út. — paret) ýmsir feríiamenn úr Skeptafolissýslu og máske undan Eyafjóllum, um nokkur undanfarin ár, hafa bætíi í subr og austr leit), tekiþ sðr áfángastab í svok'illuþn Ilofs-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.