Þjóðólfur - 18.04.1868, Síða 2
SKIPAKOMA.
Apr. 9. Felis Kosalie 90,49 „tonneanx" frakkneskt flskiskip
frí Paimpol skipstjéri Cheny eigandi Dnval; hafíii
bilazt ú stýri og reiíia og hleypti írin til aíigjöríiar.
— 13. Louise 23 dansk. com. I, frá Kanpmannahófn skip-
stjdri Morten Rasmnssen, eigandi Egill Hallgrímsson
á Minnivognm m. fl., meíi korn og aíirar naníisynja-
vörur frá kanpm. Svb. Jacobsen til verzlnnar hans hhr.
----Flor de Maria 77 dansk. com. 1. frá Santander á
á Spáni, skipst. Leon do Crozalegni, eigandi I. Mnr-
riaga y Ausnalegui(?) í Bilbao; kom tii at) sækja salt-
fl8k til Havsteens, M'dlers og Smiths.
— Danska herskipií) Fylla (gnfnskipií) hií) sama sem hkr
heflr komií) næstl. 3 somnr) yflrforíngi Albech Capitaín-
lientenant, hafnahi sig hhr 16. þ. mán. kl. 4 o. m. eptir 15
daga ferh frá Khöfn. Herskipi þessn er ætlaþ en sem fyrri
hafa somarstiiþvar sínar hér vi?) land til þess aí) hafa
gætr á flskiskipnm Frakka og hafa hemil á yflrgángi þeirra
og skemdnm, — en þetta aþal ætlnnarverk Fyllu verhr nú
ab standa þángaþ betr fyrst um sinn, því þessi ferh þess á
aí> vera svo gott sem pústskip sferíli n hin fyrsta milli
Danmerkr og íslands á þossn ári; þaþ færhi líka nú vanaleg
stjúrnarbréf og önnnr púetferþa bréf og blóþ frá Danmörkn,
en eigi neitt þosskonar frá Englandi eþa Skotlandi, þvf hvorgi
kom þaþ þar vi?) á vanalegum stöþvum, nema hafl þaí) hleypt
snóggvast aí) landi vií) Hjaltlandseyjar; nú á þaþ einnig aþ
fara sem hraþast héþan aptr til Cromarty á Skotlandi meí)
ÖII pústbréf héhan til Danmerkr, og er í mæli, a?) þaí) verþi
albúiþ héþan til þeirrar ferílar ah kveldi 20. þ. m. En af
því 511 þao .bréf og blöþ, er þaþ nú færir héhan, verþa
ab gánga enska pústleiþina til Hafnar, þá verílr þaþ næsta
viðsjált fyrir þá í Danmörko sem bréfln eiga, ef þau eru
þykk og þúng, því þar eptir vex bréfagjaldií), og geta orþií)
allþúng útlát.
— Um landsmál vor og embættaveitíngar hér á
landi spurðist lítið; helzt er að ráða af bréfum
einstakra manna, að ekkert liafl enn verið farið
aö hreifa við alþíngismálunum héðan, þeim í fyrra,
til úrgreiðslu, nema um skylduflutníng sveitaró-
maga, er sé þegar orðið að lögum eptir tillögum
þíngsins. Eittbvað skilst oss líka að hafi verið
átt við málið «um að hálda hunda á íslandi«, og
að Dr. Krabbe, sá er hér ferðaðist um fyrir
nokkrum árum og hafði verið hvatamaðr þess við
stjórnina að leggja frumvarp þetta fyrir Alþíngi,
lítlst eigi á þær tillögur þíngsins. Komið hefir
einnig stjórnarslcipunarmálið til orða á ríkisþíng-
unum í vetr, frá ráðgjafastólunum, en eigi öðru-
vísi en svo, að Alþíngi f fyrra hafi að vísu sýnt
sig öllu tilleiðanlegra til samkomulags, og að jafn-
framt hafi þeir gelið í skyn, að konúngr muni
naumast geta fallizt á breytíngaruppástúngnr Al-
þíngis; en öll þau ummæli ráðherrastjórnarinnar
á ríkisþíngunum í vetr koma þar fram fremr eins
og ráðgátubendíngar, og svo að Danaþíngin fengi
að vita undirtektir Alþlngis undir þær hinar sfð-
ustu stjórnarbreytíngar-uppástúngur til Íslendínga,
heldren að það sé skýrslur um undirtektir og fyr-
irætlanir konúngs og stjórnar hans um það hvernig
og hvenær að málinu muni verða ráðið til iykta-
Ráðherrarnir létu það eina á sér skilja jafnframt,
að eitthvað mundi verða lagt fyrir hina næstu
samkomu ríkisþínganna (1868—69) áhrærandi þetta
aðalmál Íslendínga.
— Á embœttaveitíngum var eigi annað komið í
kríng enaðGarðará Álptanesi voru 1. Febr. veittir
sira Þórarni Böðvarssyni prófasti í Vatnsfirði, og
að 10. Marz sé kominn konúngsúrskurðr, er heimili
stiptsyfirvöldunum að veita skólalærisveini Petri
Guðmundssyni Miðgarðs prestakall á Grímsey og
að hann verði prestvígðr þángað, með fyrirheiti
um meðalbrauð eptir 6 ára þjónustu. Dalasýsla
var enn óveitt.
— Reiðarar og eigendr Eyrarbákka verzlunar-
innar eru búnir að leysa sig úr gjaldþrotunum,
með þeim samníngi við skuldaheimtumenn sína,
að greiða þeim 50 rd. af hverjum þeim 100 rd.
(skuldanna) út í hönd. F. C. Jóhannsen (sá reið-
aranna er var fyrst og fremri talinn) gengr úr
félaginu, svo að þeir Lefolii og Guðm. Thorgrím-
sen verða þar að eins báðir framvegis.
— Vér fengum enga fréttapistla frá fréttaritur-
umvorum, með þessari ferð; eigi hefir heldrverið
ráðrúm til að fara nákvæmlega yfir útlendu blöðin,
allan þann sæg, síðan nm miðjan Nóbr. f. árs,
enda virðast engi stórtíðindi neinstaðar að hér um
heimsálfu vora; styrjaldarlaust yfir allt í Norðr-
álfunni, nema hvað uppreist Kríteyínga á móti
Tyrkjum var enn ekki sefuð. Eigi virðast þeir
enn orðnir á eitt sáttir Prússar og Frakkar um það
sem þeim hefir borið í milli undanfarin ár, og
hvorugir eru enn aflátnir að hafa allan viðbúnað
undir styrjöld, en eigi þykir það þó liggja við borð
að þeim lendi saman enn, þóað báðir virðist að
hafa augastað hver á öðrum og sé svona varir um
sig, og tregir til að verða á eitl sáttir. — Vetr
þessi hefir verið afbragðs mildr um öll norðrlönd,
og nú um síðustu mánaðamót var farið að votta
fyrir útsprúngnum laufum á skógunum i Danmörku.
Allri kornvöru var enn haldið í sama háa verðí í
Danmörku um síðustu mánaðamót: rúgr 9rd. 80sk.
— llrd. 72sk.; bánkabygg 11 rd.— 13 Va rd.; en
sama miðlaraskýrslan, 15. f. mán., sem þetta
verðlag er tekið úr, segir jafnframt, að engi hafi
þá verið sölugángr, eðr lítið sem ckkert hafi selzt
með þessu verðlagi, er kornkaupmenn sjálfir héldu
því í. Vera má nú, að sama hafi verið um fs-