Þjóðólfur - 28.09.1872, Síða 3
— 179 —
í Reykjavík, og svo víða um Iand hjá vanalegum
útsölumönnum rita þessara.
— BRENNISTINSNÁMARNIR við Mývatn
seldir á leigu (Eptir Ný. Félagsr. XXIX. ár, 209.
—2)0. bls.)
Alþingi 1869 fékk frá stjórninni álitsmál um
leigumála brennisteinsnámanna við Mývatn fyrir
norðan (Kröflunáma, Reykjahlíðarnáma ogFremri-
náma). Alþing reði frá, að selja námana þá að
sinni (18 atkv. gegn 8), en til vara setti þingið
upp, auk annara skilmála, að efsvo færi, að nám-
arnir yrði seldir á leigu, skyldi ekki legja þá upp
á lengri tíma en 10 ár, og fyrir leigu: 100 pund
sterl. fyrsta ár, 200 pund st. árlega annað og
þriðja ár, 300 pund st. árlega fjórða og fimta ár,
og 400 pund st. árlega seinni fimm árin; auk þessa
skyldi leiguliði gjalda 10 pund sterl. til prestsins
í Mývatns þingum árlega (20 atkv. gegn 1 og 20
atkv.); sem veð skyldi heimta 5000 pund sterl.
(23 atkv.)
Nú hefir dómsmálastjórnin samið um leigu-
mála námanna að fornspurðu Alþingi, og með skil-
málum, sem ekki koma nálægt þeim sem þingið
setti, heldr eru margfalt lakari. Skýrsla stjórn-
arinnar um þcnna Ieigumála er á þessa leið :
Eptir að konungr hafði veitt dómsmálastjórn-
inni, (eptir uppástungu ráðgjafans) með útskurði
9. Marz, myndugleika til að semja um leigumála
námanna, gjörði ráðgjafinn samning 13 Apríl við
Alfred G. Locle af Lundúnum (? Southampton) um
leigmála brennisteinsnámanna f þingeyarsýslu,
þeirra sem eru alþjóðleg eign. þessi legumáli er
ætlazt til að standi um 50 ár frá 1. Septembr.
1872 að telja, og skal eptirgjaldið vera 50 pund
sterl. fyrsta ár, 60 pund st. annað ár, 70 pund st.
þriðja ár, 80 pund st. fjórða ár, 90 pund st. flmta
ár og 100 pund sterl. sjötta árið og þar á eptir
árlega um þau 44 ár. sem þá eru eptir. Til vissu
fyrir, að eptirgjaldið greiðist eptir samningnum, og
að farið verði vel með námana, hefir leguliðinn
sett 5000 rd. í veð og lagt í prívatbankann í Kaup-
mannahöfn.
í bréfl dómsmála-ráðgjafans Kleim 6. Júlí er
amtmanninum í norðr og austr-umdæminu skipað,
samkvæmt þessu, að Iáta halda löglega skoðunar-
gjörð yflr námana og afhenda þá leiguliðanum.
FÓLKSTALAN ÁÍSLANDI 1 .Oht. 1870, og mann-
fíöldinn á íslandi um árslókin 1870. og 1871.
Pað er eins og segiríþ. árs Landshagskýrsl-
»m (V. ii, 233. bls.) að síðan 1835 heflr verið
tekið alment manntal í landi hér fimmta hvert ár,
og hefir því verið haldið stöðugt uppi, að tilhlut-
un valdstjórnarinnar, þartil 1865; þá féll úrþetta
almenna manntal, og var því svo eigi skeytt fyrr
en f hitteðfyrra 1870, en þá var slíkt alment
manntal tekið eptir tilhlutun stjórnarinnar 1. dag
Okt. mán. en tíu ár voru þá liðin frá því að síð-
ast var talið fólkið, þ. e. 1. Okt ár 1860. þessi
10 árin milli valdstjórnar-manntalsins, og eins
þau 4 árin milli hvers stjórnar-manntalsins þar á
undan, þá heflr fjölgun eðr fækkun mannfjöldans
i landinu (eins hér sem annarstaðar) verið bygð
á þvf, hvert fleiri hafi fæðzt eða dáið hvert árið
fyrir sig, og mismunr sá sem hefir þar við fram
komið, verið ýmist lagðr við eðr dreginn frá mann-
fjöldanum er var um árslokin næst fyrir. Aptr 5.
árið heflr fólksfjöldi stjórnar-manntalsins verið
lagðr til grundvallar fyrir næstu 4 árin þar eptir
o. s. frv.
Eptir manntalinu 1. Okt. 1870 var fólkstalan
á íslandi (sbr. Skýrsl. um Landsh. V. 245.) 09,763
En þá 3 mán. Okt.—Decbr. s. ár (1870)1
fœddust (karlk. 328, kvennk. 291, samt. 619
en dóu (karlk. 199, kvennk. 152) — 351
Eptir því f 1 e i r i f æ d d i r . . ------ 268
Um árslokin 1870 var eptir þessu
mannfjöldinn 70,031
Beri maðr saman við þessa fólkstölu (31.
Desbr. 1871)............................... 70,031
mannfjöldann, sem var hér um árslokin
1869 (sbr. þjóðólf XXIII. 22. og Skýrslur
um Landsh. V. 101.).................... 69,533
þá hefir Mksfjölgunim árið 1870 verið . 498
En sé við fyrgreinda fólkstölu, er hér reyndist
1. Okt, 1870 ..................... 69,763
borin saman fólkstala sú, er út kom í
stjórnarmanntalinu 1. Okt. 1860 (sbr. f»jóð-
ólf XVI. 61. og Skýrsl. um Landsh.HI. 189) 66,987
þá kemrfram, að á áratugnum frá 1. OkL
1860 til 1. Okt. 1870, hafl mannfjöldinn
vaxið eðr aukizt hér um . . . . 2,776
þ. e. um 277.6 árlega að meðaltali.
Vér höfuin nú, eins og fyrri, fengið frá bisk-
npsdæminu yfirlit yfir fœdda og dána, fermda og
hjónabönd hér á landi yfir árshringinn sem leið,
187 1, og er það samið eptir embættis-skýrslum
prófasta og presta, er inn ganga til biskupsdæmis-
ins. Sé nú hin áminsta fólkslala, er hér var að
1] Fptir embsEttiskýrslum prests og prólasta til biskops-
dæmfsios.