Þjóðólfur - 30.04.1879, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 30.04.1879, Blaðsíða 2
r 42 alveg niður; eða munu menn ekki, þótt þeir ekki kynnu la- tínu og annað, sem þar er kent, geta dæmt dóma og gjört annað, sem lagaembættismenn þurfa að gjöra? eða búið til ræður, eða læknað sjúkdóma, eins vel fyrir því, þótt þeir ekki hafi lært latíuu og hið annað, sem kent er á lærða skólanum ? Jú, eg held vissulega. En hvílíkur léttir væri það ekki fyrir landið, að losast við alla þessa skóla? Ósegjanlega mikill, því það er ekki lítið fé, sem gengur til að launa árlega öllum kennendunum, og í ölmusur handa piltunum, til bókakaupa og margs fleira. fegar vér nú værum orðnir lausir við skól- ana, þessi átumein landsins, hefðum vér ekki eptir nema and- legu og löglærðu embættismennina og læknana, betrunarhúsið og alþingið. En, eins og eg benti á, getum vér líka losast við alla þessa góðu embættismenn eða landsómaga, og eins er það, að vér getum vel verið án þessa góða betrunarhúss og velvísa alþingis. Hvað andlegu embættismennina snertir, þá sýndist það eðlilegast, að hver söfnuður kysi sér sjálfur prest, ef hann annars vill nokkurn hafa ; það mun mega finna suma ólærða menn, sem gjöra allt eins góðar ræður og margir af þessum svo nefndu lærðu guðfræðingum, og það er óþarfi með öllu að láta biskup vígja presta, það eru leyfar frá pápiskri tíð, og þar við losast landið við biskupinn; eins er það, að hreppsnefndirnar gætu hæglega dæmt í málum manna, og þyrftu menn því enga dómendur; skyldi hreppum lenda sam- an út úr ómögum, gætu þeir tekið gjörðarmenn, er útldjáðu málið; allir löglærðir embættismenn hefðu þá ekki annað að gjöra en að innkrefja gjöldin, en eg mun sýna og sanna, að vér enga embættismenn þurfum til þessa. |>að er ennfremur alkunnugt, að lærðu læknarnir eru ekki betri en hinir ólærðu, og til hvers ættum vér þá að hafa þá og vera að gjalda þeim laun? J>etta er með öllu óþarft; hver, sem verður veikur, leitar hjálpar hjá þeim, sem hann hefir bezt traust til, hvort sem hann hefir staðið nokkurt próf eðaekkert; en hér af leiðir þá líka, að allir þessir launuðu læknar eru ónauðsynlegir, og landlæknirinn ekki nauðsynlegri en hinir. J>á er nú betrun- arhúsið; þess þurfum vér alls ekki með; vér getum hegnt glæpamönnum með sektum, og geti þeir ekki borgað þær, mætti láta þá vinna af sér sektina, en væru þeir mjög hættu- legir, yrði að taka þá af, enda verðskulduðu þeir ekki betra. Yið alþingið gætum vér og losast, það er engu meiri þörf á því en á betrunarhúsinu; það er þó auðsætt, að hver hrepps- nefnd ætti að geta gefið lög fyrir sinn hrepp, án þess að þurfa að leita til manna í öðrum hreppum til þess. — Af þessu sem eg nú hefi sagt, leiðir, að vér þyrftum ekkert að borga til landssjóðs, en við það verða ónauðsynlegir allir þeir embættis- menn, sem eiga að innheimta gjöldin til hans og sjá um landssjóðinn. fegar nú allt þetta kæmist í kring, og sem verða ætti hið fyrsta, verðum vér ekki að eins lausir við öll gjöhl til hins opinbera, eða við alla iandsómaga, heldurmætti nú skipta upp á milli allra hreppa í landinu, öllum þjóðjörð- unum, lénskirkjunum og tillaginu frá Danmörku, einnig leig- unni af andvirðinu, sem kæmi inn fyrir landshöfðingjahúsið, skólahúsið og prestaskólahúsið. Yrði þá víst langbezt, að fela stjórninni í Danmörku, að skipta þessu fé upp á milli hrepp- anna, því hún væri óvilhöll í því máli, aptur mætti fela hverri hreppsnefnd á hendur, að skipta því fé, sem hver hreppur fengi, árlega milli hreppsbúa. X + Y. f 14. des. f. á. andaðist að Yztaskála undir EyjaQöllum Einar dannebrogsmaður Sighvatsson, fæddur 19. júní 1792. Hann kvongaðist 1817 Arnlaugu Sveinsdóttur dbrm. að Yztaskála, og átti með henni 12 börn, og lifa 5 þeirra. Hreppstjóri var hann undir Eyjafjöllum 32 ár, og jafnan fremsti og merkasti maður sveitar sinnar, fróðleiks- og gáfumaður, bókavinur mikill, enda átti liann fjölda bóka, þar á meðal sögusafn, ritað af föður hans Sighvati Einarssyni (f 1846), er var alkunnur ritari. Jarðarfor þessa merkismanns fór fram að Holti 4. jan. í viðurvist fjölmennis. — Níýdánir eru enn ekki fáir hér nærlendis úr lungna- bólgu-sjúkleika þeim, sem hér gengur. 15. þ. m. andaðist Ólafur bóndi fórðarson að Nesi við Seltjörn, rúmlega miðaldra, dugnaðarbóndi og vellátinn; 22. sál. Ingunn Elín Jönsd. fósturdóttir Ólafs sýslunefnd- armanns á Mýrarhúsum, einkar mannvæn og gáfuð stúlka, 25 ára gömul (systir Guðmundar stúdents frá sama bæ, sem sálaðist fyrir nokkrum árum síðan). — 25. sálaðist hér í bæn- um Einar Jafetsson (Johnsen), faktor við verzlun Thom- sens kaupmanns. Einar sál. varð að eins 42 ára garnall; öt- ull og vinsæll maður í sinni stétt, ör í skapi, en hreinn í lund og tápmikill, eins og þeir fleiri frændur. ý AðTorfastöðum í Biskupstungum andaðist3.þ.m.snögglega ogþjáningarlaust prestsöldungurinn og skáldið Guðmundur Torfason, f. 5. júní 1798, en prestur í rúm 50 ár (jubil- prestur 1874). Af því vér væntum þess, að innan skamms muni sjást á prenti æfiyfirlit, ef eigi eitthvað af ritum eða kvæðum þessa gáfumanns, birtum vér að eins lát hans að sinni. Fyrsta spesían mín. Jeg átti spesíu! — heila, bjarta, beinharða silfur-spesíu, sem «hann Johnsen» stakk í vasa minn, þegar hann kvaddi um morguninn. Jeg átti spesíu, jeg krakkinn á 9. árinu, sem aldrei bafði átt né eignast einn einasta silfurpening. «Mamma, sérðu! jeg kem honum varla fyrir í vestisvasanum, hann er svo stór, og lítt’ á manninn á honum». Móðir mín var næri því eins fegin og jeg, og skoðaði spesíuna í krók og í kring. petta er kongurinn sagöi hún, og datt mér í hug að það væri Ólafur kóngur Tryggvason, og hélt þeirri mein- íngu meðan jeg átti penínginn. J>egar við börnin og móður mín vorum búin að skoða hann svona stundarkorn, bað móð- ir mín mig að finna sig fram í stofu og segir þar við mig: «Hvað viltu nú kaupa fyrir spesíuna þína?» Jeg tými ekkert að kaupa fyrir hana, svaraði jeg. Hún fór þá að telja upp alskonar gripi og gersemar: hnakk, hest, lamb, skattol, húfu, kistil, kóngsríki, og jeg man ekki hvað, en jeg stóð á með- an og horfði þeyjandi á minn nýja augastein, spes- íuna. Loksins segi jeg: «jeg þori ekki að kaupa neitt, svo jeg ekki þurfi að farga henni». J>á segir móðir mín: «Lán- aðu mér hana elskan mín, þú veizt að mig vantar svo margt, jeg get ekki einu sinni klætt ykkur, því mig vantar efnið í fötin, svo þið verðið að fara til kirkju til skiptis sökum fata- leysis. Týmirðu ekki að gjöra þetta?» Nú fór fyrst að vand- ast málið; jeg stóð höggdofa og sagði hvorki já né nei. J>á brosti móður mín og sagði: «Heldurðu mér sé alvara? Nei, eigðu hana sjálfur, og farðu með hana eins og þú vilt, ef jeg þekki þig rétt, drengur minn, verður artnað þér fyr að falli en fégirnin, en týndu nú samt ekki spesíunni, ef þú átt að fá að geyma hana». Næsta morgun fór jeg snema á fætur, og enn var svo mikið nýjabrumið á spesíunni, að jeg signdi mig með henni í lófanum. Móðir mín tók eptir því og sýnd- ist mér hún glotta, en ekkert sagði hún. Um kvöldið vaut- aði bæði alilömbin, Skarf og Kolu, og var jeg sendur á næsta bæ að spyrja eptir þeim. Jeg fór, og fann lömbin á miðri leið milli bæjanna og sneri með þau heimleiðis. í því sé jeg hvar kerlíng kemur, töturleg og fótgángandi, á móti mér. Jeg ætlaði fyrst að verða smeikur, en í sama bili þekkti jeg hvers kyns var. J>ar var komin Solveig gamla «fóstra mín». Hún hafði verið gustukakona hjá foreldrum mínum, þangað til jeg var 6 vetra, en verið síðan «sjálfrar sinnar» hér og þar, ör- snauð og uppgefin. Solveig var lítil vexti, svört á brún og brá, móleit sýnum, tugði mikið tóbak, góðmannleg á svip og þó forneskjuleg, töturlega klædd og mótlætisleg. Hún haföi haft á mér mikla elsku, en jeg sjaldan þýðst hana vel nema þegar mér var kalt, þá hafði jeg verið vanur að flýja inn og kalla við stigann: «Donvei! mé e kalt!» En einkum varð «Donvei» mér ógleymanleg fyrir sögurnar, sem hún sagði okkur. Flestar ef ekki allar drauga- álfa- og apturgöngu- sögur, sem íslenzk börn kunna, hafði Solveig sagt mér og innrætt svo vel, að mér entust þær í vöku og svefni alla mína æskutíð út. «Fyrir sínar leiðu sögur, varð hún að fara úr mínum húsum, auminginn», sagði móðir mín. En nú er að segja frá fundi okkar og spesíunni. Óðar en hún hafði þekkt mig, vafði hún mig að sér, og kyssti mig í krók og kring (sem mér reyndar ekki var mikið um); síðan flýtti hún sér að leysa frá skjóðunni og fara aðtala: «Enhvað þú ert orðinn stór, elskan mín! — lof mér sjá blessuð augun! og stóra nefið! nú segirðu ekki lengur «Douvei»; nú áDonvei bágt; nú fór hún fyrir neðan í S., hvernig gat jeg litið upp á börnin, og geta ekki stungið upp í þau sykurmola? Bágt á

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.