Þjóðólfur - 30.04.1879, Side 3
43
Donvei þín, elskan mín, hún heflr nú ekki smakkað tóbaks-
lauf í hálfan mánuðn. í þessum tón hélt Solveig áfram að
rausa, þar sem við sátum á þúfu milli tveggja hrísrunna; það
var fagurt sumarkveld; fjörðurinn fyrir neðan okkur speglaði
í sér skógivaxin fjöllin með sólgyllta tindana, og í kringum
okkur súngu skógarþrestirnir í sífellu. Eu hvort sem það voru
nú áhrif kvöldfegurðarinnar, eða meðaumkun mín, eða hvort-
tveggja þetta, sem á mig fékk, þá er ekki að orðlengja það,
að eg tók upp spesíuna og gaf Solveigu, sem greip við henni
með gleðitárum og sagði: «þú gefur silfur, en guð borgar
fyrir Solveigu í gulli». Að því búnu skilduin við, hún hélt
sinnar leiðar, og er úr sögunni, en jeg heim með lömbin.
f>egar jeg kóm á hlaðið, mætti jeg móður minni, eg heilsaði
henni, og hefir hún víst þóttst sjá einhver missmíði á svip
mínum, enda bjó jeg yfir því þunga spursmáli, hvernig for-
eldrar mínir mundu taka upp fyrir mér tiltækið með spesí-
una, «Hefir þú nú týnt peningnum þínum?» spurði móðir
mín. Nei, mamma, — sagði eg, oglagði hendur um hálshenni,
— jeg mætti henni Solveigu gömlu og gaf henni hana. «|>ú ert
vænn drengur», sagði móðir mín, og kysti mig fastan koss,
og leit jeg þá upp á hana, bæði hróðugur og auðmjúkur, og
aldrei sájeg móður mína með ánægjulegra og undir eins göfu-
legra yfirbragði en í þetta sinn.
Ý M I S L E G T.
— Síðastliðin 20 ár, hafa hiu ýmsu ríki í Norðurálfunni
eytt til herkostnaðar-- í 8 stríðum 49 pús. millj. króna; jafn-
miklu fé, segir eitt sænskt blað, eins og allar tekjur Svíaríkis
mundu nema í 7 aldir, ef þær héldust jafnar því, sem nú er.
í þessum stríðum er talið að farizt liafi 2,253,000 manns.
— Tekjur háskólans í Uppsölum árið sem leið voru 730
þús. kr., af þeim lagði ríkið til 340 þúsund, hitt eru árs leig-
ur af auðæfum þessa mikla skóla.
— í Lundi íSvíþjöð er árlega haldin hátíð við háskólann í
minningu þeirra manna, er nafnfrægastir hafa andast á Norð-
urlöndum árið fyrirfaranda. Slíka hátíð (í feðranna minningu)
er og tekið að halda í Kristianíu; var hún haldin þar í vetur
11. febr. 0g tóku þátt í henni yfir 1000 manna. Meðal þeirra
nýlátnu merkismanna, hverra nöfn prýddu salinn, var landi
vor Gisli sál. iJagnússon.
Grænland. Af skýrzlu t «Fædrelandet», er að sjá,
sem Grænlendingar hafi haft gott bjargræðisár í fyrra, og
útfærzla af vörum orðið í betra lági, 15,190 tunnur af spiki
og lifur. Landsmenn teljast 10,000. í norður Grænlandi
(austurbygd) gekk í fyrra mannskæð lungnabólga og tak, sem
deyddi helzt menn á bezta aldri.
V e r z 1 u n a r f 1 o t a r N o r ð u r 1 a n d a.
í riti því viðvíkjandi, sem riýlega er útgefin í Ðanmörku
af C. L. Madsen, stendur; «1876 fóru dönsk skip 6174 ferðir
til útlanda til verzlunarerinda; þau báru til samans 1,37,676
smálestir, og «brutto»-leigan var 37,356,000 kr. Sænsk skip
gjörðu 3430 ferðir og báru 1,003,346 smálestir, og gáfu í
leigu. 37,356,000 kr. Norsk skip gjörðu hálfu fleiri ferðir en
hinna ríkjanna beggja skip, eða 14,219 ferðir með 4,833,359
smálestir og fragtin (leigan) taldist 103,328,000 kr. Noregur
á hálfu fleiri verzlunarskip en Svíar og Danir tilsamans (Norð-
menn 7909, Danir 3263, og Svíar 3381). Af gufuskipum eiga
Svíar ílest 681, þar næst Norðmenn 258 og Danir 188 skip,
en þeirra gufuskip eru stærst.
— Herra Wandel, skipstjóri á Díönu 3 undanfarin ár,
hefir gefið út í vetur rit um siglingar kringum ísland, Be-
mœrkninger om Beseilingen af Islands Kyster. Munum vér
geta þessa bæklings betur, þegar vér höfum lesið hann.
— Til varnar pest þeirri, er fyllti alla Evrópu ótta í vetur,
gaf konungur vor út bráðabirgðarlög, 21. febr., sem veita ráð-
herra vorum vald til að leggja bann fyrir flutning þess konar
varnings til íslands, sem pestnæmur kunni að vera. Eáð-
herran gaf því 24. febr. út bréf, sem bannar flutning hingað
frá Kússlandi á öllum þvílíkum vörum, fatnaði, brúkuðu líni,
loðskinnum, húðum, hári, og svo frv. Sem betur fer og áður
er sagt, er pest þessi útdauð, en þó er allur vari góður. Um
"Plett-typhusin í Berlín» skulum vér hér geta þess, að vér
vitnuðum til ýngri blaða af «Dagblaðet», þegar vér leyfðum
oss að leiðrétta orð «ísafoldar» um það efni; þá var þar
enginn plettyphus.
— Eptir Hiibners manntalstöflum teljast nálægt 200 miljónir kap-
ólskra manna í Evrópu, en taipar 70 mi!j. endurbættrar trúar. Afhverj-
um 10 þúsundum í pýskalandi fæSast 406, deyja 292, kvongast 90; í
Austurriki fæöast 402, degja 352, kvongast 88; á Stórbretalandi fæðast
346, deyja 220, kvongast 77; á Frakklandi fæðast^ 267, degja 231,
kvongast 86; á Ítalíu fæð. 360, d. 306, kvongast 80. í skóla gánga fæst
börn hjá Rússum, 150 af 10,000, en flest í Bandarikjum Ameríku, yfir
2000, en um 800 í flestum hinum löndunum. <■
— Gustukagjafir á ári hverju í London eru reiknaðar 4 milj. punda.
par í borginni teljast nál. 14 púsund smávagna (cabs), sem aka fólki,
og er árlega borgaS fyrir panu akstur 4 milljónir punda. Frá Englandi
starfa 67 trúboðenda félög um víða veröld; til þeirra var gefið í fyrra
með samskotum 1 millj. og 100 pús. pund. Á Parísar sýningunni í
fyrra sýndi hið enska biflíufélag í einu biflíuua á 216 túngumálum.
— Ekkert — scgja vitrir menn — sannar eins framfarir hins sanna
kristindóms í heiminum eins og hin vaxandi hluttekningarsemi manna
við nauðstadda. Líknarverk og gjafir margfaldast á vorri öld á hverj-
um 10 til 20 árum, sem líða.
— Enskur auðmaður gaf nýlega blindum löndum sínum 300,000 pund
gulls (5 millj. og 400 pús. kr.).
— Hálf áttunda milljón manna teljast nú standa vígbúnar ef stjórn-
endunum slcyldi liggja á að fara í stríð.
— Bayard Taylor, slcáldið frá Ameriku, sem heimsótti oss á
pjóðhátíðinni, og kvað lofkvæði til vor, andaðist í vetur í Berlín, par
sem hann var sendiherra. Hann náði ekkisextugs aldri; foreldrar hans
lifa enn. Hann var ágætur maður.
— John Bright skrifaöi nýlega Cyrusi Field (peim er hingað kom á
pjóðhátíðinni): „pjóöirnar eru afar-tornæmar, en samt má kenna peim,
og sá tími kemur, pegar verzlunin verður eins frjáls eins og vindurinn.
— Tyrkjastríðið telzt hafi kostað Búsaa á einu ári 312 millj. punda.
En 2000 milj. punda kostar ná Evrópu-ríkja herbúnaðurinn á ári hverju.
___ Læknar á Englandi hafa sannfærst um, að árlega deyji af löndum
peirra 120 púsund manna af völdum ofdrykkju.
___ Svertingjar í Ameriku eru opt lausir á kostunum. Nýlega vildi
einhver kirkjusöfnuður peirra losast við prest sinn, en gat ekki bolað
hann burtu, því prestur pvertók fyrir að fara eitt spor. Hvað gjöra
pá þeir svörtu? peir safnast saman og brenna kirkju sína til kaldra
kola, og hafa síðan hvorki prest né kirkju. Á mörgu þeirra athæfi vill
löngum vera Öxneyjarbræðra bragur.
— De Ilars, konsúll Bandaríkjanna í Alexandríu, ferðaðist nýlega
hringinn í kring um hnöttinn á 63 dögum, eða 9 vikum.
a.
AGRIP
af reikningi sparisjóðs á ísafirði frá 11. desbr. 1877 til 11.
júní 1878.
Tekjur. Rd. A.
Eptirstöðvar 11. des. 1877:
a, skuldabréf....................
b, peningar..................... •
a, innlög samlagsmanna ....
b, óútteknir vextir 11. júní 1878
Yextir af lánum..................
Seldar 4 viðskiptabækur . . .
1.
2.
3.
4.
rd.
4705
1
506 83
71 58
4706 »
578 41
T 79 57
, . 2 »
alls 5365 98
1.
2.
3.
4.
Gjöld:
Utborguð innlög..................
Borgað fyrir auglýsingar í |>jóðólfi
Vextir lagðir við höfuðstól . . .
Eptirstöðvar 11. júní 1878:
a, skuldabréf....................
b, peningar......................
. . 8 10
; . . . 6 50
. ... 71 58
kr. a.
5237 »
42 80 5279 80
alls 5365 98
ÁGRIP
af reikningi sparisjóðs á ísafirði frá ll.júní
Tekjur.
1. Eptirstöðvar 11. júní 1878:
a, skuldabref.....................
b, peningar.......................
2. a, innlög samlagsmanna . . • •
b, óútteknir vextir 11. desbr. 1878
3. Vextir af lánum...................
4. Seldar 27 viðskiptabækur ....
til 11. desbr. 1878.
kr. a. kr. a.
. 5237 »
• 42 80 5279 80
. 4137 20
. 100 35 4237 55
' 302 80
13 50
alls 9833 65