Þjóðólfur - 10.06.1879, Page 1

Þjóðólfur - 10.06.1879, Page 1
 »1 > Kostar 3kr. (erlendis 4kr.), ef «*■ hf■ borgast fyrir iok ágiistmán. Reykjavík, Hér með gjöri eg hinum heiðruðu landsmönnum kunnugt, að hina fyrstu hestamarkaði í sumar hefi eg áformað að halda sem fylgir: að Mýrdal í Hnáppadalssýslu . . . . 8. júlí. — Galtarholti í Mýrasýslu . . . . . 9. — — Steinum í sömu sýslu . . . . . . 10. — — Leirá í Borgarfjarðarsýslu . . . . 11. — — Núpakoti undir Eyjafjöllum . . . . 21. — — Hvoli í Rangárvallasýslu . . . . . 23. — 1. C o g hi 11, hestakaupmað ur. Sé borga8 að liaustinu kostar árg. jo kj.g 3kr. 25 a., en 4kr. eptir árslok. — DIANA kom hér 1. þ. m. og með henni fjöldi fólks, og fer flest af því með henni aptur. Meðal þeirra nefnum vér kand. Skapta ritstjóra «Norðlings» (til Stykkishólms), apótek- arasvein Sigtrygg Sigurðsson, prentara Olaf Olafsson, séra Hjör- leif Guttormsson á Yöllum, séra Jón Thójrarensen, frá Stór- liolti, er siglir til að leita sér lækninga; frá Isafirði kom Magn- ús Jochumsson, kaupmaður; frá Bíldudal frú Bjarnasen. Með Díönu komu einnig 6 norskir strandmenn, er brutu skip sitt við Látrabjarg; það var timburskip, er ætlaði til ísafjarðar; 11 franskir strandmenn, er brutu skip sitt á Austfjörðum. — Póstskipið PHÖNIX kom 5. þ. m., með því komu frá Khöfn Fischer stórkaupm., Fischer, jun., Lefolii, jun., B. Jóns- son, ritstjóri, frú V. Gunnarsson, ungfrú Helga Ólafsdóttir, stúd. Jón pórarinsson verzlunarm. G. Thordal, Asb. Ólafsson, vita- stjóri, Knudsen múrsmiður. Frá Skotlandi: frú G. Hjaltalínr 4enskir ferðamenn og 2 þjóðverjar er hér ætla að ferðast um. — SKIPALISTI. 16. maí: Jane & Isabella (Carnegie) frá Peterhead. 19. s. m. Nicola (S. Nielsen) frá Færeyjum. 20. s. m. Mauritius (H. A. Möller) frá Khöfn. 28. s. m. Nancy (Svendsen) frá Khöfn. 31. s. m. Laure (Nielsen) frá Mandal. S. d. Anne Katrine (Nielsen) frá Khöfn. S. d. To Söstre (Pedersen) frá Khöfn. S. d. Marie Christine (J. Hansen) frá Khöfn. 1. þ. m. William & Cathrine (Clinton) frá Blyth. 2. þ. m. Valdimar (Heintzelmann) frá Liverpool. 4. þ. m. Vesta (Clarkson) frá Hull. 5. p, m. Mastiff, enskt lystiskip. 8. þ. m. Vega (Devig) frá Bergen. 8. þ. m. Nicoline (Krabbe) frá Khöfn. Hertoginn af Hamiiton. Á lystiskipinu «Mastiff», kapt. Ker, því sama er kom hingað í fyrra, heimsækir oss nú einn hinn mesti stórhöfð- ingi Englendinga ásamt frú sinni: hertoginn og hertogainnan af Hamilton. Með þeim eru auk annars föruneytis, admíráll Mac Donald, Colonel (ofursti) Campbell og frú Campbetl, Og presturinn (the Kev.) Mr. Taylor. Hertoginn og nefndir höfðingjar halda af stað til Geysis í dag 8. þ. m. og stendur dbrm. Zoega fyrir ferðinni og fer sjálfur. Fjórir Englending- ar og tveir fjóðverjar, sem komu á póstskipinu, ferðast einn- ig til Geysis. Von er á öðru ensku lystiskipi bráðlega. Skip Slimom «Camoens» (1054 tons og/hið bezta skip)" á að koma fyrst til Akureyrar 24. þ. m., en næstu ferð frá Gran- ton á það fyrst að koma til lívíkur 9. júlí, og í annað sinn (frá Granton) 24. s. m.; næst fyrst til Akureyrar 8. ágúst, til Rvíkur 23. ágúst; til Borðeyrar og Akureyrar 10. sept., og til Seyðisfjarðar 28. sept. Skipið skal allar þessar ferðir flytja bæði fólk ög góss milli landa. Farbréf kostar 5 pd. fyrir 1. ldetu en 3 fyrir aðra; 8 og 5 pd. kosta farbréf, sem gilda lí|ðar leiðir. ■ 4. þ. mán. var hér haldið uppboð mikið á franskn lokk- ortu tilheyrandi svo og aflá hennar nál. 20,000 þorska. Skip- ið keypti þórður bóndi á Leirá fyrir rúmar 3000 kr. Fisk- urinn seldist á 35—40 kr 200 af óþurkuðum þorski. Skipið er nú sent út til fiskifanga. Skip það sem selt var á dögun- um. skal og bætast og gjörast út. 5 eða 6 ný þilskip hafa í sumar bæzt við hinn litía flota Sunnlenainga. — liSerði skólinn. 15. f. m. hafa stipsyfirvöldin með bréfi til skólastjóra gefið þær ákvarðanir fyrir næstkom- anda skólaár, að ekki megi taka ipn í skólann í sumar og haust fleiri nýsveina en kríngum 16, og það annað, að eng- inn piltur megi framvegis halda skólanum, sem setið hefir 2 vetur í sama bekk, nema hann við vorprófið flytjist upp í næsta bekk. Hin fyrri ákvörðunin virðist ekki vera heppilega samin, og því síður auglýst á hentugum tíma. 1 fyrsta lagi eru það hin mestu vandræði, ef bægja skyldi þurfa piltum frá skólanum af öðrum ástæðum enþeim, að þeir reynast ekki nægilega undirbúnir, — ekki síst þegar þess er gætt, hve ferðir eru erfiðar og dýrar hér á landi; í öðru lagi vita vandamenn skólapilta ekkert af þessu bréfi fyr en í ótíma. Til inntökuprófs mun þegjjr vera kominn hávaði hinnar á- kvörðuðu tölu; skyldu nú — sem allir búast við — fleiri koma í haust, og þeim eptir bréfinu verða vísað frá, sem reyndust að hafa fengið lægsta einkunna upphæð, þegar bæði vor og kaust- inntökuprófinu væri lokið, þvílíku andstreymi og og kostnaði mundi þá ekki nefnt stiptsyfirvaldabréf baka þeim piltum, sem þannig gjörðu tvisvar sama sumarið forgefins ferð til skólans? því eptir bréfinu skiljum vér ekki betur, en að úrskurðurinn á það, hverjir piltar fái skólann, og hverjir ekki, verður ekki lagður fyr en að loknu inntökuprófi í haust, því þá fyrst sézt, hverir neðstir hafa orðið að einkunna upphæð. Að vísu höfum vér heyrt, að yfirstjórn skólans ætli sér ekki að framfylgja nefndum reglum í fullum strangleik í ár, en þar bæði er, að nefnt bréf þeirra þegir um það, og enginn ráð- stöfun er tekin, það vér vitum, til þess að auka bekkjaljölda, eða kennslurúm í skólanum, þá sjáum vér ekki betur, en að hér séu góð ráð dýr og mál í óefni komið. Hefði nefnt bréf verið komið og útsent slæerr í fyrra haust., þá hefði fremur mátt bjarga málinu í tíma. Eins og nú stendur, mun ekki annað ráð vera fyrir hendi, sem viðunanda sé til bráðabirgða en það, að alpingissalurinn verði tékinn og hafður í bekkjar- stað, næstkomanda skólaár, (tími til að breyta honum er nógur milli þingloka og skólabyrjunar), og yrði þá að biðja þingið um lítinn fjárauka handa timakennslu þeirri, sem skipting 1. bekkjar í 2 stofur leiddi með sér. fví skyldi þetta ekki vera vinnanda verk? eða munu landsmenn, sem senda vel hæfa pilta til skólans, með nokkru móti geta unað því, að piltum þeirra sé frávísað, ef öðruvísi er kostur á? ]?að, að aðsókn að skólanum vex, er í sannleik gott og gleðilegt tím- ans-tákn, og því væri það undarlega öfugt, ef landsstjórn og þing færi fremur að letja en hvetja þessa aðsókn, eða hvað líður ölmusuveitingunni til skólans? jþað er oss óskiljanleg ráðstöfun, að ölmusu-fjöldinn er látinn standa í stað, þótt tala lærisveinanna sé tvöföld orðin. Ölmusunum ætti að fjölga að minnstakosti að fjórðungi við þá tölu sem er; og vonum vér að sú ráðstöfun fari fram á næsta þingi. — «Nauðsynleg hugvekja«, prentað í bæklingsérúr «Framfara», höf. Jón Bjamason (prestur Nýja-Islands), fæst til kaups hjá Kr. Ó forgrímssyni í Rvík., G. Thorgrímssen á Eyrarbakka, P. Sæmundss., á Akureyn, og séra L. Bene- diktss. á Selárdal. Peir sem vilja fræðast um kirkjudeilu landa vorra á Nýja lslandi, gjörðu eflaust vel ef þeir læsu þennan bækling, því hann einkennir sig jafnt með einurð og sannleiksást. _______________ __ í jjjóðólfi 2. sept. f. á. settum vér eptir Norðlingi III. 59. __60. 1878 vísu þá, sem Björn próf. Halldórsson í Laufási kvað til Tryggva kaupstjóra Gunnarssonar; en þar eð vísan þótti ekki standa rétt í voru blaði, setjum vér hana hér, eptir hönd höfundarins: Tvo gripi sendir Grána hér, og gróf á nafn pitt, Tryggvi, og gull er í peim, eins og pér, vor erindrekinn dyggvi! Pií reyndist Gránu gull i raun, og gullin skaltu piggja laun og scemd og pökk vm öll pau ár, sem uppi stendur flokkur grár. 61

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.