Þjóðólfur - 12.07.1879, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 12.07.1879, Blaðsíða 3
75 haldinn 8. þ. m. og var hann all-fjöimennur, nál. 40 manna, sem, eins og íleira, sannar og sýnir að nýlt fjör og lif er að vakna f deild þessari. Forseti nefndi bækur þær, sem félagið gæfl út í ár og tók fram, að þær væru betur lagaðar eptir bráðri þörf alþýðu, en bæknr félagsins opt hefðu verið að undanförnu. Uann réð félaginu til að kaupa af Jónassen hér- aðslækni hina nýju bók hans <um eðli mannlegs líkamai), og ályktaði fundurinn að fela félagsstjórninni á hendnr að semja við hann um kaupin, og skyldi exemplarið ekki vera dýrara en 50 aurar. Þá var samþykt að þiggja tilboð Jóns Péturs- sonar háyfirdómara, að félagið fengi handrit, er hann á og hefnr aukið, af sýslumannaœfum um alt land, eptir Boga á Staðarfelli; skal félagið gefa út þetta einkar-merka rit í 3 heptum, I hepti á ári hverju. Grímur Thomsen bar fram þá tiliögu, að félagið tæki að gefa út ritsafn, likt því sem lær- dómslistafélagsritin voru, en réð jafnframt til, að báðar deild- irnar kæmu sér saman um að breyta lögum félagsins viðvíkj- andi «Skfrni» og hætta við að gefa hann út. Til þess að undirbúa þessa uppástungu var sett þriggja manna nefnd (Gr. Thomsen, Jón Pétursson, Jón Árnason). 5 menn gengu í félagið með 6 króna tillagi, en 1 gekk úr. Loks voru embætlismenn kosnir og varð forseti hinn sami sem áður, en skrifari varð Helgi kennari Helgesen, af þvf Páll Melsteð baðst lausnar frá þeim störfum, eptir 12 ára þjónustu. SYNODUS. Á synodus, sem haldinn var 4. þ m. var, að aflokinni guðsþjónustugjörð, peningum úthlutað eptir vanda milli upp- gjafapresta og fátækra prestaekkna, eptir uppástungu stipts- yflrvaldanna. t*ví næst gjörði biskupinn grein fyrir fjárhag prestekknasjóðsins, sem við síðustu árslok álti 14147,36 kr. og var ákveðið að úthluta skyldi næsta ar, af vöxtum hans 300 kr. til fátækra prestsekkna, sem að undanförnu. Eptir uppástungu prófasts séra þórarins Böðvarssonar, var kosin þriggja manna nefnd til þess, ásamt stiptsyflrvöldunum, að semja uppástungu um aukið vald og verksvið synodusar og voru þessir kpsnir: prófastur sira Þórarinn Böðvarsson. sira Hdllgrimur sveinsson. sira Helgi Hálfdánarson. Pvi næst stakk sira þórarinn Böðvarsson upp á því, að stipts- yfirvöldin skrifi landshöfðingja um, að fá prentuð eyðublöð fyrir öllum aðalskýrslum, er prestar eiga að gefa, og var það samþykt. Auk stiplsyfirvaldanna voru viðstaddir á synodus 15 pró- fastar og prestar. PRÓF I forspjallsvisindum 26. júní: Árni Þorsteinsson . . . dável Ásgeir Blöndal .... vel— Bjarni Jensson .... dável Eiríkur Gíslason . . . dável Halldór þorsteinsson . . dável-f Kjartan Einarsson . . ágætlega (Aðsent) 16. júni var ( yfirdóminum kveðinn upp dómur f máli séra Jakobs Guðmundssonar á Sauðafelli gegn Jónasi lækni og Kriiger lyfsala svo hljóðandi: þvf dæmist rétt að vera: Áfrýjendurnir, héraðslæknir J. Jonassen og N. S. Krúger, eiga að vera sýkuir af kærum og kröfum stefnda, séra Jakobs Guð- mundsonar, í þessu máli. Málskostnaður fyrir báðum réttum falli niður. «DÍANA» lagði héðan kl. 12. f. m. þ. 5. vestur fyrir land. Með henni tóku sér far séra Björn prófastur Halldórsson og og séra Páll Jónsson frá Viðvik, er komu hingað með Díönu til að starfa við Sálmabókarnefndina. Fáir farþegar fóru ann- ars nú með Díönu héðan. niður víða hér um sveitir. 23. f. m. andaðist úr henni séra Jón Högnason uppg. prestur að Hrepphólum; sjötugur að aldri. Hann vigðist 1832, og var jafnan talinn dánumaður. — 29. júní slðastl. andaðist merkisbóndinn Einar Jó- hannsson á Þórisholti i Mýrdal, f. 7. des. 1796, hrepp- stjóri í Dyrhólahreppi frá 1843 og til dauðadags. Kona hans, Ragnhildur Jónsdóttir, andaðist 2. þ. m., en hún var fædd 1. sept. 1792. Þessi heiðurshjón héldu 60 ára brúð- kaup sitt skömmu eptir uýár í fyrra, sbr. 6. tbl. þjóðólfs f. á. í því æfiágripi, sem þar stóð, var þess ógetið, að hann var formaður í sinni brimasömu sveit 45 vetrar vertíðir og barst aldrei á svo menn eða skip biðu skaða. Meðhjálpari var Einar sál. í 40 ár, hreppstjóri 36 ár og sáttamaður 33. Kona hans gegndi Ijósmóður störfum 33 ár, og tók við nál. 240 börnum. Þau hjón lágu rúmföst sína 3 daga hvort þeirra, og kenndi hún banasóttar sinnar sama dag og bóndi hennar var lagður til, og lauk þannig þeirra löngu og friðsælu sambúð. Þess ætti að veragetið, sem gjört er. Árið 1877 voru hér á eyju gjörð samskot til að kaupa organ-harmonium til Vestmannaeyjakirkju ; en þar menn þótt- ust sjá, að þau ekki mundu nægja til að kaupa svo stórt hljóðfæri, að samsvaraði kirkjunni, var stofnað til <iTombolu» og ávannst við hana það, að nokkurn vegin nægilegt fé var fengið til að kaupa sjálft hljóðfærið. Var þá kaupmaður P. Bryde beðinn að kaupa það, sem hann gjörði, og sá til þess að það í fyrra sumar var flutt hingað ; en er það var hiogað komið, sýndi hann veglyndi sitt og höfðingsskap í því að gefa það, en það hafði, að meðreiknuðum umbúðum og sálma- söngsbók Bergreens, kostað 266 kr. Þessu veglyndi P. Bryde er það að þakka, að fé þvl, sem upphaflega var ætlað til að kaupa hljóðfærið fyrir, heflr varið til þess, að kosta mann, er héðan var sendur á síðastliðnu hausti til Reykjavíkur, til að læra organslátt hjá herra organsleikara Jónasi Helgasyni, og er með þessu stutt að því, að hijóðfærið geti náð tilgangi slnum miklu fyr, en annars hefðu verið líkindi til. Til þakklátrar viðurkenningar um ofangreint veglyndi herra kaupmanns P. Brydes umbiðst ritstjóri Þjóðólfs að )já línum þessum rúm í blaði sfnu. Vestmannaeyjum f apríl 1879. Br. Jónsson. Verzlimin stendur nú sem hæst hér í Reykja- vík, en fremur daufur kurr heyrist jafnt til bænda sem kaupmanna. Að vísu er flest útlend vara með lágu verði, en bæði er, að aðal-vörurnar, sem landsmenn bjóða, standa fiestar lágt í móti — einkum þó dúnn, ull og lýsi — enda er að athuga um fiskverðið, 40 krónurnar, að þótt það væri viðun- andi móti kornverði því, sem nú er, þá hefir allur þorri manna fyrir löngu lánað út á þann fisk, sem nú er lagður inn, vörur með( miklu hærra verði, en nú gilda þær, og það er þessi neyð, sem gjörir almenning svo hugsjúkan og lang- eygðan eptir hærra verði, einkum á fiskinum. Fast verðlag eða prísa þorum vér ekki að tala um í þetta sinn. Mælt er að Akraness-kaupmenn bjóði 45 kr. fyrir bezta fisk, eða jafn- vel betur. Aptur segjast kaupmenn hér heyra fátt gleðilegt af fiskimarkaðinum ytra. Einn merkur kaupmaður fékk þann- ig á dögunum eptirfylgjanda bréfkafla frá einum fiski-agent Spánverja í Kaupmannahöfn: «J>ar við bætist, að nú stendur sem hæst útskipun fiskj- arins frá Norvegi, sem nú hefir miklu meiri fisk en venjulega, og er vogin boðin fyrir 4,80 kr. (nál. 43 kr skp.). Mér er skrifað bæði frá Bilbao og Barselona, að allar ástæður bæði í Noregi og á Spáni heimti hina mestu varkárni í innkaupum á fiski í ár, og í gær (10. júní) skrifar einn stórkaupmaður mér, að íslenzkur fiskur hljóti, sjálfsagt og vafalaust, að verða miklu lægri í verði í ár, en hann var í fyrra, þar sem verðið á norskum fiski í fyrra var 6,80 kr. vogin, en nú má fá hann í hópakaupum fyrir 4,80 kr. (skp. 17—18 kr. ódýrara). Einn spánskur kaupmaður liggur enn með 60,900 kilo af Faxaflóa- fiski, sem varla mun ganga út fyrir hálft innkaupsverð, eða máske verða ónýtur, ef hitar verða miklir«. liúugnabólgan hefir til þessa verið að stinga sér

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.