Þjóðólfur - 22.12.1882, Side 4
126
að venja hann við sólargeislana. Ljómi
saunleikans og frelsisins getur í fyrsta
bragði orðið ofbirta og sjónir þjóðum, sem
orðnar eru hálfblindar í húsi þrælkunarinn-
ar, en látum þær að eins horfa og þess mun
eigi langt að bíða, að þær venjist birtunni.
(Macaulay: Milton).
Messur í dómkirkjunni
um hátíðirnar.
Aðfangadagskvöld kl. 6, kvöldsöngur:
kand. Jóhann J>orsteinsson. — Jóladag, kl. 11:
síra Helgi Hálfdánarson. — kl. l'/s dómkirkju-
presturinn (dönsk messa). — Annan í Jólum,
áhádegi: dómkirkjupresturinn.— G-amlaárskvöld,
kl. ö, kvöldsöngur: dómkirkjupresturinn. — Ný-
ársdag, á hádegi: Sami.
Rvik 2i. des. 1882.
Hallgr. Sveinsson.
Auglýsingar.
M. L. Möller &
Meyer
Giothersgade ,M 8 i Kjöbcnhavn
anbefaler alle Husholdnings- og Delikatesse-
Varer; Farvevarer, Spirituosa, som Rom,
Cognac og Banco.—Apothekervarer. Andre
Varer hesörges uden Avance. Priskurant
tilsendes Pranco. (M 7401)
Hermed tillader jeg mig at bekjendt-
gjöreatjeg har overdraget Herr Kjöb-
mand W. Fischer i Reykjavik Eneudsalg
af mine reelle ægte ungarske Vme og
Spirituosaer for Faxebugten paa Is-
land.
■ Jeg garanterer kun for disse Vines
Ægthed naar mit Navn findes i Lak-
ken.
Kjöbenhavn, i November 1882.
J. Bauer.
í sambandi við ofanprentaða auglýs-
ingu, auglýsist hjer með að verzlun W.
Fischers’ nú hefir fengið nýjan aðflutn-
ing af ýmsum tegundum af ungversku
vini sem seljast með sama verði og J.
Bauer selur þau í Kaupmannahöfn að
innflutningsgjaldinu hjer viðbættu.
Enn fremur fást ýms önnur vínföng
svo sem :
gott Sherry á 2 kr.—2 kr. 25 aur.
Sherry Cordial
Liqueurar, ýmsar tegundir
Banco
Almtafts Punch
Champagne Cognac
Egta Mumms Champagne og aðr-
ar tegundir
Carlsberger Export Ö1
Vindlar, ýmsar tegundir
Sukat, Sago, Kartöflumjöl, þurkuð Epli,
Kongothe, Citronolia, Soya, Gjærpulver,
fínt Kex, Confect, Rusínur, Stearínljós,
Reyktóbak, Sardínur, Kirsuber, Mac-
caronie, Rismjöl, Lárberjalauf, Capers.
G. Finnbogasen.
íslenzkt hvalveiðafjelag.
Svo framarlega sem nógir hluttakendur
fást, ætlar undirskrifaður að stofna hvalveiða-
hlutafélag, og er áformað, að aðalaðsetur
fjelagsins verði á Isafirði.— Hlutabréf þurfa
að vera hér um bil 150 að tölu, og hvort á
1000 kr.
Sérhvern, sem vill taka þátt í þessu fyrir-
tæki, bið eg hið bráðasta að snúa sér til hr.
alþingismanns Th. Thorsteinson hér á Isa-
firði.
Skip og áhóld verða af hinum nýjustu og
beztu, er fengist geta í Norvegi, þar sem
hvalaveiðar hafa hin síðustu ár gefið hlut-
takendum stórkostlegan hag.
ísafirði, 28. sept. 1882.
. A. Hansen.
Dampkogeriet Torfnes.
Hér með auglýsist, að þeir menn úr
Rangárvalla- og Skaptafellssýslu, er
verzlunarviðskipti hafa eða framvegis
vilja hafa við verzlun J. P. T. Brydes i
Reykjavik og sem hafa menn til útróðra
suður við sjó, geta fengið úti látið salt
á Míðnesi, Garði, í Njarðvíkum og
Yogum. Einnig verður móttekin fiskur
frá sömu verzlun á nefndum stöðum, og
ef þess verður óskað, vörum svarað út á
hann við verzlun hins sama kaupmanns
í Yestmanncyjum.
Reykjavík, 28. nóv. 1882.
Ol. Amundason.
Innri-Hólmur
fæst til ábúðar á næstkomandi vori og geta
þeir sem vilja, samið um það við eiganda
jarðarinnar Kristján Símonarson bónda á
Innra-Hólmi. þessi jörð, sem er nafnfræg
fyrir það að hún var lengi í fyrri tíð höfð-
ingja setur, hefir mikið til síns ágætis: töðu-
völl góðan (400 hesta), engjar miklar og
grasgefnar og liggur vel við öllum jarðabót-
um; þaðan er útræði og afli jafnan í flest-
um árum; jörðin á ítök og hlunnindi. Leigu-
málinn skal verða sanngjarn og fáanleg er
er jörðin til kaups.
þegar hér í Landmannahreppi gekk yfir
hin mikla neyð næstliðið vor,—þegar jarðir
eyðilögðust hér af sandfoki enn sauðfé og
hross hrundi niður sem gras og kýr urðu
nytlausar og komnar að því að falla af fóð-
urskorti, urðu hér svo mikil bjargar þrot
manna á milli, að margt fólk dró fram lífið
einungis á kjöti af horföllnum fénaði, urðu
þá nokkrir til að rétta þessari bástöddu sveit
hjálparhönd. Nefni eg þar til fyrsta Stokks-
eyrarhreppmenn, sem sendu hingað mér til
úthlutunar meðal þeirra bástöddustu mat af
ýmsu tagi á 10 hestum sem þeir lögðu til ó-
keypis.
Maturinn var þessi:
140 pd. harðfisk
60 - smjör
V* tunn. rúgmjöl
40 pd. kaffi
40 - kandís
20 - export kaffi
150 - grjón
20 pt. lýsi
20 pd. tólg
75 - rúg
75 - b.bygg
Fyrirþessariríkmannlegugjöf gengust: herra
kaupmaður G. Thorgrímssen á Eyrarbakka,
Guðmundur ísleifsson, l-'orgari, á Háeyri og
Grímur Gíslason bóndi á Óseyrarnesi. þor-
varður Guðmundsson hreppstjóri á Sanda-
vík gekkst einnig fyrir því með sína lirepps-
menn að menn héðan fengu þar lánaða 7
hesta án allrar borgunar, til að flytja að sér
bjargræði utan af Eyrarbakka. Einnig má
geta bræðranna Amunda og Felixar á Bjólu
og Jóns Eiríkssonar á Bjóluhjáleigu sem
bæði tók kýr héðan til fóðurs og hjálpuðu
þar að auki um hey að miklum mun og hafa
og hafa tveir þeir síðar töldu gefið upp í
þeirri skuld nær 30 kr.
Fyrir hönd minna fátæku sveitunga þakka
eg þessum mönnum og öllum sem fyrir þeirra
orð og af eigin hvöt hafa sýnt þessum bá-
stadda hrepp örlæti sitt og hjálp.
Línum þessum bið eg útgefanda þjóðólfs
að ljá sem fyrst rúm í blaði sínu.
Flagveltu, 30. ágúst 1882.
J. Jörundsson.
Næstliðið sumar gaf herra kaupmaður H.
P. Duus í Keflavík 6 fátækustu búendum
Landmannahrepps korn og kaffi upp á 100
kr. Bóndinn Gísli Hannesson á Kotferju
sendi hreppnum að gjöf 30 kr. í peningum.
Fyrir hönd þiggjendanna, þakka eg þess-
um veglyndu mönnum þetta mannkærleiks-
verk.
Flagveltu, 8. desember.
J. Jörundsson.
TT tapaðist úr heima högum brún hryssa
4. v., aljárnuð affext, stýft neðan af tagli,
mark: hangandi fjöður framan bæði. Hver
sem hitta kynni hryssu þessa er beðinn að
koma henni til mín eða gjöra mér aðvart
mót sanngjarnri borgun.
Hvaleyri, 1882.
Jón Jónsson.
Nú í haust var mér dregin lambhrútur
með mínu marki: lögg aptan hægra, hamar-
skorið vinstra, sem eg ekki átti og getur
eigandi vitjað hans til mín.
Lækjarbotnum á Landi.
Jóhann Sœmundsson.
Hvít gimbur veturg. var mér dregin á
næstliðnu hausti, mark, hálft af apt. hægra,
standfj. fr., gat vinstra. Og getur eigandi
vitjáð til Br. Jónssonar að Mikunesi í
Holtum.
I miðjum októbermánuði næstliðnum
fannst ofarlega með Grímmannsfelli við
Mosfellsheiðarveginn kútur með brennivíni
og má sá sem sannar hann eign sína, vitja
hans til mín ef hann borgar fundarlaun og
þessa auglýsingu.
Bústöðum, 5. des. 1882.
Jón Olafsson.
Að kveldi 12. nóvembers þ. á. andaðist
að Yindási í Landmannahreppi merkisbóndi
Jón þorsteinsson. Seinna verður hans helztu
æfiatriða getið.
mmmKmnmmmBKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmtaxtmmmmmmaBmmmammm
Afgreiðslustofa þjóðólfs: ,JW. 8 við Austurvöll.
Útgefandi og ábyrgðarmaður Kr. Ó. þorgrímsson.
Prentaður í prentsmiðju Isafoldar.