Þjóðólfur - 14.07.1883, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 14.07.1883, Blaðsíða 2
84 1. umr. um frv. til 1. um kosningu presta (frá B. Kr., Á. E. (flutnm.), St. E.) — Gekk án nefndar til 2. umr. (með 8 atkv.). 11. júlí: 2. umr. um frv. til 1. um breyt- ing á hegning fyrir skottulækna. Gekk með breytingum til 3. umr. 2. umr. um frv. um um breyt. á 1. gr. I. 27/2 1880 um skipun prestakalla. Gekk með breytingum til 3. umr. (Eptir ísafold). I fjárlögunum er fátt nýmæla. Tekjurn- ar gerðar eitthvað 3 þús. minni alt fjárhags- tímabilið, heldr en í síðustu fjárlögum, nl. 850 þús., síðast 853. Abúðar- og lausafjár- skattr gerðr ekki nema 35 þús. hvort árið, í ,stað 49 þús. og 45 þús. í síðustu fjárl. Aðflutningsgjald af áfengum drykkjum og tóbaki dálítið lægra. »Stjórninni veitist heimild til að gefa eftir leigur af lánum þeim, er veitt hafa verið ýmsum sýslum 1882 og 1883 til þess að sp.oma við hungrs- neyð, til ársloka 1888, mót því að frá þeim tíma greiðist af þeim 4”/» í leigur, og að f af þeim endrgreiðist síðan á ári hverju«. Úr útgjaldadálkinum er það helzt til tín- andi, að þóknunin fyrir ina umboðslegu endrskoðun, er færð var upp í 2500 kr. á síðasta þingi úr 2000, er nú færð upp enn á ný um aðrar 500 kr., upp í 3000; þar af 600 taldar til skrifstofukostnaðar fyrir endr- skoðanda. Enn fremr ætlaðar 2000 kr. til að fltvega uppdrátt af sjúkrahúsi í Beykja- vík og áætlun um kostnað við það. Til- lögu frá landshöfðingja 1881 um að koma upp nýju sjúkrahúsi í Rvík fyrir 30,000 til 40,000 kr. á kostnað landssjóðs að hálfu leyti hafði stjórnarherrann eigi viljað sinna þá, vegna ófullkomins undirbúnings á mál- inu, og þess annars, að eðlilegra væri, að Bvík ein éða þá ásamt nærsveitunum stæði straum af sjúkrahúsinu. Nú hefir inn nýi landlæknir stungið upp á sjúkrahúsi og húsi handa geðveikum mönnum fyrir 100.000 kr., er jafna mætti niðr á 4 ár; en stjórnarh. kynokar sjer við því stórræði, vegna óárans, auk fyrgreindra ástæðna. f>á er enn fremr bráðabirgðauppbót handa fátækum brauð- um, hækkuð upp í 7000 kr. á ári úr 4000 kr. Earið fram á 600 kr. launahækkun handa 2. kennara við læknaskólann (T. H.); hefir nú 1800 kr. Laun dyravarðar við latínu- skólann skulu og hækkuð upp í 1000 kr. úr 700, og bókavarðar Jóns Arnasonar upp í 1200 úr 700. í eftirlaun fara sem stendr 9700 kr. á ári, þar af nær helmingr handa 2 uppgjafasýslumönnum í Arnessýslu ; eftir- launamenn als 7. Tuttugu og þrjár em- bættismannaekkjur og 9 böm fá styrk úr landssjóði, samtals 8750 kr. Áætlaðr af- gangr eftir fjárhagstímabilið 28,500 kr. Eftir því sem segir í reikningslagafrum- varpinu, um árin 1880 og 1881, hafa eigur viðlagasjóðs numið í árslok 1881 nær 810 þús. kr. Tekjur landssjóðs' þessi tvö ár hafa orðið 822 þús.; áætlað ekki nema 778 Helzti tekjuauki aðflutningsgjald, nær 250 þús.; áætl. 200. þá spítalagjald 39 þús.; áætl. 14. jþá viðlagasjóðstekjur, nær 60 þús.; áætl. 49. Enn fremr aukatekjur 35 þús. í stað 28. Verzlunargjöld, þ. e. lesta- gjald, ekki nema rúml. 6 þús., í stað 74; og ábúðar- og lausafjárskattr 95 þús. í stað 100. þessi útgjöld hafa farið mest fram úr áætlun: póststjórn og póstgöngur 37 þús., áætl. 32; og skyndilán til embættis- manna m. m. 22 þús. í stað 10. Afgangr eftir fjárhagstímabilið 51 þús.; áætl. 73. Tekjueftirstöðvar landssjóðs 52 þús., út- gjalaaeftirst. nær 10 þús. FBUMVABP til laga um réttindi og skyldur^einstakra manna og kirkjufélaga, sem eru ekki í þjóðkirkjunni; (borið upp í neðri deild af Jóni Ólafssyni 2. þingm. Suðr-Múlasýslu). 1. Hver sá maðr, sem fermdr er og 16 ára að aldri á rétt á að segja sig úr þjóð- kirkjunni, ef hann tilkynnir það sókn- arprestinum í þeirri kirkjusókn þjóð- kirkjunnar, er hann á heimili í. 2. Börn foreldra, er annað eða bæði heyra eigi til þjóðkirkjunni, hafa þeir (for- eldrarnir) rétt til að ala upp í þeirri trú, er þeim semr um. Nu hafa for- eldrar engan samning gjört um þetta atriði og greinir á um það, þá skal barnið upp fræða í trú þjóðkirkjunnar. það foreldra, er lengr lifir, er skylt að halda þann samning, er áðr var gjör um trúarfræðslu barns, en hitt for- eldrið dó; en einrátt er það foreldra, er lengr lifir, um þetta efni, ef enginn samningr var gjör um það. Nú deyja báðir foreldrarnir, þá skal fylgja þeim samningi, er þau höfðu gjört, eða þeirri ráðstöfun, er það foreldra, er lengr lifði, gjörði, ef trúarfélag það, er i hlut á, vill annast fræðsluna. Sé enginn samningr gjör eða engin ráðstöfun af hendi þess af foreldrunum, er lengr lifði, skal ala barn upp í trú þjóð- kirkjunnar. 3. Börn, sem eigi er skylt að fræða upp í trú þjóðkirkjunnar, er heldr eigi skylt að skíra; en tilkynna skal hlutaðeig- andi sóknarpresti þjóðkirkjunnar fæð- ing slíkra barna innan sama tíma, sem lögboðið er um önnur börn; skal skýra honum frá nafni því, er barnið á að hafa, og færir hann það inn í embætt- isbók sína; skal eptirrit af henni jafn- an síðan vera í öllu jafn gilt sem skírnarvottorð. 4. Nú vilja persónur, sem önnur eða báðar eru eigi í þjóðkirkjunni, ganga í hjónaband, þá skulu þau lýsa því fyr- ir sýslumanni, en hann gætir þess sama, sem prestar þjóðkirkjunnar gæta eiga, um meinbugi, og skal hann svo Iýsa þau hjón og gefa þeim vottorð um. Engar þarf lýsingar af stóli á undan slíku hjónabandi, en að öðru leyti skal ráðgjafinn skipa fyrir um með reglugjörð, hversu slíku hjóna- bandi skal haga. 5. Með konungsúrskurði má veita presti trúarfélags, sem eigi er í þjóðkirkjunni, rétt til að gefa persónur í hjónaband, og má binda þann rétt þeim skilyrð- um, sem ráðgjafinn álítr nauðsynleg. 6. Guðshús og grafreitir trúarfélaga, sem eigi eru í þjóðkirkjunni, skulu á sér hafa sömu helgi sem guðshús og graf- i^eitir þjóðkirkjunnar. 7. fjligi skal banna framliðnum manni, er $igi heyrði þjóékirkjunni til, legstað í grafreit þjóðkirkjunnar,' ef náungar hans, er að standa, óska þar legstaðar, en gjalda skal kirkju þeirri legkaup, er í hlut á, og presti líksöngseyri, ef hann jarðsyngr líkið. 8. Nú hefir söfnuður trúarfélags, sem eigi heyrir þjóðkirkjunni til, guðshús og heldr þar uppi opinberri guðsþjónustu á sinn kostnað, þá skulu þeir, sem í þeim söfnuði eru, vera lausir við gjöld til þjóðkirkjunnar og presta hennar, Einstakir menn, sem eigi eru í þjóð- kirkjunni, en heyra eigi til söfnuði annars kirkjufjelags, er þeir hafi guðs- þjónustu með á sinn kostnað, gjaldi venjuleg gjöld þjóðkirkju og hlutaðeig- andi þjóðkirkjupresti. Innlendar frjettir. Camoens kom norðan hingað að úr strandinu 3. júlí, bætt svo til bráðabirgða, að haffært hefur þótt, og með vesturfarana hjeðan, 84. Eór sama kvöld með þá áleiðis til Skotlands. Herskip frá Austurríki, Pola, kom hjer 30. jriní, á leið norður á Jan Mayen eptir veðurathuganamönnum þeim og náttúru- fræðingum frá Austurríki, er þar hafa setið síðan í fyrra. Skipið bíður hjer fram undir mánaðarlok. Latínuskólanum sagt upp 30. júní. Ný- sveinar reyndir og teknir inn 29.r júní : fimmtán í 1. bekk, og sex í annan. Útskrif- aðir níu, og auk þess fjórir utanskólamenn, dagana 30. júní til 5. júlí. Tala lærisveina í latínuskólanum nú 123. jpessir þrettán stúdentar eru (rómv. talan táknar einkunn, hin stig) : Guðmundur Magnússon .............. 1 105 Oddur Jónsson..................... I 102 Bjarni þorsteinsson............... 1 98 Sigurður Hjörleifsson .............I 96 Klemens Jónsson................... I 96 Sigurður Briem.................... I 91 Pálmi þóroddsson ................. I 89 Valtýr Guðmundsson ............... I 89 Gísli Brynjólfsson ............... I 86 Brynjúlfur Kúld .................. I 86 Ólafur Ólafsson ................. II 83 Guðmundur Soheving .............. II 65 Mattías Eggertsson...............III 53 Guðmundur Magnússon hefir ágætisein- kunn. Hana hefir alls einn stúdent fengið áður frá Bvíkurskóla: Hallgr. Sveinsson dómkirkjuprestur. (Eptir ísafold). Hafísinn nú sagðr liggja alt suðr að Rit; gengið í land í Aðalvík á ísi af hafskipum. Hákarlaskip norðlenzkt yfir- gefið í ísnum; nýkomið hákarlaskip Herra Zoega að vestan. Nóttina milli 12. og 13. þ. m. varð vart jarðskjálfta hér í Rvík. Ruldi og norðanátt í gær og fyrrinótt. Svar til Suðra (Niðrl. frá bls. 8l). þ>á koma umsjónarmennirnir; en um þá og verk þeirra hefir svo margt ver- ið ritað bæði satt og logið, að við það skal ekki bætt hér, en þótt snurður væri á samkomulagi þeirra og pilta, „þá er það alt rektor að kenna því hann ber alla ábyrgðina" segir höfundr þessi, og því kemst hann loks að þeirri niðrstöðu, að það eitt fái bjargað skól- anum, að rektorinn segi af sjer embætt- inu! ! -— Dáindis laglegt resúltat. — Jeg vil nú setja sem dæmi, að kennarar eða umsjónarmenn vildu eitthvað það fram hafa er þeim virtist nauðsynlegt, en ýmsum meðal pilfa væri móti skapi,

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.