Þjóðólfur - 02.02.1884, Side 4
16
bás póstmeistara til hátíðabrigðis opinn
alt að 3 tímum eða svo þann daginn,
en ösin að þessum litla fjósbás svo
mikil, að þrátt fyrir lífs og litna háska
mun fjöldi fólks eigi fá bréf sín, jafn-
vel þau, er með póstum komu, fyrri en
ef það skyldi verða í dag, ef einhvern
tíma skyídi þá verða opnað. — 'það
hneyksli, sem orðið er að inni ólýsan-
legu, óumræðilegu póstafgreiðslu og
pósthúsleysi í Rvík má ekki lengr ó-
átalið ganga. Vér fyrir vort leyti
höfum hlífzt við það í íengstu lög, af
því að póstmeistarinn er sjálfr. að því
er vér framast vitum, góðmenni og
mannúðlegr maðr. En hvað dugar ait
það, þegar fólk á hér að búa við þau
ókjör, sem hvergi annarstaðar með'al
óviltra þjóða, í þessu efni ?
En vér skulum koma til þessa ýtar-
legar síðar.
— 1,2. þ. m. hefir hr. Nellemann
þóknazt allra-mildilegast að láta kon-
ung staðfesta :
Lög um bygging, ábúð og úttekt
jarða;
L. um breyting á nokkrum brauðum
í Eyjafjarðar og Vestrskaftafellspró-
fastsdæmum ;
L. um horfelli á skepnum.
— Vatnsfjörðr veittr sr St. Stephen-
sen í Holti. — þ>órðr Guðmundsen
leystr frá emb. eftirlaunalaust.
— Af merkismönnúm eru látnir
meðal annara: Vilh. Wiehe, nafnkunnr
leikari hjá Dönum. •{• 4. þ. m. — Um
sama leyti lézt í New York inn nafn-
kunni forvígismaðr frjálslyndra manna
á þ>jóðverjalandi Lasker þingmaðr. Var
á ferð í Ameríku.
— Frá Danmörku má þess helzt
geta, að klofning nokkur mun vera
komin í vinstri menn undir niðri, þótt
þeir láti það enn uppi, að þeir muni
fylgjast að enn í baráttunni gegn
Estrúps-ráðaneyti. Sýnilegt merki þessa
klofnings er það, að nú við áramótin
fóru þeir Edvard Brandes og Horup
úr ritstjórn „Morgunblaðsins11, en Berg
tók með sér aftr tvo Grundtvígs-sinna,
og það ekki nafnkunna menn áðr, í
ritstjórnina.
Brandes og Horup höfðu samið sig
og sinar skoðanir meir að alþjóða sið ;
en sjótideildarhringr Bergs alt þrengri
og danskari. í landvarnarmálinu mun
þá og hafa greint á, er Bergr mun
tilleiðanlegr til að efla liðskost og
landvarnir.
f>eir Br. og H. stýrðu (og stýra)
þeim armi fylkingar í liði vinstri
manna, er út veit að Norðrálfunni og
kallaðr er inn evrópeiski; en Berg
hinum arminum, er heim veit, og er
hann meir skipaðr Grundtvígs-sinnum,
hálfmentuðum lýðháskólalýð og því
uml., mest sveitafólki, sumu með poka-
brag nokkrum. I hinna liði eru eink-
urn yngri inenn inir bezt mentu meðal
þjóðarinnar, efnileg'ustu rithöfundar o.
s. frv.
í>að er bágt að gizka á, hvað til er
í þeim tilgátum, að Berg sé að ving-
ast við konung og hirðina, sem mun
meinlítið til Grundtvígs-sinna, en allilla
til „evrópeinganna11. og sé svo að því
komið, að konungr taki sér ráðaneyti
af flokki bæði Bergs-liða og inna
„óháðu“ (er klofnað hafa frá hægri
mönnum og hallast að vinstri). Eru
þeir til nefndir sem-ráðherraefni: Berg,
Klein og Holstein Hleiðru-greifi.
— Herra bóksali Björn Bjarnarson hef-
ir stofnað myndablað sem ,,Heimdallr“
heitir og koma á út í Höfn, tvöföld örk
á mánuði og kosta 3 kr. árgangrinn. í 1.
bl. ermynd af Holger Braohmann og þýð-
ingar á kvœðum eftir hann (eftir Hannes
Hafstein) og sögubrot eftir hann (þýtt af
Bertel porleifssyni). Skilst oss að Gísli
Brynjúlfson verði aðalstjóri blaðs-
ins með aðstoð ýmsra ungra landa þar í
Khöfn.
f Eftir fleiri ára vanheilsu og 7 mánaða
þjáningarfulla legu andaðist mín góða kona
Johanne Andrea, fœdd Knudsen, mánudag-
inn inn 17. þessa mánaðar, rúmra 66 ára.
í okkar 43 ára hjónabandi varð okkr 11
barna auðið, af þeim dóu 4 i cesku, en 7,
þar af 3 gift, eru fulltíða.
Litlahrauni, 22. desember 1883.
Th. (xuftmuiulsen.
■f- Kons. Símon Johnsen léztíkvöld.
AUGLÝSINGAR
A g e nt söges
En leveringsdygtig Fabrikant í S t ofhatte
Huer, Specialitet: Peltsvarer
í alle S lag s
söger en Agent. Billetter mkt. E. B. 20
med Opgivelse af Refcrencer modtager Ann-
once - Expeditionen ved G. L. Daube
& Go ILamburg. (c 89)
l r.
Góð ný cylinder-úr 16 kr.; dto, með
gullrönd 20 kr.; „Landmands“-úr 12 kr.
Stofu-úr frá 2. kr. 50 au. Alt ábyrg-
ist ég í 2 ár og sendi hverjum, sem
sendir mér borgum fyrir fram með
pósti.
260 S. Rasmussen,
Gammelmont 37, Kabenhavn K.
Selt óskilafé í Ölveshreppi haustið 1883 ‘
Hvít ær, tvævetr; mirk: hamarskorið hœgri’
hamars'kor., biti aft. v.— Hvitt "eldingslamb: stúfrtf
h.; sneiðrif. fr„ biti aft. v. — Hvitt gimbrlait‘b:
tvístýft aft., biti fr. h.; biti l'r. v,— Hvítur lambhrútr;
stúfr. h.; blaðst. aft., biti fr. v. — Hvítt geldingslafflh
Hamarskorið h.; tvístýft aft., hangfj. fr. v. — An^'
virði þessara kinda geta eigendr vitjað til undir'
skrifaðs að kosnaði frá slregnum til næstu lardag3,
Ölveshreppi, 16. jan. 1884.
24*] Jón Árnason.
Oskilakind seld í Grindavíkurhreppi haustf
1883: hvithnýflótt ær ; sýlt h.; sneitt og hi11
fr., hólbiti aft. v. — Réttr eigandi getr vitjað verð5
kindar þessarar að frá dregnum kostnaði, sé þa^
gjört fyrir næstkomandi fardaga.
Garðhúsum, 10. jan. 1884.
25r0 Einar Jónsson.
Til munaðarleysingjanna eftir mannskaða»D
er inn komið á skrifstofu þ. bl. og lagt i sparisjód1
Frá hr. Gisla Björnssyni á Bakka 5 kr.; frá hr'
Jóh. Zoega i Nýjabœ 2 kr.; frá ritstjóra þjóðóÚs
5 kr.
[það, sem inn kom við umburðaráskorun, er rit'
stjóri ísaf. og þessa bl. i sameiningu sendu út, er
talið í „ísafold11].
jjdjjjT” Fjallkouu-boðsbréfin eru svo
slælega endrsend, að vér verðum
fresta útkomu blaðsins fyrst um sinfl’
29r] Félag eitt í Reykjavík.
WílklrU5 á£æta „Highlands11
llö.Si. fi komið aftr. Eyþ.FelixsoU'
—7 ----------—---j
Inæstu fardögum fæst til ábúðar á AkrakotH
Álptanesi, bœjarhús með einú kýrgrasi og stór'
nm kálgarði; því fylgir mikil þangfjara, rekabeita
og beit fyrir skepnur, gðð lending 0. 11. Um skil'
mála er að semja við undirskrifaðan.
Breiðabólstöðum 17. janúar 1884.
Erlendr Erlendsson. 3ir]
Íhausl var mér dregin hvit gimbur I vetra með
mínu klára marki; gat hægra og stýft vinstrá
en hornamark stýft hægra (óglöggt) og gat vinstra-
Hver sem getr sannað eignarrétt sinn á þessari
kind semji við mig um hana eða verð hennar setú
fyrst.
Alviðru 18/„—83.
Árni Helgason. [32*
Proelama.
Með því hlutafélagsverzlunin her i bænuð1
er tekin nndir skiftameðferð sem gjaldþrotih
er hér með samkvœmt opnu bréji 4. jan. 1861
og lögum 12. apr. 1878 skorað á alla þá, V
telja til skulda hjá nefndri verzlun, að gefá
sig fram og sanna kr'ófur sínar innan árs oj
dags fyrir skiftaráðanda hér í bœnum.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavík,
h. 5. janúar 1884.
5r.] E. Th. jjónassen.
Eigandi og ábyrgðarm.: Jón Ólafsson, alþrt1,
Aðalstræti Nr. Q.
Prentaðr í prentsmiðju Jsafoldar.