Þjóðólfur - 08.01.1886, Side 4
8
xim> : c-, i c- i c- t c- i c- i ^
| STJÓRNARTÍÐINDI.jl
xÍbf°-H :=rH' T^"! --V ■) •$=■ -+■ í'eIx
Styrkur úr landssjúði
samkYæmt fjárlögunum fyrir 1884 og 1885.
10. gr. C 4.
Samþykktar tillögur amtsráðsins i norður- og
austuramtinu um að eptirnefndum búnaðar- og
framfarafjelögum verði veittur pessi styrkur
fyrir 1885:
Kr.
1. Búnaðarfjelagi Áshrepps 200
2. — Svínavatnshrepps . . 327
3. — Þorkelshólshrepps . . 149
4. — Sveinsstaðahrepps . . 126
5. — Torfalækjarhrepps . . 140
6. — Engihlíðarhrepps . . 100
7. — Seiluhrepps .... 73
8. — Staðarhrepps . . . 62
9. Jarðabótafjelagi Ripurhrepps . . . 68
10. Búnaðarfjelagi Vallahrepps .... 35
11. Framfarafjelagi Arnarnesshrepps . . 39
12. — Yxndælinga .... 17
13. — Oxnadals 11
14. Búnaðarfjelagi Bægisársóknar . . . 20
15. Framfarafjelagi Glæsibæjarhrepps . . 59
16. — Öngulsstaðahrepps 29
17. — Grýtubakkahrepps 31
18. Búnaðarfjelagi Ljósavatnshrepps . . 68
19. — Helgastaðahrepps . . 54
20. — Fljótsdalshrepps . . 44
21. — Hjaltastaðahrepps . . 25
22. — Eyðaþinghár .... 27
23. — Jökulsárhlíðar . . . 30
Samþykktar tillögur sýslunefndarinnar 1
Borgarfjarðarsýslu um að af 370 kr. styrk
handa sýslunni til eflingar búnaði (sbr. Stj.tíð.
f. á. B 17) megi verja 270 kr. til að kaupa
búnaðarverkfæri og 100 kr. til útsáðskaupa
(o: til frækaupa og kaupa á útsáðskartöplum
m. m.).
Reykjavík 8. jan. 1886.
Óáreiðanlegur póstur. Þingeyjarsýslupóst-
urinn, sem fór í sumar, sem leið, milli Grenj-
aðarstaðar og Yopnafjarðar, hefur gjört sig sek-
an í peningaþjófnaði. Peningar pessir, sem
hann hefur tekið, hafa átt að fara með póst-
unum og nema ekki fullum 900 kr. Meiri
hluti þeirra hefur þó aldrei komizt i hendur
póststjórnarinnar, þvi að menn hafa afhent
póstinum sjálfum mest af þessum peningum
milli brjefhirðingastaða og beðið hann að af-
x henda þá brjefhirðingamönnunum. Póstur þessi
heitir Kristján, er fátækur barnamaður; getur
því ekki borgað þetta sjálfur. Að því, er
snertir peninga þá, sem eigi hafa komizt í
hendur póststjórnarinnar, þá þarf landssjóður
ekki að borga þá. En þeir, sem hafa sent þá,
verða að bíða tjón af því. Menn ættu jafnan
að vera varkárir með peningasendingar, og ef
þær eiga að fara með póstum, skyldi helzt ekki
afhenda þær öðrum, en hrjefhirðingamönnun-
um eða póstafgreiðslumönnunum sjálfum.
Úr Húnavatnssýslu er oss skrifað 2. des.
f. á.: „Tíðin hefur verið stilt og góð nú um
tima. Það hlánaði um miðjan fyrra mánuð,
og kom upp góð jörð, en þó er snjór mikill
til dala og fjalla“.
Úr Borgarfirði er oss skrifað 24. f. m.:
„Það, sem af er vetrinum tíðast landátt; snjór
lítill og sjaldan staðið viku lengur. Kigningar
miklar. Frost mest mánudaginn 7. þ. m. 12° R.
Fullorðnu fje eigi gefið enn; en lömb víðast
tekin í fyrstu viku jólafóstu. Nær snjólaust
nú. Verzlun engin. Tveir kaupmenn (nýir)
farið um koll. Lítur út fyrir bjargarskort og
bágindi. Heilsufar fremur gott“.
Aflabrögð. Á milli jóla og nýárs höfðu
menn aflað 20—30 i hlut af ísu og stútungi í
Leiru- og Garðsjó. Þegar þar var seinast róið,
Iiöfðu menn þó aflað lítið og sumir ekkert.
Tíðarfar hefur verið slæmt þessa fyrstu viku
ársins; ýmist norðanhvassviður með talsverðu
frosti, eða lygnt veður með mikilli fannkomu.
Mikill snjór kominn, og mun jarðskart til sveita
sakir snjóþyngsla.
Jólin voru rotuð hér á þrettándakveld með
brennu nálægt skólavörðunni og blysför og
álfadans, sem skólapiltar hjeldu suður á tjörn-
inni.
Ljóðmæli eptir Gísla Thorarensen eru
nýlega komin út á kostnaá Einars Þórðarsonar.
Mun seinna verða minnzt á þau hjer i blaðinu.
AUGLÝSINGAR
f samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.)
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung (lálks-lengdar. Borgun út í hönd.
1——........................ .............
Til iilmeiinings!
Læknisaðvöruu.
Þess hefir •verið öskað, að ég segði álit mitt um
„bitters-essents", sem hr. C. A. Nissen heflr bflið
til og nýlega telrið að seija á Islandi og kallar
Brama-lífs-essents. Eg hefi ltomizt yfir eitt glas
af vökva þessum. Ég verð að segja, að nafnið
Brama-lifs-essents er mjög villandi þar eð essents
þessi er með öllu ó/i/rrimim ekta Brama-lifs-elixír
frá hr. Mansfeld-BúUner& Lassen, og því eigi getr
haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn ekta. Þar eð
ég um mörg ár hefi haft tækifæri til að sjá áhrif
ýmsra bittera, en jafnan komizt að raun um, að
Brama-lífs-elixir frá Mansfeld-Búllner & Lassen
er Jcostabeztr, get eg ekki nógsamlega mælt fram
með honum einxrni, umfram öll önnr bitterefni,
sem ágætu meltingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. jflll 1884.
E. J. Melchior, iæknir.
Einkenni ins óekta er nafnið C. A. Nissen á glas-
inu og miðanum.
Einkenni á vorum eina ekta Brama-lífs-elixír eru
firmamerki vort á glasinu, og á merki-skiidinum á
miðanum sézt blátt ljón og gullhani, og innsigli
vort MB k L í grænu lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir bfla til inn verðlaunaða Brama-lífselúvir.
Kaupmannahöfn. [4r.
......... ii
_A_fgreiðslustofa Bókincnntnfjelag.sins. Fyr-
ir góðvild forstöðnnefndar Landsbókasafnsins
hefur Bókmenntafjelagið (Reykjavíkurdeldin)
fengið húsnæði fyrir hækur sínar og skjöl o. s. frv.
í tveimur herhergjum safnsins í Alþingishúsinu,
austurendanum, og verða viðskiptamenn fjelags-
ins afgreiddir þar kl. 1—2 á hverjum laugar-
degi fyrst um sinn.
Forseti Beykjavíkurdeil'darinnar.
Xð eina óbrig-ðula ráð, til að verja tré fúa,
hvort heldr tréð er undir beru lofti eða grafið
í jörð, er að strjúka á það
CARBOLINEUM;
þvi þá þolir tréð bæði þurt og vott.
2 pd. Carbolineum nægja á 15 □ al. af tré.
Kostar 30 au. pd. (minna í stórkaupum) og
fæst í Reykjavík hjá [358r
H. Tli. A. Thomsen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónssou, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólf sstræti.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.