Þjóðólfur - 05.03.1886, Side 1
Kemur út á föstudagsmorgna.
VerÖ árg. 4 kr. (erlendis 5 kr.).
Borgist fyrir 15. júlí.
ÞJOÐOLFUR
Uppsögn (skrifleg) bundin viö
áramót, ógild nema komi til út-
gefanda fyrir 1. október.
XXXVIII. árg.
ReykjaTÍk, fðstudaglnn 5. marz 1880.
Nr. 10.
POLITIK
Þingmannakosningar.
VII.
Þorkell Bjarnason
hefur komið vel fram að mörgu leyti
á þingi, og er velviljaður. Að vísu
er hann heldur á móti lagaskóla (Alþt.
1885 B 1186. d.), en samt sem áður
mundum vjer mæla með honum sem
þingmanni, ef hann væri með stjórn-
arskrárbreytingum. En sakir þess, að
hann var á móti þeim á siðasta þingi,
getum vjer með engu móti lagt það
til, að hann sje kosinn á þing i þetta
sinn.
Þorsteinn Thorsteinsen
J
er og einn þeirra, sem ætti eigi að
endurkjósa. Hann var á móti stjórn-
arskrárbreytingum; hefur heldur ekki
komið sem bezt fram í sumum öðrum mál-
um, t. a. m. launamálum á þingi 1883,
er hann var á móti lækkun á launum
embættismanna (Alþt. 1883 B 339. d.).
Hann hefur og heldur verið á móti lög-
gildingnýrra verzlunarstaða, og yfirhöf-
uðliggur lítið eptir hann sem þingmann.
Vjer ætlum nú ekki beinlinis að
leggja á móti fleirum hinna fyrri þing-
manna, en þessum 6, er vjer höfum
nú talað um. En áður en vjer skilj-
umst við þá, skulum vjer geta þess,
að vjer játum fúslega, að þeir hafi
nokkra kosti til að bera sem þing-
menn, þótt vjer að öllu samanlögðu
leggjum það til,- að þeir sjeu ekki end-
urkosnir.
Bankinn.
Eptir Eirik Magnússon, M. A.
—:o:—
(Framh.). Þá komur til athugunar
3., hvers konar seðlar það eru, sem
bankinn verður þannig að gefa út.
Það eru óinnleysanlegir landssjóðsseðlar,
sem hvorki banki, nje landssjóður, eins
og að framan er sýnt, hafa nokkra
trygging fyrir, er banki byrjar. Þetta
vita landsmenn, og þetta vita kaup-
menn. Seðlarnir ganga fyrir fullt á-
kvæðisverð í opinber gjöld. (En vís-
dómslega er því svo niðurraðað, að
embættismenn þurfa ekki að taka þá
í laun sín, og þess vegna taka þá
heldur ekki i þau1). (xjörum nú að
menn fali seðlana að lánum úr bank-
anum, eins og lögin ætlast til. Þá
verður rekspölur þeirra þessi: Þeir
koma aptur til kaupmanna upp i skuld-
ir landsmanna. Kaupmenn eiga að-
ganginn að bankanum. Þvi að eptird.
grein bankalaganna má skipta seðlum
landssjóðs fyrir aðra seðla, sem vífi-
lengjulaust þýðir: fyrir danska seðla,
eins og segir sig sjálft, úr því íslenzk-
ir seðlar hvorki eru gj aldgengir í Dan-
mörku, nje verður skipt fyrir gull í
bankanum ; en kaupmenn verða að
gjöra sjer iir þeim, þann gjaldeyri, sem
gangi þar sem þeir borga skuldir og
kaupa vörur sínar. Þvi að einhver vit-
ur ráð varð að hafa til þess, að seðl-
arnir yrðu kaupmönuum ekki svo sem
allt í einu einskis virði2. Hvernig á
*) Það er lærdðmsríkt og vel þess vert, að
það sje tekið t.il alvarlegrar íhugunar, að sið-
an peningar hafa risið svo í verði, að þeir eru
V, dýrari en fyrir nokkrum árum, í Reykjavík,
að minnsta kosti, eins og sjá má enda af vaxta-
hækkun af lánum landssjððs. og laun emhætt-
ismanna þvi eru orðin þriðjungi tiærri, í raun-
ipni, en fyrri, að jafnri tiltölu, — að síðan,
segi jeg, hafa hálaunaðir embættismenn orðið
áfjáðari en nokkru sinni fyrri til launabóta.
En með hverju hafa. jicir endurgoldið örlæti
laudsmanna ?
2) Það er í rjettu hlutfalli við allan vísdðm
og ráðvendni þessara laga, að bankinn skuli
sðpa jafnt og þjett gulli sínu til Danmerkur
fyrir danska seðla, en landsmenn fái hvergi
nú bankinn að nálgast þessa aðra, þessa
dönsku seðla ? Hann getur ekki feng-
ið þá fyrir neitt, nema gull; það er
auðvitaður hlutur. En hvar á hann
að fá það gull? Ilann byrjar gullaus.
Landssjóður hefur ekkert gull aflögum,
en vantar það, til að geta staðið í skil-
um. Og þó að gull fengist, hvaða veð
getur bankinn sett fyrir láni? Alls
ekkert, nema lánstraust sitt (credit), og
hver lánar þeim banka upp á láns-
traust, sem engan tryggingarsjóð á?
Enginn maður með viti. Bankanum
verður lifsómögulegt að útvega sjer
neina danska seðla fyrstu ár tilveru
sinnar, — o: þau árin, sem mest reið
á að hann stæði öruggur, meðan hann
væri að koma undir sig fótunum með
samböndum innan lands og utan. Kaup-
menn geta því ekki fengið íslenzku
seðlunum skipt í honum. En í lands-
sjóði fást skiptin ekki fyr, en bank-
inn er hruninn. Þetta sjá nú víst
allir að er ekki ráðgjört út í loptið.
Hvað verður nú úr gjaldgengi íslenzku
seðlanna ? Kaupmenn taka þá; það
mega menn eiga víst. En fyrir hvað ?
Fyrir það, sem þeir geta fengið við-
stöðulaust fyrir þá. Nú er það svo
sem ekkert. Svo þá seðla, sem þeir
taka, fella þeir að sama skapi, sem þeir
hafa skaða af að taka þá; því að það
er þó til ofmikils ætlazt,að kaupmenn
skuli liggja árum saman með þann
gjaldeyri ófeldan í verði, sem þeir
geta ekki með neinu móti gjört sjer
fje úr, fyr en seint og um síðir, og
það þó komið undir kasti kringum-
stæða. Að þeir taki seðlana með stór-
kostlegum afföllum, liggur því í hlut-
arins eðli, og er kaupmönnum ekki
láándi, — mönnum, sem lifa á því, að
gnll fyrir j)á, fyr en bankastjðrnin er búin að
ganga gegn um fjarþrotarjett og tveir yíirrjett-
ardómarar eru orðnir fallentar! Geta þeir ver-
ið dómarar úr ])ví?