Þjóðólfur


Þjóðólfur - 09.04.1886, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 09.04.1886, Qupperneq 1
Kemur út' á föstudags- morgna. Verð árg. 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15.júli. ÓÐÓLFUR. nppBÖgn(8krifleg) bund- in við áramót.ögild nema komi til (itgef. fyrir 1. oktðber. XXXYIII. árg. Reykjayík, föstudaginn 9. apríl 1886. Nr. 15. s? % 4 BOKMENNTIR. 1 .ý. Jf. -f- -f- -f- Ph. Sehweitzer, Gtesehiclite der skandi- navisehen Litteratur. I. Theil: Ge- schiclite der altskandinaviRchcii Litte- ratur von den íiltesten Zeiten bis /.ur Reformation. (Bókmenntasaga Norður- landa. I. hluti: Saga fornnorrænna hók- mennta frá, elzta tíma til siðahótarinnar). Leipzig. Bls. XXIII. -f- 226. 8. Bók pessi kom út snemma á pessu ári, og kom hingað til landsins með póstskipinu síðast. Höfundur hennar, dr. phil. Philipp Schweitzer, er mörgum kunnur orðinn hjer á landi, hæði síðan hann ferðaðist hjer 1883 og gaf út fyrir rúmu ári hók um ísland, sem Þjóðólfur hefur getið um (1885, hls. 186.). Hann er á bezta aldri, tæplega fertugur. Dr. Sohweitzer er skáld og hefur einkum lagt fagurfræði (æsthetik) fyrir sig; er pví gaman að sjá, hvernig hann lítur á hókmenntir vorar, einkum ]iar sem fag- urfræðingar hafa svo lítið ritað um }>ær áður. Það hafa helzt málfræðingar gjört og þeir skoða þær með öðrum augum, opt í gegnum orðmynd- ir, stafsetning o. s. frv. Það er kunnugt, hve mjög bókmenntir ís- lendinga háru af hókmenntum annara þjóða á Norðurlöndum og víðar á miðöldunum; einkum sköruðu ]ieir fram úr í skáldskap og söguvís- indum. Af þessu tvennu er ]>ó sagnafræðin á hærra stigi, ]>ví að um alla fornöldina og mið- öldina á engin }>jóð slík sögurit sem vjer, nema Grikkir og Rómverjar. Aptur stendur skáld- skapur vor eigi skáldskap Grikkja eða Róm- verja á sporði. Hjá oss er enginn sjónleika- kveðskapur, hjá Grikkjum hinn ágætasti, hjá Rómverjum töluverður. — Prændur vorir á Norðurlöndum hafa eins og fundið til andlegr- ar fátæktar forfeðra sinna, en auðlegðar for- feðra vorra; þess vegna hafa þeir, einkumNorð- menn og Danir — Svíar að kalla ekki —, vilj- að eigna sjer sem mest af bókinenntum vorum og hafa heiðurinn af þeim. Þó eru heiðarleg- ar undantekningar einkum hjá Dönum, sem eigi hafa verið eins fastir á því, að ýms ís- lenzk rit væru dönsk, eins og Norðmenn að þau væru norsk, nje heldur liafa þeir viljað eigna sjer eins margt. Þjóðverjar hafa heldur eigi í öllu verið sem sanngjarnastir við oss; hefur það stundum ef til vill komið eins mikið af því, að hlutaðeigandi rithöfundar hafa eigi verið nógu kunnugir til að hitta hiðrjetta, eins og þeir hafi viljað eigna öðrum eða þjóð sinni það, sem vjer eigum. Þess þarf varla að geta, að góðar uudantekningar eru og frá þessu með- al Þjóðverja, og er þá sjerstaklega skylt að nefna hinn ágæta vin vom, dr. Konrad Mau- rer, sem má heita faðir alls fróðleiks í Þýzka- landi um ísland. Þegar vjer minnumst þessa, hlýtur það að vekja enn meiri athygli vora, er vjer lítum andrikan rithöfund setjast á hekk með slikum mönnum sem dr. K. Maurer, Th. Möhius, dr. C. Rosenherg. Dr. Schweitzer lætur yfir höf- uð að tala hvern eiga það, sem hann á. Hann segir hreint og heint, að „undirlendið (þ. e. frjósamasta landið) í andlegu tilliti var áþessu tímahili (þ. e. 1120—1520) hvorki Danmörk, nje Svíþjóð eða Noregur, heldur ísland; er þð enní dag optast nær átt við þau þrjúein, þá er talað er um Norðurlönd“ (hls. 131). „ísland hefur eigi að eins tekizt forystu Norðurlanda á hend- ur í skáldskap, í sögufrásögn, heldur einnig í lagasetningu og sagnaritun11 (174). Hann við- urkennir og ágæti sögurita vorra þar sem hann segir, að Evrópa átti þá engin sögurit, sem jafnazt gæti við vor hvorki að djúpskygni eða frásagnarlist (134.). Þessi bókmenntasaga Norðurlanda kemur út sem 8. hindi af bókmenntasögu mannkynsins, þar sem hókmenntir á hverri tungu stórþjóð- anna (t. a. m. ensku), eða skyldum tungum smáþjóðanna (t. a. m. íslenzku, norsku, dönsku og svensku) eru sagðar hverjar í heild fyrir sig. Titill ritsins er: Geschichte der Weltlittera- tur in Einzeldarstdlungen. Margir rithöfundar vinna að því. Dr. Schweitzer skipar efninu eptir aldri eins og gert er i þessu riti (bls. VII.). Það þykir nú góð regla í fagurfræðis- ritum og bókmenntasögum, þar sem því verður áreiðanlega viðkomið, en er til fornbókamennta vorra kemur, er mikið við ]>að að athuga. Hjer stendur sjerstaklega á með t. a. m. þær sögur vorar, sem gerðust fyr en þær eru ritaðar; líkt er um Eddukvæðin. Nokkuð öðru máli væri að gegna, ef verið væri að lýsa menningu þjóð- arinnar í öllum greinum, i menningarsögu, þó að farið væri eptir aldri athurðanna og talað væri um t. a. m. Njálu í sögu 10. og 11. ald- arinnar. Það er satt, sem Benedikt Gröndal hefur einu sinni sagt og eigi er vert að gleyma: „Sögur og kvæði eru, engin hókvisi (Litteratur) fyr en búið er að rita hækurnar". En hjer er eigi rúm til þess að fara meira út í þetta eða skipting efnisins yfir höfuð nje einstök atriði. Að eins skal þess getið, að eigi er ástæða til að telja byggingarár íslands 875 (hls. 16.), nema að leiða rök að því, þar sem árið 874 er talið hið rjetta. Úthreidd þekking á norrænum bókmenntum er ekki á Þýzkalandi. Þjóðvefjum er likt far- ið í því og hinum höfuðþjóðum hins menntaða heims, þær læra einkum að þekkja sjálfa sig og hver aðra, og fornu menntunina fyrir sunn- an sig. Að eins einstaka fræðimenn leggja stund á, að kynna sjer það, sem smáþjóðirnar hafa að hjóða. Hvað Norðurlönd snertir þá hafa einstaka menn meðal Þjóðverja lagtstund á norræn vísindi1, en það er mjög sjaldgæft meðal Englendinga og Frakka, að jeg eigi tali um hinar höfuðþjóðirnar, enda má svo að orði kveða, að flestur fróðleikur sje nú gróðursettur á þýzka tungu. Danskur maður, Pr. Winkel Horn, er hinn eini, sem hefur áður ritað bók- menntasögu Norðurlanda (gefin út i Leipzig 1880), en sú hók hefur eigi náð úthreiðslu á Þýzkalandi. Aptur eru mikil líkindi til að þessi bók nái útbreiðslu á Þýzkalandi, bæði af þvi að hún er partur úr ágætu verki, og svo einkum af því hún er skemmtilega skrifuð. Hún er eigi tómir upptalningar, heinagrind ein, held- ur í heztu holdum, ef svo má að orði kveða. Það er eigi gjört sjer far um að telja upp svo margt, ómerkilegt sem merkilegt, heldur er sagt þeim mun hetur frá því, sem er merkast. Það er því gleðilegt fyrir oss íslendinga, að sá Þjóðverji, sem verður fyrstur til þess eins og að draga upp skýra mynd handa löndum sínum af bókmenntum Norðurlanda frá upphafi þeirra og til vorra daga, lætur oss njóta sann- mælis, en gengur eigi svo að segja fram hjá oss, af þvi vjer vorum — mjer liggur við að segja — kviksettir um langan aldur, og frænd- þjóðirnar fóru þá fram úr oss. Hann dæmir oss öndvegissætið á meðan vjer eigum það, og jeg er líka viss um, að íslendingar —, sem eins og annað kurteist fólk þakka fyrir, þá er þeim er boðið sæti —, munu minnast þess lengi með þakklæti. Rvik 28. marz 1886. Bogi Th. Melsteð. Um alþýðumenntun eptir skólastjóra Jón Þórarinsson. —:o:— II. Eins og jeg neita því með öllu, að ástæða hafi verið til að láta alþýðu- menntunar-málið afskiptalaust á sein- asta þingi íyrir þær sakir, að almenn- ') Um íslenzkar bókmenntir á Þýzkalandi, sjá Þjóðólf 1880, 32. ár, 12. blað, neðanmáls.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.