Þjóðólfur - 23.04.1886, Side 4
68
frumy. síðasta þings, en nokkrir á móti (horfðu
i kostnaðinn). Binrðma álit fundarins, að
þingið í sumar ætti að taka Fensmarksmálið
til meðferðar.
h-|MOÐ.|^
Sumarpáskar hafa á næstl. 130 árum verið
22/4 1764, 24/4 1791 og 1799, 22/4 1810,1821 og
1832, 23/4 1848, 24/4 8159, 25/4 1886, næst verða
þeir 1905. En Góupáskar hafa verið 22/3 1761,
23/3 1788, 22/3 1818, 23/3 1845 og 1856; næst
verða þeir 1902. Bptir þjóðtrúnni á að vera
góður vetur, þegar Góupáskar eru. en slæmur
vetur, þegar sumarpáskar eru; en það hefur
ekki ævinnlega farið eptir því. (Hn m A).
íslendingafjelögrin i Kaupmannahöfn, Is-
lendinga fjelag hið meira og Tryggva fjelag
sameinuðust í vetur í des. með þeim kostum,
að Tryggvi yrði forseti í hinu sameinaða fjel.
i 2 fyrstu mánuðina, en síðan í 2 mán. ein-
hver, sem verið hefði i ísl.fjel. hinu meira, er
þetta sameinaða fjel. var sniðið eptir. Þegar
Tr. gat ekki lengur verið forseti og forseta-
skiptin urðu eptir þessa 2 mán., fjellst honum
svo mikið um það, að hann sagði sig úr fje-
laginu, en gat þess þó áður „að hann væri til-
leiðanlegur til að vera kyrr í fjelaginu sem
forseti, ef fjelagsmenn hjeldu, að það hefði
mikla þýðing fyrir fjelagið1'. En það taldi
enginn.
Svo vildi önnur mæða til enn tilfinnanlegri
fyrir Tryggva, að honum auðnaðist ekki að
verða konungkjörinn þingmaður í stað bisk-
upsins.
Skyldi honum ekki segja fyrir að því, er
snertir kosningar framvegis?
Töfrahöll Edisons. Á nýársnóttina í vetur
var haldin mikil veizla i hýbýlum Edisons, sem
mikið hefur verið rætt um; því þar vorumenn
á ýmsan hátt minntir á, að þeir voru staddir
hjá þeim manni, sem fremur öllum öðrum kann
að beita rafmagninu til verklegra nota. Þeg-
ar gestirnir snertu útihurðarsnerilinn heyrðist
mesta háreysti; þegar þeir stigu á þresköldinn,
kviknuðu mörg gasljós í ganginum; þegarþeir
voru að hengja upp yfirfrakkana og hattana.
tóku stórir bustar þegar að núa rykið af stig-
vjelunum þeirra. Það var sem allt væri gjört
með göldrum; hnífar og gaflar spúðu eldgneist-
urn, þegar þeir snertu diskana, en þó brá gest-
unum mest við, þegar líkneski, sem stóð á borð-
inu tók allt i einu að renna til augunum og
mæla fyrir skálum (það var nefnilega útbúið
með ,,fonograf“). Þegar klukkan sló 12 slokkn-
uðu öll gasljósin í matsalnum, nema að eins
eitt, matborðið hvarf og tvær failbyssur komu
í ljós, sem strax tóku að fagna hinu komandi
ári með skothríð. Þega,r gestirnir fóru búrt
um nóttina, glóði öll töfrahöll Edisons i raf-
magnsljósaljóma.
íbúatalan í Lundúnaborg var við síðasta
manntal, er fór fram i vetur, 4,537,221.
Fangaprjedikari nokkur byrjaði prjedikun
sína fyrir föngunun með þessum orðum: „Það
gleður mig, að jeg hef svo marga áheyrendur“.
Hestur á skautum. í Boston í Ameriku er
hestur, sem rennir sjer á skautum, og tekst
það allfimlega. Hann hefur verið i 9 mánuði
að læra það, og eins og nærri má geta, hefur
kennari hans orðið að taka á þolinmæðinni, því
klárinn var nokkuð tornæmur á þessa íþrótt,
en þó tókst það svona á endanum.
Kjörskrá yfir þá, sem hafa eða ,fá kosning-
arrjett til alþingis hjer í bænum frá 1. júlí þ.
á. til 30. júní 1887, liggur til mánaðarloka
frammi á bæjarþingsstofunni. Með því að
mörgum er sleppt, sem þar eiga að standa,
ættu allir kjósendur sem fyrst að gá að, hvort
þeir standa þar, og fá leiðrjetting á því, sem
skakkt er.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd.
‘Supplement til islantlske Ordlböger’
eptir rektor Jón Þorkelsson er til sölu. Rit-
stjóri ávísar.
M
*pH
cij
S5
Œ>
tí
Q
tí
cr;
w
o
cc
h
o
o
o
o
h
W
Q q
PQ
H-< bD :0 oS
Z ¥ 5C o >
o o 0 u ’Íh
< <2 B 0
q Ö 5JD <D bX) bc :0 nd
2 s 0 a *s
o r* -*j a
u cð <& • M bD ?
1 & þ :©
w *>o bC H £ 'r£ m cð C3 •s S7
o W 0 2 bcp^ •3 .«3
£ JZÍ bc & © *o '3 g
<J -0* m p-i s=s g :0 Ö bB m c-° <u O
q q Þ W & _ P bC r/T 2^ <0 e0 Ö 'S 0 rfí 0 '3? M
cn khH eð
O æ qi r/2 • Þs O e4H P*
m cð o 'Cð 3>
b£)
'öj •
s
o
>2
cð
a
3
Ö
3
T3
P-c
a>
>
co
d>
ns
S-c
PQ
O-c
hn
t-h
o
d
M
•d
.73
>
a
a>
A
-3
cS
-O
a
ö
Til athugunar.
Vjer undirskrifaðir álítum það skyldu vora
að biðja almenning gjalda varhuga við hinum
mörgu og vondu eptirlíkingum á Brama-lífs-
eleodr hra. Mansfeld-Búlner & Lassens, sem
fjöldi fjárhuga kaupmanna hefur á boðstólum;
þykir oss því meiri ástæða til þessarar aðvör-
unar, sem margir af eptirhermum þessum gera
sjer allt far um, að líkja eptir einkennismiðan-
um á egta glösunum, en efnið i glösum þeirra
er ekki Brama-lífs-elixír. Vjer höfum um lang-
an tíma reynt Brama-lífs-elixír, og reynzt hann
vel, til þess að greiða fyrir meltingunni, og.til
þess að lækna margskonar magaveikindi, og get-
um því mælt með honum sem sannarlega heilsu-
sömum bitter. Oss þykir það uggsamt, að þess-
ar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið, sem
frumsemjendurnir veita þeim, úr því að þeir verða
að prýða þær með nafni og einkennismiða al-
þekktrar vöru, til þess að þær gangi út.
Harboöre ved Lemvig.
Jens Christian Knopper. Tliomas Stausholm.
C. P. Sandsgaard. Laust Bruun.
Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruun.
Kr. Smed Rönland. I. S. Jensen.
Gregers Kirk. L. Dahlgaard Koklcensberg.
N. C. Bruun. L. P. Emtkjer.
K. S. Kirk. Mads Sögaard.
L. C. Paulsen. L. Lassen.
Laust Chr. Cristensen. Chr. Sörensen.
N. B. Nielsen. N. E. Nörbg.
Eptir áskorun frá mörgum kjósendum í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu auglýsist hjer með, að
fundur verður haldinn í þinghúsi Garðahrepps
i Hafnarfirði laugardaginn 15. mai næstkom-
audi, til að ræða um kosningar þær til alþingis,
er fram eiga fara i júnímán. næstkomandi;
skora kjósendurnir á þá, sem ætla að bjóða sig
fram til kosningar i kjördæminu, að mæta á
fundinum eða senda brjeflega yfirlýsing á fund-
inn, er verður settur ofannefndan dag, kl. 11
f. hádegi.
Görðum 16. apríl 1886.
Þórarinn Böðvarsson.
Seldar óskilakindur í Lundareykja-
dalshreppi liaustið 1885.
1. Hvitur lambhrútur, mark: biti fr. h.; tví-
rifað i stúf v.
2. Hvít gimbur með sama marki.
3. Hvítur geldingur, m.: heilrifað, hnífsbragð
apt. h., sýlt v.
4. Hvít gimbur, m.: heilhamrað h.; stýft v.
5. Hvítur geldingur, m.: blaðstýft fr. h. ; fjöð.
fr. 2 fjaðrir apt. v.
Rjettir eigendur geta fyrir lok næstkomandi
júnimánaðar vitjað hjá undirskrifuðum verðs
ofannefndra kinda, að frádregnum fundarlaun-
um og öðrum kostnaði.
Oddsstöðum 1. febr. 1886.
Arni Sveinbjarnarson.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þoi'leifur Júnsson, cand. phil.
Skrifs tofa: á Bakarastíg við hornið á Ingólf sstræti.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.