Þjóðólfur - 14.05.1886, Qupperneq 3
79
frumritinu, en þann sem er, en þá hefði hann
átt að taka breytingar sínar inn í enska text-
ann, því ella ruglar slikt lesendurna, einkum
þá, sem kynnu að nota bókina, til að læra af
henni ensku. Hjer skulu tilfærð fáein dæmi,
þar sem þýðingin er ekki nákvœm : Á hls. 3
stendur: „sem östeðja“ ■ hvað þýðir þetta orð?
erþað lýsingarorð eða nafnorð? En hjer hefur
velsæmistilflnning liklega aptrað þýð. frá að
þýða orðrjett (á ensku: „as an unstaunched
wench“ sem óþarfi er að vera að þýða). Á
sömu bls.: „og með munninn kaldan“ (á ensku:
„must our mouths he cold?“ = verða (hljóta)
munnar okkar að verða kaldir?). Á sömu bls.:
„Hávaöi úti fyrir“ (áensku: „A confused noise
within“ = hávaði og ys inni fyrir; sbr. bls.
18: „fyrir utan“ i ensk. „within“, sem auð-
sjáanlega er rjett eptir sambandinu). Á hls.
83: „Og á leðurblökum frí ríð um sólarsetur
hlý“ (á e.: „On the bat’s back I do fly after
summer merrily“ = Þegar sumarið er liðið (o:
á haustin) flýg jeg með kátínu á baki leður-
blökunnar). Hjer hefur þýð. viljað lesa „sun-
set“ i stað „summer“ (sem einn Sh.-fltg., Theo-
báld, hefur breytt svo), en þá átti hann að taka
þá breytingu upp i enska textann.
J. St. & V. G. (Niðurlag).
Herra Jón Ólafsson hefur i brjefi til Borg-
firðings (í síðasta nr. Þjóðólfs) farið nokkrum
orðum um mig sem þingmannsefni. Dóm lians,
eða rjettara sagt spár hans, um mig, læt jeg
f eiga sig, en vil að eins gjöra þá athugasemd,
að orðum minum á Goodtemplarafundi í vetur,
þar sem rætt var um að byggja hús handa fje-
laginu, er fyrir misminni og ranga skýring,
snúið upp i stórpólitiska setningu, sem jeg
kannast ekki við sem mína.
Reykjavík 12. mai 1886.
Þórhallur Bjarnarson.
Reykjavík 14. mai 1886.
Bðkmeuntafjelagið. Á fundi Hafnardeild-
arinnar 30. marz var málið um afnám þeirrar
deildar (heimflutningsmálið) tekið fyrir. Nefnd
sö, er deildin hafði kosið til að ihuga málið,
hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að þegar um
afnám annarar hvorrar deildarirnar sje að ræða,
þá verði eigi farið eptir reglunum fyrir breyt-
ingu á lögum fjelagsins, heldur þurfi samþ.
•dutaðeigandi deildar, til þess að afnema hana.
Auk þess er tekið fram i nefndarálitinu, að það
væi'> mjög óheillavænlegt fyrir fjelagið að af-
nema deildina. Fundurinn fjellst á þetta og
vísaði málinu frá með 30 atkv. móti 7; 4
Steiddu ekki atkv.
Embættismenn fjelagsins- voru kosnir: for-
s®tí Ólafur Halldórsson (varaf. dr. F. Jónsson),
íjehirðir kaupm. J. Guðmundsson (varafjeh. H.
A- Clausen), skrifari stud. Valtýr Guðmundsson
(varaskr. stud. G. Brynjólfsson), hókavörður
stud. Stefán Stefánsson (varabókavörður stud.
Kl. Jónsson).
Búnaðarfjelagið í Svínavatnshreppi hjelt
aðalfund sinn í Stóradal síðastliðinn 23. nóv.
Forseti, dbrm. Erlendur Pálmason í Tungunesi,
las fyrst upp ávarp til fundarmanna og minnt-
ist fyrst með söknuði hins látna meðlims fje-
lagsins, próf. Jóns Þórðarsonar á Auðkúlu, er
jafnan hefði styrkt fjelagið með ráðum og dáð.
Síðan fór hann nokkrum orðum um aðaltilgang
fjelagsins og framkvæmdir þess síðastl. ár;
hvatti fjelagsmenn til framhalds við jarðabæt-
ur og tók sjerstaklega fram að auka allan á-
hurð, „því að án nægilegs áburðar yrði tún-
ræktin takmörkuð og gæfi ekki fullkominn arð“.
1. Var lagður fram reikningur fjelagsins árið
1884—85; átti fjelagið í sjóði í fardögum 1885
2393 kr. 95 a. Til endurskoðara reikninganna
voru kosnir Jón Pálmason i Stóradal og Guðm.
Helgason á Svinavatni.
2. Samkvæmt framlagðri skýrslu yfir unnar
jarðahætur, höfðu verið unnin 1174 dagsverk
að jarðabótum i fjelaginu síðastl. ár. Af þvi
höfðu búfræðingar unnið 200 dagsverk, en án
búfræðinga höfðu fjelagsmenn unnið 974 dags-
verk. Gat forseti þess, að þótt hvert dagsverk
væri ekki metið meir en 2 kr. 50 a., þá næmi
öll jarðabótavinnan 2935 kr. að minnsta kosti.
3. Skýrsla um gripa- og heyjaskoðun veturinn
1884—85 var upplesin. Kaus fundurinn 3
menn til að ákveða verðlaun eptir skýrslunum
og öðrum atvikum fyrir sauðfjár- og nautgripa-
hirðing. Verðlaunin hlutu Jón Pálmason í
Stóradal fyrstu verðlaun, Pálmi Jónsson á
Syðrilöngumýri önnur verðlaun, Steingr. Helga-
son á Svínavatni þriðju verðlaun, og Sigriður
Jónsdóttir á Eiðsstöðum fjórðu verðlaun.
4. Var samþykkt að halda búfræðing næsta
sumar, sem að undanförnu. Var forseta falið
að ráða búfræðinginn fyrir 22 kr. um vikuna
með hestum og verkfærum til plægingar; sömu-
leiðis að ráða mann með búfræðingnum mót
sanngjarnri borgun. Skyldu þeir vinna að
jarðabótum frá þvi jörð væri þýð orðin til
rjetta.
5. Var samþykkt að halda áfram gripa- og
heyjaskoðun í vetur hjá fjelagsmönnum. Voru
til þess kosnir Ingvar Þorsteinsson á Sólheim-
um og búfræð. Jón Hannesson og til vara Jón
Jónsson á Hamri.
6. Embættismenn fjelagsins voru kosnir: for-
seti Erl. Pálmason (endurkosinn), skrifari sjera
Stefán M. Jónsson, sem þá gekk i fjelagið, fje-
hirðir Jón Jónsson í Stóradal, varaforseti Jón
Pálmason i Stóradal.
7. Eptir tillögu eins fjelagsmanns og samhuga
vilja allra fundarmanna var samþykkt í einu
hljóði, að kjósa forseta Erlend Pálmason til
heiðursfjelaga fyrir ötulleik og þolgæði, sem
hann hefur án alls endurgjalds jafnan sýnt i
þarfir fjelagsins.
Gleðileikir voru leiknir í Glasgow í fyrsta
sinni opinberlega á laugardagskveldið var, eins
og auglýst var í siðasta blaði. Fyrst var leikið
eintal, Fallinn í gegn og siðan ímyndunarveikin
eptir Moliére. Allvel voru leikirnir sóttir,
enda verðskulda þeir það fyllilega, þvi að yfir
höfuð var leikið vel og af sumum snilldarlega,
t. a. m. cand. jur. Guðlaugi Guðmundssyni.
Brauð veitt. Viðvík í Skagafirði 6. þ. m.
sjera Zophoníasi Halldórssyni í Goðdölum.
Lausn frá prestsskap var veitt 8. þ. m.
sjera Stefáni Thorarensen á Kálfatjörn.
Nýlosnuð brauð eru því: Goðdalir, met.
770 kr., og Kálfatjörn, met. 1253 kr.
Umboðsmaður i Arnarstapa og Skógar-
strandarumboði er skipaður Jón Jónsson á
Brimilsvöllum.
Mannalát og slysfarir. 8. þ. m. andaðist
úr sullaveiki skólapiltur Jóhannes Danielsson
frá Hólmum, 24 ára að aldri, og hinn efnilegasti.
4. þ. m. drukknaði af báti Bogi Smith, bóndi
í Arnarbæli í Dalasýslu, með tveim sonum sin-
um, Þorsteini á 17. ári og Brynjólfi á 15. ári.
Voru þeir á ferð út í Kjóey; er haldið, að ís-
jaki hafi grandað bátnum.
Prúf. Búnaðarskólastjóri Jósep Björnsson
á Hólum tók snemma i apríl próf við landbún-
aðarháskólann i Kaupmannahöfn í fjórum náms-
greinum, mjólkurmeðferð (mejerilære), jarðvegs-
fræði (jordbundslære), almennri húsdýranotkun
(alm. husdyrbrugslære) og akuryrkjufræði (ager-
dyrkningslære). Fjekk hann ágætiseinkun i 3
fyrstu greinunum, en fyrstu einkunn i hinni
síðasttöldu.
AUGLYSINGAR
1 samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd.
"\7"egna þess vaxandi ágangs, sem Ytra-Hólms-
hverfistfln verða fyrir af ferðafólki og göngu-
mönnum, er jegknúður til bæði sjálfs mins vegna
og landseta minna, — sem hafa krafizt þess af
mjer að koma i veg fyrir þessa miklu umferð
um túnin,—að fyrirbjóða alla þess konar um-
ferð, hvort heldur er um sumar eða vetur,
þegar jörð er ófreðin, og verða allir, hvort sem
þeir eru riðandi eða gangandi, að fara hinn
vanalega veg, sem liggur með sjónum og ár-
lega er ruddur, ella mun jeg sækja þá að lög-
um til fullra skaðabóta fyrir usla og átroðning,
sem að óþörfu hegða sjer svo skeytingarlaust
og sýna með því sitt óvandaða framferði.
Ytra-Hólmi 7. júni 1885.
0. P. Otteseu.
Þinglesið á manntalsþingi á Akranesi 19.
júni 1885 og ritað i afsals- og veðbrjefabók
Borgarfjarðarsýslu, Ltr. G. ur. 35.
Borgun:
Þingl. ... 75 a.
Bókun . ■ ■ 25 -
1 kr.
Ein króna.
Borgaó.
G. P.
Guðm. Pálsson.
□F*undinn hálsklútur. Eigandi vitji hans til
ritstj. Þjóðólfs og borgi auglýsing þessa.