Þjóðólfur - 25.06.1886, Síða 2
102
flytja ])au í land, eins og lögboðið er að gjöra
í 2 fyrstu stórstrauma vertíðarinnar. Þau
fundust öll óskemmd og því nær full af fiski,
djúpt og grnnnt á þeim miðum, sem þau voru
lögð á fyrir veðrið. — Fyrir veðrið voru fáir
búnir að leggja meira en bjer um bil helming
neta sinna, því fram að því var mjög lítið um
flsk á grunni, nema rjett fyrir veðrið varð vel
vart í net á Vogahrauni. — Þann 6. apríl þutu
allir út með öll sín net í von um mikinn afla;
en sú von brást að mestu, því þann 7. varð
að eins vart alstaðar, djúpt og grunnt, utast
sem innst á öllu því svæði, sem fiskiveiðasam-
þykktin nær yflr og jafnvel inn á fiskimiðum
sjálfra Seltirninga. Á Akranesi var og sagt
að verið hefði mokflski eptir norðanveðrið.
Fram að 14. april var bjer mjög tregt í net-
in, en alltaf og alstaðar vart, en úr því fór
aflinn að glæðast. Þann dag (14. apríl) flsk-
uðu hjer í fyrsta sinn á færi 3 bátar, um 30,
40 og 50 í hlut. Þann 15. apríl var landsynn-
ingsstormur, reru þá margir, en gátu ekki
vitjað um net eða setið fyrir stormi, nema fáir
menn í Njarðvíkum, sem vitjuðu um 1 trossu
hver á merkjalinunni út undir Leindandi og
fengu 100—200 á skip. Daginn áður var
mokfiski rjett fyrir utan merkjalínuna 300—
600 á skip, og þá voru margir Innnesingar,
Garðmenn og Leirumenn búnir að leggja þar
net sín. Þann 14. og 15. fiskaðist lítið innar-
lega á merkjunum, en vel út við landið. Þann
16. var sunnan-stormur fyrri hluta dagsins,
reru sumir með færi og fiskuðu allvel; seinni
hluta dagsins lygndi, svo að sumir vitjuðu um
net og fiskuðu þeir mæta vel, er áttu net sín
nokkuð sunnarlega á merkjunum, en miður
innar á þeim; þó varð allvel vart viða út á
línunni, en lítið fyrir ofan hana (landmegin
við hana). Þann 17. fiskaðist vel og nokkru innar
með linunni en áður, en mjög litið landmegin við
hana þegar nokkuð dró frá henni. Þann 19.
gjörði landsynningsrok um miðjan morgun, svo
allir urðu að hleypa frá netunum fullum af
fiski; margir fengu meira en hálfermi í einni
trossu. Þann 20. var hjer almennt mokfiski á
merkjunum, allt að 900 á skip, Keilir um
miðja Vatnsleysuströnd og sunnar, en þó treg-
ara út við Leiruland. Þann 21. mjög tregt,
út við landið, en mokfiski frá þvi Keilir um
Brunnastaði allt inn um Knarnes og Súlur um
ytri skoru. Innar voru ekki net lögð þá.
Þann 23. aflaðist vel í net Keilir um Hlöðunes
og inn um Breiðagerði; en þá þverraði aflinn
út við Leiruland og færðist inn með línunni,
þó komst aldrei mikill netafiskur inn fyrir lín-
una, heldur leit út fyrir. að fiskigangan þok-
aðist hægt og hægt inn með netagarðinum,
sem lá á merkjalínunni, likt og þegar fjárhópur
rennur með girðing-u, sem liann kemst ekki yfir. '
Þann 24. fiskaðist að vísu i þau net, sem ekki
var vitjað um daginn áður, en mikið minna i j
þau, sem þá voru tæmd. Nokkrir menn voru
þá kornnir með net sin út fyrir merkin og
fóru þeir }iá að afla betur en þeir sem áttu
net á merkjunum, en ekki kom fiskur að mun
lengra inn með linunni en áður er getið. Má
af þessu ráða, að upp frá þessum degi fór fisld-
gangan að halda norður og til djúps frá þeirri
miklu netastöppu, sem hindraði hana frá að
ganga á grunnið, þvi þann 27. var fremur
tregt í net á línunni, en þá fiskuðu þeir Auðna-
menn og Vatnslcysingar, sem áttu net fyrir
utan línuna. Þann 24. fiskaðist vel á færi í
Leirusjó. Þann 27. var almennt fremur tregt
í net á merkjum eins og áður er sagt, en allir
fiskuðu mæta vel á færi þann dag, bæði i Leiru-
sjó og Strandarleir, að kalla má hlaðfiski al-
mennt. 28. varð að eins vart í net; nokkrir
bátar fiskuðu vel á færi á grunni, þó sumir
lítið, en öll skip lítið. 29. var vestan-nepja,
en þó allgott sjóveður, en enginn fiskaði vel.
30. var ágætt sjóveður, en enginn fiskaði, hvorki
í net nje á færi. Frá 1. til 5. maí sama fiski-
leysi bæði í net og á færi, 1—10 í hlut; þó
fiskaði 1 skip á Leirukletti 40 i hlut og nokkr-
ir Vatnsleysingar norðurí Forum þann 5. maí.
Þann 6. mai fengu nokkrii hjer í Leirnum 10
—30 i hlut, en flestir fiskuðu þá mjög litið.
1.—5. mai voru net tekin upp. Bptir 6. maí.
fóru sumir að róa með lóðir og beittu síld,
fengu þeir töluvert af þorski og smáfiski fyrstu
dagana, en bráðum minnkaði þorskaflinn.
Af þessari skýrslu má nú ljóslega
sjá: að fiskur hefur gengið snemma
inn i (farðsjóinn í ár, að hann hefur
verið seinn á sjer og tregur til að
ganga þaðan inn á grunnið, og mik-
ill fisku rhefur legið þar kyrr, af göml-
um vana, að nokkuð af göngunni hef-
ur smátt og smátt þokazt inn með
Leirulandinu inn að netagarðinum,
sem lá á merkjalínunni, en ekkert að
mun inn fyrir netin, heldur hefur fisk-
urinn þokazt inn með netunum djúp-
megin og loksins hrakizt frá þeim til
djúps, þegar hann varð sífellt fyrir
þessari mótstöðu og grjótkasti.
Fyrst að nú netin, sem á grunni
liggja hrekja þannig fiskinn af grunn-
inu, þá má geta því nærri, að því nær
enginn fiskur hefði komið inn í Strand-
arleir, ef nú hefðu legið eins mörg
net í Garðsjó og undanfarin ár, og þá
liefði orðið lítill afli hjer almennt. En
nú munu vera hjer almennt 100—-300
til hlutar, sem er því að þakka, að
hægra var að ná til aflans er undan-
farin ár.
Fiskiveiðasamþykktin hefur þarinig
nú þegar á fyrsta ári haft mikið meiri
og betri afleiðingar á aflabrögðin en
flestir gátu búizt við í fyrra vor; en
þó hefði þurft að taka upp net í 3
fyrstu stórstrauma, því þá hefði fisk-
ur gengið á grunnbrúnir, lagzt þar og
fengizt optar og lengur á færi en nú
varð raun á.
Þórustöðum 15. maí 1886.
Egill Guðmundsson.
Reykjavík 25. júní 1886.
Þiug-mannakosniug'ar. Fyrir ísafjarðarsýslu
eru kosnir sjera Sigurður Stefánsson í Vigur
með 68 atkv. og Gunnar Halldðrsson, bóndi í
Skálavík með 50 atkv. Th. Thorsteinsson, sem
þar var og í boði, fjekk 17 atkv. 5 kjósendur
kusu að eins annan þingmanninn. Fyrir Þing-
eyjarsýslu sjera Benedikt Kristjánsson í Múla
og Jón Jónsson bóndi á Arnarvatni. Norður-
múlasýslu Þorvarður læknir Kjerúlf og sýslum.
Einar Thorlacius. Suðuripúlas. bæjarfulltrúi
Jðn Olafsson með 130(?) atkv. og sjera Lárus
Halldórsson með 101 atkv. Sjera Sigurður
Gunnarsson var þar og í boði og fjekk um 40
atkv. Austurskaptafellss. sjera Sveinn Eiríks-
son á Sandfelli, sjera Jón prófastur Jónsson
bauð sig og þar fram, en honum var hafnað.
Vesturskaptafellss. Olafur Pálsson umboðsm.
Þar bauð Jón Einarsson í Hemru sig fram.
Vestmannaeyjas. Þorsteinn bóndi Jónsson.
Strandferðaskipið Laura kom hingað 22.
þ. m. kl. 10 e. h. að norðan og vestan. Með
því voru um 100 farþegjar. Fór fram hjá Eski-
firði og kom á Seyðisfjörð 12. þ. m. um miðjan
dag. Var þá Tliyra nýlega farin þaðan, svo
að Laura náði ekki i hana. Laura fór til baka
til Eskifjarðar, en á leið þaðan kom hún ekki
við á Seyðisf. Laura fór og fram hjá Húsavík
til Akureyrar, síðan þaðan á Húsav., en er hún
fór þaðan, kom hún við i Hrisey en ekki á
Akureyri. Enn fremur kom Laura alls ekki á
Skagastr. Með þessu háttalagi komst póstflutn-
ingur og fleira hjeðan ekki til útlanda með
Thyru, farþegjar og flutningsgóz ekki frá Eskif.
á Seyðisfj., nje heldur frá Húsavík alla leið á
Akureyri, heldur að eins til Hríseyjar, svo og
ekkert til Skagastrandar eða þaðan. Svo sýn-
ist þó, sem Lauru hefði ekki legið svo mjög á,
því að hvað á hún að gera með að ligg'ja hjer
í 8 daga? Það er ekki i fyrsta skipti sem ís-
lend. verða fyrir gjörræði í þessum strandferðuin.
Verð á vörum. Ymsjr af kaupöndum blaðs-
ins hafa óskað eptir, að það flytti stutta skýrslu
um verð á helztu vörum bæði útlendum og inn-
lendum ekki að eins hjer i Rvik, heldur og
sem viðast af landinu. Þess konar skýrslur
yrðu þvi þegnar með þökkum. Kaupinenn hjer
hafa enn eigi kveðið upp neitt ákveðið verð á
innlendum vörum, svo að i þetta sinn er sett
verð á útlendri vöru að eins, og tákna tölurnar
innan sviga verðið mótipeningum, en hinar tölurn-
ar verðiðí reikning: Rúgur 200pd. 16kr. (15kr.),
rúgmjöl 18kr. (17kr.), bankabygg 28kr. (26kr.),
baunir 24 kr. (22 kr.) og 26kr. eptir gæðum,