Þjóðólfur - 03.08.1886, Blaðsíða 4
128
frestað. líefndin kaus Ben. Sveinss. fyrir form.
en Síg. Jónsson fyrir skrifara.
31. júlí. í neðri deild l.umr. um frumv.
til laga um liiggilding verzlunarstaðar við Þórs-
höfn í Gullbringusýslu visað til 2. umr. — 1. umr.
um frumvarp til laga um breytingar á lögum 14.
des. 1877 um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar
á opnum skipum. Efni pessa frumvarps er pað,
að í fiskiveiðasampykkt megi ákveða, „að öll
veiðarfæri, er brúkuð eru gagnstætt ákvæðum
sampykktar, sjeu upptæk og töpuð eiganda", en
að andvirði peirra tilfalli fátækrasjóði og upp-
ljóstrarmönnum. Yísað til 2. umr. Bæði pessi
frumvörp frá pingmönnum Gullbr. og Kjósarj.
2. ág. í n.d.; 2. umr. um löggilding Þórs-
hafnar; samp. og visað til 3. umr. — Prumv.
um löggilding verzlunarstaðar að Haukadal í
Dýrafirði og á Höfn í Sljettuhreppi. Vísað
til 2. umr. — Nefnd kosin til að rannsaka Pens-
marksmálið: Þorleifur Jónsson (20 atkv.), Lár-
us Halldórsson (17), Ólafur Briem (17), Sig.
Stef. (17), Þorv. Kjerúlf (17) Á undan nefnd-
arkosningunni voru litlar umræður. Þorlákur
Guðmundss. og Þorl. Jónss. mæltu með að setja
nefndina og landsh. tók vel í pað, og kvað við
pá rannsókn mundu margt skýrast á annan
veg en orð væri á. Betur, að svo yrði.
í efri deild 1. umr. um frv. til laga um
breyting á lögum 8. jan. 1886 um lán úr við-
lagasjóði til handa sýslufjelögum til æðar-
varpsræktar (flutningsm. Jak. Guðmundsson).
Efni pess er, að lánið skuli veitast amtsráði
vesturamtsins. „Skal pað verja pví til að eyða
flugvargi peim, sem æðarfugli grandar á svæði
pví, er æðarræktarfjel. í Breiðafirði og við
Strandaflóa nær yfir, sainkvæmt reglum er fjel.
setur og amtsráðið sampykkir. Visað til 2.
umr.
Reykjavík 3. ágúst 1886.
Lausn frá prestskap fjekk 29. f. m. sjera
Kjartan Jönsson, prestur að Eyvindarhólum
sakir ellilasleika. (Kominn á nýræðisaldur).
Nýlosnuð hrauð. Þingvellir við Öxará met.
853 kr. (28. f. m.). Brauðið veitt með peim
fyrirvara, að Úlfljótsvatnssókn kunni að verða
sameinuð við brauðið, og verður sá, sem brauð-
ið fær, að ganga að pví. Eyvindarhólar, met.
1018 kr. (29. f. m.).
Mannalát. Frjetzt hefur, að látinn sje
merkisbóndinn Arni Sigurðsson í Höfnum á
Skaga i Húnavatnssýslu. Hin síðustu ár var
hann mjög heilsulítill. Árni sálugi var búmað-
ur einhver hinn bezti og sannkallaður sveitar-
höfðingi. 11. júní síðastl. dó merkiskonan
Ingiríður Jónsdóttir á Hamri i Borgarhreppi á
sjötugsaldri, kona sýslunefndarmanns Gunnars
Vigfússonar. Ingir. sál. var vönduð og vel
látin, guðhrædd og gestrisin.
Jóel Sigurðsson, fyrrum kaupmaður hjer í
bænum og hattari, er fór til Ameríku í fyrra,
ljezt par 8. júni síðastliðinn.
íslenzkaílaggið afhent póstskipimi Romny.
1. p. m. kl. 10V2 f. h. færði Þorlákur kaup-
maður Ó. Johnson skipstjóranum á póstskipinu
Romny að gjöf bláan fána með hvítum fálka
handa skipinu. Með Þorl. Johnson fóru út á
skipið ýmsir bæjarbúar, einn Englendingur og
einn Amerikumaður. Skipstjóri Sörensen tók
fegins hendi móti gjöfinni, og ljet draga flaggið
pegar upp á frammastur skipsins. Eptir pað
bauð hann komumönnum til drykkju, flutti par
ræðu, par sem bann pakkaði fyrir flaggið, og
kvaðst jafnan mundu brúka pað á ferðunum
hingað jafnframt danska flagginu. í förinni út
á skipið var og Helgi Helgason trjesmiður með
söngflokk sinn; ljeku peir Helgi á horn á leið-
inni út og úti á skipinu.
Piskiskúturnar íslenzku hafa nú snmar
komið inn með mikinn afla, yfir og um 8000 hver.
Leiðrjetting í 30. tbl. 118. bls. 3. d. 18. 1.
a. o. fætur fyrir tætur.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd.
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Þeir, sem vilja koma konfirmeruðum, efni-
legum yngisstúlknm á kvennaskólann næstkom-
andi vetur (1. okt. til 14. mai) snúi sjer í peim
efnum til undirskrifaðrar forstöðukonu skólans
fyrir lok næstk. ágústmánaðar. Stúlkur úr
fjarliggjandi sveitum geta, eins og að undan-
anförnu, fengið húsnæði og fæði m. fl. í skóla-
húsinu fyrir mjög ssnngjarna borgun.
Að öðru leyti vísast til auglýsingar kvenna-
skólans 4. júní p. á. (ísafold XIII. 24, 25, 26),
par sem gefið er í skyn, að stofna mætti hinn
þriðja bekk handa stúlkum, er lengra væru
komnar, eða vildu ná meiri menntun, en almennt
gerist, ef hlutaðeigendur sýndu nægan áhuga í
pví máli, og sendu nógu margar proskaðar og
hæfilega undirbúnar stúlkur til skólans.
Reykjavik 30. júlí 1886.
Thora Melsted.
White amer stál-saumavjelar.
Oss undirskrifuðum, sem keypt höfum Ame-
rískar saumavjelar hjá kaupmanni M. Johan-
nessen hjer í bænum, er sönn ánægja að votta
pað, að pær eru hinar beztu saumavjelar, er
vjer höfum saumað með. Þær taka öðrum
saumavjelum einkum fram i pví, að pær vinna
mjög ljett og pögult, að nál og skytta eru
mjög auðpræddar, að pær spóla sjálfar án pess,
að maður purfi að skipta sjer af tvinnanum,
og að prýstarann má hækka eða lækka eptir
pví, hve pykkt eða punnt er saumað í peim.
Reykjavík 27. febr. 1886.
Hólmfríður Björnsdóttir. Vigdís Ólafsdóttir.
Skrœder H. Andersen.
G. Commichau & Co.
i Silkeborg Danmark
Grundlagt 1877
j söger en solid Eneforhandler for Island for
j deres velrennomerede og reele danske Trikotage
j og Uldvarefabrikata.
Pabrikken er en af de störste og bedst ind-
1 rettede i sit Slags i Danmark.
Nærmere Oplysninger, Priskurant, Pröver
veu direkte Henvendelse til Firmaet.
J»ær stúlkur, sem vilja vera á kvennaskólan-
um á Ytriey næsta vetur, verða að sækja um
pað til skólaforstöðunefndarinnar eða undirskrif-
aðrar forstöðukonu skólans. Skólinn byrjar 1.
október og stendur til 8. maí. Hver stúlka skal
borga 70 a. um daginn ogskalmeðgjöfin borgast
að hálfu fyrirfram. A skólanum fást keyptar
bækur einnig sniðapappír, málbönd og fatakrit,
par að auki efni í ýmsa muni. Stúlkum, sem
kynnu að eiga óhægt með að hafa með sjer
nóg af saumefni, verða útveguð föt til að sauma.
Skólanum verður eins og næstliðinn vetur skipt
í 3 bekki og kenndar sömu námsgreinir, sjá
26. tbl. Þjóðólfs p. á. Að haustinu verður kennd
niðursuða á kjöti og ostagjörð.
Reykjavík 27. júlí 1886.
Elín Briem.
Til almounings!
Læknisaðvörun.
Þess hefur verið óskað, að jeg segði álit
mitt um „bitter-essents", sem hr. C. A. Niss-
en hefur búið til og nýlega tekið að selja
á íslandi og kallar Brama-lífs-essents. Jeg
iief komizt yfir eitt glas af vökva pessum.
Jeg verð að segja, að naftiið Brama-lífs-
essents er mjög villandi par eð essents
pessi er með öllu ólíkur hinum ekta Brama-
lífs-elixír frá hr. Mansfeld-Búllner & Lass-
en, og pví eigi getur haft pá eiginlegleika,
sem ágœta hinn egta. Þar eðjegummörg
ár hef haft tækifæri til, að sjá áhrif ýmsra
bittera, en jafnan komizt að raun um, að
Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-Búllner &
Lassen er kostaheztur, get jeg ekki nóg-
samlega mælt tram með honum einum,
um fram öll önnur bitterefni, sem ágætu
meltingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. júli 1884.
E. J. Melchior, lseknir.
Einkenni hins óegta er nafnið C. A. Niss-
en á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egtaBrama-lifs-
elixír eru firmamerki vor á glasinu, og á
merki-skildinum á miðanum sjest blátt ljón
og gullhani, og innsigli vort MB & L i
grænu lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir búa til hinn verðlaunaða Brama-lifs-elixir.
Kaupmannahöfn.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur .Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.