Þjóðólfur - 03.09.1886, Síða 1
Kemur út á föstudags-
morgna. Verð árg. 4 kr.
(erlendis 5 kr.). Borgist
fyrir lö.júlí.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn (skrifleg) bund-
in við áramót, ógild nema
komi til útgef. fyrir 1.
október.
XXXYIII. árg.
Reykjarík, föstudaginn 3. septemker 1886. Xr. 40.
Um heygæði
eptir
bíinaðarskólastjóra .Irtsef J. Björnsson.
Opt er talað um ólík heygæði, sem
eðlilegt er. Græði heysins eru mjög
misjöfn, en það er eðlileg afleiðing
ýmsra orsaka á þeim tíma, sem gras-
ið vex, svo sem: ólíks veðráttufars,
ólíkra gæða jarðvegsins, hversu snemm-
slegið það er og loks hvernig það
nýtist.
Þegar mjög votviðrasamt er að vor-
inu og framan af sumri, þá verður
grasið stórgjörðara, vatnsmeira oggróf-
gjörðara, og því þungmeltara, en þeg-
ar þurviðri og vætur skiptast á. Þetta
leiðir af áhrifum sífelldrar bleytu á
jarðveg og jurtir. Heyin verða því
í votviðrasömum árum lakari en
ella.
Af frjóvsömum, þurlendum og há-
lendum jarðvegi fæst hið bezta hey,
nýtist það vel. Jurtirnar á slíkum
jarðvegi eru smávaxnar, en hafa mörg
og heldur mjúk blöð; þær eru þvi
kjarngóðar og auðmeltar. Túnin hafa
opt slíkan jarðveg, enda er taðan, sem
er sambland margs konar fóðurjurta
vort bezta hey. Sjeu votlendir part-
ar i túnunum, þá sjezt einatt, að á
slíkum blettum vaxa aðrar og lakari
jurtategundir, en á hinum pörtum
túnanna, sem þurrir eru; þær eru og
grófgjörðar, og taðan af slíkum stöð-
um er þvi ekki góð.
. Snemmslegið hey er miklum mun
betra en síðslegið. Þetta leiðir af því,
r að eldri hlutar jurtanna trjena, og
Verða bæði snauðari af nærandi efn-
Um og þungmeltari en hinir yngri,
Aður jurtin fer að blómstra eru
bæði stönglar og blöð næringarefna-
fik, en þegar hún er blómstruð og
fræ fer að myndast, þá dregst alt hið
bezta næringarefnanna frá hinum hlut-
4
unum til fræmyndunarinnar. Stöngl-
ar og jafnvel blöð þeirra jurta, sem
svo langt eru komnar á þroskaskeiði
sínu, að fræ er myndað, hafa þvi lít-
ið fóðurgildi, en fræið því meira. Yið
þurrkinn er hætt við að fræin falli
burt, og því verður hið síðslegna hey
miklu lakara en hið snemmslegna, þó
góð nýting fáist á það. Þetta er það,
sem veldur því, að menn kvarta opt
í góðum grasárum yfir að heyin sjeu
ljeleg, en þá er vanalega meira eða
minna af jurtunum búnar að mynda
fræ, þegar slegið er.
Heppitógast er að slá túnin, þegar
meginfjöldi jurtanna er í byrjun blóm-
timans.
Nýtingin hefur ákaflega mikil áhrif
á gæði heysins. Bezt er að það þorni
sem fyrst eptir að það er slegið, og
mjög er áríðandi, að hlifa því fyrir
alls konar vætu, eptir að það er far-
ið að þorna nokkuð, því ella missir
það mjög mikið af beztu næringar-
efnum sínum. Það er ekki nóg að
vernda hálfþurt hey fyrir regni, það
þarf líka að vernda það fyrir dagg-
falli svo vel, sem auðið er.
Þegar ræða er um heygæði á Is-
landi yfir höfuð, þá er eðlilegt, að
leitast við að íá samanburð áíslenzku
heyi og erlendu, eða miða gildi heys-
ins við aðrar fóðurtegundir.
Ymsar getgátur hafa komið fram
með tilliti til þess, hve gott íslenzkt
hey myndi vera i samanburði við hey
erlendis. Mörgum mun hafa virzt
miklar líkur til, að íslenzku heyin
væru mjög góð og þyldu vel sarnan-
burð við erlend, því með því mælir
mjög margt.
Torfi Bjarnason í Ólafsdal segir í
ritgj örð sinni nUm súrhey“ í And-
vara X, bls 144—45: „Engin senni-
leg astæða er til að ímynda sjer, að
vel ræktuð taða og og vel hirt ígarð
standi hið minnsta á baki bezta heyi
erlendis, heldur þvert á móti, að hún
sje máske enn þá ríkari afmeltanleg-
um næringarefnum". Þetta er nú
getgáta, er eigi hefur nægilegar sann-
anir við að styðjast, til þess að geta
haft almenna þýðingu. En á hinn
bóginn er hún mjög sennileg, með
því hún er byggð á fleiri ára reynslu
og athugunum Torfa sjálfs, og jeg þyk-
ist þess jafnvel fullviss, að hún muni
sannast með tímanum.
Að því er útheyið snertir, þá er
mjög erfitt að gjöra nokkra sennilega
almenna ályktun um gæði þess. Það
vex á mjög misjöfnum jarðvegi, sumt
á harðvelli en sumt á flám og í for-
öðum, sumt til ijalla en sumt til dala
o. s. frv. Auðvitað er að allt það út-
hey, setn er af votlendum engjum mun
grófgerðara en harðvellishey eða taða
°g þvi þungmeltara, en gæði þess
geta og verið talsvert ólík. Yfir höf-
uð ætla jeg þó að úthey hjer á landi
muni fullkomlega jafnast á við hey,
sem erlendis er talið að vera gott.
Síðastliðinn vetur rannsakaði Y. Stein,
prófessor i Kaupmannahöfn fyrir mig
töðu og úthey hjer frá Hólum. Tað-
an var af túni, sem nú er i allgóðri
rækt, var snemmslegin, vel hirt og
tekin úr miðju stáli i tópt eptirmiðj-
an vetur. Útheyið var af raklendu
stararengi, fremur snemmslegið, þorn-
aði vel og fljótt, og var tekið úr tópt
um sama leyti og taðan. Bæði taðan
og útheyið var grænt.
Efna-samsetningin reyndist þannig:
Taða. j Úthey.
Yatn 12.10% í 11-20%
Feiti ...... 2.88— 3.20—
Holdgjafakennd efni . j 9.62— 1 11.62—
Sykurkennd efni . . 46.92— 46.33—
Trjeefni 19.53— i 18.93—
Steinefni . . , . . 1 8.95— 8.72—
100.00% 100.00%
Holdgjaflnn (N) = l-54°/0 1-86%