Þjóðólfur - 03.09.1886, Page 4
160
Hvoru sveggju hjet herra B. J. og orðaði sjálf-
ur yfirlýsingu sina, á blaði, sem mjer var sýnt,
og jeg tðk gilt. Þvínæst var hvorttveggja
honum afhent til auglýsingar í „ísafold11, en
Jiegar til kom, sá herra ritstjórinn sigum hönd,
hauðst reyndar til að prenta vottorðið, en þótt-
ist hafa glatað sinni eigin yfirlýsing, sem þó
var mín eign, og vildi nfx gjöra einhverj-
ar nýjar athugasemdir við vottorðið, sem jeg
ekki þekki og ekki gat þegið.
Jeg neyðist ]iví til, að biðja yður, herra rit-
stjóri, um að taka þessar línur, ásamt vottorð-
unum i yðar heiðraða blað, öðrnm, ekki til
eptirdæmis, heldur til viðvörunar.
p. t. Reykjavík 27. ágúst 1886.
Grímur Thomsen.
Að það, sem að ofan er greint, sje sannleik-
anum samkvæmt, votta
d. u. s.
H. Kr. Friðriksson. Arnljótur Olafsson.
Við undirskrifaðir, meðnefndarmenn Dr. Gríms
Thomsens á alþingi 1883 í nefnd þeirri, sem
sett var til að endurskoða stjórnarskrána, vott-
um hjermeð, að hann, sem formaður nefndar-
innar, hjelt nefndarfundi á degi hverjum, þeg-
ar fundarfært var, og sjálfur sótti hvern fund,
sem boðaður var, og er oss ekki kunnugt um,
að hann með neinu móti hafi neytt stöðu sinn-
ar til þess, að láta málið daga uppi.
Reykjavík 29. marz 1886.
H. Kr. Friðriksson. Þorkell Bjarnason.
Arnljótur Olafsson.
Sem meðnefndarmaður Dr. Gríms Thomsens í
tjeðri nefnd lýsi jeg yfir þvi, að jeg get ekki
hermt, að hann hafi neytt stöðu sinnar, sem
formaður nefndarinnar, til þess, að láta málið
daga uppi, þó það eptir atvikum gengi seint í
nefndinni.
Rvík 2. dag ágústmán. 1886.
B. Sveinsson.
-H|MOÐ.|+
—:o:—
Hjónuvígsla á hesthaki. í smábænum
Henryville i Indiana í Ameríku har það við
fyrir skömmu, að meðan prestur einn var i
stólnum, kom ókyrð á söfnuðinn og kirkju-
þjónn einn ljetprestinn vita, að maður ogkona
biðu fyrir utan kirkjudyrnar á hestbaki og
vildu ná fundi prestsins þegar í stað. Prest-
urinn hætti við ræðuna og fann komumenn;
þau voru á unga aldri, og hestar þeirra voru
illa útleiknir og bljesu mjög. Þau stigu þó
ekki af baki, en maðurinn sagði presti að hann
hefði rænt hinni ungu konu úr föðurhúsum;
vildi hún verða kona hans, en foreldrar henn-
ar vildu ekki leyfa það, og væru nú að leita
að þeim. Þvi næst sýndi maðurinn presti
hjónavígsluleyfi, sem hann hafði fengið sjer-
hjá yfirvöldunum i sinni sveit, áður en hann
rændi stúlkuuni. Söfnuðurinn þyrptist nú út
flr kirkjunni og kring um brúðhjónaefnin.
Prestinum þótti vígsluleyfið gott og gilt og
gaf þegar brúðhjónin saman og tóku þau sam-
an höndum á hestbaki og hleyptu síðan af
stað, sem hraðast máttu þau, en brúðguminn
sagði um leið, að hann ekki hefði tima til
langrar viðdvalar sökum tengdaföðurs síns.
Tvöfaldur hagur. Yerzlunarþjónninn við
húsbónda sinn: „Það er eingöngu yður í hag,
að hækka laun mín“.
„Hvernig þá?“
„Jeg ætla einmitt i dag að biðja yður um
dóttur yðar?“
C. Commichau & Co.
i Silkeborg Danmark,
Grundlagt 1877.
söger en solid Eneforhandler for Island for
deres velrennomerede og reele danske Trikotage
og Uldvarefabrikata.
Pabrikken er en af de störste og bedst ind-
rettede i sit Slags i Danmark.
Nærmere Oplysninger, Priskurant, Pröver
ved direkte Henvendelse til Pirmaet.
Spilin eru búin til i líkingu við árið: 4
litir=árstíðirnar, 52 spil=vikurnar; 13 spil í
lit=vikumánuðirnir; á spilunum eru 364
deplar, en í árinu eru 365 dagar; jiær varð
ekki komist.
Tveir menn urðu saupsáttir á söluþingi og
lauk svo að annar fjekk löðrung, hann brá sjer
ekkien sagði að eins róleg-ur: hjer gengur það'
öfugt til við það, sem í söluskilmálunum
stendur, því mönnum er slegið áður en þeir
bjóða í.
Til skólakostnaðar er varið í Bandafylkj-
unum alls 92 miljónum dollara um árið, og er
það meira en það sem til þess gengur á öllu
meginlandi Európu. Þjóðveldi þetta er lika
það eina land, þar sem skólakostnaður er meiri
en herkostnaður.
AUGLYSINGAR
f samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd.
N Ý R
MÁLF ÆRSLUMAÐUR.
Hjer með auglýsist, að jeg tek að mjer
eptirleiðis alls konar málfærslu, svo sem
sækja eður verja mál við undirrjett, rita
sáttakærur, stefnur, samninga og fleiri þess
konar skjöl svo lögmæt sjeu, innkalla skuldir
og fleira.
Eptir 18. september næstkomandi verður mig
að hitta á skrifstofu minni í húsi Gunnlaugs
prentara No. 2 í Þingholtsstræti hvern virkan
dag kl. 3—5 eptir hádegi.
Reykjavik 24. ágúst 1886,
ismundur SYeinsson.
fyrrum settur sýslumaður i Barðastrandar-
og Dala-sýslum.
Jörðin Dragháls í Hvalfjarðarstrandar-
hreppi 22,5 hdr. að dýrleika fæst til kaups nú
þegar og til ábúðar i næstu fardögum. Sá sem
kynni að vilja kaupa, snúi sjer til Jóns Svein-
bjarnarsonar i Kalastaðakoti fyrir lok næstk.
nóvembermán.
Gjótuspaðar úr stáli,
sem eru mjög hentugir til ofanafskurðar við
þúfnasljettun, fást með mjög vægu verði hjá
járnsmið B. Hjaltested i Reykjavik.
737 vö hdr. 38 áln. eptir fornu mati i jörðinni
Álfsstöðum i Skeiðahreppi i Árnessýslu fást til
kaups og getur kaupandi fengiðþennan jarðar-
part til ábúðar í næstu fardögum. Sá, sem
kynni að vilja kaupa, snúi sjer til ritstjóra
Þjóðólfs íyrir lok næsta októbermánaðar.
Til almennings!
Læknisaðvörun.
Þess hefur verið óskað, að jeg segði
álit mittum „bitter-essents“, sem hr. C.
A. Nissen hefur búið til og nýlega tek-
ið að selja á íslandi og kallar Brama-
lífs-essents. Jeg hef komizt yfir eitt glas
af vökva þessum. Jeg verð að segja, að
nafnið Brama-lífs-essents er mj'óg
villandi þar eð essents þessi er með
öllu ólíkur liinum ekta Brama-lífs-elixír
frá hr. Mansfeld-Bullner & Lassen, og
þvi eigi getur haft þá eiginlegleika, sem
ágceta binn egta. Þar eð jeg um mörg ár
hef haft tækifæri til, að sjá áhrif ýmsra
bittera, en jafnan komizt að raun um,
að Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-Búlln- <
er & Lassen er kostabeztur, get jeg
ekki nógsamlega mælt fram með hon
um einum, um fram öll önnur bitter-
efni, sem ágætu meltingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. jUlí 1884.
E. J. Melchior, læknir.
Einkenni hins óegta er nafnið C. A.
Nissen á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egta Brama-
lífs- elixír eru firmamerki vor á glas-
inu, og á merki-skildinum á miðanum
sjest blátt ljón og gullhani, og innsigli
vort MB &.L i grænu lakki er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
serri einir búa til hinn verðlaunaða Brama-
lifs-elixir. Kaupmannahöfn
Fjármark Sigurjóns Gíslasonar á Heima-
landi í Flóa er: tvístýft aptan hægra, stúf-
rifað vinstra (áður mark Torfa Nikulássonar
á Söndu i Stokkseyrarhreppi.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastíg.
Prentari: Sigm. Guðmundsson.