Þjóðólfur - 17.09.1886, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 17.09.1886, Blaðsíða 2
166 ar óskir, fyllti hús þeirra með auð- æfum, og gerði þá sæla í ástarefnum og sigursæla í orustum. Einmitt slík- ur andi er frelsið. Það kemur fyr- ir að það tekur á sig gervi viðbjóðs- legs skriðkvikindis. Það mjak ir sj sr á maganum í dustinu, bvæsir og sting- ur. En illu beilli eru þeir menn í heiminn bornir, sem lýsa viðbjóð á því, og dirfast að misþyrma því. Og sælir eru þeir, sem bafa hug til að veita því viðtöku i ægimynd sinni og niðurlægingu. Þeir munu að lok- um mikil laun taka, þegar það er kom- ið í ríkið sitt í allri sinni fegurð og dýrðarljóma. Það er að eins eitt meðal við bölv- um þeim, er leiðir af nýunnu frelsi, og það meðal er: frelsi. Þegar fanginn fyrst skilur við klefa sinn, getur bann ekki þolað dagsljosið. Hann getur ekki greint liti, nje þekkt andlit manna. En meðalið til þess að lækna bann er ekki að senda manninn apt- ur inn í myrkvastofuna og láta bann dúsa þar, heldur að venja hann við sólarljósið. Hið skæra leyptur sann- leikans og frelsisins getur stundum við fyrsta tillit blindað og ruglað með ofbirtu sinni þær þjóðir, sem eru orðn- ar hálfblindar í myrkvastofu þræl- dómsins, En látum þær halda áfram að stara, og þær munu brátt geta þol- að birtuna. A fám árum læra menn að bugsa með skynsemi. Ofga-ofsa skoðananna fer að lægja. Andstæðar skoðanir leiðrjetta hver aðra. Hinir dreifðu frumhlutar sannleikans hætta að berjast og taka að tengjast saman. Og að lokum myndast eitt rjettlætis- kerfi upp úr óskapnaðinum. Margir stjórnfræðingar vorra tíma eru vanir að halda fram þeirri setn- ingu, sem nokkru, er segi sig sjálft, að engin þjóð eigi að verða frjáls, fyr en hún sje orðinn fær um að nota frelsi sjer sitt. þessi lífsregla hefur sama gildi eins og regla aulabárðarins í sögunni gömlu, sem ásetti sjer að dýfa sjer aldrei í vatn, fyrr en hann væri búinn að læra að synda. Ef menn eiga að bíða eptir frelsinu, þangað til þeir verða vitrir og góðir i þrældómi, þá mega þeir sannarlega bíða til eilífðaru. Málfræðingafundurinn í Stokkhólmi. (Frá frjettaritara Djóðólfs á fundinum). —:0:— Stokkhólmi 14. ágúst 1886 Eins og mörgum lesendum Þjóðólfs mnn kunnugt er það mjög farið að tíðkast, að vísindamenn frá fleiri lönd- um stofna til funda með sjer á nokk- urra ára fresti til þess að tala um af- rek sín og annarra í vísindanna þjón- ustu. Áður voru menn að bauka hver í sinu horni, og litu svo að segja hvorki til hægri nje vinstri. En eptir því, sem stundir liðu fram varð mönnum æ ljós- ara og ljósara að góð samvinna milli sem flestra vísindamanna, sem fást við sömu grein, var mjög nauðsynleg til þess, að framfarirnar gætu orðið bæði notadrjúgar og skjótar. En helzta und- irstaðan undir samvinnunni er persónu- | leg viðkynning. Það er því aðal mark og mið vísindafundanna að koma þeim mönnum, er stunda sömu grein, í kynni hverjum við aðra. ! Fyrir 10 árum síðan tóku nokkrir j málfræðingar hjer á Norðurlöndum sig j saman um að stofna til málfræðinga- funda fyrir Norðurlönd sjer á 5 ára fresti. Mun málfræðinga kóngurinn, j gamli Madvíg, og próf. Wimmer, hafa j verið heiztu frumkvöðlar þess, ásamt fleirum góðum mönnum. Hinn fyrsti af fundum þessum var haldinn í Khöfn 1876 og vóru á þeim fundi tveir ís- lendingar. Annar var haldinn í Krist- janíu 1881, og voru á honum 3 íslend- í ingar. Hinn þriðji var haldinn nú í j ár frá 10.—13. ág. hjer í Stokkhólmi og voru á honum 3' íslendingar: Dr. Finnur Jónsson, cand. mag. Jón Þor- kellsson og stud. mag. Yaltýr Guð- mundsson. Fundurinn var haldinn í ríkisdags- byggingunni, í sal neðri deildar. Voru þar samankomnir 56 málfræðingar frá Norvegi, 70 frá Danmörku (að með- töldum 3 íslendingum), 5 fráFinnlandi og 6 frá Þýzkalandi og Frakklandi til samans. Frá Svíþjóð voru liðugt 100. Alls voru á fundinum um hálft þriðja hundrað manns. Fundirnir voruhaldn- ir frá kl. 10—3 hvern dag. Lektor Törnebladh frá Stokkhólmi setti fundinn. Til ræðustjóra á fundin- um í heild sinni voru kosnir Wimmer (D.), Bugge (N.), Synnerberg (F.) og Törnebladh (S.). Síðan hjelt prófessor Wimmer fyrirlestur um „fornsænskar rúnaleifar í DanmÖrku“. Þá voru sendar málþráðarkveðjur frá fundin- um til Svíakonungs (hann bjó þá í lystihöll suður á Skáni) og gamlaMad- vígs. Síðan skiptust menn í 4 deildir norræna, klassiska (grísk-rómv.), nýrri mála og uppeldisfræðisdeild. í norrænu deildinni voru kosnir ræðu- stjórar: prófastur Fritzner (N.), dr. Finnur Jónsson (ísl.) og próf. Tegnér (S). Það yrði langt mál og of umfangs- mikið fyrir Þjóðólf, að telja upp alla þá fyrirlestra, sem málfræðisgarpar hinna einstöku deilda hjeldu og ræður þær, er út af þeim spunnust. En eins og lög gera ráð fyrir gekk þar margt fróðlegt og viturlegt orð út af vísinda- munnum orðfræðinganna. í norrrænudeildinni hjelt próf. Bugge fyrírlestur um germanskar hljóðbreyt- ingar. Fritzner um talsháttinn „yfir liöfði Jóni“ í Njálu, og rakti það til Postulanna gjörninga og setti í sam- band við nafn Jóhannesar skírara. Einn ísl. tók þátt í umræðum eptir þann fyrirlestur: Jón Þorkellsson. Á al- mennum fundi hjeidu fyrirlestra: próf. G. Storm um norræn staðanöfn í Nor- mandí. Sannaði hann, að flest þau nöfn, er menn hefðu áður skoðað sem dönsk eða norræn að uppruna, væru það ekki, heldur frankisk. Dr. Monte- lius hjelt fyrirlestur um aldur rúnanna hjer á Norðurlöndum. Dr Finnur Jóns- son um uppruna, viðgang og þýðingu skáldskaparins í fornöld. Þótti honum vel segjast. Einn ísl. tók þar þátt í umræðum: Valtýr Guðmundsson. Að endingu var samþykkt að lialda næsta fund í Khöfn árið 1891. Að loknum öllum málfræðisstörfum gengu menn til veizlu á Hasselbacken, lystistað fyrir utan bæinn. Voru út- lendingar boðnir til hennar en Svíar

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.