Þjóðólfur - 29.10.1886, Page 3

Þjóðólfur - 29.10.1886, Page 3
191 sigumerkjum. í grafhýsi Banérs er og mynd af honum. Ef gengið er lengra til vinstri handar frá kirkjunni, })á kemur maður að alþingishúsi Sví- anna (Biksdagens hus). Byggingin er sjálf nokkuð stór, en þingsalirnir eru að tiltölu held- Ur litlir. Geta þeir ekki staðið þingsölum vor- um á sporði að snyrti. í þinghúsinu er mál- fræðingafundurinn haldinn og kem jeg }>ar því á hverjum degi. Úr }»ví jeg minnist á þinghús Svíanna, held jeg að jeg verði að drepa nokk- uð á þingið og fyrirkomulag }>ess. ímyndajeg mjer, að menn hafl gaman af að heyra eitthvað um }>að heima einmitt nú, þegar hugsað er svo mikið um pólitík og stjórnarfar. Þingið (Kiks- dagen) skiptist í tvær deildir (kamrar). Þær ,hafa jafnan rjett og atkvæði í öllum málum. Þíngið kemur saman til reglulegra funda 15. janúar ár hvert, en eins og hjá oss getur kon- ungur stefnt því saman til aukafunda, þegar honum sýnist. Kjörgengir til efri deildar eru þeir einir, er náð hafa 35 ára aldri, og sem í 3 næst undanfarin ár hafa átt fasteignir, sem sjeu að minnsta kosti 80,000 kr. virði, eða hafa greitt skatt í ríkissjóð af minnst 4000 kr. ár- legum tekjum af höfuðstól eða iðn. Þingmenn efri deildar eru kosnir til 9 ára. Þeir eru kosnir af landsþingunum (o: eins konar sýslu- nefndir eða hjeraðsþing), eða bæjarfulltrúum í þeim hæjum, sem eigi eiga hlutdeild i hjeraðs- þingunum. Hvert hjeraðsþing eða bæjarþing kýs eptir fólksfjölda hjá sjer, einn þingmann fyrir hverjar fullar 30,000. Þingmenn efri deildar fá eygin laun fyrir þingsetu sína. — Kjörgengur til neðri deildar er hver sá, er hú- settur er í sveitinni, og atkvæðisrjett hefur í almennum sveitarmálum, ef hann á fasteign annaðhvort í hæ eða í sveit, er nemi að minnsta kosti 1000 kr. að virðingarverði, eða ef hann hefur jörð til ábúðar æfilangt eða um 5 ára hil að minnsta kosti, er sje minnst 6000 kr. virði eða greiði skatt af minnst 800 kr. árlegum tekjum. Þingmenn neðri deildar eru kosnir sumpart heinlinis af kjósendum í sveitinni og sumpart af kjörmönnum (elektorer), einum fyr- ir hverja 1000 af sveitarbúum. Þingmenn n. d- eru kosnir til 3 ára, einn fyrir hverja sýslu (domsaga = lög'sagnarumdæmi), og einn fyrir hverjar fnllar 10,000 innhúa í bæjunum. Sjeu fleiri innbúar en 4,000 í einni sýslu, er henni skipt í 2 kjördæmi, og kýs þá hvert þeirra um sig einn þingmann. Þingmenn neðri deildar skulu vera fullra 25 ára; þeir skulu og hafa átt kosningarrjett í sveitinni að minnsta kosti eitt ár á undan kosningunum. Þeir fá ferða- kostnað sinn til þings og frá þingi endurgold- inn, og 1200 kr. í laun fyrir hvert þing. — Konungur kýs forseta og varaforseta fyrir hverja deild fyrir sig, úr hennar eigin fiokki, en hver deildin um sig kýs sjer sjálf skrifara. Rangar hugmyndir um drengskap. (Úr „The Christtan Life“ 24. jt'olí þ. &.). Á hinu prótestantiska Englandi er einvíg úr gildi og venju nurnin; á hinu kaþólska Erakk- landi eru þau enn í tízku. Yjer höfum allir lesið í hlöðum þessara daga um einvíg þeirra Boulangers hershöfðingja og baróns de Lareintys. Oss varðar nú ekkert um atvik þessa við- hurðar, nema hvað vjer fögnum því, ao hvor- ugur þessara mðtstöðumanna varð öðrum að skaða. Vjer viljum einungis henda á, hvernig hólmgöngur líta út frá siðgæðisins sjónarmiði. Vjer fullyrðum, að menntun án trúar sje ekk- ert annað en menntaður villidómur; og vjer hætum við, að það atvik, að svo grimmur sið- ur sem hólmgöngur skuli haldast hjá jafn há- menntaðri og hæverskri þjóð tilaðjafna dreng- skaparmál, sanni þau ummæli vor. Yæri Erakk- land rækilega kristið land, hefðu hólmgöngur verið numdar þar úr lögum að minnsta kosti jafn snemma eins og á Englandi. En það er vitaskuld, að hreinn kristindómur hefur aldrei verið ýkjasterkur máttarviður í þjóðlífi vorra gallisku nágranna. Siðaþjónusta og systirhenn- ar, hálfvelgjan, hafa þar mjög rænt og rúið gleðiboðskapinn og eytt hans íbúanda lífskrapti. Einvígi er alveg ókristilegt. Engum vel kristn- um manni getur komið til hugar að skora á annan mann til einvígis, hvernig sem á stend- ur. Einvíg eru sprottin af röngum hugmynd- um um sæmd manns og rjetta karlmennsku. Þær hugmyndir smáir kristindómurinn og leið- rjettir. Það er t. a. m. gjörsamlega rangt að sæmd manns sje undir öðrum komin en sjálf- um honum. Hans sæmd er fólgin í rjettvisi hans, hreinum hugsunarhætti, áformum hans og sjálfráðu athöfn. Hann einn er aðili og einka- vörður síns innra manns og mannkosta; hans innra rnæti flekkar enginn, ef hann ekkfgjörir það sjálfur. Mannorði þínu geta aðrir spillt, en mannkostum þínum ekki; ójafnaður og ó- virðíng annara kann að særa þig sjálfan og meiða orðstír þinn, en snertir eltki þína sönnu sæmd. Allt um það ætla margir, að það sje ó- mennska að hefna sin ekki fyrir áreitni; að vera ekki viðkvæmur fyrir því, sem aðrir segja um sig eða við sig, er haldinn vottur um vesal- mennsku. En að vjer eigi nefnum Krist, má nefna Pál postula, sem dæmi. Enginn kennir hann við litilmennsku eða lága sál; en hans áminning er sifellt sú, að vjer sjeum seinir til reiði, að vjer umberum allt, þolum allt, sjeum sáttgjarnir og hógværir. Satt að segja, er heiptrækni og hefndargirni vissasti vottur um vesalmennsku. Þar kemur fram, að sá, sem svo er skapi farinn, finnur ekki farsæld, frið nje þrek i sjálfum sjer, í sálu sinni, því ella mundi hann ekki æsast svo fljótt við útvortis atvik. Þegar miKill maður og góður er áreitt- ur, er hans huggun sú, að leita til síns innri manns; þegar illmenni og lítilmenni er áreitt, þá á hann ekki þá huggun til, og leitar því hugfróunar í hefnd yfir mótstöðumanni sinum, Og hugfró kann hann að fá sem snöggvast, en skamma stund verður hönd höggi fegin. Að svala hefndargirni sinni er hæði óviturlegt og litilmannlegt; það er gagnslaust, auðvirðilegt og ókristilegt, það er dýrsins og siðleysingjans aðal, en ekki hins siðaða manns. Og þó er það þessi fýst, að svala sjer, sem mestu ræður, þegar einvíg eru háð. Þar sem menn verða svo upplýstir fyrir sannan kristindóm, að menn skilja, að það er hógværð og þollyndi, en ekki ofstopi og reiði, sem einkennir göfga og guð- um líka karlmennsku, þá hætta öll einvíg eða hólmgöngur, eins og vitaskuld er. Það er sorglegt, að þjóðirsem einstakir menn skuli svo lengi hafa verið alnar og táldregnar á slíkum hleypidómum um sæmd og drengskap, og að þeir hleypidómar skuli hafa getið afsjer samkynja hleypidóma um ættjarðarást. Þeim hefur verið innrætt, að sjerhver sigurvinning með herskildi unnin væri heiður og sæmd, en sjerhver ósigur i hernaði rýrð og sneypa-— án alls tillits til þess, fyrir hverja sök að vopn- um var beitt. Þeim hefur verið kennt, að það að vera skjótur til að hefna fyrir órjett eða ó- virðing, sómi hetur tign þjóðarinnar en þolin- móðlega að leita samninga og sátta. Þeim hefur verið talin trú um, að æskilegra væri að vera sterlcur og sigursæll, en að meta lengi með sjer, hvort barizt væri með rjettvísi og sanngirni eða ekki, og að álykta svo, að meiri sæmd fyrir þjóðina væri að sigra í orustu en að játa ávirðing og viðurkenna misræði, að skoða yfirráðin eins og meira virði en það, að fremja gððar og heillaríkar athafnir. Þessar hugmynd- ir hafa opt ráðið mestu í föðurlandsástinni — sem í sjálfri sjer er helg og hrein hvöt eða dygð — og fyrir þvi hefur hún einatt úrkynj- azt og orðið alþjóðlegur ofmetnaður, eigingirni og liroki. Vjer segjum, að þannig hafa þjóð- irnar fyr meir verið uppfræddar, en með gleði megum vjer játa, að nú er þeim öðruvisi og betur kpnnt. England og Amerika, hinar fremstu og frjálsustu nútíma-þjóðir, hafa á hinum síð- ustu árum gefið óyggjandi sannanir þess, að hugmyndir þeirra um þjóðsæmd taka æ betur að sæma lærisveinum friðarins höfðingja. Þær hafa sýnt á hreinan og óbrotinn hátt í verk- inu, að sigur á vopnaþingi er miklu minna virði en sigur rjettlætisins, og að þær álíti frið- samlega gerðardóma vera miklu skynsamlegri og sannkristilegri aðferð til að jafna mál manna og þjóða, en leikslok ófriðar og handalögmáls. En það sem England og Ameríka liugsa í dag um slík málefni, það hugsa allar þjóðir á morg- un. Ef dagur allsherjarfriðar er eigi þegar kominn, þá er hann vissulega i nánd. Og hann kemur þvi fyr, sem vjer flýtum oss het- ur að útrýma heiðnum og fornum kleypidóm- um — (M. J.J. Safnaðarfundur í Reylgarík 25. þ. m. hafði til meðferðar 3 mál, og var þeim öllum visað frá. Á fundinn komu hátt á 2. hundrað manna alls. Fyrsta málið var, með hvaða kjörum söfnuðurinn vildi taka að sjer umsjón og fjárhald kirlgunnar i Reykjavík (sam- kvæmt ályktun alþingis 1885 viðvíkjandi lands-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.