Þjóðólfur - 14.01.1887, Page 4

Þjóðólfur - 14.01.1887, Page 4
8 Af þessu fje hefur landshöfð- ingj. verið fengið í hendur 126434,16 Sent sýslum. E. Thorlaciusi á Seyðisfirði til útbýtingar handa þeim, sem biðu tjón af snjóflóðinu................. 10000,00 Keypt og sent til ísl., auk áður nefndra matvæla, 9456 tn. af rúgi, 305 tn. bankab., 800 sekkir hveitiúrsigtis, 430 sekkir afrúgúrsigti, 742 bagg- ar eða 95902 pd. heys, sem kostaði alls................. 144467,91 Flutnings-og ábyrgðargjald 46080,68 Auglýsingar, burðargjald og málþráðarbrjef..................1371,21 Útgjöld á íslandi við mót- töku á vörunum .... 3465,92 Eptirstöðvar..................1193,52 Alls kr. 333013,40 Áðurnefndar eptirstöðvar sem eru i Privatbankanum, verða fengnar lands- höfðingja til umráða, þegar frá þeim hafa verið dregin ýms útgjöld við prent- un á þessari skýrslu. Kaupmannahöfn 23. okt. 1886. J.P.T.Bryde. HansA.Clausen. W.Fischer. L. P. Holmblad. H. T. Mohr“. Það er vonandi, að landshöfðingi og önnur yfirvöld, sem hafa fengið þetta mikla gjafafje til umráða og útbýting- ar, gefi nákvæma skýrslu um hvernig fjenu hefur verið varið, hvað mikið sje nú eptir af því og hvernig eigi að fara með það. Isafold var í fyrra dag mikið að hæla sjer fyrir friðsemi og sakleysi, jafnvel jiðtt hverj- um, sem les ísafold, sje kunnugt um, að hún getur, ekki síður en önnur blöð, lagt af sjer petta friðsemis- og sakleysisgerfi, þegar henni hýður svo við að horfa, sem er ekki láandi, þeg- ar ástæða er til þess. Menn muna víst t. a. m., hvað ísafold sagði um ýmsa menn sumarið 1883, hvað hún sagði um opinberu auglýsing- arnar og Suðra, er hann fjekk þær. Þá var nú sá gállinn á henni að kalla Suðra „útvalið ker stjðrnarinnarog embættislýðsins reykvíkska“. Það mun og minnisstætt, hvað hún sagði út af bæjarstjórnarkosningunni í Beykjavík hjer um árið, hvernig hún í sumar sem leið seild- ist frá skriðunum á Kjalarnesi til eiganda Brautarholtsins og eiganda Bsjubergs, hvernig hún heilsaði Þjððviljanum í vetur o. s. frv. — Þar sem nú ísafold í fyrra dag samt sem áð- ur var að hæla sjer fyrir óáreitni og friðsemi er næsta undandarlegt, að hún upp úr því miðju skuli fara að áreita ritstjóra Þjððólfs og bera út um hann ósannindi. Meðal annars, sem vjer getum látið ísafold nöldra um við sjálfa sig, segir hún, að ritstjóri Þjóðólfs hafi tekið „að sæta hverju færi til tiletnislausrar á- reitni við ritstjóra ísafoldar11. Plestum mundi hafa þótt eiga við, að tilnefna einhver dæmi þessu til sönnunar, en það gerði ísafold ekki, enda er lesendum Þjóðólfs kunnnugtum, hversu þessi orð hennar eru tilhæfulaus. Þeir geta sjálfir borið um, hvort það var t. a. m. að á- stæðulausu, að Þjóðólfur mótmælti því, er ísa- fold var að ámæla alþingi fyrir ofmikla hörku við stjórnina o. s. frv. — ísafold segir enn fremur,’ að ritstjóri Þjóðólfs „hafi gert fleiri en eina tilraun til að ná sjálfur kaupum á Suðra árið sem leið“ o. s. frv. Þessi orð lýsum vjer ósannindi og skorum á ritstjóra ísafoldar, að tilgreina sögumanninn tyrir þeim. Þaðer„jafn- gott þótt allmenningur viti“, hver liann er. Brautarlioltið. í 37. bl. ísafoldar f. á. eru höfð ýms ósæmi- leg orð um eiganda Brautarholts, og eru þau þar lögð í munn einhverjum bændum á Kjal- arnesi; en jeg verð reyndar að ætla það ó- sannindi ein, að nokkur bóndi sje þar, sem kannist við að hafa haft þau orð. Jeg held, að hver bóndi á Kjalarnesi frábiðji sjer að láta eigna sjer þau ummæli, að hann óskaði allri Brautarholtseign (sjálfsagt með okkur öll- um á, sem á henni búum) út í hafs auga. Það er mjög ómaklegum og illviljuðum orð- um farið um eiganda jarðarinnar, háyfirdómara Jón Pjetursson í Reykjavik. Það getur hver sagt sjer sjálfur, sem þekkir ljúfmennsku hans og valmennsku. Umlíðunarsamari lánardrott- inn en hann er, mun örðugt að fá, enda mun hann hafa átt miklum vanskilum að mæta ein- att af landsetum sínum, en tekið þeim með ljúf- mennsku og umburðarlyndi, en ekki hörku eða eptirgangsmunum. Þetta er satt og þess er ekki síður verðugt að geta, en að breiða út um hann ó- sannar misendis sögur.. Því ósatt er það, að tveir af ábúendum hafi verið „útvegaðir“ vest- aji af landi. Og eigi sá, sem þetta skrifar, enga meri, eins og ísafold lætur Kjalarnes-bónda segja, þá hefur hann aldiei sótt merarlán enn til nokkurs Kjalnesings. Af okkur landsetum sínum á Jón Pjetursson það skilið, að við unnum honum sannmælis um þá mannúð og umlíðun, sem hann sýnir okkur, og að við látum ekki ómótmæltan óhróður um hann, sem eignaður kann að vera einhverjum Kjalnesing, en sem jeg skoða svo sem enginn Kjalnesingur vilji vera þekktur fyrir, heldur blygðist sín fyrir. Einn af ábúendum á Brautarholtstorfunni. AUGLYSINGAR Sá rnaður, sem sunnudagskveldið 9. þ. m. var staddur hjá mjer og fór inn í stofuna, þar sem eigi var búið að kveykja, og tók þar loðna húfu, sem lá þar, er vinsamlega beðinn að skila henni aptur og borga þessa auglýsingu, þar eð húfan verður annars sótt til hans, en það gæti orðið honum miður þægilegt. 11 , J. E. Jtnsen. Sunnudaginn liinn 16. þ. m. heldur Lárus Jóhannsson fyrirlestur í dómkirkjunni kl. 5 e. m. Tnnihaldið verður einkum áhrærandi ung- ar stúlkur. 12 Nú hef jeg nýlega fengið nóg efni til að búa til úr hinn alþekkta, góða vatnsstígvjela- áburð minn, er jeg sel nokkuð ódýrari en < áður, af þvi að jeg hef fengið efni i samsetn- inguna nokkru ódýrara en í fyrra. — Það er ómissandi fyrir þá, sem vilja liirða vel um stíg- vjel sín, að kaupa þennan áburð, því að stíg- vjelin endast miklu lengur, ef þau eru iðulega smurð með þessum góða áburði frá mjer. Reykjavík 16. des. ’86. ltafn Sigurðsson. i8 ‘ Tan nlæknir. Hjer með leyfi jeg mjer að tjá mönnum, að jeg ætla mjerað dvelja nokkra mánuði í Reykja- vík, og að jeg tek að mjer tannlækningar, án t þess að draga tennurnar út, með þvi að fylla holar tennur (Plombering), hreinsa tennur, setja í menn Amerikanskar glerungs- (Emaille) tenn- ur af beztu tegund og koma reglu á tanntökn hjá börnum. Auk alls konar tannlækninga tek jeg enn fremur að mjer lækning á allskonar munnsjúkdómum. O. Nickolin cand. pharm., tannlæknir. 14 Þar eð enginn enn hefur gefið sig fram, seffl hafandi sjeð eða fundið rauðan hest með mark- inu: fj. og biti apt. vinstra, sem jeg áður hef 1 lýst eptir í blöðunum Þjóðólfi og ísafold, þá vil jeg hjer með enn að nýju biðja hvern og ‘ einn, sem sæi, fyndi eða hitti hest þennan, að gera mjer aðvart sem allra fyrst. Reykjavík 13. jan. 1887. G. Zo'éga. 15 Fjármark Þórarins Fjeldsteðs á ökrum á Mýrum er: sneitt og biti framan liægra, biti fr. vinstra; brennim.: Þ. F. og mynd af öxi. 1® * C. B. Lohrer i Kjobenhavn' etableret 1852 Commission, Spedition, Agentur & Incasso. Sort® & kulörte Bogtrykfarver & Fernis; ValsemassCi samt alle Slags Lakfernisser fra Christopl1 Schramm í Offenbach a/M. Malerfarver, Lim & Schellac etc. anbefales. l^ Eigandi og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson, cand. phil. Skrifstofa: á Bakarastíg. > Prentari: Sigm. Guðmundsson.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.