Þjóðólfur - 18.11.1887, Side 3

Þjóðólfur - 18.11.1887, Side 3
207 andi, að rjettvisin sýni í þessu máli, að hún beri nafn með rentu og geri sitt ýtrasta til að komast fyrir, hver sje valdur að þessum ófögnuði. Fiskibrot Frakka. Málið út af fiskibroti Frakka, er Hákön i Staf- uesi kærði síðastl. vor og talað var um í síðasta bl., er enn eigi komiðtil landshöfðingja. Frá sýslumanninum í Giullbringu- og Kjósar-sýslu hafði það verið sent til amtmanns, en hann sendi það til baka, til að fá nákvæm- ari skýrslur um það, einkum viðvíkj- andi þvi, hve langt sje í land af miðinu, þar sem skip Frakka var að fiska, til þess að víst væri, að það hefði verið í landhelgi. — Innan skamms verður málið að líkindum sent landshöfðingja, sem sendir það ráðgjafa; þaðan gengur það til utan- rikisstjórnarinnar í Danmörku, og það- an til Frakklands, svo að eigi er hægt að vonast eptir úrslitum málsins fyr- ir það fyrsta, ekki sízt fyrst því hef- ur legazt svo lengi fyrsta áfangann. Maður varð úti hjer fyrir sunnan f.lörnina á sunnudagskveldið var, vinnu- ruaður frá Skildinganeskoti, á heimleið bjeðan úr bænum, ekki algáður. lifnaðarhættir Depretis. Depretis, ráða- aeytisforseti ítala, sem ljest í sumar, lifði m.jög' sparlega. Þegar Georg, konungur Grikkja, kom til Rómaborgar árið 1876, var Depretis sjfikur og bað þess vegna einn af em- bættisbræðrura sínum, að taka mðti konungin- UrD- Konungurinn heimsótti samt sem áður Depretis og hitti hann í herbergi, sem hann leigði fyrir 5 tranka um mánuðinn. Þetta herbergi var ekki öllu betra, en venjulegt stú- dentaherbergi. Þetta var bústaður ráðaneytis- forsetans. Nálægt rúminu, sem Depretis lá í, stóð harður sóíi og nokkrir stólar, sem allt var l>akið bókum, pappír, teikningum, handritum o. s- frv., allt hvað innan um annað. Þarna tók Depretis móti Grikkja konungi. Þegar Depretis seinna kvongaðist, fjekk hanu sjer stæíri en öaumast veglegri bústað, og bjó mörg ár í nr. 3 við yia Nazionale. Hann var 63 ára gam- er hann gekk að eiga Amalíu Florer, sem hafði mikil áhrif á hann og gerði honum líflð þægilegra, en hann hjelt samt sem áður áfram að lifa mjög sparlega. Að morgunverði hafði hann t. a. m. 2 egg, brauð, smjör, ost og eitt glas at marsaga, og pessa neytti hann standandi við skrifborðíð sitt. Þeg- ar hann kom til búgarðs síus Stradella, hugs- aði hann aldrei um, að panta fyrir fram mál- tíð handa sjer, eða hafa með sjer mat, og er bændurnir á búgarðinum urðu vandræðafullir ir út af þessu, sagði hann hlægjandi: „Hafið þjer ekki dálítið af ávöxtum, egg og brauð, meira jiarf jeg ekki“. — Hann hafði mjög langt skegg, sem var alþekkt íEðmaborgog um það var eigi að eins mikið talað manna á milli, held- ur var einnig gefið út rit um það, sem nefnd- ist II Barbabianca (hvita skeggið). Alkunnir voru einnig rauðu og bláu vasaklútarnir hans, sem hann tók upp, þegar hann var kom- inn í ræðustólinn, breiddi úr þeim, hristi, brúk- aði og lagði síðan saman, allt með mestu ná- kvæmni. Eignir hans í Stradella gengu sí og æ úr sjer, með því að hann var eigi góður bú- höldur og hafði eigi vit á landbúnaði. Fað- ir hans, sem var góður búhöldur, andvarpaði opt yflr því og sagði: „Það er mikil ógæfa, Agostino hefði átt að geta orðið góður bóndi, en hefur að eins getað komist svo langt, að verða þingmaður. Hvað ætli verði úr po’.itik- inni“ ? Það varð það úr henni, að hún gerði hann að ráðaneytisforseta ættjarðar sinnar. — Það eru hafðar margar setningar eptir Depret- is og margar smásögur um hann. I 40 ár fjekkst hann við stjórnmál, og er hann eigi var ráðgjafi, var hann jafnan í mótstöðuflokkn- um, og einu sinni sagðihann: „Menn verða að skipta um ráðgjafa eins og skyrtur“. — Einu sinni, er hann var ráðaneytisforseti, álasaði hann ritstjóra við stjórnarblað eitt fyrir að blaðið væri eigi nógu fitbreitt og því væri illa stjórnað. Ritstjórinn sagði, að menn vildu heldur blöð mótstöðuflokksins. „Jæja, þá það“, sagði Depretis, „skrifaðu þá skammir um mig“. Hann ljet aldrei höfða mál gegn nokkru blaði, jafnvel þó að enginn stjórnvitringur í Evrópu hafi, ef til vill, verið skammaður í blöðunum jafnmikið og hann. Opt reyndu þingmennimir að gera hann reiðan á þinginu, en hann ljet það aldrei á sig fá, og svaraði annað hvort með fyndni, sem kom mönnum til að hlægja, eða liann að eins^ ypti öxlum. Einu sinni fauk þó i hann, þegar Stella kom með brígslanir gegn honum persónulega, og talaði um, að hann hefði ver'ið hermálaráðgjafi, er ítalir biðu ósig- urinn við Lissa. „Já, það veit jeg vel“, svar- aði Depretis, „en í hvaða afkyma faldi þing- maðurinn Stella sig þá um það leyti“ ? Fjarskaleg vangá. í sumar sem leið var stúlku einni í Warschau ílt í öðru auganu, og mátti búast við, að hún fengi sama sjúkdóm í hitt augað, ef ekkert væri aðgert. Læknir einn ásetti sjer því að taka veika augað burt og svæfði stúlkuna á meðan, en í stað þess tók hann heilbrigða augað burt, og varð ekki var við það fyr en stúlkan raknaði aptur við. Lækn- inum varð svo mikið um þetta, að hann flýði burt og hefur eigi spurst til hans síðan. Sú saga gengur, að líkt atvik hafi átt sjer stað hjer á landi, og þegar læknirinn varð þess var, hafi hann sagt. „Ó, garmurinn, blindur á báðum augum“. Maura regn. í borginni Nancy við landa- mæri Frakklands, sást einu sinni í sumar allt í einu eins og dimman skýflóka drægi yfir borgina, sem færðist nær og nær og fjell svo niður á hús og götur borgarinnar. Þetta voru þá maurar, sem ringdi niður úr loptinu, ogúði nú og grúði af þeim alstaðar í borginni. Án þess að vita, hvernig á þessu stóð, ætla menu að það standi í sambandi við storm, sem þar hafði geysað og var ný afstaðinn. Nafnið „Eskimði" eða „Eesquimaux“ er tekið úr hinni algonquinsku tungu og þýðir þann sem etur hrátt kjöt. Sjálfirkalla þeir sig Inuit sem er þjóðin. Skrælinga nafnið tengu þeir, þegar íslendingar tóku byggð á Grænlandi 886. Fyi’irspurnir. 1. Hvort eigum við heldur bændurnir, sem búum á meiri eða minni jarðarpörtum, að gjalda þeim þrem tíundartökurum, presti, kirkju og fátækum 8/4 álnar eða 2/» álnar af hverju á- búðarhundraði til jafnra skipta milli þeírra, og hver eru helztu lög um það efni? 2. Eru ekki prestar og ekkjur þeirra sömu lögum háðir, sem aðrar stjettir landsins, að þvi er snertir sveitfesti? 3. Ef þeir (prestarnir) i sveitum koma til brauðs j fardögum og taka jörð til ábuðar, verð- ur þá ekki að telja hreppslielgi þeirra frá far- dögum til fardaga 10. árið? 4. Nú deyr prestur t. a. m. i apríl 10. ár- ið, hefur hann þá unnið sjer og sínum þar hreppshelgi eða ekki? Svör. Um 1. Tíuud af fasteign (jörðum) er eigi jöfn af öllum jarðarhúndruðunum; þannig er tíund til hvers af áðurnefndum þrem tíundar- tökurum af % hundraði */4 álnar, af 1 hdr. V2 al., af 2 hndr. 8/4 áln., af 3 hndr. 1 al.,af 4 hdr., 1V4 ál., af 5 hndr. 1 ’/3 al., af 6 hndr. 2 álu., af 7 hdr. 2’/4 ál., af 8 hdr. 2Va al., af 9 hdr. 28/4 ál., af 10 hndr. 3 áln., af 11 hndr. 3’/2 al.; með öðrum orðuin af hverju jarðarhundraði er skiptitíund- in V4 álnar, nema af 1. hundraðinu og af 1. hundraðinu yfir hver 5 hndr. (þ. e. 6., 11., 16., 21., 26., 31., 36. 0. s. frv.); af þeim hundruðum er goldin ‘/2 al. — Þannig verðnr t. a. m. skiptitíund, af 30 hndr. 9 áln., af 41 hndr. 12'/a al. 0. s. frv. Helztu lagaboð um tíund eru kristinnrjettur Árna biskups og reglugjörð 17. júlí 1782, svo er og sumt í tíundinni byggt á gamalli venju, sbr. Kirkjurjett Jóns Pjetursson- ar bls. 167. — Annars viljum vjer ráðleggja mönnum, sem þurfa að kynna sjer gjöld til prests og kirkju, að fá sjer Yiðskiptabðk við prest og kirkju lijá bóksala Sigurði Kristjáns- syni. Um 2. Jú. Um 3. Jú. Um 4. Með því að 10 ára dvöl samfleytt í sama hreppi, þarf til þess að ávinna sjer fram- 1

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.